Dagblaðið - 30.01.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 30.01.1978, Blaðsíða 6
6 DACiBI.AÐIf). MANl'DAdUK 30. JANUAR 1978. Eins og sjá má á þessum svipm.vndum var boöið upp á hinar margvislegustu greiðslur. Auðvitað eru greiðslur á hárgreiðslusýning- um dálítið öfgakenndar, — verið er að sýna hvað hægt er að gera með hár- greiðslutækninni. Fyrir utan hágreiðslu- og rakarastofurnar i Reykjavík voru einnig með á' sýningunni hárgreiðslustofur úr Kópavogi, Garðabæ, Hafnar- firði, Mosfellssveit og Siglufirði. Á hárgreiðslusýningunni í Sigtúni: Látlaust, íburðarmikið — fantasíur með eða án skrauts TroðTullt var i Sigtúni í gær eftirmiðdag |)ar sem Samband hárgreiðslu- og hárskerameistara hélt sýningu á nýjustu línunum í hárgreiðslu og hárskurði. Þar var einnig sýndur tízkufatnaður frá nokkrum verzlunum i Revkjavík. Sýningarfólk í Módelsamtökun- um undir stjórn Unnar Arngríms- dóttur sýndi fatnaðinn. — Kvnnir á sýningunni var Magnús Axels- son og fórst honum það vel úr hendi. Greinilegt er að afrísk áhrif eru mjög áberandi í hár- greiðslutízkunni i dag.Krumpu- krullur, vöfflukrullur og litlar fléttur voru mjög áberandi i greiðslunum. en alls voru það tuttugu og níu hárgreiðslu- og rakarastofur sem sýndu leikni sína í greiðslu og klippingu. Ekki má heldur gle.vma litun. en á sýningunni voru nokkrir litirsem voru bæði áberandi og einnig fallegir og klæðilegir. Það er meira en hægt er að segja um surnar greiðslurnar. Þær voru vægast sagt kúnstugar. en ekki klæðilegar fvrir venjulegt fólk. Á sýningunni voru líka venjulegar hárgreiðslur, sem henta hvaða höfði sem er og hvaða aldri sem er. Sýningin fór öll mjög vel fram. Kvnnirinn var alveg hreinasta af- bragð. Gaman er að geta hrss. þótt þetta væri hárgreiðslusýning fvrst og fremst. komust gestir ekki hjá því (að minnsta kosti þeir sem sátu næst sýningarpall- inum) að taka eftir hve hár- greiðslumódelin voru undantekn- ingarlítið á alveg sérstaklega fallegum og smart skóm. Litlum og léttum samkvæmisskóm með örmjóum og háum hælum. A sýningunni bar ýmisleg! óvenjulegt fyrir augu. Margar greiðslurnar höfðu verið skírðar hinum óvenjulegustu nöfnum. Mátti hevra nöfn eins og Garbo, Gasablanca, Karnivalgreiðsla. Úr þeli þráð að spinna. Draumur gladiatoranna, Sporty, Rómantík, Nótt og Kermits Special. Það var greiðsla sem var með einhvers konar grænu spre.vi og stúlkan öll græn yfirlitum. Hafði þulurinn orð á að þarna værf komin stúlkan sem froskurinn Kermit væri alltaf að leita að! Karlmennirnir sem sýndu voru allir mjög glæsilegir. Gat þulur unt að sumir þeirra hefðu haft mjög óstýrilátt hár áður en þeir komust í hendur hárgreiðslu- meistara og klippara. Þarna voru sýndar bæði franskar og ítalskar línur. ..saumaðar" fléttur. krumpukrullur — bvlgjur. svona a la 1930, blásnar einfaldar sam- kvæmisgreiðslur og fantasíur sem eiga hvergi heima nema á hár- greiðslusýningum. Sýningarfólkið var frjálslegt í framkomu eins og vera ber. en ein stúlkan var með tyggigúmmí sem hún hefði ekki átt að gera. Þvi miður verður að segja eins og er, að húsakvnni í Sigtúni eru kannske ekki nógu hentug fvrir svona sýningu. Að minnsta kosti hefði verið hægt að nota Ijós- kastara betur en gert var. Ljós var í öllum salnunt og enginn Ijós- kastari sérstaklega á sýningar- fólkinu. Forráðamenn sýningar- innar hefðu getað lært ýmisjegt á Stjörnumessu Dagblaðsins og Vikunnar á Sögu á dögunum. Þar var ljóskösturum beint eins og á að gera á svona sýningu. Eftir að hárgreiðslusýningunni lauk var tízkusýning frá Lótus. Herrahúsinu og Adam og Viktoríu. Fallegur og klæðilegur fatnaður, sem sýningarfólkið sýndi með hinni mestu prýði. Það er annars reglulega gaman að sjá islenzka tizkusýningarfölk- ið okkar. Það er örugglega á heimsmælikvarða. -A.B.j.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.