Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.10.1977, Qupperneq 15

Dagblaðið - 15.10.1977, Qupperneq 15
DACiBLÁÐIÐ. LAUGARDAC’iUR 15. OKTÖBER 1977. Spanskar Enski vinsældalistinn: Berglind ekki með af heilsufars- ástæðum Berglind Bjarnadóttir söngkona syngur ekki meö a jólaplötu Hljómplötuútgáf- unnar hf. af heilsufars- ástæðum. Á poppsíðu Dag- blaðsins síðastliðinn mið- vikudag var sagt að Berglind hefði hætt við þátttöku án nokkurra skýringa en hið rétta er nú sem sagt komið i ljós. -AT- nætur á toppnum Black Is Black, lagið, sem allir islenzkir sólárstrandafarar kannast svo vel við frá því í sumar, er komið í fyrsta sádi i Bretlandi. Hitt lagið, sem hljómaði á öllum diskótekum oft á hverju kvöldi, fylgir fast á eftir. — Yes Sir, I Can Boogie er komið í fjórða sæti. Spænska hljómsveitin Baccara hefur notið mikilla vinsælda á meginla'jdi Evrópu í allt sumar. Hún varð fyrst fræg fyrir Yes Sir, I Can Boogie og fylgdi því fast eftir með laginu Sorry, I’m A Lady. Það er nú í þriðja sæti í Vestur-Þýzkalandi. Elvis Presley var í fyrsta sæti i Bretlandi í síðustu viku. Lag hans, Way Down, er svo sannar- lega á niðurleið núna. Það er komið í sjöunda sæti. 1 tíunda sæti er hljómsveitin Yes með lagið Wondrous Stories. Yes eru ákaflega sjaldséðir gestir á vinsældalistum lítilla platna en þess stærri í stóru plötunum. Af einhverjum ástæðum barst bandaríski vinsældalist- inn ekki þessa viku. Þess í stað birtist hér v-þýzki listinn. Áber- andi á honum, hversu mikilla vinsælda svokallaðar táninga- stjörnur njója þar í landi. Bay City Rollers eiga þar til dæmis tvö lög a lista, Smokie eru í efsta sæti og þar má einnig finna nöfn svo sem Sweet, Shaun Cassidv og Harpo. - AT - ENGLAND — Melody Maker 1. (4) BLACK IS BLACK ....................LA BELLE EPOQUE 2. ( 2 ) SILVER LADY .........................DAVID SOUL 3. (10) I REMEMBER ELVIS PRESLEY ..........DANNY MIRROR 4. (21) YES SIR, I CAN BOOGIE...................BACCARA 5. (5) BEST OF MY LOVE.........................EMOTIONS 6. (11) NO MORE HEROES ......................STRANGLERS 7. (1) WAY DOWN ............................ELVIS PRESLEY 8. ( 3 ) MAGIC FLY................................SPACE 9. ( 8 ) FROM NEW YORK TO L.A..............PATSY GALLANT 10. (17) WONDROUS STORIES ...........................YES V-ÞÝZKALAND 1. (1) IT’S YOUR LIFE............................SMOKIE 2. ( 2 ) IT'S A GAME......................BAY CITY ROLLERS 3. ( 5 ) SORRY, l'M A LADY .....................BACCARA 4. ( 3 ) STAIRWAY TO THE STARS ...................SWEET 5. ( 4 ) YOU MADE ME BELIEVE IN MAGIC ....BAY CITY ROLLERS 6. ( 7 ) YES SIR, I CAN BOOGIE..................BACCARA 7. ( 6 ) BE MY BABY .......................SHAUN CASSIDY 8. (10) MAGIC FLY.................................SPACE 9. ( 8 ) IN THE ZUMZUMZUMMERNIGHT.................HARPO 10. ( 9 ) STANDING IN THE RAIN...........JOHN PAUL YOUNG Rod Stewart sendir frá sér nýja plötu Nýjasta plata Rods Stewart kemur á markaðinn ytra næst- komandi föstudag. Platan mun bera nafnið Footloose ’N’ Fancy Free. Nú þegar er komin út lítil plata með lögum af þeirri stóru. Aðallagið á henni nefnist You’re In My Heart. Hljóðfæraleikarar á Foot- loose ’N’ Fancy Free eru þeir sömu og fóru með Rod Stewart í hljómleikaferðalag síðastlið- inn vetur. Þeir eru gltarleikar- arnir Jim Cregan, Billy Peek og Gary Grainger, Phii Chen bassaleikari, John Jarvis pianóleikari og trommarinn Carmen Appice. Rod Stewart hefur ýmist samið sjálfur eða í samvinnu við aðra sjö lög á plötunni. Þá má þar einnig heyra gamla lagið You Keep Me Hanging On, sem Holland, Dozier og Holland sömdu á sinum tíma. EIK — Hríslan og Straumurínn Utgefandi: Steinar hf. (Steinar 017) Upptökumaður: Tony Cook. Stjórn upptöku: Eik og Tony Cook. Upptakan fór fram í Hljóöríta, Hafnarfiröi. Islenzkir hljómplötuútgef- endur geta lært margt af þeim