Dagblaðið - 15.10.1977, Síða 3

Dagblaðið - 15.10.1977, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. OKTOBER 1977. 3 ER RETT AÐ REFSA BÖRN- UNUM EF FORELDRARNIR SOFA YFIR SIG? Móðir hringdi: „I bréfi sem birtist í DB 11. október segir að börn, sem komi of seint i Fellaskóla, fái ekki að fara inn f skólahúsið. Skólastjórinn segir að kennararnir „megi ekki við“ að láta þá nemendur sem koma of seint trufla hjá sér kennsluna með þvi að vera að hleypa þeim inn á fimm minútna fresti f fyrsta tímann. með afsökunarbeiðni þegar þetta hefur komið fyrir, en engu að síður fékk barnið refsipunkt fyrir að koma of seint. Það má kannske segja að börn sem komin eru „af barns- aldri" eigi sjálf að hafa vekjaraklukku og vakna i sinn skóla á morgnana. En heima hjá mér hefur það jafnan verið svo, að við foreldrarnir höfum þurft að vakna á sama tfma, þannig að okkur hefur hentað að hafa sjálf vekjaraklukku. heimilisins. Ef börn koma of seint æ ofan í æ er sjálfsagt að refsa þeim, — en ekki ef þau koma með afsökunarbeiðni frá foreldrum. Þá á að refsa foreldrunum og tala við þá, en ekki börnin. Mér finnst þessi skoðun eiga fyllilega rétt á sér. En það er annað atriði I sambandi við þeg- ar sofið er yfir sig, sem mér finnst óréttlátt. í þeim skóla sem min börn hafa verið i hefur sú regla verið höfð að í hvert skipti sem ein- hver nemandi kemur of seint fær hann einhvers konar refsi- punkta. Þegar punktarnir eru síðan orðnir svo og svo margir er viðkomandi nemandi „rekinn" úr skólanum i nokkra daga. Nú er ekkert við því að segja þó skólar hafi slíkt refsikerfi, en mér finnst óréttlátt að refsa börnum með slíkum refsipunkt- um ef þau bera ekki ábyrgð á því sjálf að koma of seint, — ef t.d. vekjaraklukkan bilar og foreldrarnir sofa yfir sig, — og þá börnin um leið. Ég hef lent I því að hringja Börnin eru ekki látin norpa úti i vondu veðri i Fellaskóla ef þau koma of seint. FARANLEGT KAUP FYRIR AÐ HNÝTA HNÚT OG ÖNGUL Raddir iesenda Gísli Kristjánsson í Hafnarfirði hringdi: Hnýtir þú á 1000 tauma, hnút á annan enda og öngul á hinn, greiða LÍU og SlS þér 1360 krónur. Þú ert varla mikið skemur að þessu en 8 klst. og færð þá vel 170 krónur á klst. Ég miða þá við að verkið sé vel af hendi leyst, annað á ekki við þegar veiða skal þorskinn þó heimskur kunni að teljast. Nú er lægsta kaup karla á fyrsta ári krónur 528 á klst. Samkvæmt því ætti að greiða fyrir 1000 tauma kr. 4224. Það nær engri átt þvi þetta er þrifa- leg vinna sem vinna má i stáss- stofu, jafnvel án þess að nokk- ur óþrif hljótist af. En 1360 krónur ná heldur engri átt. Hér ber mikið á milli og finnst mér að þjóðkunn félög geti ekki verið þekkt fyrir að bjóða fólki slik kjör. Þau heyra fremur til löndum þar sem eymd og volæði þjakar og fólkið fær ekki rönd við reist, hrein- lega þorir ekki. Er trúlegt að það að greiða mönnum kr. 170 á klst. létti svo merkt verði erfiðleikum þeim sem útgerðin glimir við? Ég held naumast. Væri ekki sjálfsagt að greiða fyrir umrætt þúsund kr. 2400 sem svarar til hálfum verka- mannalaunum? Mér ofbýður hversu illa þetta er borgað og get ekki orða bundizt. Eg beini þessum orðum til ágætismanna sem ráða fyrrnefndum stofnun- um og ég er fullviss um að eru vandaðir og réttlátir í fyllsta máta. Ég vona að þeir hrökkvi við og ráði nokkra bót á þessu. VAR SKUGGA- SVEINN SKÁLD? í aðalheimild um vísuna, sem ég notaði í grein minni hér í dálkunum 10. sept. stendur orð- ið: lærði, eins og Jón úr Vör hefur. Hins vegar heyrði ég ungur: gleypti. Og