Dagblaðið - 20.05.1977, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 20.05.1977, Blaðsíða 28
Fresta sjómenn verk- fóllum til áramótanna? —tel ja samningsaðstöðuna vonlausa — verkfallið verði dregið á langinn til að þorskaf linn fari ekki yfir 275 þús. tonn Sjómenn hafa að undanförnu verið að afla sér verkfallsheim- ilda en nú síðustu daga bendir æ fleira til að þeir muni fresta verkföllum, jafnvel til áramóta. Á fundum sem haldnir hafa verið undanfarið til öflunar heimildanna, hefur staðan til verkfalla verið mjög til um- ræðu. Vetrarvertíð og loðnuver- tíð er 'nú lokið og i hönd fer daufasti tími ársins, nema þá hjá togurunum. Sýnist mönnum því ljóst að útgerðarmenn muni ekki leggja mikið kapp á skjóta lausn vinnudeilunnar. Ennfremur telja sjómenn að ríkisstjórnin muni ekki leggja neina áherzlu á að leysa hana í bráð. Er sú hugmynd studd því að með verkfalli muni hún losna við að grípa til einhverra óvinsælla sóknartakmarkana. Það er ljóst að þorskveiðarn- ar muni fara yfir 275 þús. tonn í ár, með sama áframhaldi og nú, en þetta hámark lögðu fiski- fræðingar til. Telja sumir úr þeirra röðum það jafnvel of hátt, einkum með hliðsjón af síðustu vetrarvertíð Þvi telja margir sjómenn nú samningsaðstöðuna vonlausa og vilja fresta samningum til ára- móta, eða þar til vetrar- og loðnuvertíð gengur í garð. -G.S. SKYNDIVERKFALL STÖÐVAÐIINNAN- LANDSFLUG FLUG- LEIÐAÍGÆR Alít innanlandsflug Flug- félagsins stöðvaðist í gær vegna skyndiverkfalls híaðmanna félagsins. Það var því rólegt í biðsölum Flugfélagsins eftir hádegið i gær og úti fyrir biðu 5 Fokker-vélar í röð, verkefna- lausar. Dagblaðsmenn hittu nokkra vaktmenn að máli og grennsl- uðust fyrir um ákvörðun verk- fallsins. Þeir sögðu að ákvörðunin hefði verið tekin í gærmorgun. Allir viðstaddir vaktmenn voru sammála um ákvörðunina. Verkfallið er að sjálfsögðu til þess að leggja áherzlu á kjarabætur, en úrslitaáhrif hafði það, að vélar félagsins voru fylltar af bensini i fyrrakvöld af starfsmönnum Skeljungs, en þeir áttu frí í gær. Síðan voru vélarnar fylltar úti á landi i gærmorgun. „Þegar slíkar aðferðir eru notaðar er sjálfsagt að stoppa flugið." „Við tókum þessa ákvörðun alveg sjálfir og ekki eftir neinni ákvörðun ofan frá. Verkfallið verður bara í dag og það verður eðlileg vinna á morgun. Það verður að koma í ljós síðar, hvort einhver eftir- köst verða. Yfirmenn voru fyrst í stað vondir, en síðan hefur ekkert verið gert.‘‘ Stöðvun Flugfélagsvélanna hafði það í för með sér að álag jókst mikið á litlu flugfélögin. Allt var í fullu fjöri hjá Vængjum og ætluðu þeir að fljúga eins margar ferðir og hægt var í gær. Ferðir voru farnar til Akureyrar, Sauðár- króks og Vestmannaeyja, en þangað fljúga Vængir ekki endranær. Einnig voru áætlaðar fjórar ferðir á Súg- andafjörð í stað einnar með far- þega á leið til lsafjarðar. Flugstöðin áætlaði að fljúga meðan næg verkefni væru fyrir hendi, en þeir sögðu að einn svona dagur breytti þó tiltölu- lega litlu. -JH Flugfélagið Vængir hélt áfram innanlandsflugl sinu i gær enda þótt stóri keppinauturinn yrði að ieggja vélum sinum er hlaðmenn lögðu niður störf. — DB-mynd Bjarnleifur. Skyndiverkfall við afgreiðslu millilandaflugvéla var yfirvofandi á morgun: Frestað vegna utanfarar aldraðra Suðurnesjamanna? „Við skipuleggjum ekki skyndiverkföll," sagði Karl Steinar Guðnason, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, er blaðið spurði hann í morgun hvort skyndi- verkfall hefði verið fyrirhugað við afgreiðslu millilanda- flugvéla á morgun. „Hins vegar spyrst fjöldi verkafólks fyrir um með hvaða hætli unnt sé að þrýsta á gerð samninga og þ.