Dagblaðið - 05.11.1977, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 05.11.1977, Blaðsíða 24
Spurningar á „krossaprófi” sjálfstæðismanna: Bjórinn og kosninga- aídurinn hlutu blessun Tvær spurningar hafa verið samþykktar í skoðanakönnun sjálfstæðismanna, ef nægilegar undirskriftir fást, og hin þriðja með fyrirvara. Stjórn fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna hefur lagt blessun sína yfir orðalag spurninga um bjór og kosninga- aldur. Þetta eru spurningar um hvort menn vilji leyfa fram- leiðslu og sölu áfengs öls og lækkun kosningaaldurs í 18 ár. Bjórspurningin er frá Böðvari Einarssyni og kosningaaldur- inn frá Kjartani Gunnarssyni og Anders Hansen. Þá var sam- þykkt með fyrirvara spurning um hvort stjórnarráðsdeildir skyldu vera í miðbænum. Um það mál er fjallað í annarri frétt 1 blaðinu. Tvær spurningar frá Ásgeir Hannesi Eirikssyni bíða þar að auki mánudags, spurningar um aronsku og landbúnaðarstefnu. Stjórnin kaus þrjá menn til að ræða við flytjanda þeirra. Stjórnin var ekki alls kostar ánægð með orðalag spurning- anna sem gengu út á hvort menn vildu þátttöku varnar- liðsins í kostnaði vegna vega- gerðar og heilsugæzlu og hvort hætta skuli niðurgreiðslum og útflutningsuppbótum á land- búnaðarvörur. Stjórninni þóttu þessar spurningar of viða- miklar og sagði að hvor þeirra innihéldi fleiri en eina spurn- ingu. Þessar spurningar hafa þó forgang á mánudag ef sam- komulag næst um orðalag. Aðeins fimm spurningar verða leyfðar og sú tala spurninga barst í gær. Endanlega á að ganga frá þessum málum fyrir klukkan eitt á mánudag. Aðferðin er sú að stjórn full- trúaráðsins samþykkir fyrst orðalag spurninga og síðan er gengið frá öflun 300 meðmæl- enda. -HH í biðsalnum Þessum þremur þótti ekki ráð nema í tíma væri tekið og þeir tóku sér stöðu utan dyra hjá stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Sjálfstæðishúsinu í gærmorgun. Þeir skyldu verða á undan öðrum sem áhuga hefðu á að koma spurningum á framfæri í prófkjörinu. Klukkan tólf tók stjórnin að líta á spurningarnar. Frá vinstri: Anders Hansen, Ásgeir Hannes Eiríksson og Haraldur Blöndal. Mynd Sveinn. Haraldur fær ekki aðnefna Víðishúsið „Það er talið of persónulegt ef ég nefni Víðishúsið í spurningu minni,“ sagði Haraldur Blöndal lögfræðingur í gær. Hann beitir sér fyrir undirskriftum til að koma spurningu um kaupin á Víðis- húsinu að sem einni af fimm spurningum sem lagðar verða fyrir kjósendur í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík. „Ég hef verið I sambandi við menn i stjórn fulltrúaráðsins. Ef Víðishúsið yrði nefnt er það talið geta skaðað viðskiptahags- muni og fleira,“ sagði Haraldur og benti á ákvæði í reglugerð, sem samþykkt var á fundi fulltrúaráðsins, þar sem segir að spurningar skuli ekki beinast að tilteknum hópi eða einstaklingum. „En ég er enn að athuga þetta.“ Hins vegar bar hann fram svohljóðandi spurningu: Eruð þér hlynntur því að aðsetur stjórnarráðs- deilda verði í gamla miðbænum svonefnda? Haraldur hugðist með þessu ná þeim tilgangi að kjósendur f prófkjörinu gætu tekið_afstöðu til kaupanna á Víðishúsinu. En stjórn fulltrúaráðsins var ekki alls kostar ánægð með spurninguna og benti á að sum- ar „stjórnarráðsdeildir“ væru nú þegar utan miðbæjar. Spurningin var samþykkt með fyrirvara um að samkomulag næðist milli Haralds og stjórn- ar fulltrúaráðsins um orðalagið. -HH. Aðalfundur Sambands sparisjóða: Þeir litlu eru furðu stórir FUGLIHREYFIL PÍLAGRÍMAVÉLAR —skipt um hreyfil f Luxemburg —flutningamir ganga eftir áætlun Sparisjóðir landsins eru þriðja stærsta lánastofnunin, ef litið er á þá sem eina heild, næst á eftir Landsbankanum og Búnaðar- bankanum. Hlutur þeirra hefur vaxið. Nú í ágústlok voru innstæður þeirra 12,7 milljarðar eða 15,4 prósent af öllum innstæðum I innlánsstofn- unum. Aðalfundi Sambands sparisjóða er nýlokið. Starfandi eru 43 spari- sjóðir. Á fundinum kom fram mikill einhugur um að tryggja eftir mætti að íbúar hvers byggðarlags hafi sjálfir ráðstöf- unarréttinn yfir sparifé sínu, eins og það var orðað. Staða sparisjóðanna gagnvart Seðlabankanum hefur verið mjög góð. Fulltrúar þeirra létu I ljós óánægju með að fjórðungur af innlánsfé þeirra er bundinn í Seðlabankanum. Þeir vöruðu við aukningu þessarar bindingar og gagnrýndu hve lágir