Dagblaðið - 05.11.1977, Side 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. NÖVEMBER 1977.
' '
Komið upp flýtis-
röð í kjörbúðum
Langþreyttur búðarrápari
skrifar:
Það er eitt sem mig angrar
nokkuð mikið þegar ég þarf að
verzla fyrir helgarnar. Ég er
vanur að fara þá í einhverja
stórverzlun bæjarins og kaupa
það sem mig vantar. Stundum
er það mjög mikið, allt að því
full stór hjólakarfa en stundum
vantar mig ekkert nema
mjólkurhyrnu og brauð. Samt
þarf ég að eyða nær því sama
tímanum í verzluninni.
Því mestur tíminn fer í það
að standa í biðröð við kassann.
Flestallir eru með mjög mikið í
körfum sínum og þurfa jafnvel
að skrifa ávísanir fyrir vöru-
verðinu og tekur það oft veru-
legan tíma.
Mér var því að detta í hug er
ég leit í erlent blað að upplagt
væri að hafa í. mjög stórum
búðum, t.d. Hagkaupi, sérstaka
röð fyrir þá sem eru með fáa
muni, til dæmis tíu eða færri.
Þá þyrfti þetta fólk ekki að bíða
eftir að þeir með mikla vöru-
magnið væru afgreiddir heldur
gætu farið í nokkurs konar
flýtisröð. Er ég sannfærður um
að þetta skapaði aukinn flýti
líka í röðum þeirra sem kaupa
mikið því þeirra röð styttist að
sama skapi.
Einnig væri, ef ekki er
grundvöllur fyrir þessu, hægt
að koma á þeirri reglu að þeir
sem rita ávísanir skipuðu sér í
aðrar raðir en þeir sem eru með
beinharða peninga. Eins og ég
NATIONAL KNQUIRER
Þessi úrklippa er í bandaríska blaðinu Enquirer og sýnir kassa einn
í kjörbúð og stendur fyrir ofan hann 8 munir eða færri. Slikum
kössum telur bréfritari að koma ætti upp hér á landi í kjörbúðum.
sagði áður fer oft mikill og dýr-
mætur tlmi í slík ávísanaskrif.
En betur lízt mér samt per-
sónulega á fyrri hugmyndina
um sérröð fyrir þá sem eru með
fáa muni og vona ég eindregið
að þess konar fyrirkomulag
verði tekið upp hið bráðasta.
JAKKITEKINN í MISGRIPUM í ALLTOF
ÞRÖNGU FATAHENGIÁ GARÐSBAUJ
V
Ungur maður, Árni Alberts-
son, hringdi og kvartaði yfir
fatahengismálum á Garðsböll-
um. Árni sagði að fatahengið á
Garði væri á stærð við fata-
hengi í venjulegri íbúð og
þegar upp undir þúsund manns
þarf að nota fatahengið gefur
það auga leið að mikill mis-
skilningur getur orðið og
flækja þegar allir ætla að fara
heim á sama tíma.
Arni fór á Garðsball fyrir
skömmu og varð fyrir því óláni
Skinku-
hallæri á
Loft-
leiðum?
að jakkinn hans var tekinn —
væntanlega í misgripum. Skil-
inn var eftir annar jakki, „sem
einhverntima hefur verið mjög
líkur minum jakka,“ sagði
Árni, „en er nú orðinn lúinn og.
slitinn. Hér er um að ræða
svartan sjóliðajakka með
akkerismynd á tölunum, alveg
nýjan. Sá sem skilinn var eftir
er svartur en tölurnar á honum
eru sléttar og er greinilega af
eldri gerð en sá sem tekinn var.
Árna þykir að vonum sárt að
missa nýjan sjóliðajakkann
sinn og biður þann sem hann
tók I misgripum, eða þá sem
einhverjar upplýsingar geta
gefið um málið, að hringja til
sín I síma 52474.
Raddir
lesenda
Ljósmyndari blaðsins var sendur til þess að taka mynd af fataheng-
inu á Gamla Garði. Hann kom til baka með þær upplýsingar að
„hengið" væri fengið að láni frá Háskólanum.og er hér mynd af þvf.
En af staðnum á Gamla Garði, þar sem hengið stendur þegar böll
eru, er engin mynd. Það pláss er svo lítið að það var ekki hægt að
taka mynd af þvi!
DB-mynd Hörður Vilhjálmsson.
