Dagblaðið - 05.11.1977, Page 4
BASAR
Styrktarfélagar Blindrafélagsins
halda basar að Hamrahlíð 17 laugar-
daginn 5. nóvember kl. 2. Margt góðra
muna, kökur, skyndihappdrætti, 50
kr. miðinn.
Styrktarfélagar.
Kaupmenn —
Innkaupastjórar
Skartgripir og gjafavörur í úrvali
Heildsölubirgðir
GOÐAFELL
Heildverzlun
Hallveigarsttg 10, sími 14733
Göran Bergendal flytur erindi um
sænska tónskáldið Allan Petterson og
kynnir hljómplötur í dag, laugard. 5.
nóv. kl. 16.00.
Á mörgun, sunnud. 6. nóv. kl. 16.00,
flytur hann erindi um Rikskonserter í
skólum Svíþjóðar.
Norrœna hósið Verið velkomin
NORRÆNA
HÚSIÐ
VERZLIÐ MR SEM ÚRVAUÐ ER MESTOG KJttRIN BEZT
Einfalt og ódýrt
undir hljómtækin
ogplöturnar
Verð aðeins kr. 24.500.
Húsgagnadeild
HRINGBRAUT121 -SÍMI28-601
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGTJR 5 NOVEMBKR 1977.
Nú fást ekki tunnur
til að salta sttd í
— Birgðastöðvar að tæmast og tunnuf lutningaskipin
tefjastytra
Tunnuskortur er nú yfir-
vofandi hér á landi og kynni að
geta haft áhrif á slldar-
söltunina ef verulega aflaðist á
næstu dögum. Allir sildarsalt-
endur hafa fyrir löngu fengið
afgeiddar þær tunnupantanir
sem þeir gerðu fyrir haustið, en
vilja nú fá viðbótartunnur.
Gunnar Flóvenz fram-
kvæmdastjóri Síldarútvegs-
nefndar staðfesti þetta í viðtali
við DB i gær. „Tunnubirgðir
eru nú að minnka iskyggilega,"
sagði hann. „Lagerstöðvar
okkar út um land eru að tæm-
ast.“
Gunnar sagði að skip væri að
losa tunnufarm á Hornafirði. í
kjölfar þeirrar sendingar hefði
nýi Lagarfoss átt að koma með
tunnur. Atti hann að byrja að
lesta tunnur í Haugasundi á
fimmtudagsmorgun, en kom
ekki þangað fyrr en siðdegis,
svo nokkurra daga seinkun er á
komu hans. Vegna seinkunar-
innar klárast ekki ferming
hans fyrir helgi að sögn
Guftnars.
Alafoss átti að byrja að lesta
tunnur i Flekkefjord á
miðvikudagskvöld. En á
fimmtudag lá skipið enn i Eger-
sund og var þá unnið að ein-
hverjum viðgerðum um borð.
Öfyrirsjáanleg seinkun verður
þvi á tunnum sem koma áttu
með honum. -ASt.
Það var mikil stemmning þegar skátarnir af Nesinu komu fylktu liði með heimatilbúin blys á hátíðina i
Hagaskóla. DB-mynd Sv. Þorm.
Seltirningar stofna skátafélag
„Það hefur lengi staðið til að
stofna sérstakt skátafélag á Sel-
tjarnarnesi. Skátar af Nesinu
hafa starfað með skátafélaginu
Ægisbúum. Þetta varð svo að
raunveruleika á miðvikudaginn
var. Þá var stofnað skátafélag á
Seltjarnarnesi og um kvöldið var
farin blysför á skátahátíð sem
haldin var í íþróttahúsi Haga-
skólans í tilefni af afmæli skáta-
hreyfingarinnar," sagði Kristin
Halldórsdóttir, en hún er einmitt
ritari hins nýstofnaða skáta-
félags. I stjórn félagsins eru þrir
foreidrar, Gústaf Einarsson
félagsforingi, Haukur Jónasson
gjaldkeri og Kristin, auk þess
fjórir skátar af yngri kynslóðinni.
