Dagblaðið - 15.10.1977, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 15.10.1977, Blaðsíða 13
l)A(iHI.At)It). I.AUCAKDAGUK 15. OKTÓBEK 1977. 13 þess að sýna styrk sinn. Þannig segir annar makinn í upphafs- samtalinu: „kem alveg“, en hugsar ef til vill með sér: „Nei, góða, þú skalt sko ekki halda að ég komi fyrr en mér þóknast. Ég er orðinn dauðleiður á þvf að þú sért alltaf að stjórna í mér.“ Nöldur er oft talið kvenna- siður. En sérfræðingar halda því þó fram að karlmenn nöldri fullt eins mikið og konur. En nöldrið er þá nefnt öðrum nöfn- um: „hann veit hvað hann vill“, er sagt. Nöldri er hægt að lýsa á ótal vegu. En þó er hægt að alhæfa að undirtónninn í því öllu sé: „Þú gerir hvort sem er ekki það sem ég bið þig svo það er tilgangslaust að fara fram á það.“ Er það þá furða að ekki sé brugðizt vel við? Margt fólk fullyrðir að ekki sé hægt að komast hjá nöldri. Þannig sagði kona ein: „ef ég nöldra er það vegna þess að maðurinn minn kemur mér til þess“. Og þetta mun í mörgum tilfellum vera satt. Margir menn, karlar og konur, eins og loka eyrunum fyrir því sem maki þeirra er að segja. Þeir þegja alltaf og eru þolendur en svara aldrei eða gera neitt í málinu. Ef mikið er nöldrað bendir það til þess að samskiptin séu eitthvað í ólagi. Og þá er bezta ráðið að koma saman og ræða málin, lausn fæst aldrei annars. Það er ekki auðvelt að útrýma nöldri en hér fara þó á eftir nokkur ráð sem gefin hafa verið af bandarískum sál- fræðingum og gætu jafnvel hjálpað við íslenzkar aðstæður. Ef þú ert nöldurskjóðan 1. Gættu að hvernig raddblæ þú notar. Nöldur felst oft frekar 1 því hvernig þú talar en hvað þú segir. Ef raddblærinn felur í sér vantrú á því að hinn hlusti gerir hann það liklega ekki. 2. Segðu hlutina einu sinni og aðeins einu sinni. Farðu svo og sinntu öðru. Félagi þinn fær skilaboðin kannski seint og um síðir en fær þau samt. 3. Nöldraðu alls ekki. Þetta hljómar ögn heimskulega en það er það alls ekki. Félagi þinn gæti orðið svo hissa yfir þeirri breytingu á j ér að hann bregðist ósjálfrátt við öðruvísi en þú taldir mögulegt. Ef nöldrað er í þér. 1. Vertu ekki með neinn leikaraskap. Ef maki þinn kallar á þig í matinn og þú ert að horfa á ensku knatt- spyrnuna í sjónvarpinu skaltu segja honum það hreint út. 2. Reyndu að sætta þig við það. Félag manna sem er að öðru leyti traust þolir vel örlítið nöldur. -DS-þýddi. EKKIEINS HÁSKALEGT r Þetta gólf er sannarlega erf- itt yfirferðar 1 augum lltillar dömu. Henni finnst eins og ráð- legast sé að stikla á flötunum sem eru milli spýtnanna. En gólfið er ekki eins háskalegt og sýnist. Gólfið er sem sé allt jafnslétt og 1 sömu hæð. En það er gert úr mislitum viðarbútum sem skapa þessa blekkingu. Þetta er ekki glæný blekking því gólfið gerði dúklagningar- maður einn á átjándu öld. Gólf- ið er 1 bókasafni 1 Þýzkalandi og hefur vlst ruglað anzi márga. DS-þýddi. WALLY5 GALLABUXUR Þeir hafa misst af okkur. Nú förum við aÖ skautahöllinni. En þau vita ekki um manninn, sem faldi sig j forangursgeymslunni. En þetta verður í "1 sinn sem þau hittast öll saman. Nú hafa Stuttu síðar. Við sœkjum ^ hann í eitthvert hótel ó Time Square.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.