Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 02.01.1978, Qupperneq 6

Dagblaðið - 02.01.1978, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 2. JANUAR 1978. Mesta f lugslys á Indlandi Indversk júmbóþota fórst i gær —með henni 213manns 213 manns fórust er Boeing 747 þota indverska flugfélags- ins Air India fórst skömmu eftir flugtak frá Santa Cruz flugvelli í Bombay. Að sögn sjónarvotta varð sprenging f vélinni og hún hrapaði f sjóinn um fjórar milur undan landi. Samband við vélina rofnaði þegar eftir flugtak. Flestir farþeganna 190 voru Indverjar, en með vélinni var 23 manna áhöfn. Þyrlur og her- skip voru þegar send á staðinn þar sem vélin hrapaði og fannst þar brak úr vélinni en ekkert merki um að neinn hefði komizt lifandi úr slysinu. Vélin sprakk f tvo hluta áður en hún lenti í sjónum, sem er mjög grunnur á þessum slóðum. Þetta er mesta flugslys f sögu Indlands, en vélin er fyrsta júmbóþota Air India, smiðuð árið 1970. H Boeing 747 þota af sömu gerð og fórst. Belgrad: K0RTSN0J SAMÞYKK- IR MÁLAMKLUN — svars beðið f rá Spasský Skákmeistarinn Korstnoj féllst á málamiðlun f gær þess efnis að einvígi hans og Spasskýs geti haldið áfram án áhorfenda. Þessi málamiðl- unartillaga hefur enn ekki verið borin undir Spasský, þanmg að ekki er enn ljóst hvort af fjórtándu einvígis- skákinni verður, e i hana á að tefla f dag. Kortsnoj, sem hefur forystu I einvfginu, með 7,5 vinninga gegn 5,5 vinningum Spasskýs, setti úrslitakosti um áframhald einvfgisins fyrir helgina. Þar krafðist hann þess að sýningar- borð yrði fjarlægt af staðnum, áhorfendur útilokaðir og aðeins yrðu skákborð, tveir stólar og skákklukkur til staðar auk dómara. Sú aðferð Spasskýs að standa þegar upp frá skákborðinu eftir leik og fylgjast með á sýningar- borðinu hefur haft truflandi áhrif á Kortsnoj en síðan Spasský byrjaði þessa baráttu- aðferð hefur hann unnið þrjár skákir. Þá segir Kortsnoj að áhorfendur trufli einbeitingu hans. Kortsnoj samþykkti mála- miðlunartillögu sem kom frá stórmeistaranum Gligoric, auk nokkurra tilfærslna dómarans, en beðið er svars Spasskýs því engar breytingar má gera nema með samþykki beggja kepp- enda. Erlendar fréttir Hussein fús til friðar- viðræðna Hussein Jórdaníukonungúr er tilbúinn til að taka þátt f friðar- viðræðum Egypta og tsraels- manna ef framlag hans hefði áhrif. En það kom einnig fram f við- tali hans við bandarlsku sjón- varpsstöðina CBS að friður f Mið- austurlöndum væri ekki mögu- legur n.ema ísraelsmenn sam- þykktu að yfirgefa öll arabísk landsvæði sem þeir hertóku 1967 og þar með væri austurhluti. Jerúsalem. Köstuðu bensfn- sprengjum og börðu vörðinn Menn sem taldir eru hafa verið vinstri sinnaðir öfgamenn köstuðu tveim bensínsprengjum að þotueldsneytisgeymum á nýjum alþjóðaflugvelli nærri Tókfó f Japan f fyrrakvöld. Varð- maður varð fljótlega var við log- ana sem brutust út og ekki er kunnugt um að neitt tjón hafi orðið. Vörðurinn var aftur á móti barinn og særður af fjórum eða fimm mönnum, sem sfðan komust undan f skjóli myrkurs. Vinstri sinnaðir öfgamenn eru sagðir andvígir þvf að flugvöllur- inn nýi verði tekinn í notkun en ætlunin er að það