Dagblaðið - 05.11.1977, Side 2

Dagblaðið - 05.11.1977, Side 2
......... Það má i sannleika heitá gremjulegt að meira en hálft árið er varla hægt að fara út fyrir hússins dyr öðru visi en i einhverri yfirhöfn. Og þann hluta ársins sem það á að vera hægt hitans vegna, kemur þá til rigning sem gerir yfirhöfnina nauðsynlega samt. Mestan hluta hins eiginlega kuldatima er vissara að yfirhöfnin sé harla góð og ekki nóg með það, heldur annar búnaður I sam- ræmi við það: þykkir sokkar, vettlingar og helst prjónaföt næst sér. Húsakostur allur verður líka að vera i samræmi við þetta, svo hlýr, að hann haldist íbúðarhæfur um vetur, sem þýðir að hann er svo einangrað- ur að hann hlýnar ekki að gagni þá sjaldan hlýtt gerist um sum- ur. Og þeir sem ekki eiga bil- skúr — eða þá hafa hann fullan af drasli eins og víða vill brenna við — hefja kannski daginn með Kelloggs að fyrir- mælum sjónvarpsins, en setjast svo, ennþá skinnheitir upp úr bólinu, út í frystikistu sem stendur úti á hlaði og hlýnar ekki upp i núllið fyrr en eftir sex til átta kílómetra og fyrir- brigðið verður aftur að bil. Stundum sést til sólar, sem á að vera hlý, og þá lætur margur blekkjast og heldur að nú sé orðið hlýtt, þótt sjaldnast geri sólin mikið annað gagn á þess- um tíma heldur en spara annað DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NOVEMBER 1977. Að hefja daginn í f rystikistu —eða Hitastigið í Heivíti ljósmeti. Ég minnist þess oft, er virðulegur trésmiður í Reykja- vík hafði tekið sér stöðu gegnt Arnarhváli í beljandi norðan- gaddi og sól og hampaði þar haglega gerðri níðstöng móti gluggum hússins. Hann var snyrtilega klæddur I þokkaleg jakkaföt en hafði ekki skeytt þvi að hneppa skyrtuna í háls- inn. Ég ávarpaði manninn af samúð, þar sem bruninn næddi inn I hálsmál hans, og spurði hvort honum væri ekki kalt, hann hafði þá staðið svona í nokkra klukkutíma. Hann leit á mig Isbláum augum og svaraði nístandi: „Ég geng í prjóna- fötum næst mér. Mér er ekki Háaloftið vandara um í sólskini en öðrum veðrum.“ Aldrei hef ég getað skilið hvernig frumherjar' Helvitis- trúar á tslandi og öðrum norðurslóðum fóru að því að sannfæra almenning um að Helvíti væri vont af þvi að þar væri hlýtt. Einhvern veginn finnst manni að íslendingar til dæmis hlytu að verða fegnir því að fá loks einhvern yl þó ekki væri nema i sálina þegar þeir væru dauðir, þvi svo sannar- lega var ekki mikinn yl að hafa hér uppi á norðurhjara þá fremur en nú, ekki einu sinni til olíulögg til að kynda með firinguna og hverina var bara horft á úr fjarska. Það er ofur skiljanlegt, að þeir sem sömdu Helvitistrúna i öndverðu létu vera heitt í viti. Þeir bjuggu við svo mikinn hita, að þeim þótti sem óbæri- legt væri ef hann ykist frá því sem þeir þekktu. Sæludraumur þeirra var hins vegar forsælu- lundur þar sem iturvaxnar meyjar bjuggu til andvara framan i þá með þvi að blaka pálmaviðarblöðum. Þessir menn höfðu ekki kynnst þeim kuida að hann yrði verulega til óþurftar. Það setti að þeim ef hitinn fór niður I tuttugu stig. A hinn bóginn höfðu íbúar norðurslóða, þar með taldir islendingar, ekki reynt þann hita að hann yrði þeim óþolandi. Afturámóti þekktu þeir svo mikinn kulda að nærri lá að lífsandinn frysi á leiðinni út úr nösunum k þeim. Og enn þekkjum við ís- lendingar kuldann á heima- velli, hitann aðeins á útivelli. Það er eftirtektarvert, að Helvitishugmyndin með eilíf- um eldi hefur aldrei haft mikil áhrif á íslendinga. Það er ekk- ert undur. Það þarf ekki að vera að þeir séu forhertari en flestar aðrar þjóðir sem Hel- vítistrúnni hefur verið troðið upp á, þótt kannski sé freist- andi að halda þvi fram. Hins vegar hefur þeim svo oft verið kalt, að innst inni hefur hugmyndin um ylinn alltaf verið freistandi. Kannski skýrir þetta hegðun og atferli landans betur en flest annað. Gleði hylla góðir menn Vísur og vísnaspjall lón Gunnar Jónsson Margir eru skagarnir og skagatærnar á voru landi. Skagi, ritaður með stórum staf, er sá er gefur einni stærstu byggð