Dagblaðið - 20.05.1977, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. KÖSTUDAGUR 20. MAt 1977.
mmiAÐW
fijálst, nhái dagblað
Utgefandi Dagblaöiö hf.
Framkvaamdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson.
Fróttastjóri: Jón Birgir Pótursson. Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar:
Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Simonarson. Afistoðarfróttastjóri Atli Steinarsson. Safn: Jón
Sœvar Baldvinsson. Handrit: Asgrimu' Palsson.
BJafiamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurfisson, Dora Stefánsdóttir, Gissur
Sigurfisson, Hallur Hallsson, Holgi Petursson, Jakob F. Magnússon, Jfinas Haraldsson, Katrín
Pálsdóttir, Olafur Jónsson, Omar Valdimarsson, Ragnar Lár.
Ljósmyndir: Bjarnleifur BiarnUifsson. Hörfiur Vilhiálmsson. Sveinn Þormófisson.
aKrífstotustjórí: Olafur tyjólfsson. Gjaioken: Þrainn Þoríeifsson. Dreifingarstjóri: Már E. M
Halldórsson.
Ritstjóm SíAumúla 12. Afgreifisla Þverholti 2. Áskríftir, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11.
AAalsími blafisins 27022 (10 línur). Askríft 1300 kr. á mánufii innanlands. i lausasölu 70 kr.
eintakifi.
Setning og umbrot: Dagblafiifi og Sieindórsprent hf. Armula 5.
Mynda-og plötugerfi: Hilmir hf. Sífiumúla 12. Prentun: Árvakurhf. Skeifunni 19.
Kerfisriddaramir töpuðu
Úrslit kosninganna í ísrael
eru lærdómsrík fyrir íslend-
inga, einkum kerfismennina hér
á landi. í enn einu ríkinu
hefur tiltölulega rótgróinn
flokkur verið sviptur forystu-
hlutverki vegna spillingar.
Spillingin meðal forystumanna Verkamanna-
flokksins í ísrael og kerfismannanna þar var
gerð lýðum ljós fyrir tilstilli opinnar umræðu
fjölmiðla. Einnig þar hefur áhrifamáttur
frjálsrar fjölmiðlunar vaxið síðustu ár.
Rabin forsætisráðherra baðst lausnar um
páskana, þegar afhjúpað var, að eiginkona hans
hafði haft drjúgar fúlgur í ólöglegum banka-
reikningi í Bandaríkjunum. Þetta mál varð
ekki falið, eins og sennilega hefði gerzt á
íslandi, ef slíkur valdsmaður hefði átt í hlut.
Dómskerfið fór á stúfana af sjálfsdáðum og
rannsakaði málið. Forsætisráðherrann sagði af
sér, þegar hann frétti, að hann yrði kvaddur
fyrir rétt.
Verkamannaflokkurinn reyndi að bjarga
málum. Peres hermáláráðherra tók við emb-
ætti forsætisráðherra, en hann hafði lengi
beðið í skugga Rabins eftir slíku færi. En
hneykslismálin, sem afhjúpuð voru, reyndust
miklu víðtækari, þegar farið var ofan í
saumana. Um svipað leyti höfðu önnur slík
komið á daginn.
Mútumál kerfismanna voru gerð opinber.
Ráðherra, sem hafði brotið af sér sem stjórn-
andi ríkisfyrirtækis, kaus að fremja sjálfsmorð,
en málið vakti ugg almennings. Svo mætti
áfram rekja.
Fjármálaráðuneytið hóf rannsókn á ákærum
á hendur fyrrum utanríkisráðherra og eins
helzta áhrifamanns landsins um langan aldur,
Abba Eban. Ótti greip margan kerfismanninn,
og menn flýttu sér að tæma þá ólöglegu
reikninga sem þeir áttu í erlendum bönkum.
Afstaðan til Araba ræður tvímælalaust miklu
um úrslitin í ísrael, en fjármálahneykslin
kunna að hafa ráðið meiru. Þegar almenningi
varð ljóst, hvaða spillingu tuttugu og níu ára
stöðug stjórnarforysta Verkamannaflokksins
hafði haft í för með sér, leituðu menn að nýjum
forystumönnum.
Þannig komst foringi hægri flokksins, Likud-
bandalagsins, Begin, loks á tindinn, eftir að
hann hafði reynt níu sinnum að velta Verka-
mannaflokknum úr sessi. Nýr flokkur, sem
kallast endurbótasinnuð lýðræðishreyfing og
stefnir að minnkun ríkisvalds, hlaut mikið fylgi
og réð í ýmsu úrslitum í kosningunum, þótt
hún fengi ekki eins mikið fylgi og stóru
flokkarnir tveir.
