Dagblaðið - 15.10.1977, Side 2

Dagblaðið - 15.10.1977, Side 2
2 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1977. Persónustarfs- kraftur —eða Hin Stdr- HáskaLega KynGreining I upphafi var orðið, segir í Bðkinni. Oröið er svo sem til enn, en ekki sama orðið, því orð eru alltaf að breytast. Sum breytast af sjálfu sér en önnur af valdboðum og svo eru orð sem breytast af sjálfu sér vegna valdboða og i akveðnum til- gangi, svo sem eins og þeim að þurrka út misrétti kynjanna. Eins og alþjóð er kunnugt er nú stranglega bannað að gera mun a kynjum í auglýsingum né heldur að sjálfsögðu í mikil- vægum atriðum eins og ráðn- ingu í störf og þviumlíkt. Þar með er gerður reki að því að úthýsa þeim orðum úr islenskri tungu sem áður auðguðu hana með því að fela i sér hvort átt var við karlkyns persónu eða kvenkyns, sem að sjálfsögðu skiptir ekki máli lengur. Auðvitað er þetta þverbrotið eins og flest mannanna lög. Nægir þar til dæmis að vísa til einkamálaauglýsinga dagblað- anna. Þar er ekkert verið að skafa utan af því hvers konar skapnaður er í boði eða eftir hvers konar skapnaði er óskað. Til er sérstakt ráð, Jafnréttis- ráð, sem er til þess að taka á svona málum og koma réttum lögum yfir sökudólgana, og er þeim hér með bent á þetta atriði, ef það skyldi hafa farið fram hjá þeim. Sömuleiðis hefur persóna sú er hér ritar veitt því athygli að í auglýsing- um um húsnæði i boði er iðu- lega tekið fram að persónur með einn kynbúnað gangi frem- ur fyrir í það húsnæði, sem auglýst er, heldur en þær sem eru öðru vísi líka nnaðar. Þetta er vitaskuld mjög alvarlegt mál og rétt að láta viðkomandi hús- ráðendur sæta viðeigandi ábyrgð. Enn er eftir ótalinn einn liður auglýsinga, þar sem frek- lega er brotið f bága við það meginlögmál að kyngreina ekki. Það eru dánarfregnir og jarðarfarir. Þar er enn mikið að því gert að fara i kyngrein- ingar, í stað þess að auðvitað ber að lagfæra það og segja til dæmis „ástkær eiginpersóna mín“ eða „ástkær eiginstarfs- maour minn" og gildir þá að sjálfsögðu einu hvort kynið er átt við. Mun það fremur fara eftir eðli hjónabandsins og hlutskipti hins látna í því, hvort verður eðlilegra talið. Eftir öllu þessu og vitaskuld ( Háaloft ) morgu fleiru verður að ganga af fullri einurð, ef haldast a það jafnrétti sem hér er komið og ber að auka heldur en hitt. Það er vel þess vert að gera sér grein fyrir, að mikið hefur áunnist f þessum efnum, sé borið saman við ýmsar aðrar þjóðir. Sjálfur dvaldist ég í eig- in persónu ásamt eiginpersónu minni um tíma með þjóð einni ekki alls fyrir löngu, þar sem berlega mátti sjá, að persónur voru langt frá þvi jafn jafnar og þær eru hér og voru þær þó jafnar nokkuð, þótt ekki væru þær allar jafn vaxnar niður. En ennþá eru á Islandi nokkur orð — starfsheiti, get- um við sagt, sem eru óþolandi kynbundin og þar með niður- lægjandi. Ég veigra mér við að bera þau mér i munn, heldur mun nefna nokkur þeirra hér eins og þau ættu að vera: Ljós- starfskraftur, vinnupersóna, ráðspersóna, prjónapersóna, talsimastarfskraftur, fóstur- starfskraftur. Vel má vera að þau séu fleiri, en þessi verða að duga til að gefa til kynna hvað við er átt. Þá er náttúrlega alvarlegt mál, að börn skuli komast upp með að kyngreina foreldra sina eins og nú tíðkast, og jafnvel foreldra foreldranna. A þvi máli verður strax að finna einhverja viðunandi iausn, áður en kyngreiningarálitið verður of áhrifamikið í þessum ómótuðu hugum. Nú verður ekki fram hjá þvi horft, að stöku sinnum er af óviðráðanlegum sökum lfk- legra, að persóna vilji fremur starfskraft af öðru kyninu en hinu. Þar má til dæmis nefna ef bóndapersóna þarf einhverra hluta vegna á að halda fram- kvæmdapersónu við bú sitt sem jafnframt gæti orðið að viðtæk- ara liði. En þá mætti vitaskuld orða auglýsinguna i samræmi við það, án þess að brjóta i nokkurn jafnréttisbága. Aug- lýsingin gæti til dæmis verið þahnig: Ráðspersóna óskast. Má hafa typpi. Þessi herrans húðarklár / Vísur og vísnaspjall lön Gunnar Jónsson A þeim árum, er Tryggvi Gunnarsson sá um útgáfu almanaks Þjóðvinafélags- ins að meira