á tsiandi og einum víðasta firði landsins heiti sitt. Hér koma nokkrar visur af Skaga frá öldinni sem leið. Þær eru teknar úr riti sem Lúðvig Kemp gaf út fyrir allmörgum árum. Frásagnir, sem þeim fylgja, hef ég lagað í hendi mér. Mörg eru þessi dæmi að visa eða jafn- vel vísupartur varpi birtu á atvik langt aftur í fortíð, sem annars væru gleymd og grafin. Vinnukonu eina skagfirska, sem heldur þótti fákæn, dreymdi að til sín kæmi nýlátinn maður. Hafði hann yfir vísu, og mundi stúlkan helming hennar, þegar hún vaknaði. Hún sagði frá þessu m.a. hagmæltum manni er Sveinn Pálsson hét, sem henni þótti nokkuð til koma. Hann þótti nokkuð kvenhollur og ókærinn. Nú vildi stúlkan fá botn í vísuna. Fyrriparturinn var svona: Annar jafnan fjarri fer, frekt því má ég bíða. Sveinn bætti við: í herrans nafni, Þórunn, þér þyrfti ég að ríða. Þessi sami Sveinn kom á þessum árum að Þangskála á Skaga. Þar var ung ekkja er Lilja hét, var talið að Sveinn hefði mjög hug á henni, en ekki gekk saman með þeim strax, því Lilja á að hafa ort um Svein þessa visu: Snauðan glanna met ég mann, mærð sem kann að laga. Varla svanna siðugan sækir hann á Skaga. En svo fór nú samt að Lilja og Sveinn urðu hjón og það nokkru fyrr en hæfi- legt þótti, því Lilja bjó skamma stund i ekkjudómi. Jón Jónsson hét bóndi á Gils- bakka í Austurdal I Skagafirði. Þetta mun hafa verið um 1865. Lilja mun hafa fengið nokkur efni eftir mann sinn, en Sveinn ekki þótt líklegur til mikillar ráðdeildar. Jón orti: Einlífis á eymdarnóttum ekkjur tíðum þola bágt. Getnaður i gluggatóttum girndaruglan skrækir hátt. Um þetta leyti bjó að Kleif á Skaga bóndi, Jón að nafni. Hann var nýfluttur framan úr Skagafirði. Eftir hann er þessi vísa: Þó að ég sé kominn að Kleif, sem kölluð er rekajörðin. Trauðlega fæ ég tré í sleif að tálga í Skagaf jörðinn. Sonur Jóns hét Guðmundur. Hann var bóndi í Kleifargerði. Hann orti um sveit- unga sinn er bjó með ráðskonum: Eldishesta, ær og kýr ekki brestur manninn. Eitt þó vest er, að honum snýr enginn festarsvanninn. Jón Gottskálksson hét og maður á Skaga um miðja siðustu öld. Hann var bróðir Lilju sem fyrrer nefnd.Hann orti brúðkaupsvísur til Ola Sveinssonar, vinar sins og sveitunga. Ein var svona: Færði i búið kopp og kút og kodda i rifnu veri, átti lfka á og hrút, eina tík og meri. Öli svaraði: Húsgangssnaga hangir á, hér af saga flýgur. Marga flagar menjagná marga á Skaga lýgur. Hér er svo loks vfsa sem Óli Sveinsson orti þegar eitt af skipum Skagamanna fórst 1887, nafn þess er f vísunni, þar áttu margir um sárt að binda: Sárnar í augum sjáldur mér, sinnið lemur kviði. Hafrenningur horfinn er. Hann var sveitarprýði. ★ Karl Halldórsson tollvörður 1 Reykja- vfk, látinn fyrir nokkrum árum, var Húnvetningur. Þessa vísu mun hann hafa ort í glöðum hópi sveitunga: Gleði hylla góðir menn, gleyma ilium högum. Húnvetnsk snilli hljómar enn hæst á tyllidögum. Þessar tvær vísur eru úr lengra kvæði eftir Karl: Heilsar dagur hárri brún, himinn bragar gullnum stöfum, sjá hve fagurt sólarrún sinum hagar vöggugjöfum. Austrið kailar eidi skírt orðsins spjall um bláa saii, árbiik fjalla undur hýrt yfir fjallsins tign og dali. Vegna starfa sinna fór Karl oft út i skip í Reykjavíkurhöfn og um innsigl- inguna eru nokkrar vísur. Hér eru fjórar. Hér við þjóðar höfuðból hrynur glóð um sæinn. Er að bjóða ylrík sól öllu góðan daginn. Dýrð er mest við dagsins barm drottins bestu smíðar, bjóða gestum breiðan arm bláar vesturhlíðar. Báðu megin' borði næst bindur eyjakögur, vorsins degi vermd og glæst víkin spegiifögur. Meðan rís frá rótum biað, rödd á vísdóm kallar, hylli íslands höfuðstað himindísir allar. Færð með snilli á fagran kjól f jöll í hilling loga, augað villir aftansól, ystu gyllir voga. Lokavísan er svo úr allt annarri átt. Ónefndur kvennamaður lítur yfir farinn veg: Astinni fylgir, hold er hey, heljarmikil vinna, Viðhaldsmaður var ég ei verri en sumir hinna. J.G.J. — S: 41046

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.