Dagblaðið - 20.05.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 20.05.1977, Blaðsíða 1
3. ARG. — FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1977 — 111. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLÁ 12, AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11,* AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 - _ AÐALSÍMI 27022 Skyndiverkföll gætu stöðvað samningana Vinnuveitendur vilja ekki semja meðan þeim helduráfram Skyndiverkföll VR í dag? Nú er komin upp sú staða að skyndiverkföll í dag kynnu að stöðva allar samningaviðræður í vinnudeilunni. Undir miðnætti i gærkvöldi, á sáttá- fundi þá, lýsti aðalsamninga- nefnd Vinnuveitendasambands íslands því yfir við sáttanefnd ríkisins að hún teldi ekki fært að halda áram samningaumleit- unum ef áframhald yrði á ólög- legum skyndiverkföllum. Lýsti samninganefnd VSÍ allri ábyrgð á hendur þeim forystumönnum verkalýðs- félaga innan ASÍ sem að þessum aðgerðum standa, tefjist samningagerð af framan- greindum ástæðum. Blaðið fregnaði ígær að VR, eða a.m.k. deildir ínnan þess, fyrirhuguðu skyndiverkföll eftir hádegi í dag en það hefur ekki fengizt staðfest fremur en fregnir af undangengnum skyndiverkföllum. Hins vegar er öruggt að einhver skyndi- verkföll voru fyrirhuguó í dag hvort sem yfirlýsing VSÍ mun breytta þeirri fyrirætlan. G.S. Bílstjórar Samsölunnar koma af fundinum í morgun. PB-mynd Sv. Þ. Mjólkurútkeyrsla stöðvuð ímorgun — ekki skæruverkf all heldur mótmæli Mjólkurbílstjórar samsöl- unnar hófu ekki útkeyrslu á mjólk eða öðrum afurðum i morgun kl. 7 eins og venja er. Bílstjórarnir eru með þessu að mótmæla því sem þeir telja brot sölustjóra samsölunnar á yfirvinnuhanninu. Fundir út af þessum mótmælaaðgerðum mjólkurbilstjóra voru haldnir í morgun. Hafði samkomulag enn ekki náðst um útkeyrslu skömmu fyrir kl. 10 í morgun en þá hafði slitnað upp úr við- ræðum. Annar fundur var boðaður kl. 10. Yfirvinnubannið hefur haft þau áhrif að undanförnu að afgreiðsla á mjólkurafurðum hefur ekki verið með sama hætti og annars hefur verið. Ekki hefur þó komið til alvar- legrar þurrðar á þessum vörum til þessa. keýpt verulegt mjólkurmagn úr sölubúð Mjólkursamsöl- unnar við Laugaveg undan- farna daga. Þetta telja bíl- stjórarnir brot á samkomulagi um að framfylgja yfirvinnu- banninu. Telja þeir að yfir- menn samsölunnar hafi átt að koma í veg fyrir þessa af- greiðslu þar sem hún sé brot á gerðu samkomulagi. Þegar blaðið fór i prentun var ekki ljóst hvort samkomu- lag næðist um að útkeyrsla yrði hafin aftur í dag. Bílstjóri, sem DB hafði samband við, tók það fram að hér væri ekki skæruverkfall á ferðinni heldur ákveðin mótmæli gegn broti á gerðu samkomulagi sem ylli því að yfirvinnu- bannið hefði ekki tilætluð áhrif. BS 8000 dollurum stolið f rá f erðamanni í svefn- pokahóteli íReykjavík Utlendingur sem hingað kom á miðvikudaginn og ætlaði að hafa hér einnar nætur viðdvöl situr nú og sýtir ófarir sínar. Hann hafði, er hann kom, í fórum sínum ferðatékka.samtals að upphæð 8000 dollara, eða rúmlega hálfa aðra milljón íslenzkra króna. Samt timdi hann ekki að fá sér hótelherbergi, en fékk sér svefnpokapláss inni í borginni. Hann lagði pjönkur sínar á rúmbálkinn og fór síðan i skoðunarferð um Reykjavik. Er hann kom aftur var búið að stela ferðatékkablokkinni úr tösku hans. Er þetta sérstæða mál nú í rannsókn. Allir ferðatékkarnir eru út-' gefniraf Ameriean Express. -ASt. ,,Já, ennnnnn.“. „Það þýðir ekkert „jáenn“, þetta gengur ekki.“ Lögreglumaðurinn ungi átti í höggi við létt-mildan viðskiptavin í heitavatnsskurðinum Moldá, eða Volgu, hvort nafnið sem verður nú látið ráða. Það var i gærkvöldi og maðurinn var að brjóta gegn landsins “igummeð þvi að særa blygðunarsemi samborgara sinna. Borgarráð hefur sem kunn- ugt er samþykkt að gera Volgu (Moldá) að almennum baðstað og þá verður væntanlega fátitt að atvik sem þessi gerist suður í Nauthols- vik. DB-m.vnd Sveinn Þormóðsson — Reikningsmeistarar um sáttatillöguna: 1% meiri kaup- máttaraukningen VSÍhafði boðið Blaðið hefur þær upplýsing- ar úr röðum launþega að sátta- tillaga sáttasemjara ríkisins, sem lögð var fram á miðviku- dag, geri ráð fyrir 1% meiri kaupmáttaraukningu að með- altali, en vinnuveitendur voru þegar búnir að bjóða. ASÍ og Vinnumálasamband SlS, sem er vinnuveitandi, hafa bæði fallizt á þessa tillögu sem viðræðugrundvöll, með fyrir- vara um nokkur minniháttar atriði, en Vinnuveitendasam- band fslands hefur hins vegar hafnað tillögunni. Spá um þróun kjaramála skv. tillögu sáttanefndar ríkisins gerir ráð fyrir 58% kauphækkun á samningstíma- bilinu 1. maí í ár til 1. nóvember 1978 og 12% kaup- máttaraukningu. Er hér miðað við 100 þús. kr. mánaðarlaun 1. maí sl. Miðað við þetta verður árs- meðaltalskauphækkun milli áranna ’76 og ’77 36% og 4% kaupmáttaraukning og á milli áranna ’77 til ’78 31% kaup- hækkun og 6% kaupmáttar- aukning. Hjá þeim, sem hafa 70 þús. kr. laun 1. maí er reiknað með meiri hækkunum eða 73% kauphækkun á sajnningstiman- um og 21% kaupmftttar- aukningu. -G.S. Hlaömenn lögðu niðurvinnu: Faxarnir stöðvuðust — baksíða

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.