Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.10.1977, Qupperneq 14

Dagblaðið - 15.10.1977, Qupperneq 14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. OKTÖBER 1977. „Gamla bump, bump maskáian þarfað vera til stadar” Ævintýrið um Boney M. hófst fyrir tveimur Srum er vestur-þýzkur upptökustjóri og söngvari, Frank Farian að nafni, akvað að verða ríkur. Hann sá að diskótektónlist með bumpi og tilheyrandi hristingi atti vaxandi fylgi að fagna svo að hann valdi þa tónlist til að safna auðinum. Stúdíótónlistar- menn og söngvarar voru fengnir til og útkoman varð lag sem nefndist Do You Wanna Bump. Creole plötufyrirtækið tók að gefa lagið út og Farian ákvað að kalla flytjendurna Boney M. eftir þýzkum sjónvarpsþætti. En platan tók miklu betur við sér en Farian hafði gert sér í hugarlund svo að nú vantaði hann fólk í snatri sem hann gæti látið koma fram ð sviði undir Boney M. nafninu. Hann hafði lengi langað til að koma sér upp kvartetti með þremur konum og einum karl- manni og nú lét hann þann draum rætast. Stúlkurnar þrjár, sem hann réði, voru allar ættaðar frá Jamacia. Þær heita Marcia Barett, Liz Mitchell og Mazie Williams. Karlmaðurinn 1 hópnum er frá Antillaeyjum og heitir Bobby Farrell. Áður en þau fjögur réðust til Franks Farian fengust þau við ýmiss konar störf hvert í sínu lagi. Mazie Williams var til dæmis lengi búsett í Eglandi. Hún söng með fjölda hljómsveita, en var aldrei nálægt þvi að slá í gegn. Arið 1973 var hún kosin ungfrú „black and beautiful". Sá titill gaf ekkert i aðra hönd, annað en smáupphefð svo að hún gafst upp og fluttist yfir til Þýzkalands. Marcie Barrett fluttist einnig til Englands frá Jamaica. Hún var aldrei sérlega söngvin né áhugasöm um tónlist. Hún starfaði um nokkurt skeið sem einkaritari, en leiddist starfið ákaflega. Til að skipta um umhverfi fluttist hún til meginlandsins og hóf þar söng- feril sinn. Liz Mitchell fluttist beint frá Jamaica til Þýzkalands. Ferill hennar 'var hvað viðburða- ríkastur þeirra fjögurra er hún réðst til Frank Farian. Hún söng í söngleiknum Hair í Hamborg og er sýningum a því stykki lauk réðst hún til Les Humphries Singers. „Það var mjög gaman að starfa með Les Humphries," segir hún, „en þreytandi til lengdar. Ég var vön hópvinnu í Hair en algjört einræði ríkti í söngflokki Les Humphries. Við vorum aðeins launaðar brúður." Bobby Farrell flutti frá Antillaeyjum til Hollands fimmtán ára gamall. Hann hefur verið viðriðinn tónlist mestallt sitt líf, ýmist sem söngvari í soulhljómsveitum eða plötusnúður. Daddy Cool, Sunny og Ma Baker. Sú síðastnefnda náði þeim árangri að komast í annað sæti á brezka vinsældalistan- um. Þá var Donna Summer númer eitt með I Feei Love af nýjustu piötu sinni. Mjög skiptar skoðanir eru um tónlist þá, sem Boney M. flytur. Eitt eru allir orðnir sammála að pæla eða hugsa,“ sagði Marcia Barrett í viðtali við Melody Maker fyrir nokkru. „Astfangið fólk fer þangað ekki. Það fer til að ræða málin og skemmta sér. Taktföst tónlist þarf að vera til staðar, — gamla bump, bump, bump maskínan. Það er þess konar tónlist, sem Boney M. býður Piötur Boney M. hafa selzt eins og heitar lummur um gjörvalla Evrópu og ekki hvað sízt á Islandi. Tvær stórar plötur hafa komið út með hljómsveitinni. Þær eru Take The Heat Off Me og Love For Sale. Þá hafa einnig komið nokkrar litlar plötur með Boney M. Þær söluhæstu eru um nú orðið. Hún er ekki soultónlist heldur hrein og hrá diskótónlist. Margir láta hana fara ákaflega í taugarnar á sér og þykir hún neðsta þrepið í þróunarstiga tónlistarinnar. Aðrir — reyndar mikill minnihluti — vilja helzt ekki heyra annað en Boney M. „Fólk sækir ekki diskótek til upp á.