Dagblaðið - 15.10.1977, Page 24

Dagblaðið - 15.10.1977, Page 24
Fokker millilenti íReykjavík ígær Undaríegt ástand Flugmönnum belgísku flugvélarinnar fannst ástandið hér á landi heldur undarlegt. DB-mynd Bjarnleifur. Fokker Friendship flugvéll lenti á Reykjavíkurflugvelli í gær á leið sinni frá St. Louis í Bandaríkjunum til Belgíu. Vélin flaug sjónflug í íslenzku flugstjórnarsvæði frá Syðri- Straumfirði á leið sinni hingað til lands. Flugmennirnir skildu lítið í þessari vitleysu sem viðgengst hér á landi og þeim skipunum, sem þeir fengu um að fljúga sjónflug héðan, þang- að til þeir komast í annað flug- stjórnarsvæöi. Þeir flýttu sér þvi að setja eldsneytið á vélina og forðuðu sér héðan hið bráðasta. Þá var von a lítilli flugvél frá Flugstöðinni, en hún var að koma frá Kaupmannahöfn með tvo sérfræðinga frá IBM til þess að gera við tölvu ppítalanna, en undanþága hafði fengizt til þessarar farar frá BSRB. -JH. Nýju samtökin hafa meöbyr „Afvötnunarstöð” opnuð íMos- feBssveit um mánaðamótin Samtímis kemur „leitar-og leiðbeiningastöð” íReykjavík og endurhæfingarstöð á næsta ári „Það er meðbyr hja okkur núna og hann notum við til hins ýtr- asta,“ sagði Hilmar Helgason for- maður hinria nýstofnuðu samtaka ahugafólksum áfengismai. „Markmiðið er núna að hefja rekstur afvötnunarstöðvar um eða upp úr næstu manaðamótum. Samtökin hafa haft tvo staði i Mosfellssveit í sigti i þessu augna- miði. Er það annars vegar Reykja- dalur, sem er í eigu Styrktar- félags lamaðra og fatlaðra, hin eignin er í einkaeign og kemur e.t.v. síður til greina. Samtimis afvötnunarstöðinni i Mosfells- sveit verður opnuð „leitar- og leiðbeiningastöð“ i Reykjavík þvi hennar er þörf í samstarfi við afvötnunarstöðina," sagði Hilmar. Hilmar sagði að afvötnunar- stöðin yrði eins og stökkpallur til vistunar a Vifilsstöðum eða á Freeport. I afvötnunarstöðinni verða sjúklingar í vikutíma. „Sú vika verður notuð til þess að gera sjúklingum skiljanlegt að þeir þurfi meðferðar við og í þeim efnum verður prógramm AA- samtakanna notað sem hið raun- hæfasta sem nú er völ a i þessum efnum,“ sagði Hilmar. Næsta takmark samtakanna kvað Hilmar vera það að koma upp endurhæfingarstöð og stæðu vonir til að sá draumur rættist á næsta ari. Þegar hún fengist yrði ,,afvötnunartímabilið“ lengt og endurhæfing fylgdi í kjölfar þess. „Fjármál hinna nýstofnuðu samtaka eru í mótun. Margar fjár- öflunarleiðir eru í könnun og at- hugun. Meðbyr er i starfinu hvar sem leitað er fyrir," sagði Hilmar. - ASt. Afleið- ingar verk- fallsins Afleiðingarnar af verkfalli opinberra starfsmanna er víða að sjá í borgarlífinu. Góða veðrið hefur þó þau áhrif að fólk gengur meira í öllu samgönguleysinu, og hér er einn góður borgari á ferðinni eftir Skúlagötunni cn baksviðið geymir Ivö far- skip frá Eimskip. Bæði eru stopp vegna aðgerða rikis- og borgarstarfsmanna og hreyfa sig ekki fyrr en vinnudcilan er útkljáð. DB-mynd Sv.Þorm. frjálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 15. OKT. 1977. Steypu- sttóið sprakk —ogbrotfórí höfuðmanns Vinnuslys varð við Malar- og steypustöðina á Akureyri á sjötta tímanum í gær. 36 ara gamall maður fékk hluta af sílói í höfuðið og hlaut allmikinn höfuð- áverka af en var þó í fyrstu ekki talinn í bráðri hættu. Verið var að vinna við þetta steypusíló en þar er steypu skotið með loftkrafti inn í sílóið. Skyndi- lega sprakk sílóið og fór hluti þess í höfuð eins þeirra sem nærstadd- ir voru með fyrrgreindum af- leiðingum. - ASt. Trillustrand á Eyjafirði . Lítill triltubátur, sem á var einn maður, strandaði síðdegis í gær skammt undan Skjaldarvík utan Akureyrar. Fóru m.-a. lög- reglumenn til bjargar manninum. Tókst björgun hans giftusamlega og án nokkurra meiðsla. - ASt. SÉRKÍN SPILAR ÞRÁTT FYRIR VERKFALL Rudolf Serkin. Tónlistarfélag Reykjavíkur heldur i dag afar merka tónleika. Það eru píanótónleikar þar sem hinn heimsfrægi Rudolf Serkin leikur verk eftir fjóra höfunda. Menn höfðu nokkuð óttazt að af tónleikunum yrði ekki vegna verkfalls BSRB og Serkin kæmist ekki til landsins. En þeim er ohætt að anda léttara því Serkin lét hvorki verkföll né annað hindra sig i að konta hingað. Hann kom áður en verkfallið skall á, sl. þriðjudag. Á tónleikunum verða verk sem eiga það sameiginlegt að þau eru nteð siðustu pianóverkum tón- skáldanna sem þau söntdu. Þetta eru Sónata nr. 49 eftir Havdn. Rondó k. 511 eftir Mozart. Sónata op. 111 eftir Beethoven og Sónata , op. posth. eftir Sehubert. Tónleikarnir hefjast klukkan 2.30 í Austnrba'jarbiói.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.