verði f marz næstkomandi. Bandaríkjaforseti PAwnf ílndlandi 116/111 911 DSlð sambúð ríkjanna Carter Bandaríkjaforseti og forsætisráðherra Indlands, Morarji Desai, hófu síðari hluta viðræðna sinna f morgun. Um- ræðuefnið er bætt sambúð Ind- lands og Bandaríkjanna en hún hefur verið slæm undanfarið ár. Carter kom til Nýju Delhi f gær og er Indland þriðja íandið sem hann heimsækir á för sinni um Evrópu, Asfu og Mið-Austurlönd. Strax eftir komuna til Nýju Delhi átti hann óundirbúinn fund með Desai. A fundinum í morgun voru ennfremur rædd afvopnunarmál, framtfð samvinnu um kjarnorku- mál og efnahagsmál heimsins. Carter leggur þunga áherzlu á að Indverjar undirriti samningi um að beita ekki kjarnavopnum en Indverjar halda þvf fram að samningurinn gangi gegn hags- munum þeirra rfkja sem vilja hagnýta sér kjar-norkuna. Desai forsætisráðherra sagði hins vegar að stjórn hans vildi gera kjarn- orkusprengjuna útlæga úr heim- inum en að kjarnorkan yrði notuð sem orkugjafi mannkyninu til heilla. Styrkið og fegrið líkamann Ný 4ra vikna námskeið hefjast 4. janúar. FRÚARLEIKFIMI — mýkjandi og styrkjandi. MEGRUNARLEIKFIMI — vigtun—mœling—hollráð. SÉRTÍMAR fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eðameira. Innritun og upplýsingar alla virka daga kl. 13-22 ísíma 83295. Sturtur — Ijds — gufuböð — kaffi — nudd. Júdódeild Ármanns Armúla 32 SADAT VILL MEIRIAFSKIPTI BANDARÍKJANNA AF SAMNINGUM Sadat, forseti Egyptalands, nokkra heimastjórn Palestfnu- mun krefja Jimmy Carter, for- manna á vesturbakka Jórdanár seta Bandarfkjanna, um meiri og Gaza-svæðinu á meðan Sadat og beinni afskipti stjórnar hans sagði það algjöra úrslitakröfu af friðarviðræður Israelsmanna sfna að þeim yrði veitt sjálf- og Egypta, þegar þeir forset- stæði. arnir hittast á miðvikudaginn. Jimmy Carter lýsti sig and- Þá mun Carter koma við f vfgan sjálfstæðu riki Palestínu- Egyptalandi og ræða við Sadat araba á vesturbakkanum á forseta. blaðamannafundi f sfðustu Haft er eftir Al-Ahram, hálf- viku. opinberu málgagni egypzku stjórnarinnar, að einnig muni I Al-Ahram er sagt frá þeim verða ræddur sá ágreiningur hugmyndum sem Mohammed sem er á milli egypzku og fsra- Ibrahim Kamel, utanríkisráð- elsku samninganefndanna um herra Egypta, hefði lagt fram afstöðuna til Palestfnuaraba. sem grundvöll friðarviðræðna Al-Ahram telur kröfu Sadats milli Israels og Egyptalands. Er um beinni þátttöku Bandarfkj- þar gert ráð fyrir að Israel fari anna mikilvæga, meðal annars með heri sína á brott af Sinaí- vegna þess að brátt hefjist við- skaganum innan ákveðins tfma. ræður fsraelskra og egypzkra Gerðar séu öruggar ráðstafanir hernaðar- og stjórnmálasér- til þess að hvorug þjóðin komi fræðinga samkvæmt samkomu- til með að ógna hinni með lagi þeirra Menachems Begins, hernaðarlegu ofbeldi. Einnig forsætisráðhera ísraels, og segir að tillaga egypzka utan- Sadats, Egyptalandsforseta, f ríkisráðherrans geri ráð fyrir Ismailia á jóladag sfðastliðinn. að ísraelskur her verði á brott Á þeim fundi kom fram að frá öllum svæðum, sem hann Begin vildi aðeins fallast á hertók f styrjöldinni árið 1967.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.