“ Marcia Barrett hefur sínar skoðanir á fólki, sem telur það fyrir neðan virðingu Vestur- Indíabúa að syngja diskólög. „Þetta er heimskulegt,“ segir hún. „Ég yfirgaf Jamaica barn að aldri og hef aldrei komið þangað síðan. Að sjálfsögðu kann ég að meta reggaetónlist en ekki hvaða lög sem er. Þegar ég starfa með Boney M. likar mér vel sú tónlist, sem við flytjum, og það er það, sem mestu máli skiptir." Það hefur Marcia einnig sitt að segja um að Boney M. sé aðeins hópur af stúdíóbrúðum, sem lúta í einu og öllu vilja Frank Farians. „Það er rétt að við höfum lítið að segja um valið á lögum við Boney M. flytur,“ viðurkennir hún. „Við syngjum um það bil þrjátíu lög á band áður en hin eiginiega plötu- upptaka hefst. Ég myndi segja að Frank Farian hefði 80% vald yfir því, sem velst á plöturnar. Hann hlustar á skoðanir okkar að vissu marki. En hvað ættum við svo sem að segja, þegar ákvarðanir nans gagna jafn vel upp og raun ber vitni?“ En hvaða starfsaðferðum beitir Frank Farian þegar Boney M. plöturnar eru hljóðritaðar? „Jú, hljóðfæraleikurinn er tekinn upp í Míinchen," svarar Marcia Barrett. „Ég held að hljóðfæraleikararnir séu héðan og þaðan að úr heiminum. Þó er ég ekki viss því að ég hef aldrei hitt þá. Raddir okkar eru síðan hljóðritaðar í bænum Offen- bach,“ heldur hún Sfram. „Frank kemur með upptökurnar og hlustar á þær með okkur. Síðan segir hann okkur hvernig hann telur að söngurinn eigi að hljóma. Þeg- ar tekin eru fyrir velþekkt lög, sem jafnvel hafa verið vinsæl áður, leyfir Frank okkur að heyra gömlu útsetningarnar. Frank er þolinmóður og rólegur meðan upptökurnar fara fram. Fari svo að við ljúk- um ekki lagi á einum degi, höldum við bara áfram daginn eftir þar til allt hljómar eins og það á að gera. Við notum aldrei utanaðkomandi söngkrafta.“ Hvað segir Marcia Barrett þá við þeirri fullyrðingu ýmissa að stíll Boney M. minni mjög á söngtríóið Silver Convention, sem naut mikilla vinsælda viða um heim til skamms tíma. Hún svarar: „Donna Summer hefur sinn eigin stíl, Silver Convention sinn stíl og við okkar — jafnvel þó að strengjaútsetningarnar hljómi kannski dálítið svipað.... já og trommurnar líka.“ Or MELODY MAKER. VI UNGE og vfðar. sagt frá hljómsveitinni BONEY M. c Verzlun Verzlun ... 1 BUCHTAL WJ keramikflísar. „ÚTI & INNI“ Á GÓLF 0G VEGGI. Komið og skoðið eitt mesta flísaúrval landsins. JL-húsið Bvggingavörukjördeild Sími 10600. Þungavinnuvélar Mlar gcrðir og slau ðir vinnuvcla og viirubíla á siiluskrá. l'lvcgum úrvals vinnuvclar og hila crlcndis frá. Vlarkaðslorgið. Einliolti 8. sinii 28590 og 74575 kviildsími. MOTOROLA Allcrnalorar i bíla og hála. (i/12/2 4/32 volla. I'lalinulausar Iraiisislorkvcikjur i flcsla bíla. HAUKUR & ÓLAFUR HF. Aripula 32. Sími 37700. Verzkin O&B ■j Síini 40299 INNRÉTTINGAR J Auðhrckku 32. Kópav ogi. Eldhúsinnréttingar. - Hnota og eik. Til afgreiðslu innan 2ja (il 3ja vikna. Uppstiiltar á-slaðnum. Verzlunin ÆSA auglýsir: Setjum gulleyrnalokka í eyru með nýrri tækni. Notum dauðhreinsaðar gullkúlu Vinsamlega pantið í sima 23622. Munið að úrvalið af tizkuskart grlpunuin cr í ÆSU. i2. A

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.