á m. hafa mér borizt fyrirspurnir fólks við þessi störf." sagði hann. Blaðið hefur fregnað að verkafólkið hafi frestað aðgerðum á morgun þar sem fjöldi aldraðra Suðurnesja- manna hyggst þá halda til Spánar til hvíldar og heilsu- bótar. Hefur þessi ferð verið i undirbúningi i allan vetur og hefði hún getað riðlazt öfyrir- sjáanlega ef til sk.vndiverkfalls hefði komið. -G.S. — kviknaði í út f rá logsuðutækjum Eldur kom upp í bílskúr við Nýbýlaveg í Kópavogi um miðjan dag í gær. Kviknað mun hafa í út frá logsuðutækjum, sem verið var að vinna með í skúrnum. Eldur mun fyrst hafa komizt í mótorhjól en smám saman breiddist hann út. Miklar skemmdir urðu á skúrnum og mun allt hafa brunnið í honum sem brunnið gat. Maðurinn sem var að vinna í skúrnum slasaðist nokkuð. Hann hlaut brunasár á hendi og fæti. — KP. PRESTSKOSNING — íEskifjarðar-og Reyðarfjarðarprestakalli Prestskosningar verða á Eskifirði og Reyðarfirði næst- komandi sunnudag hinn 22. maí. Tveir prestar eru í kjöri: Sr. Kolbeinn Þorleifsson og Davíð Baldursson, cand. theol. Ekki hafa tveir prestar verið i kjöri i þessu prestakalli síðan árið 1913 fyrr en nú. Sóknarpresturinn í Eski- fjarðar- og Reyðarfjarðar- prestakalli situr á Eskifirði. Kjörstaðir verða opnaðir kl. 10 árdegis á sunnudag en kosn- ingu lýkur kl. 22. Regina Thor. ELDUR í BÍLSKÚR „Þið svindluðuð á Hreini Halldórssyni” Talsverður ótti greip um sig í brezka sendiráðinu í gær er starfsmenn þar urðu varir við tvo litla pakka á tröppum hússins. Þorðu þeir ekki að snerta pakkana — enda e.t.v. sjálfsagt. Var lögreglan til kvödd og var fljót á staðinn. Þarna var unt að ræða vasa- ljösarafhlöður, sem vafðar voru saman með einangrunarbandi og voru virspottar látnir standa út i loftið. Reyndist þetta með öllu hættulaust. Með pökkunum tveimur fylgdi miði og þar stóð eitthvað á þessa leið: „Þið svindluðuð á Hreini Halldórssyni, helv... ykkar. Þið eruð þorskhausar." Þótti sýnt að þarna var um unglingaærsl að ræða en sendi- ráðsslarfsmönnum stóð ekki á sama um talið um þorskhausana. -ASt. frjálst, áháð daghlað FÖSTUDAGUR 20. MAt 19TL Lyfjum og flug- eldum stolið Lyfjakassar báta hafa löngum verið eftirsóttir munir fingralangra. Rétt eftir hádegið i gær varð þess vart að tollbáturinn örn og hafnsögumannabáturinn Nóri höfðu fengið óboðna gesti í heimsókn. Er grípa* átti til bátanna í gær kom f ljós að lyfjakassinn í Erni var horfinn með öllm innihaldi. í Nóra fékk lyfja-: kassinn að vera um kyrrt, en hann var með öllu tæmdur. Ætla mætti að þjófarnir hafi ætlað að halda veglega upp á að hafa náð í slíkan feng,' því í leiðinni tóku beij; allar flugeldabirgðir sem í Nóra voru. Eru þetta neyðarblys og flugeldar sem notaðir eru t neyðartilfell- um. -ASt. Réðst á fölk með hnífi Mjög mikil ölvun var í miðbæ Reykjavíkur frá hádegi í gær og fram á nótt. Lögreglan hafði nóg að gera við að taka fólk úr umferð og margir fengu gistingu í fangageymslum. Einnig þurfti lögreglan að hafa af- skipti af fólki í heimahúsum vegna öivunar. Lögreglu- menn voru kallaðir til í hús eitt þar sem maður hafði ráðizt á fólk með hnífi. Særði hann konu á hægri hendi. Hún var flutt á slysa- deild og gert þar að sárum hennar. Maðurinn fékk gistingu hjá lögreglunni. -KP SÆRÐIR SJÓMENN TIL EYJA Tveir sjómenn voru í nótt settir á land i Vestmanna- eyjum með blæðandi sár er þeir höfðu hlotið við störf sín á hafi úti. Annar þeirra var af varðskipinu Þór. Hafði hann verið að vinna með hnif og gekk hnífurinn svo illa í fingur hans að ráð-, legra þótti að 'læknir byggi um sárið. Hinn sjómaðurinn var af togaranum Klakki. Hafði hann hrasað í veltingi skipsins og lent á beittu járni. Fékk hann djúpt og slæmt sár í lófa. Hélt skipið þegar til næstu hafnar af þeim sökum. -ASt.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.