Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 30.01.1978, Qupperneq 3

Dagblaðið - 30.01.1978, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 30. JANUAR 1978. 3 Rétturinn tilnð deyjo: VIÐTAL VI0 HÚS í ÞÝZKU GRJÓTAÞ0RP1 Margir vilja varðveita gömul hús. Sumir vilja ekki varðveita gömul hús og segja að nýi tím- inn eigi sinn rétt og þar al leiðandi líka nýju húsin. Málið er ofarlega á baugi á Islandi. Um sumt geta allir rifizt en DB vill vekja athygli á að hatrömmustu deiiurnar standa að líkindum innan arkitektastéttarinnar sjálfrar. þeirrar stéttar, sem á og vill og ræður vafalaust um útlit bygginga og þéttbýlis- umhverfis um ófyrirsjáanlega framtíð. Einn þeirra, Skúli H. Norðdahl, sendi DB eftir- farandi „viðtal“ gamals hús við ónefndan viðmælanda. Þar kemur ný og óvænt hlið á málinu fram, sem áhugafólk fagnar vafalaust. Þó er rétt að taka fram, að afstaða Skúla H. Norðdahl til & varðveizlu gamalla húsa kemur alls ekki fram í greininni, sem þýdd er úr tímaritinu „DER ARCHITEKT" nr. 12 1976. Höfundur er Peter Paul Hofman. Spurning: Gamla hús, hvað finnst yður um endurnýjun yðar? Teljið þér hana hafa heppnazt? Húsið: Sjáið þér til. Ég er 230 ára gamalt. Það er mjög virðingarverður aldur fyrir hús að vera. Ég hef reynt margt. Einu sinni var ég ibúðarhús um tíma sjúkrahús, síðan skrif- stofuhús. Menn breyttu og endurnýjuðu, en ég var alltaf . til gagns sem bygging. Nú held ég að ég sé þreytt — mjög þreytt — og hvað gera menn þá? Þá er ég varðveitt til eilífðarnóns eins og smurningur, minjagripur í plexigleröskju. A ég engan rétt til að deyja? Nú finnst mér ég sann- arlega vera dautt, líflaust. Spurning: Haldið þér þá ekki að varðveizla á fegurð yðar fyrir komandi kynslóðir sé næg ástæða fyrir endurnýjun yðar? í yður er innréttað safn, sem er mjög eðlilegt hlutverk fyrir hús. Húsið: Safnið var ekki aðalat- riðið. Aðalatriðið var að varðveita mig sem minnis- merki. Síðan leituðu menn í öngum sínum eftir einhverju afnotahlutverki. Hvað viðvíkur komandi kynslóðum, hver segir yður: — að komandi kynslóðir hafi áhuga á mér — að menn með annan tima- bundinn hugsunarhátt muni Raddir lesenda 27022nrim kl.l3ogl5 ekki einfaldlega rífa mig niður, jafnvel innan tuttugu ára og — hvort rétt var, þegar á heildina er litið, já jafnvel hvort það var fjárhagslega rétt að endurnýja mig? Ég er meðaltals fulltrúi meðal margra annarra frá mín-, um tíma. Það er fyrir löngu búið að endurnýja þýðingar- mestu byggingar míns tíma. Spurning: Ef sleppt er vanda- málinu um endurnýjun yðar, hvert er þá álit yðar á því hvernig þér voruð endurnýjað? Húsið: Menn hafa reynt af fremsta megni að leiða í Ijós mitt upprunalega ástand, upphaflegu litina og form og farið nákvæmlega eftir því mynstri. Með tilliti til aldurs míns hefur það tekizt vonum framar. Og þó — hversu margar fínar breytingar sem ég hefi fengið í tímans rás og oft gerðar af fyrsta flokks bygginga- meisturum — þá hafa menn lokað augunum fyrir þeim og eyðilagt þær. Þessar breytingar og viðbyggingar voru hverju sinni tákn síns tíma og gerðu mig áhugaverða, margslungna byggingu. En nú er ég aftur brðin eins og við fæðingu mína. Það er eins og maður hafi hengt æskumannsgrímu á öldungs andlit. Spurning: Það er nú þrátt fyrir allt eitt af framfaratáknum okkar tíma að meta og varðveita hið gamla. Við höfum hafnað þeirri sjálfumgleði sem fyrri kynslóðir sýndu með eyðileggingu alls þess, sem þeím fannst vera I vegi fyrir sér. Húsið: Vissulega. Varðveizla bygginga er hluti framfara yðar tima en hugleiðið samt þetta: Iiefði varðveizla bvgginga verið til á mínumtíma væri égekki til og margar b,' ggingar frá mín- um tíma ekki heldur. Höfundur minii lét nefnilega rífa byggingu frá fyrri tímum til að geta byggt mig. Þér kallið það sjálfumgleði. Ég held það vera sjálfstæði. Án eigingirni er nú ekki allt sem í dag gerist í nafni varðveizlu húsa: Ég á einnig að laða að ferðamenn og skapa borgarfeðrunum stolt. Þá er listin orðin að tízku, hreint og bein verzlun. Er hægt að fara verr með listina? Nýr kröftugur KENWOOD KR-4070. Lágmarks afl við 8 ohm 2 x 40 RMS wött frá 20 - 20000 Hz, bjögun mest 0.1%. Verðaðeins kr. 119.430. — Að eignast þetta reginafl, með hinu víðfræga KENWOOD útvarpi ásamt fjölda af fágætum eiginleikum, fyrir slíkt verð, er einsdæmi. Hvernig getur KENWOOD þetta? Það er nú einmitt það sem Pioneer, Marantz o.fl. velta vöngum yfir. Nýr kröftugur KENWOOD KR-4070 NÚ FÆRÐ ÞÚ ÞÉR ^KENWOOD FÁLKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Spurning dagsins FINNST ÞÉR AÐ KARLMENN EIGI AÐ FÁ SÉR PERMANENT? Haraldur Sigurðsson, skemmti- kraftur með meiru: Já. ef þeir eru ekki sköllóttir. Nei, ég er ekki með permanent. en ég er alveg ákveðinn í að fá mér það. Erla Sigurðardöttir. húsmóðir og skrifstofustúlka: Já. ef hár þeirra er erfitt viðgangs þá finnst mér sjálfsagt að þeir fái sér það. Sigurður Þorvaldsson læknir: Já. ef þeir hafa óstýrilátt hár. Nei. ég er ekki með permanent. ég hef ekki nógu niikið hár til þess. Sigmundur Sigurðsson af- greiðslumaður: Nei. alls ekki. Þeir eiga bara að hafa hárið frjálst. Ég er mjög á móti permanenti. Éf hárið er mjög ódýrilátt er hægl að klippa það til. Olöf Ölafsdóttir hárgreiðslu- dama: Jú, ef það bætir á þeim hárið. Jú, ég hef sett permanent i karla. Þeir yngri eru ekki lengur feimnir við það að fá sér perma- nent. Friðrika Harðardóttir, nemi í MR og hárgreiðslumódel: Já, eindregið. Ef karlmenn hafa slappt hár eiga þeir skilyrðislaust að fá sér permanent.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.