eða minna leyti, birti hann þar oft stökur eftir móðurbróður sinn Ölaf Briem timburmeistara á Grund í Eyjafirði. Ólafur var sonur sýslumanns- hjónanna Valgerðar Árnadóttur og Gunnlaugs Briem, en þau áttu mörg börn. Séra Benjamín Kristjánsson ritar langt mál og fróðlegt um Briemfólkið á Grund í 1. bindi Eyfirðingabókar. Eg styðst mjög við það í þessum þætti, en margar vísnanna átti ég í fórum mínum úr öðrum heimildum, m.a. handritum í Landsbókasafni. Séra Benjamín tilfærir þessa vísu eftir Gunnlaug Briem, er hann hafi á unga aldri ort um sig og konu sína, er þau voru I tilhugalífi: Varla get cg, Valgerður mín, ætlaö, að veröldin okkur verði of þröng, við erum bæði mjó og löng. Ólafur Briem lærði iðn sína í Kaup- mannahöfn, f.1808, d. 1859, hann lést á besta aldri, einnig kona hans Dómhildur Þorsteinsdóttir, en hún féll frá, er hún fæddi 15. barn þeirra andvana. Meðal þessara barna var Sigríður — dóttur- sonur hennar var Davið skáld frá Fagra- skógi — og séra Valdemar sálmaskáld á Stóra Núpi, afi Jóhanns listmálara. Einhverju sinni, er Dómhildur var ófrísk, varpaði Ólafur fram þessuni vísu- parti: Hvi ert þú svo þykk að framan, þar með föl á kinn? I _________________________________________ Hún svaraði strax: Við höfum bæði sofið saman, sú er orsökin. Talið er að þessi vísa sé frá æskuárum Ólafsi Kaupmannahöfn: Brosir Venus, Bakkus hlær, burt með sorg og kvíða. Klingjunv, drekkum kátir vær, kyssum stúlku blíða. Þegar Ólafur var farinn að hugsa til heimferðar orti hann þessa vísu: Þótt ég stundum kátur kveði um Kaupinhafnar yndisstand, stærsta mundi mín samt gleói mitt að líta föðurland. Um prest orti Ólafur: Hann fór suður himinblár, heim kom aftur svartur. Þessi herrans húðarklár á himnum verður bjartur. Eins og oft vill verða um þá sem hagmæltir og hraðkvæðir eru, var Ólafur oft beðinn um vísu. Við slíkt tilfelli varð þessi til. Ég er orðinn vanur við vísurnar að smíða, einni skuluð ekki þið eftir lengi bíða. Á Ólafs tíð gerðu það margir sér og öðrum til gamans að yrkja gátur. Eftir hann er þessi alkunna svipuvfsa: Ég er ei nema skaft og skott, skrautlega búin stundum, engri skepnu geri gott, en geng í lið með hundum. Olafur var hreppstjóri. Það var ein- hverju sinni eftir messu að hann þurfti að lesa upp opinberar tilkynningar í kirkjunni. Þá heyrði hann að einn bænd- anna, sem ekki var talinn rétt frómur, var sofnaður og farinn að hrjóta. Hann vakti hann með þessari vísu: Hvað mun bóndinn hafast að um helgidaga nætur, hrotur sem á helgum stað heyra til sín lætur. öðru sinni var Ólafur að skipta arfi og voru meðal erfingja þrír prestar og reyndi hver að ota sínum tota og leit ekki vel út með samkomulag. Þá kastaði Ólafur fram þessari vísu: Metur kæran Mammon sinn margur hempugálginn, í þeim nærir andskotinn ófriðsemdarnjálginn. Eftirfarandi vísu má taka sem dæmi um bragleikni Olafs. Hlaut ég stauta blauta braut, bykkjan skrykkjótt nokkuð gekk, þaut og hnaut, ég hraut í laut, hnykk með rykk í skrokkinn fékk. Bændur í Eyjafirði og viðar áttu mjög undir högg að sækja ástundum, hja dönsku kaupmönnunum á Akurevri. Einhverju sinni skellti Olafur á þá þess- ari vísu: Víst eru miklir drottins dónar, daufur Islands bændafans, en þið Satans æðstu þjónar, óskabörn og vinir hans. Einhver sagði Ölafi frá því að tvö af hjúum hans væru að draga sig saman, höfðu þau orðið uppvís um rökkurkossa. Hann tók þessu léttilega: Þótt kvenndi og drengur kvöldum á kyssist dátt í náðum, má það enginn maður lá fyrst munnur er á báðum. Hér eru tvær vísur með almennum hugl'eiðingum. Margir leita langt um kring lukkunnar, og kvarta, vita ei, að þetta þing þó býr hvers í hjarta. Hóf er best að hafa, þó hugsi gott til ferða. Oft kann gleðin aftanmjó endaslepp að verða. Lif þú glaður, hóf þó haf, í hæfan tíma verk þin æf. Drifinn kærleiks anda af ævinlega dyggð kostgæf. Ólafur sá menn berja naut með svipu. Hann kastaði þá frant þessari visu: Nauts á hrygginn maður mátt meira pískinn spara. Jafningja þinn aldrei átt illa með að fara. J.G.J. — S. 41016.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.