bæði át og gleypti er réttara en iærði þvi að það sem étið er eða gleypt verður helzt að böggli fyrir brjósti. Mun þessi hugmynd byggjast á ævafornri íslenzkri sögu um niðursetning sem var heldur einfaldur, svo og illa með hann farið. Þegar hann átti að læra kristinfræðin gat hann það naumast en hrekkjalimur'einn sagði honum að éta einn og einn kafla i kverinu í einu og tólgarmola með. En ekki biitn- uðu námsgáfurnar við þetta. Viljandi setti undirritaður orðið át í vísuna, þegar hann reit hana í greinarlokin en það olli því að stuðlar urðu þrir 1 hendingunni í stað fyrir tvo og er slíkt nefnt ofstuðlun. Rím haggaðist hins vegar ekki. Ger- ir svona hvekkur litið sem ekk- ert til á atómljóðaöld. En vísa getur orðið meira umtöluð i svona tilfelli, sem og varð. Enda er hin umrædda góða vísa aldrei of oft kveðin. En hún er eftir Skugga-Svein Matthías- son, Jochumssonar, Eggertsson- ar að Skógum í Þorskafirði. Hvort sem Sveinki hefur vitnað til hennar úr gömlum rímum eða ekki, er þetta hið næsta sem ég hefi komizt þvi að vita skil a höfundinum. Sigurður Draumland, 7848-2192 iMi nútíma IV VERKSTJ0RN KREFST NÚTÍMA FRÆÐSLU Þetta vita þeir rúmlega 1000 verk- stjórar sem sótt hafa verkstjórnar- námskeiðin á undanförnum árum. Kennsluskrá vetrarins 1977 59. námskeið, fyrri hluti.31. okt.—12. nóvember 60. námskeið, fyrri hluti .14.—25. nóvember 61. Fiskvinnsiuskóiinn...6.—17. desember 1978 59. námskeið, síðari hluti .2.—14. janúar 62. námskeið, fyrri hluti .16.—28. janúar framhaidsnámskeið......2.—4. febrúar 60. námskeið, síðari hluti.13.—25. febrúar 62. námskeið, siðari hluti..6.—18. marz 63. Stýrimannaskólinn ......3.—15. apríl Innritun á öll þessi námskeið hefst strax að loknu verkfalli hjá Iðn- þróunarstofnun Islands, Skipholti 17, sími 81533. SOLUBORN Merkjasala Blindravinafélags íslands verður sunnudaginn 16. okt. nk. og hefst kl. 10 f.h. Merkin verða afhent úr bílum sem verða við flesta barnaskóla í Reykja- vík, Kópavogi og Hafnarfirði. Sölubörn, komið og seljið merki til hjálpar blindum. Góð sölulaun. Foreldrar: Leyfið börnunum að selja merki Blindravinafélags íslands. Spurning dagsins Hefur strœtisvagnaleysið komið niður á þér? (Spurt í Breiðholtinu) Halidóra Svanbjörnsdóttir hús- móðir, 36 ára: Nei, það hefur ekk- ert komið niður á mér. Við eigum bíl og ég þarf ekki að nota strætó. Einar Matthiasson, vinnur á iór- anstöðinni á Keflavíkurflugveili, 33 ára: Það hefur ekki komið nið- ur á mér bví ég á bil og nota hann. Kristin Aðaisteinsdóttír móðir, 27 ára: Það hefur ekki komið að sök þvi ég hef ekkert þurft að fara í bæinn á meðan verkfallið hefur staðið. Eg hef flesta hluti sem ég þarf á að halda hér í hverfinu. Sigríður Pálsdóttir, vinnur i sjoppu, 46 ára: Það hefur komið mjög illa við mig og ég sakna strætisvagnanna mjög mikið. Eg á langt í vinnuna, alla leið niður í Kleppsholt, og er vön að taka strætó. Þar að auki er ég gift strætisvagnabílstjóra og hann er i verkfalli. Svo það kemur við mig á fleiri en einn veg. Hólmfriður Kristinsdóttir, hár- greiðsludama vestur i bæ, 22 ára: Það hefur ekki komið niður á mér á nokkurn hátt því ég á bíl og þarf ekki á strætó að halda. Jón Þórðarson kaupmaður i Breiðholtskjöri, 45 ára: Persónulega hefur stra'tisvagna- leysið ekki komið niður á mér eða verzluninni hér. Vjðskiptavinirn- ir þurfa va-ntanlega ekki að nota stra'tó til þess að kornast hingað því þetta er hverfisverzlun staðsett i miðju íbúðarhverfinu.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.