Dagblaðið - 23.05.1977, Síða 14
14
DAfiBLAÐIÐ. MÁNUDAGILE 23. MAt 1Q77.
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttír
Iþróttir
Standard í þriðja sæti
- Union sigraði Eisden
Standard sigraði Ostende 4-0 og Union sigraði Eisden 2-1 í
Brussel í úrslitakeppni 2. deildar
Royale Union byrjadi vei
keppnina um 1. deildarsætið sem
laust er. Union var eina liðið sem
bar sigur úr býtum í gær —
sigraði Patro Eisden 2-1 í
Brussei. í La Louviere skiidu
heimamenn og Waterschei jöfn
— 1-1. Þessi fjögur lið berjast um
lausa sætið í 1. deild næsta
keppnistímabil.
Standard Liege tryggði sér sæti
í UEFA-keppninni næsta tímabil
með góðum sigri, 4-0 gegn
Óstende í Liege. Þessi sigur gaf
þriðja sætið — þar sem Ander-
lecht sigraði Molenbeek 2-1.
Standard hlaut 45 stig — en
meistarar urðu FC Brugge með 52
stig. Anderlecht hafnaði í öðru
sæti með 48 stig, Standard 45 stig
og Molenbeek 44 stig.
En áður en við höldum lengra
skulum við líta á úrslit leikja í
Belgíu í gær:
Markvörður Reynis, Arskógsströnd, slær knottinn yftr mark sttt
leiknum í Keflavík. Ljósmynd emm.
Sandgerðingar sterkari
í viðureign nafnanna!
— í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu
Keflavíkurvöllur, Il-deild,
Reynir, Sand. Reynir, Arsk. 3:1
(2:1).
Nafnarnir í II-deildinni,
Reynir úr Sandgerði og Reynir
af Arskógsströnd, „reyndu“ með
sér á malarvellinum í Keflavík á
laugardaginn. Leikurinn átti að
fara fram í Sandgerði samkvæmt
leikjabókinni en völlurinn þar er
í endurnýjun svo ekki var hægt
að leika þar. Þrátt fyrir þennan
hlutlausa völl báru Sandgerð-
ingar sigur úr býtum með þremur
mörkum gegn einu norðanmanna
með þá Magnús Jónatansson,
áður ÍBA, og Björgvin
Gunnlaugsson, sem í eina tíð lék
með ÍBK, í fararbroddi.
Norðanmenn voru samt fyrri til
að skora. Sandgerðingar, sem
léku gegn nokkrum vindstrekk-
IrDataGeneral
Höfum gerst umboðsmenn fyrir
DATA GENERAL tölvusamstœður.
Sérfœðingur fró DATA
GENERAL verður staddur
hér ó landi í byrjun
ncestu viku.
VlnsamlcRasl haflð samband vlð okkur
slrax cf ðskað cr cftlr nánarl upplýs-
ineum. _______
Shrifoélin hí
Box 1232. Suðurlandsbraut 12,
Reykjavik, sími 85277.
ingi fyrri hálfleikinn, voru mjög
taugaóstyrkir og varla heil brú í
leik þeirra lengi framan af, en
norðanmenn voru því ákafari og
það tók þá ekki nema fjórar
mínútur að koma knettinum I
netið. Jóhann Bjarnason, fylgdi
vel og náði knettinum frá „frosn-
um“ markverði Sandgerðinga og
sendi örugglega í markið.
En lánið lék ekki við norðan-
menn, — þrátt fyrir stöðuga sókn
þeirra svo til allan fyrri hálfleik
höfðu Sandgerðingar komist
marki yfir áður en blásið var til
leikhlés. Um miðjan hálfleik elti
Pétur Sveinsson knöttinn fram að
endamörkum, rétt utan vítateigs-
linu, meira af skyldurækni en
von, — markvörður norðanmanna
átti þar meiri möguleika en vegna
þess að hann var eitthvað að
tvínóna krækti Pétur I knöttinn
og sendi hann meðfram enda-
mörkunum. Öllum til mikillar
furðu valt knötturinn hægt og
rólega inn fyrir línu, 1:1.
Skömmu fyrir hlé skoraði Ari
Arason eftir hornspyrnu, lagði
knöttinn vel fyrir sig og skaut, og
í netið fór hann þótt skotið hafi
verið hálf klúðurslegt. En horn-
spyrnur Sandgerðinga áttu eftir
að fara fljótari leið í netið hjá
norðanmönnum. Eftir að hafa náð
spilinu í gang í seinni hálfleik og
blátt áfram yfirspilað norðan-
menn, skoraði Pétur Brynjars-
son, laginn og leikinn piltur,
beint úr hornspyrnu, — með
aðstoð vindsins sem sveigði knett-
inum í markið, fram hjá tveimur
eða þremur varnarmönnum og
markverði. 3:1.
