Dagblaðið - 23.05.1977, Page 28

Dagblaðið - 23.05.1977, Page 28
Formaður Sjómannasambandsins um gang samninganna: Þeir fást ekki einu sinni til að /agfæra staf- setningarvillur — ekkert þokast — nýr fundurekki boðaður „Þaö þokaðist ekki nokkurn skapaðan hlut á samningafund- inum á fimmtudaginn, þeir voru ekki einu sinni til viðræðu um að leiðrétta stafsetningar- villur í núverandi samningum,“ sagði Öskar Vigfússon, for- maður Sjómannasambands íslands í viðtali við DB i morg- un. Eins og blaðið skýrði frá fyrir helgi eru margir sjómenn vonlitlir um að takast muni að semja á næstunni og eru tvær skýringar tilgreindar. Annars vegar fer nú daufasti veiðitimi ársins í hönd og hins vegar munu stjórnvöld ekki þrýsta á samninga. Yfirvinnubann og hugsanlegt verkfall gæti nefni- lega orðið til þess að ekki þyrfti að grípa til óvinsælla takmark- ana á þorskveiðum svo aflinn fari ekki yfir 275 þús. tonn á árinu. Um þetta sagði Öskar að með bráðabirgðalögunum sem ríkis- stjórnin setti á sjómenn í síð- ustu kjaradeilu þeirra hafi samningstíminn, eða gildistími laganna, verið ákveðinn þessi, sem væri enn einn skaðinn af þessum lögum. Sagðist hann ekki muna til þess fyrr að samningar sjómanna hefðu verið lausir á þessum árstíma. Nýr samningafundur hefur ekki verið boðaður. Stjórnir Sjómannasambandsins og Far- manna- og fiskimannasam- bandsins munu koma saman í fyrramálið og ræða stöðuna. G.S. Þær fegurstu á Islandi ISLANDSMEISTARARIHAR- SKURÐIOG HÁRGREIÐSLU Sigurður Benónýsson (Brósi) sést þarna í miðið ásamt kepp- endunum sem urðu númer tvö og þrjú í hárgreiðslukeppni kvenna. (DB-mynd Sv.Þ.) Gunnar Guðjónsson hár- skerameistari varð íslands- meistari í hárskurði karla á ís- landsmótinu í hársnyrtingu sem háð var á Seltjarnarnesi í gærdag. Gunnar starfar á rakarastofunni Fígaró í Iðnaðarmannahúsinu og hefur brátt rakað og klippt í heil 20 ár. „Maður er mátulega bjart- sýnn því þetta verður hörð keppni," sagði Gunnar um Norðurlandameistaramótið, en hann ásamt fjórum efstu vann sér rétt til að keppa á Norður- landameistaramótinu í hár- snyrtingu sem fara mun fram í Laugardalshöllinni í september í haust. Einnig var að sjálfsögðu keppt í hárgreiðslu kvenna, en þar sigraði Sigurður Benónýs- son sem rekur Hárgreiðslustofu Brósa í Starmýri 2. Sigurður hefur brátt unnið að hár- greiðslu í tiu ár, eða jafn lengi og Samband hárgreiðslu- og hárskerameistara hefur verið starfandi, en óbeint í tilefni merkisafmælisins verður Norðurlandamótið háð á ís- landi að þessu sinni. -BH Glæsimeyjarnir sem kepptu til úrsiita. Talið frá hægri: Sigurlaug Haildórsdóttir, Unnur Lilja Elíasdóttir, Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, Anna Björk Eðvarðs, Bryndís Arnardóttir, Guðrún Hjörleifsdóttir og Sigurlaug Þórunn Bragadóttir. (DB-mynd Bjarnleifur). Sautján ára Reykjavíkurmær, Anna Björk Eðvarðs, hlaut titil- inn Ungfrú ísland 1977 á hátíð sem ferðaskrifstofan Sunna efndi til i gærkvöld að Hótel Sögu. Sem vonlegt var hafði Anna Björk ekki áttað sig að fullu á hlutunum er blm. ræddi við hana rétt eftir kjörið. — „Ég trúi þessu varla,‘ sagði Anna, en hún byrjaði í Tízkusýningarsamtökunum Karon fyrir nokkru og komst upp úr þvi í úrslitakeppnina með þess- um glæsilega árangri. Anna starfar i tízkuverzluninni Evu. Sú er lét kórónuna á höfuð Önnu í gærkvöld og krýndi þar með Islandsmeistarann var engin önnur en Cindy Breakspeare, Ungfrú alheimur 1976. Hafði hún orð á því að stúlknahópurinn er keppti Tíl úrslita, 7 