vextir eru greiddir af bundnu fé. 3,2 millj- arðar af innstæðum viðskipta- manna sparisjóðanna voru bundnir með þessum hætti í ágústlok. Seðiabankinn lánar fé þetta aftur í endurlánum til at- vinnuveganna gegnum viðskipta- bankana. Guðmundur Guðmundsson, sparisjóðsstjóri I Hafnarfirði, baðst nú undan endurkosningu. í stað hans var Baldvin Tryggva- son, sparisjóðsstjóri hjá Spari- sjóði Reykjavíkur og nágrennis, kosinn formaður. - HH Flugleiðir hafa nú flutt um 3900 farþega frá Kanó til Jedda — og um 400 frá Oran — og ganga flutningarnir samkvæmt áætlun. Samtals er áætlað að fljúga með um 7400 pílagríma til Jedda. Fyrri hluti áætlunar hófst 25. október og lýkur 15. nóvember — en ^íðari hlutinn hefst 25. nóvember.Þaðóhapp varð í fyrstu ferð frá Oran að fugl lenti i hreyfli vélarinnar en þrátt fyrir það var flogið áfram til Jedda. Vélinni var síðan flogið nokkr- um dögum síðar til Luxemburgar, þar sem skipt var um hreyfil, en ekki þótti ástæða til að skipta um fyrr. Flugleiðir nota tvær DC-8 vélar í pílagrímaflugið — og hafa tekið á leigu DC-8 vél frá Bandaríkjun- um á meðan, eða til 20. desember. -h. halls. frjálst, nháð dagblað LAUGARDAGUR 5. NOV. 1977. Flytja verksmiðjuna suður: AKRA flytur f rá Akureyri til Hafnar- fjarðar Það er I bígerð að Smjörlíkis- gerð Akureyrar eða Akra flytji til Hafnarfjarðar. Að sögn Ágústs Berg forstjóra er flutningurinn þó bundinn þvi að hægt sé að selja eignir fyrirtækisins á Akureyri þannig að hægt sé að kaupa húsnæði í Hafnarfirði. Akvörðun þessi var tekin vegna þess að aðalmarkaðssvæði verk- smiðjunnar er höfuðborgar- svæðið og það er betur sett varðandi aðflutning á efnum. Verksmiðjan stöðvast stundum að vetri til vegna hráefnisskorts og stundum þarf að borga undir efnið með bllum norður. Það er því hagkvæmara ef hægt er að framleiða vörur verksmiðunnar þar sem aðalsalan er. Að auki er hörð samkeppni við smjörlíkisgerð KEA og KEA hefur ekki selt smjörlíki frá Smjörlikisgerð Akureyrar, að frátöldu jurtasmjörllki, auk þess sem KEA hefur selt sælgæti frá verksmiðjunni. „Það kæmi af sjálfu sér,“ sagði Agúst, „að það yrði að breyta nafni verksmiðjunnar. En ég býst við að við höldum Akranafninu sem hefur reynzt vera ágætt vörumerki." -JH. PéturGuðjóns- son íframboð? Uppstillingarnefnd Sjálf- stæðisflokksins I Reykjavík hefur leitað til Péturs Guð- jónssonar forstjóra og for- manns Félags áhugamanna um sjávarútvegsmál og beðið hann að fara I framboð I prófkjöri sjálfstæðis- manna. Pétur er ekki sízt þekktur fyrir gagnrýni á stefnu rlkis- stjórnarinnar I landhelgis- málum. Hann bað um frest til að íhuga þessi tilmæli. - HH Átta ára skftur íTollpóststofunni: Veggir og ioft ekki þvegin í manna minnum — Líkist helzt giíanöi að mati starfsfólks „Við ætluðum að sá í gluggana hér en þá var sópað úr þeim,“ sagði starfsfólk Tollpóststofunnar í Hafnarhús- inu við Tryggvagötu. „Viðbjóðurinn er slíkur að slikt þekkist hvergi á vinnustöðum, þetta er eins og gúanó." Ofangreind ummæli lýsa áliti starfsfólks Tollpóststofunnar á vinnustað sínum. Og satt er það, mikill er skíturinn á veggj- um og lofti Tollpóststofunnar. Starfsfólk sem unnið 'hefur þarna í sjö ár getur vottað það að veggir w loft hafa l>vorki .verið þvegin né máluð á þeim tíma. Einu .',111111 Ileiui al- greiðsla og matsulur starfsfólks verið málað en mjög er skítur farinn að safnast aftur fyrir I matsalnum á loftum og veggj- um. Gólfið er þvegið daglega. Á Tollpóststofunni er tekið á móti öllum pósti sem berst erlendi. frá og þvl er eðlilegt að nukið safnisl fyrir af ryki. Það aMti þvi að vera rikari ástæða til þess að hreinsa vinnustað nianna oílar en ella. Þá tiðkast það erlendis að grindur séu á gólfum og síðan hreinsað und- an grindunum, en slíkt þekkist ekki hér. Skíturinn áveggjum Tollpóst- stoíunnar, þar sem vörumót- taka og flokkun pósts fer fram, er svo mikill að víða er hægt að teikna og skrifa á veggi með fingrunum og ryk safnast stöðugt á matarborð og hillur. Það er álit starfsmanna að þessi vinnuaðstaða sé heilsu- spillandi og benda þeir á að menn hafa verið með kvef frá því að þeir hófu starf og þegar Dagblaðið heimsótti staðinn í gær vantaði fjóra starfsmenn vegna veikinda, en alls vinna 12 póstmenn á staðnum auk 8 tollvarða. -JH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.