Dagblaðið - 15.10.1977, Page 6

Dagblaðið - 15.10.1977, Page 6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1977. <) Geðþóttaákvörðun eins lögreglu- manns réð úrslitum Lögregluvarðst jórinn baðst afsökunar og velvirðingar Það var einn lögreglumaður á verkfallsvakt sem á eigin spýtur tók þá ákvörðun í gær- morgun að hefta blaðamenn Dagblaðsins í starfi með því að neita þeim um inngöngu á Keflavíkurflugvöll. För blaða- mannanna var farin til að fylgj- ast með afgreiðslu Flugleiða- vélar, sem undanþágu fékk til að millilenda hér, skila af sér íslendingum, sem „strandað“ höfðu í Bandaríkjunum vegna verkfallsins og til að flytja sjúka til læknishjálpar erlendis. „Ég harma mjög þá afstöðu sem tekin var og bið afsökunar á henni,“ sagði Unnsteinn Jóhannsson lögregluvarðstjóri á Keflavíkurflugvelli er hann hringdi til DB fyrir hádegi í gær. Benedikt var á fundi verk- fállsmanna þá er geðþótta- ákvörðun lögreglumannsins á verkfallsvaktinni var tekin, en blaðnmönnum DB var iafn- framt meinað að ná fundi yfir- stjórnar verkfallsvarða á vellin- um, þar sem málin hefðu ljúf- lega leystst að því er varð- stjórinn upplýsir. Blaðamannafélagið fékk mál Dagblaðsmannanna til með- ferðar og gerði ályktun það varðandi og fleiri mál svipaðs eðlis sem blaðainenn í starfi hafa orðið fyrir af völdum verk- fallsvarða. Geðþóttaákvarðanir ein- stakra manna í verkfalli BSRB hafa skaðað málstað BSRB í yfirstandandi verkfalli. Þær hafa sýnt að einstakir verkfallsverðir ganga of langt í hroka pg misskilinni vald- beitingu — lengra en æðsta yfirstjórn málanna vill ganga. Yfirgangi verkfallsvarða mótmælt Blaðamannaf élagið skrifar st jórn BSRB „Stjórn Blaðamannafélags tslands telur vítavert, að blaða- menn skuli hafa verið heftir í upplýsingaleit, er þeir hafa unnið dagleg störf sfn. Verkfallsverðir BSRB hafa Itrekað meinað blaða- mönnum aðgang að upplýsing- um.“ Þessir atburðir gerðust við hlið- ið að Keflavíkurflugvelli og von- ast stjórn Blaðamannafélags tslands til að slíkt endurtaki sig ekki.“ Þannig segir I mótmælaályktun sem Blaðamannafélagið gerði f gær og afhent var Kristjáni Thorlacius formanni stjórnar BSRB. í mótmælaorðsendingu Blaða- mannafélagsins segir ennfremur: „Blaðamannafélag tslands minnir á, að blaðamenn vinna störf sín fyrir almenning og veita honum upplýsingar um gang mála I þjóðfélaginu. Það ætti þvl ekki að vera síður hagsmunamál þeirra, sem að verkfalli standa, að eiga góð samskipti við blaðamenn, vilji þeir koma sjónarmiðum slnum á framfæri við alþjóð." -ASt. Rólegheit við Menntaskólann —enþaðástand breytist á mánu dagsmorgun Það er ekki alltaf svona rólegt fyrir framan þetta menntasetur, Menntaskólann I Reykjavlk. Þar er allt lok, lok og læs en þessar ungu blómarósir láta það ekki á sig fá. Þær sleikja sinn ís, kannski svolítið sólskin Ileiðinniog slappa af og skoða borgarlífið. A mánudagsmorgun á lffið að ganga sinn vanagang við MR eins og aðra menntaskóla og æðri stofnanir, — þá mæta nemendur og kennarar til leiks að nýju að fyrirskipan menntamálaráðherra. Ekki er ljóst hvaða álit verkfalls- varzla BSRB hefur á þeirri ákvörðun. Trúlega eiga húsverðir að opna skólana með lyklum sln- um að þeirra mati. -A.Bj. Vilmundur enn óráðinn um framboð „Eg legg bara inn mitt fram- boð annað kvöld, ef af verður," sagði Vilmundur Gylfason I viðtali við DB I gær. „Sem sagt: No comment." Benedikt Gröndal mun bjóða sig fram I efsta sætið á lista Alþýðuflokksins til alþingis- framboðs. Eggert Þorsteinsson býður sig fram I 1. og 2. sæti, Sigurður E. Guðmundsson I 1„ 2. og þriðja sætið sem og Bragi Jósepsson. Framboðsfrestur