stúlkur, væri afar frítt lið og kvað það ekki myndi koma sér á óvart þó þær yrðu ofarlega á blaði í þeim keppnum sem framundan eru. En það eru keppnirnar Miss Scandi- navia '77, Teenage World '77, Miss World '77 og Miss Universe '78 sem Ungfrú ísland '11 tekur þátt i af íslands hálfu. Þær stúlkur er urðu númer tvö, þrjú og fjögur fara í hinar keppnirnar. Dómnefnd keppninnar var skipuð sjö mönnum og auk þess var áhorfendum gefinn kostur á að láta álit sitt i ljós með atkvæða- seðlum sem dreift var um salinn. Meðal dómara í keppninni var Einar Jónsson sem manna lengst hefur starfað að fegurðarsam- keppnum á íslandi. Hafði hann umsjón með og veitti forstöðui Fegurðarsamkeppni Islands, m.a. meðan keppnir þessar fóru fram í Tívolí. -BH__ Ekið á brúarstólpa Um kl. 04.10 aðfaranótt sunnudagsins ók bifreið á brúarstólpa á brú yfir Arnar- neslækinn. í bifreiðinni voru tveir farþegar auk ökumanns og voru allir fluttir á slysavarð- stofuna. Einn var lagður inn á Borgarspítalann en hinir tveir fengu að fara heim, eftir að gert hafði verið að sárum þeirra. A.Bj. frjálst, áháð dagblað MANUDAGUR 23. MAI 1977. 300 þiísund kr. slökkvi- liðsgabb „Það er eldur laus í her- bergi á deild 8 hér i Klepps- spítalanum, sem við ráðum ekki við,“ sagði kona er hringdi í slökkviliðið um kl. 8 á föstudagskvöldið. Hún gaf upp nafn og kvaðst vera hjúkrunarkona á deildinni. Slökkviliðið brá skjótt við og sendir voru fjórir slökkvi- bílar og tveir sjúkrabílar á vettvang. Jafnframt var kallað út allt Iið slökkviliðs- ins og allt haft tilbúið til að senda alla bíla á vettvang, ef þörf krefði. Þegar fyrsti bíllinn kom á staðinn kom í ljós að hér var um gabb að ræða. Deild 8 á Kleppsspítala er svo- nefnd Víðihlíð þar sem alkó- hólistar eru til lækninga. Engin hjúkrunarkona starfar þarna með því nafni sem upp var gefið. 56 slökkviliðsmenn mættu á gabbstaðinn og svona út- kall kostar bæjarfélagið um 300 þúsund krónur, sagði Gunnar Sigurðsson vara- slökkviliðsstjóri. ASt. Brendan stendurí stað Ferð Timothy Severin og félaga á skinnbátnum Brendan sækist heldur seint þessa dagana. I gærmorgun voru þeir staddir 300 mílur vestur af Reykjanesi og hafa dólað þar á litlu svæði síð- ustu fjóra daga. Þar áður hafði þeim mið- að nokkuð, enda blés hann þá úr norðvestri, en nú er ríkjandi á þessum slóðum suð-suðvestlæg átt, svo ef eitthvað miðar er það frem- ur afturábak en áfram. I gær voru hlust- unarskilyrði svo slæm að Brendanmenn heyrðu í Gufunesaradíói en Gufunes ekki í þeim. Kom þá til að- stoðar hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson, sem statt var þarna ekki langt undan, og bar orðsendingarnar á milli. —BH Gamla fólkið til sólarlanda Það voru kátir ferðalang ar sem lögðu af stað með Flugleiðavélinni frá Keflavíkurflugvelli í gær- morgun á vegum ferðaskrif- stofunnar Sunnu. Þeir gerðu að gamni sínu, tóku í nefið og einn og einn sötraði úr bjórglasi. Þetta væri varla í frásögur færandi ef um venjulega sólarlandafarþega hefði verið að ræða, — en þarna var að leggja af stað til Mallorka hópur aldraðs fólks af Suðurnesjum, það elzta yfir áttrætt. Meðal- aldurinn í þessum 42ja manna hópi var 68 ár, að þ.ví er Matti Ásbjörnsson, for- maður styrktarfélags aldr- aðra á Suðurnesjum tjáði okkur. Hann fór einnig með ásamt hjúkrunarfólki sem verður þar til aðstoðar gamla fólkinu, ef með þarf. Ferðin er endapunktur á vel heppnað og þróttmikið starf félagsins á iiðnum vetri. eram.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.