Ósigur Verkamannaflokksins í kjölfar
hneykslismála minnir á ósigur Frjálsynda
flokksins svokallaða í Japan fyrir skömmu, sem
varð eftir afhjúpun víðtæks hneykslis.
Hann minnir á hinn indverska sigur, þegar
Indiru Gandhi og kongressflokki hennar var
steypt eftir langa valdatíó og í kjölfar valda-
græðgi og spillipgar hins ríkjandi flokks og
kerfismanna hans.
Þossi kosningaúrslit öll ættu að verða
viðvörun til kerfisriddaranna hér á íslandi.
—stærstu peningaf úlgu sem um getur
ísögu Bandaríkjanna
stolið f rá einni manneskju
i Bandaríkjamenn eiga met í
flestu sem hægt er að upphugsa
til að setja met í. Enn einu sinni
hafa-þeir sett met og nú í því að
stela frá einni manneskju
stærstu peningafúlgu sem um
getur í sögu Bandarikjanna.
Þrír menn voru þarna að verki.
Þeir höfðu ekki hugmynd um
að þeir mundu finna svona
mikla peninga í húsi þvi sem
þeir brutust inn i. Mennirnir
ætluðu aðeins að næla sér í
eitthvað verðmætt, eða nokkra
dollara, þetta voru venjulegir
smáþjófar. Þeir fundu ógrynni
af nýjum eitt hundrað doílara
seðlum í húsinu, sem reyndust
vera um sex milljónir dollara,
þegar farið var að telja þá
saman.
..........
Gömul kona með
hvítt hór
Eigandi dollaranna var gömul,
hvíthærð kona, 66 ára að aldri.
Hún var ekkja. Maður hennar
hafði rekið stóran verzlunar-
hring, sem gaf_mikið í aðra
hönd. Hann átti fjárfúlgur í
bönkum þegar hann lézt.
Marjorie Jackson treysti hins’
végar ekki bönkum. Hún tók
það ráð að taka peningana úr
bankanum og geyma þá heima
hjásér.
Þetta hafði þær afleið-
ingar fyrir gömlu konuna. að
hún hlaut bana af, þegar hún
ætlaði að reyna að stöðva inn-
brotsmennina við iðju sína.
Hún fannst ekki fyrr en
nokkrum dögum eftir innbrotii
liggjandi í blóði sínu, látin.
Skýringin á því hve seint komst
upp um innbrotsþjófana var sú
að Marjorie átti enga vini nema
Guð almáttugan. Það má því
segja að sérvizka gömlu kon-
unnar hafi orðið henni að
aldurtila, bæði vantraust
hennar á bönkunum og fólki,
sem hún vildi ekki hafa sam-
skipti við. Henni var einnig
mjög illa við lögregluna og
hringdi aldrei til hennar ef hún
var í vanda stödd.
Þrisvar brotizt inn
í húsið óður
Að minnsta kosti þrisvar
áður hafði verið brotizt inp
„HERJOLFUR
Hvers vegna ekki er ekið inn
að aftan en út að f raman
1 viðtali við framkvæmda-
stjóra, skipstjóra og vélstjóra
nýja Herjólfs, sem birtist á bak-
siðu DB föstudag 6. maí. sl.,
segir m.a. „hönnun skipsins er
ekki eins og bezt verður á kosið
og heppilegra hefði verið að
hafa eitt þilfar í skipinu, en það
hefði síðan verið opið í báða
enda, ekið inn að aftan en út að
framar". Hér er hréyft við at-
riði sem að sjálfsögðu kom til
tals strax í upphafi við hönn-
um skipsins, en þetta er aðeins
eitt af fjöldamörgum atriðum
sem taka varð til athugunar. Að
sjálfsögðu hefur það ýmsa aug-
ljósa kosti að geta ekið bif-
reiðum beint i gegnum ferjur
og þetta er mjög algengt á ferj-
um sem sigla stuttar leiðir,
einkanlega ef uni er að ræða
siglingu innan fjarða eða i vari
á annan hátt.
Þegar gerð voru fyrstu frum-
drög að Herjólfi nýja, þá var að
sjálfsögðu metin flutningaþörf
fyrir bíla og fyrir fólk. Far-
þegarými var miðað við salar-
kynni aðallega fyrir stuttar
ferðir, en að farþegar ættu þess
kost að vera i klefum líka.
Stærð skipsins skyldi þó ekki