Sandgerðingar hafa komið
nokkuð á óvart með sitt unga lið.
Þeir hafa sigrað i fyrstu tveimur
leikjunum og ef liðinu tekst að
sýna svipaða knattspyrnu í sumar
og það gerði í seinni hálfleik, ætti
það að geta orðið lengur en
sumarlangt í deildinni. Júlíus
Jónsson var þeirra máttarstólpi,
áður sóknarmaður, nú kominn í
vörnina. Reynir Öskarsson átti
einnig mjög góðan markvarðar-
leik, en hann kom inn á eftir hlé í
staðinn fyrir Jón örvar sem
meiddist. Jón Ingibjörnsson, með
sinn ógnarkraft, gerði norðan-
mönnum oft erfitt fyrir.
Ársskógstrandarpiltarnir voru
óheppnir í leik sínum, — réðu
mestu um gang fyrri hálfleiks, —
en fengu á sig fádæma klaufaleg
mörk í gegnum galopna vörn, —
þar verða þeir að kippa í liðinn,
svo og virðist þrekið ekki nægi-
legt til að halda fullum hraða
leikinn út.
Malinois-CS Brugge 2-2
Antwerpen-Winterslag 3-1
Courtrai-Beveren 3-1
Charleroi-FC Liege 3-4
Anderlecht-Molenbeek 2-1
Standard-Ostende 4-0
Lokeren-Waregem 0-0
FC Brugge-Lierse 6-1
Beringen-Beershot 1-1
Royale Union hóf baráttu sína
fyrir 1. deildarsæti mjög vel í
Brussel. Þar sigraði Union Patro
Eisden 2-1 — og var sigurmark
Union skorað aðeins 5 mínútum
fyrir leikslok. Sigur Royale Union
vannst án Islendinganna —
Stefáns Halldórssonar og
Marteins Geirssonar. Þar kom
nokkuð á óvart að Marteinn skuli
hafa verið settur út — hann var
varamaður í leiknum.
Royale Union hóf þegar mikla
sókn vel stutt af um 12 þúsund
áhorfendum. Þvert gegn gangi
leiksins skoraði Eisden úr skyndi-
sókn á 15. mínútu. Union tókst að
jafna á 30. mínútu þegar Philip
skoraði beint úr aukaspyrnu.
Fram að þeim tíma hafði Union
sótt látlaust að marki Eisden.
Eftir leikhlé jafnaðist leikur-
inn nokkuð — Union heldur meir
með knöttinn en lítið um mark-
tækifæri. Þó tókst Union að
tryggja sér sigur á 85. mínútu
þegar bakvörðurinn William
skallaði knöttinn í netið, 2-1.
Nokkur upplausn hefur verið
hjá Royale Union undanfarið og
gengi liðsins siðustu 10 leiki slakt.
Eftir stórtapið gegn La Louviere,
2-6 sagði þjálfari liðsins, Van
Heylen af sér. Hann ætlar til
Courtrai er leikur í 1. deild. Þó
var ákveðið að hann verði með
liðið fram yfir úrslitakeppnina.
Vörn liðsins hefur verið óstöðug
— og því reynt nýtt. Marteinn var
settur út. Þessi sigur Union var
því kærkominn eftir hið slæma
gengi undanfarið.
— Ég get komið heim 10. júní
og leikið gegn N-lrum þann 11.
júní ef landsliðsnefnd óskar þess
— vona sannarlega að svo verði,
sagði Marteinn Geirsson.
Að lokum skulum við líta á
lokastöðuna í 1 . deild:
leikir stig
FC Brugge 34 52
Anderlecht 34 ' 48
Standard 34 45
Molenbeek 34 44
Lokeren 34 38
Waregem 35 35
Antwerpen 34 35
CS Brugge 34 35
Beershot 34 35
Lierse 34 34
Winterslag 34 32
Courtrai 34 32
Beveren 34 31
Beringen 34 26
FC Liege 34 25
Charleroi 34 25
Ostende 34 20
Malinois- 34 20
Ostende og Malinois féllu I 2.
deild.