til próf- kjörsins rennur út á miðnætti I kvöld. Það er sem sagt ekki ljóst enn hvort Vilmundur gefur kost á sér á lista Alþýðu- flokksins til alþingiskosninga I Reykjavfk. Verkamenn óskaststrax íbyggingarvinnu Uppl. f'sifiia 66473 Auglýsing Samkvæmt ákvörðun menntamála- ráðuneytisins hefst kennsla í eftirtöld- um skólum mánudaginn 17. október samkvæmt stundaskrá: Menntaskólinn I Reykjavík, Menntaskólinn við Sund, Menntaskólinn við Hamrahiíð, Menntaskólinn I Kópavogi, Kennaraháskóli Islands, Fjölbrautaskóii Suðurnesja, Fiensborgarskóii, fjölbrautaskóii. Orðsending frá Hjúkrunarskóla íslands Kennsla hefst mánudaginn 17. okt. Yngri hópur mæti kl. 9.30. Eldri hópur mæti kl. 11.30. Verklegt nám helzt óbreytt samkvæmt vaiðskrá. Skólastjóri. Kristinn Karlsson ogGuðmundurE. Finnsson skrifa gesta-gagnrýni umfrumsýningu Skagaleik- flokksins Himinn, Jörð og Helvrti Höfuðbólið og hjáleigan heitir leikverk Sigurðar Róbertssonar, verzlunarmanns I Máli og menningu. Eflaust hefur það hitað Sigurði og að- standendum verksins um hjartaræturnar hversu vel og innilega þvl var fagnað að lok- inni frumsýningu I Bfóhöllinni á Akranesi a fimmtudagskvöld- ið. Verk þetta er verðlaunaleik- rit, samið með tilliti til flutn- ings I útvarpi. Er verkið nú frumflutt á sviði og verður að segja sem er að Skagaleik- flokknum á Akrane'si hefur vel tekizt til um uppfærsluna, enda þótt að ýmsum atriðum megi kannski finna, eins og oftast þegar leikrit er fært upp a sviði. Efnið I sögu sfna sækir Sigurður allt til þess tfma þegar Drottinn Allsherjar tekur sig til og skapar þann heim sem við lifum I I dag. Sköpun heimsins gengur brösótt hjá Guði þvf hersveitir himnanna finna fljótlega upp eitt vopn verka- lýðsins — þeir fa betri laun I hjáleigunni hjá Lúsifer og gerast hans þjónar. Þannig er haldið a efninu I léttum dúr og það er óhætt að fullyrða að fólk hafði mjög Höfundur Höfuðbóisins Sigurður Róbertsson. Váka' Haraidsdóttir og Jakob Þór Einarsson f hlutverkum fyrstu eintaka mannsins, Adams og Evu. gaman af verkinu og andinn I Bfóhöllinni var sérstaklega skemmtilegur þetta frum- sýningarkvöld. Fimm leikarar fara með hlut- verk I Höfuðbólinu, og satt bezt að segja kom það okkur á óvart að hitta fyrir svo ágæta leikara á Akranesi. Mest mæðir a þeimi Þorvaldi Þorvaldssyni (Drott- inn Allsherjar) og Antoni Otte- sen (Gabrfl erkiengill). Fóru þeir báðir afburða vel með hlut- verk sfn, enda þótt frum- sýningarskjálftinn hafi eflaust frekar dregið úr þeim heldur en hitt. Lúsifer leikur Pálmi Pálmason og fór vel með sitt hlutverk, enda þótt reynsluna á sviði skorti enn. Þau Adam og Evu léku þau Jakob Þór Einars- son og Vaka Haraldsdóttir. Einkum var það framsögnin hjð þessu unga fólki sem ábóta- vant var. Leikstjórinn, Haukur Jón Gunnarsson, hefur skapað ótrú- lega góða sýningu upp úr þessu útvarpshandriti Sigurðar Róbertssonar. Og honum hefur tekizt að virkja áhugafólk f leiklist og gera skemmtilega og eftirminnilega sýningu úr. Greinileg austurlenzk áhrif er að finna f förðun leikenda, hinir góðu eru hvftir, þeir slæmu svartir. Haukur Jón hefur reyndar numið leikhús- fræði og leikstjórn f Japan og Englandi. Leikmynd Vignis Jóhanns- sonar er sáraeinföld — en góð. Vignir nær rétta blænum á verkið og nýtir hið litla og óþénuga svið Bfóhallarinnar til hins ýtrasta. Lýsing Magnúsar Axelssonar a trúlega eftir að slfpast á næstu sýningum sem ættu, vel að merkja, að verða margar. Svo góða skemmtun býður Höfuðbólið og hjáleigan upp á. Anton Ottesen og Þorvaldur Þorvaldsson f hiutverkum sfn- um f Höfuðbóllnu.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.