viðtökum, sem Hrfslan og Straumurinn fær hjá almenn- ingi. Verði þær góðar er mark- aðurinn í lagi og öllu óhætt með áframhaldandi útgáfu þungrar Vélvædd sveitammantík pælingatónlistar. Seljist platan ekki er endanlega búið að heilaþvo meirihlutann með léttri afþreyingartónlist sem stíluð er upp á vinsældir í sjó- mannaþættinum og morgunút- varpinu. Sjálfur er ég svartsýnn. Þrátt fyrir ágætis lög á Hríslunni og Straumnum og prýðisgóðan flutning er ég smeykur um að létta tónlistin hafi um ófyrir- sjáanlega framtíð borið sigur- orð af hinni. Tími þungu tón- listarinnar ieið undir lok hér á landi með .... lifun Trúbrots og Magic Key-plötu Náttúru. Eik hefur allt frá þvf að hún var stofnuð verið sér á parti í íslenzku tónlistarlífi. Þung, jazzblönduð tónlist hefur setið þar í fyrirrúmi en danstónlistin verið aukaatriði. Smám saman safnaðist að hljómsveitinni tryggur aðdáendahópur, en því miður allt of lítill. Það er fyrir þann hóp sem Hríslan og Straumurinn er. Fyrir þann, sem þarf að hiusta á velflestar plötur sem koma út á landinu, er Hríslan og Straumurinn fyrst í stað lítt skiljanlegur pakki tóna og mis- jafnrar söngupptöku. En platan vandist blessunarlega fljótt. Ut- gefandinn, Steinar Berg, hefur verið þess vel meðvitandi að það tæki kaupendur talsverðan tíma að grípa allt það sem Eik hefur upp á að bjóða. Því lætur hann fylgja árs ábyrgð með plötunni. Hafi fólk ekki áttað sig á plötunni fyrir þann tfma er því frjálst að skila henni. Á Hrislunni og Straumnum eru átta lög eftir fimm meðlimi Eikar. Fimm lög eru sungin og eru textarnir eftir Halldór Gunnarsson og Gunnar Gunn- arsson — Gunter. Athyglisvert er að þrír af þessum textum fjalla um náttúruna. I titilverki plötunnar, sem er eftir Lárus Grímsson, kveður Halldór um þröstinn, sem flúði til landsins úr stybbu ,,og lævisum gróða- skýjum, sem leggjast yfir lönd- in“. En „Stybba með straumnum færist að, að Straumi sezt gulikálfanna hjörð...” I lagi Tryggva Húbner, Fjöll, yrkir Halldór stórgóðan texta um borgarbúann, sem er að verða vitlaus á streitu. Sér til heilsubótar gengur hann á fjöll og finnur sig endurnærast í kyrrðinni. Gunnari Gunnarssyni verður einnig sveitin að yrkisefni í lagi Ásgeirs Óskarssonar, Atthagar. Ljóð Gunnars fer hér á eftir: Atthagar hverfa í auðn og tóm eyðibýli f frjóu túni. Burtu er bóndinn, dagsverki iokið. Ferðaiangur á framandi stað minnist margs f ábúð við gróanda jarðar Horfið er vorið úr högunum þeim, hörku vetrarins stund er senn komin. Markaðstorg hégómans mannfólkið kallar tll tiða. Tii eru þeir, semtaumlausu prjálinu fagna — Táidregnir bændur, malbikið veitir oss allt. I litlu samræmi við þessa sveitarómantík er síðan hljóð- færaval Eikarinnar. Þar ber mest á rafmögnuðum hljóðfær- um, — þau náttúrulegu eru í miklum minnihluta. Með því má segja að rómantíkin hafi verið vélvædd. Hljóðfæraleikur á Hrislunni og Straumnum kemst allur vel til skila og sama er að segja um allan raddaðan söng. Hins- vegar hljómar aðalrödd Magnúsar Finns illa og virðist i blöndun hafa lent aftarlega. Þetta er stærsti gallinn, sem ég finn að plötunni. — Meðlimir Eikar eru allir viðurkenndir í fremstu röð íslenzkra hljóð- færaleikara og staðfestir Hrísl- an og Straumurinn það. Ég sagði I upphafi að tími þungrar tónlistar hafi liðið undir lok hér á landi í upphafi þessa áratugs. Það er hlutverk Eikarinnar að reyna að vinna þeirri tónlist sess á ný — aðrir tónlistarmenn virðast finna takmarkaða þörf hjá sér til þess. Sinfóniuhljómsveit ts- lands vinnur við það með stóru peningatapi að viðhaida sigildri tónlist í landinu. Með vænum ríkisstyrk er rekstur hennar tryggður, en Eik þiggur engan styrk. Spurningin stendur því um það hversu lengi meðlimir hennar endast-til þess að leika „æðri dægurtónlist" á sultar- launum. Ur því sker tfminn. - AT -

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.