Dagblaðið - 23.05.1977, Qupperneq 3
DACHLAÐIÐ. M ANUDAC.UR 23, MAÍ 1977.
3
HUSIÐ
GRETTISGÖTli 46 • REYKJAVÍK • SÍMI 25580.
Verzlunin flytur í Bankastræti 14 a
Það væri nær að kenna
nemendunum að nota
að komast í
Árbæinn en
áður virtist
Pétur Urbancic hringdi:
Pétur vildi taka það fram
vegna skrifa H.T. í DB 11. maí
sl. þar sem H.T. kvartar yfir því
að erfitt sé að komast með SVR
i Árbæjarhverfi á kvöldin og
um helgar, að leiðir 2 og 5 eru
mun heppilegri gagnvart leið
10 á kvöldin en leiðir 3,4 og 6.
Ef leiðir 2 og 5 eru notaðar úr
vesturbæ þarf aðeins að bíða í 7
til 10 mínútur eftir leið 10 í stað
20-25 mínútna ef hinir
vagnarnir eru notaðir.
Ánægðir
með
ákvörðun
borgarráðs
Við undirritaðir viljum lýsa
ánægju okkar yfir afgreiðslu
borgarráðs á lækjarmálinu svo-
kallaða. Við höfum stundaó
þessa heilsulind á hverjum
einasta degi í langan tíma
ásamt fjölda fólks sem mætir
þarna og nýtur útiveru og heita
vatnsins í rikum mæli. Við
lækjarunnendur viljum alls
ekki slæma umgengni við
lækinn enda höfum við bæði
reynt að halda honum hreinum
sem og umhverfinu. Með
réttum ráðstöfunum verður
þetta áfram öllum til ánægju og
heilsubótar.
Þökk sé borgarráði.
Pálmi Gunnarson,
Birgir Hrafnsson,
Sigurður Karlsson,
Bjarni Harðarson,
Páll Arsælsson.
tolvurnar
— heldur en að banna notkun þeirra í
reikningstíma
Leið 2 hentar vesturbæingum
Arbæjarvagninn.
Auðveldara
vel ef þeir þurfa að komast í veg fyrir
Anna skrifar:
Sonur minn, sem hefur
verið í 1. bekk gagnfræðaskóla í
vetur, fékk litla vasatölvu í
jólagjöf. Hann þóttist nú
heldur en ekki góður og sá
fram á að reikningstímarnir
yrðu hreinasti sæludraumur
eftir að hafa eignazt tölvu.
Þá brá svo undarlega við að í
þeim bekk, sem hann er í, —
getur verið að það séu ekki alls
staðar sömu reglur? — er
bannað að nota vasatölvur í
reikningstímum!
Það má aftur á móti nota þær
í eðlisfræðitímum, — eðlis-
fræðikennarinn virðist vera
eitthvað nær í tíma og rúmi
heldur en reikningskennarinn.
Væri ekki miklu nær að
kenna nemendunum að nota’
vasatölvurnar til þess að af
þeim megi hafa sem mest gagn?
Mér finnst svona álíka bjána-
legt að banna notkun vasatölv-
unnar í reikningstíma eins og
nemendunum væri bannað að
skrifa á rafmagnsritvél.
Ég hefði haldið að aðalatriðið
væri að nemendurnir kynnu
reikningsaðferðina, — en ekki
að þeir væru að eyða dýrmæt-
um tíma i langa útreikninga
með hefðbundnum aðferðum.
Krakkar i 1. bekk í gagnfræða-
skóla ættu að vera búnir að fá
nægilega leikni í flóknu
útreikningunum á gamla
mátann.
Þegar út í lífið kemur er ekki
lengur notaður hugar-
reikningur eða útreikningar á
blaði. Allt er unnið með tölvum
og vélum nú til dags. Þess
vegna ætti auðvitað að leggja
áherzlu á að kenna krökkum að
nota þessi tæki eins fljótt og
þeir eru færir um að læra á
þau.
Lygilega lagt verö
fyrir nýlegar, góóar
vörur. Allt aó 80/
áfsláttur.
so
aiNðttw
o
o
Raddir
lesenda
Umsjón:
Jónas Haraldsson
Ert þú flughrœdd(ur)?
Fólk í biðsal Fiugfélags fslands
spurt.
Stefán Gunnarsson sjómaður, á
leið til Vestmannaeyja. — Nei,
alls ekki. Ég hef gaman af flugi og
hef aldrei fundið til hræðslu.
Eydís Ólafsdóttir húsmóðir, að
bíða eftir vél frá Eyjum. — Já, ég
er flughrædd og það lýsir sér með
titringi og skjálfta og oft
uppköstum eftir lendingu. Ég hef
mest flogið til Eyja og það er nú
yfirleitt ekki gott að fljúga
þangað.
Guðrún Halla Jónsdottir af-
greiðslustúlka, á leið til Vest-
mannaeyja. — Nei, alls'ekki. Ég
er frekar sjóhrædd ef eitthvað er.
Sigrún Ragnarsdóttir nusmooir, a
leið til Vestmannaeyja. — Nei,
aldrei fundið fyrir því. Aftur á
móti hef ég ekki hugsað út í það
hvort það er sérstaklega gaman að
fljúga.
Björn Oddsson sjómaður,
nýkominn frá Eyjum. — Nei, það
er alveg útilokað að ég hafi
nokkurn tímann fundið fyrir flug-
hræðslu.
Erla Andrésdóttir, húsmóðir, að
koma frá E.vjum. — Nei, alls ekki.
Það var þó ekki gott að fljúga
áðan. Það hristist allt og skalf.