Stuttar f réttir
• Ernst Happel, austurríski
þjálfarinn hjá belgíska meistara-
liðinu FC Brugge, hefur verið
ráðinn þjálfari hollenzka lands-
liðsins í knattspyrnu i þeim
þremur leikjum, sem liðið á eftir
í riðlakeppni HM. Þar á meðal er
lcikurinn við Ísland í haust.
Happel, fyrrum austurrískur
iandsliðsmaður, var boðin staða
landsliðsþjálfara til langs tíma,
en tók ekki boðinu.
• Daley Thompson, Bretlandi,
setti nýtt unglingamet í tugþraut
á móti í Götzis í Austurríki um
helgina. Hlaut 7921 stig — en átti
bezt áður 7905.
• Aston Villa og QPR gerðu
jafntefli 1-1 í 1. deildinni ensku á
föstudag.
• Silvio Leonard, Kúbu, hijóp
100 m á 9,9 sek. á móti í Havana i
gær. Það er jöfnun á núverandi
heimsmeti, en afrekið verður
ekki viðurkennt sem heimsmet,
þar sem tímaverðir tóku timann.
Ekki rafmagnstímataka. Eftir
hlaupið faðmaði sjálfur Fidel
Castro hlauparann að sér, en
hann var meðal áhorfenda. Sat
þar með Alberto Juantorena,
olympíumeistara.
• BiII Rodgers, Bandaríkjunum,
sigraði i miklu maraþonhlaupi i
Amsterdam á laugardag. Náði
frábærum tíma 2:12.46.6. frinn
Danny McDaid varð annar á
2:16.14.0.
• Jody Scheckter, Suður-Afríku,
sigraði í Grand Prix kappakstrin-
um í Monte Carlo í gær. Annar
'sigur hans á keppnistímabilinu.
Hann er nú efstur í stigakeppn-
inni með 32 stig. Niki Lauda er
næstur með 25 stig, en þriðji
Carlos Reutermann, Argentínu,
með 23 stig. Austurríkismaðurinn
Lauda varð annar í gær, en heims-
meistarinn James Hunt, Eng-
landi, varð að hætta keppni vegna
vélarbilunar.
• Trabzon Spor er orðinn tyrkn-
eskur meistari í knattspyrnu.
Hlaut titilinn í gær með því að
sigra Giresun 2-0. Liðið er einnig
í úrslitum bikarkeppninnar.
Rauða stjarnan, Belgrad, varð
júgóslavneskur meistari í knatt-
spyrnu á laugardag. Hefur 11
stiga forskot, en fimm umferðir
eru eftir.
• Bandaríkjamaðurinn Jim
Montgomery, olympíumeistari í
100 m skriðsundi, synti vega-
lengdina á 50.93 sek. á móti í
Frakklandi í gær.
Borussia meistari
- keisarinn kvaddi
Borussia Mönchengladbach,
sem nk. miðvikudag leikur til
úrslita við Livfrpool í Evrópu-
bikarnum, sigraði í 1. deildinni
þýzku á laugardag, þegar liðið
gerði jafntefli 1-1 við Bayern á
Olympíuleikvanginum í
Munchen. Það er í þriðja skipti
frá 1970, sem Borussia verður
Þýzkalandsmeistari.
Borussia komst í 2-0 eftir 22
mín. Jupp Heynckes og Urich
Stielike skoruðu, en gamla kemp-
an Gerd Muller minnkaði muninn
í 2-1 níu mín. fyrir leikhléið.
Nokkrum sek. fyrir leikslok
skoraði Hans-Jiirgen Wittkamp
sjálfsmark svo leiknum lauk með
jafntefli. Ef Borussia hefði tapað
hefði Schalke orðið meistari.
Schalke vann Borussia Dortmund
4-2 — en liðið var stigi á eftir
Mönchengladbach.
Áhorfendur á leiknum á
Olymípuleikvanginum voru 77
þúsund, en auk þýðingar leiksins
í sambandi við meistaratitilinn,
var hann einnig kveðjuleikur
Franz keisara Beckenbauer í
þýzku knattspyrnunni. Hann
heldur nú til New York og mun
leika með Cosmos næstu þrjú
árin. Fær fyrir vikið þrjár
milljónir dollara. Keisarinn fékk
að gjöf frá Bayern gullpinna
skreyttan demöntum áður en
leikurinn hófst — og hann lék
síðan einn sinn bezta leik. Það var
sending frá honum í lokin, sem
varð til þess, að Wittkamp
skallaði knöttinn í eigið mark.