Páll Gislason skátahöfðingi
afhenti Gústaf skipunarbréf á
stofnfundinum. Magnús Erlends-
son forseti bæjarstjórnar
Seltjarnarness kom á fundinn og
tilkynnti, að skátarnir fengju
einkaafnot af einu herbergi f
félagsheimilinu fyrir starfsemi
sfna. A stofnfundinn, sem
haldinn var í Valhúsaskóla, kom
einnig félagsforingi Ægisbúa,
Tómas Grétar, og færði hinu ný-
stofnaða félagi félagsfána. Ekki
hefur enn verið fastákveðið, hvað
hið nýja félag skuli heita, en
Selsingar hefur sterklega komið
til greina.
Selsingar er fertugasta og
fimmta skátafélagið sem stofnað
er á Islandi.
„Þegar vel heppnaðri skáta-
hátfð f Hagaskóla var lokið og
halda skyldi aftur heim á Nesið,“
sagði Kristín, „var svo mikil
„stemmning" i krökkunum, að
þeir tóku ekki i mál annað en að
fara gangandi aftur alla leið heim
á Nes og var aftur kveikt á
blysunum."
-A.Bj.
ALLIR Á KAFl í SÍLD
EN ÞRÁ NÚ BARA ÝSU
landi á Eskifirði áþessu hausti. nema þorsk. Þar af leiðir að Esk-
Hjá söltunarstöðinni Auð- firðingar og jafnvel Austfirðingar
björgu er búið að salta í 2200 hafa varla bragðað ýsu f langan
tunnur. ? tíma. Þó gott sé að fá þorskinn
Hólmanesið kom á miðvikudag vona menn samt að nú fari úr að
með 70 tonn af þorski eftir 8 daga rætast með ýsuna.
útivist. Smábátarnir fá ekkert Regina/ASt.
Margir þjófar á ferfr
Saltað hefur verið á öllum
þremur síldarsöltunarstöðv-
unum á Eskifirði langt fram
á nótt að undanförnu. Skrifstofu-
fólk fer í síldarstörfin að lokinni
annarri vinnu.
Söltunarstöðin . Friðþjófur
hefur saltað í 2800 tunnur. Kom
Sæíjón til stöðvarinnar á
fimmtudagsmorgun með beztu
síld sem þangað hefur komið.
Reyndist 90% hennar í stórsíldar-
flokki að sögn Búa Birgissonar
síldarmatsmanns. Með þessum
farmi fyllti Sæljónið sinn síldar-
kvóta og fer nú á veiðar fyrir
erlendan markað.
Söltunarstöðin Sæberg hefur
saltað í 1650 tunnur. Þangað kom
Sigurbjörg frá Olafsfirði á
miðvikudag með 1200 tunnur I
söltun og 25 tonn til frystingar.
Farmur Sigurbjargar er sá
stærsti sem eitt skip hefur fært að
Þjófar voru allnokkuð á ferli í
höfuðborginni í fyrrinótt. Farið
var inn að Sigtúni 3, brotið þar og
bramlað fyrir stórfé og útvarps-
tæki stolið. Maður með tækið
undir hendinni var gripinn niðri
á Vitastíg og sat hann inni um
nóttina.
Þá var farið í hársnyrtistofu að
Grettisgötu 62, stolið blásara,
hárþurrku, reiknivél og
permanettæki. Er talið huesan-
legt að sami maður hafi verið að
verki og f Sigtúni.
I íbúð í Garðastræti var stolið
kassettu- og útvarpstæki.
Loks var brotizt inn f
Breiðholtsapótek og Nýgrili f
Breiðholti. I apótekinu var aðeins
leitað að peningum og stolið
nokkur þúsund krónum f skipti-
mynt. I Nýgrilli var stolið
sælgæti.
-ASt.