Dóra skrifar:
Þar sem við hjónin vinnum
bæði á nokkuð óreglulegum
tímum kemur það stundum
fyrir að við förum á veitinga-
hús til þess að fá okkur að
borða. Þar sem við erum bæði-
miklir mathákar leituðum við
bæði lengi og vel að stað þar
sem stórir matarskammtar
væru seldir án þess þó að þeir
væru óhóflega dýrir. Xoksins
þóttumst við hafa fundið stað-
inn, Hótel Loftleiðir, kaffiteríu.
Þar var hægt að fá til dæmis
skinku og egg það vel útilátið
að hver fullvaxta maður var
fullmettur.
En um daginn þegar við
komum þar virtist bleik heldur
brugðið. Matarskammturinn
hafði minnkað um nærri því
helming án þess þó að verð-
lækkaði nokkuð. I stað þess að
ævinlega voru bornar tvær
skinkusneiðar og tvö egg ásamÞ
ristuðu brauði og smjöri var nú
ein lltil skinkuræma sett fyrir
mann ásamt eggjunum tveim
og brauði. Hver skammtur kost-
aði ellefu hundruð krónur með
hálfum skammti af kokkteil-
sósu og þótti okkur það nokkuð
dýrt fyrir ekki meiri mat.
Vildum við því gjarnan vita
hvað veldur og hvort Loftleiða-
svínin eru uppurin. Eða er
hótelið að reyna að spara við
gesti sína I mat það sem tapað-
ist I verkfallinu þegar hótelið
var minna en hálfnýtt?
Einnig þætti mér gaman að
vita hvort svona Iagað getur
talizt Iöglegt og hvort ekki eru
verðlagsákvæði um það að
ákveðið magn af mat verði að
vera þegar verð er svona hátt.
Getur það líka verið að nýi rétt-
urinn ódýri, Shwarma, sé niður-
greiddur á þennan hátt? Það
má taka það fram að þegar við
komum þarna þá var sá ágæti
réttur ekki á boðstólum þar
sem komið var fram yfir
hádegi. Ég vonast til þess að fá
einhvern botn I þetta.
Blómabúðin
Lilja
Laugarásvegi 1 — Sími 82245
Gjafavörur fiírvali
Úrval afskorínna blöma
Ný pottaplöntusending
•
Blómaskreytingar, tækifæris-
og borðskreytingar,
blómakörfur, brúðarvendir,
lítfararskreytingar
•
Haustlaukaútsala
Kertaúrval
•
Opið alla daga (líka laugar-
daga og sunnudaga) 9-22
Sendum innanbæjar og um
allt land
Spurning
dagsins
Erlangtsí&anþú
fórstísund?
Tryggvi Elriksson, starfar á
Rannsóknarstofnun landbúnaðar-
ins að Keldnaholti: Það er dálitið
langt siðan ég hef farið að synda
en reyndar fer ég oft tvisvar til
þrisvar I viku, bæði til að synda
og fara I heitu pottana. Oftast fer
ég þá I Laugardalslaugina en
stundum líka 1 Vesturbæjarlaug-
ina.
Valdimar Sigurðsson lögreglu-
maður: Eg fer gjarnan 1 sund á
veturna eins oft og ég get en
sjaldnar á sumrin. Að minu áliti
er mjög gott að fara I laugarnar til
að hreyfa sig og hressa upp.
Jónas Hallgrimsson, vlnnur við
endurskoðun: Já, ég fer oft. För-
um við ekki öll reglulega i sund?
Það hressir mig allan upp bæði
andlega og likamlega.
Kristfn Eyjólfsdóttir, póstfreyja
og húsfreyja: Það er nú langt
siðan, liklega margir mánuðir. Eg
stend mig frekar illa nú orðið.
Aftur á móti fór ég oft I Sundhöll-
ina þegar ég bjó þar i nágrenninu.
Svanhvft Oladóttir, afgreiðir f
Efnalauginni Björg: Já, ég fer
oft, slðast á sunnudaginn var. Mér
finnst það bæði hressandi og gam-
an. Venjulega fer ég I Sundhöll-
ina við Barónsstíg.
Emma Magnúsdóttir.i Myndlista-
og handiðaskólanum: Eg er á
leiðinni i sund núna og fer eins
oft og ég hef tíma til. I fyrravetur
fór ég á hverjum degi og þá í
Laugardalslaugina.