Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.10.1977, Qupperneq 7

Dagblaðið - 15.10.1977, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGAKDAGUK 15. OKTOBER 1977. ___7 Ákynningar- 1 fundi Starfs- ■ .IUA BJARGAÐIÞÓR- manna- ■ félagsins: f IALU FYRIR HORN Það var vel mætt á fundinum I Hafnarhúsinu og undirbúningur állur fyrir fundinn var nú til fyrirmyndar. DB-myndir Bjarnleifur Samningur Starfsmanna- félags Reykjavíkurborgar og Launadeildar borgarinnar hefur greinilega valdið miklu fjaðrafoki innan BSRB. Telja forystumenn hreyfingarinnar að verið sé að reyna að reka fleyg í samstöðu samtakanna. Stjórn Starfsmannafélagsins telur sig hins vegar hafa neytt þess réttar sem hún hefur til sjálfstæðra samninga og minnug fundarins a Sögu sl. mánudag hélt hún marga kynningarfundi um samninginn í gær. Félagsmenn eiga að greiða atkvæði um hann í dag og á morgun. Blaðamaður DB sat einn slíkan: „Þetta er tafl sem við erum að tefla f fyrsta sinn. Nú skul- um við vega og meta hvort við teljum okkur geta lifað af þess- um launum,“ sagði Lilja Ólafs- dóttir. „Persónulega tel ég mig geta lifað af þeim launum sem ég fæ út úr þessum kjara- samningum, sem ég tel að við eigum að samþykkja. Við skul- um ekki þreyta almenning um of í þetta fyrsta sinn, sem við höfum verkfallsrétt, en leika betur næst. Ég tel laun okkar í Þórhallur, mikið lán að samningurinn var felldur. sumum launaflokkunum orðin fullkomlega sambærileg við hinn almenna vinnumarkað." Þessi orð Lilju Ólafsdóttur hjá Skýrsluvélum, (hún hefur 206.599 kr. f mánaðarlaun eftir nýja samningnum) björguðu Þórhalli Halldórssyni formanni fyrir horn. Minnstu hafði munað að óánægjuraddirnar á fundinum f Hafnarhúsinu hefðu náð yfirhöndinni, enda þótt sá hópur væri greinilega fámennari. Þórhallur byrjaði vel, var út- sofinn og vingjarnlegt andrúmsioft rfkti á fundinum. Allir fundarmenn fengu nú samninginn upp í hendurnar og vel flestir höfðu fengið hann sendan heim kvöldið áður, and- stætt þvf sem var á fundinum á Sögu þar sem fáir vissu um hvað var verið að tala. Eftir að Þórhallur hafði rakið langa forsögu að samningnum og viðurkennt að stjórninni hefðu orðið á mistök varðandi fundinn a Sögu (þar sem hann lagði hart að fólki að samþykkja þáverandi samning), sagði hann: „Ég tel það mikið lán að sá samningur var felldur. Það gaf okkur auk- ið svigrúm til samninga og leiddi í ljós, að við gátum treyst frekari samningavilja borgar- yfirvalda. Með þessum fundi viljum við útskýra samninginn og reyna með öllum ráðum að koma f veg fyrir að hann verði felldur." Þórhallur áminnti einnig fundarmenn um það að það væri þýðingarmikið að opinberir starfsmenn stæðu saman á félagslegum grund- velli í BSRB, en sagði einnig að það yrði að vera á jafnréttis- grundvelli. Rakti hann síðan samningana og þá breytingu sem orðið hefði á þeim frá því á mánudag. Þá var boðið upp á 3% launahækkun en nú var einu prósenti bætt við frá 1. des. Auk þess var sa :iið um hækkun launaflokka eftir 15 ára starfs- aldur, persónuuppbætur gerðar þríþættar, frekari heimild gefin á klifi milli þriðja og fjórða launaflokks og fjórða og fimmta, auk annarra hluta sem greint hefur verið frá. I samningnum er ekki kveðið á um endurskoðunarrétt og það útskýrði Þórhallur með því að hafa eftir Kristjáni Thorlacius formanni BSRB: „Mér er það ljóst að við munum ekki fá þennan endurskoðunarrétt í Lilja, — kom formanninum tii hjálpar. þetta skiptið." Þetta mun Kristján hafa sagt a samninga- nefndarfundi i Háskólanum sl. laugardag að þvi er Þórhallur sagði. Einn fulltrúi úr fulltrúaráði félagsins sté í pontu og upplýsti fundarmenn um það að á fundi fulltrúaráðsins hefði beinlínis verið einhugur um að aflýsa verkfalli borgarstarfsmanna nú um helgina og að láta útbúa upplýsingabækling um samninginn i þeim anda. „Eins prósents hækkun verður uppétin 1. desember. Hvers vegna getum við ekki náð hliðstæðum samningum og gerðir hafa verið á Akranesi og á Neskaupstað?" spurði fulltrú- inn og hvatti fólk til að fella samninginn. Fékk lítið klapp. Formaður tók föðurlega á þessum mótbárum og taldi þetta vera misskilning. Að vísu væri hér aðeins um eins prósents hækkun frá fyrra tilboði að ræða — en — spurði Þórhallur: „Hvað halda menn aí muni gerast, ef þessi ->mningur verður felldur?? Þá um við í þessu sama og þeir í»já BSRB. Það er ekki talað við þá. Við megum ekki gera kröfur sem geta kolfellt okkur Sjálf.“ Við þetta nikkuðu margir fundarmanna, sem voru eldra tólk f meirihluta og ekki vant þvf að vera að brúka munn við höfðingja. Sumir komu 'í ræðustól, menn sem sögðu „aunga kjarabót" og að hlutirnir kostuðu bæinn (með stórum starf) svo og svo mikið. Flestir voru þeir sammáia um að ekki vildu þeir þurfa að standa ! svona samningaþrasi og töldu samninganefnd hafa unnið gott starf. Upp úr þessu fóru fundar- menn að tínast út. Stjórnin upplýsti að Starfs- mannafélagið myndi ekki taka þátt f útifundi BSRB í dag en sagði félagsmenn frjálsa að þvf að sækja þann fund, ef þeir vildu.- Kvörtuðu sumir fundarmenn yfir samgönguleysi f borginni og blm. DB fór af fundinum með óljósa hugmynd um hversu margir félagar Starfsmanna- félags Reykjavfkurborgar myndu mæta á útifundinn. -HP. ALLSHERJARATKVÆÐAGREfÐSLA um kjarasamning milli Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar. Atkvœðagreiðslan fer fram í Miðbœjarskólanum laugardaginn 15. okt. fró kl. 14—20 og sunnudaginn 16. okt. kl. 10—19. SKRIFSTOFA VEGNA ATKVÆÐAGREIÐSLUNNAR VERÐUR AÐ TJARNARGÖTU 12. HUN VERÐUR OPIN FRA KL. 9—24 1 DAG OG- A MORGUN. Þar liggur samningurinn frammi til nánari athugunar fyrir félagsmenn, svo og kjörskrá. Simar skrifstofunnar eru: VFIRKJÖRSTJÖRN — 28237 KJÖRSKRA —28561 SAMNINGURINN — 28544 FÉLAGAR - FJÖLMENNIÐ TIL ATKVÆÐAGREIÐSLUNNAR: KJÓSUM SNEMMA: SAMEINUMST UM BÍLFAR Á KJÖRSTAÐ

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.