Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 30.01.1978, Qupperneq 7

Dagblaðið - 30.01.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDACUR 30. JANÚAR 1978. 7 Um fimmtán þúsund Reykvík- ingar heimilislœknislausir Sá tími er f.vrir löngu liðinn er. menn gátu hringt í heimilis- lækni sinn hvenær sólarhringsins sem þeir kusu. Nú er meira að segja svo komið að stór hluti Re.vkvikinga hefur engan heimilislækni. Talið er að um fimmtán þúsund borgar- búar séu heimilislæknislausir. Ekki er þó svo slæmt að þessi fimmtán þúsund hafi engan aðgang að lækni heidur hafa starfandi heimilislæknar tekið ....... að sér að sinna þeim ef þeir þurfa á að halda. Milli 23 og 24 læknar gegna eingöngu heimilislækningum og hafa þeir samkvæmt samningum um 1750 sjúklinga hver. Þá eru um tíu læknar sem hafa í kringum 500 sjúklinga hver. Eru þá ótaldir nokkrir læknar sem sinna aðeins nánustu fjölskyldu sinni. Eins og stendur eru aðeins tveir læknar á skrá hjá Sjúkra- samlagi Reykjavikur sem geta bætt við sig nýjum sjúklingum, samkvæmt upplýsingum. Sjúkrasamlagsins. Sjúklingar eru ekki skyldaðir til þess að velja sér þá lækna sem í boði eru. Samlagsmenn í Reykjavík geta skipt um heimilislækni einu sinni á ári, í október og nóvember. Er alltaf einhver hreyfing á sjúklingum milli heimilislækna. Samkvæmt samningum Sjúkrasamlags Reykjavíkur og Læknafélagsins ber heimilis- læknum skylda til þess að hafa opna lækningastofu í ákveðinn tíma á dag, fjóra daga fyrri hluta dags og einn dag seinni hluta dags. Auk þess að hafa rækilega auglýstan símatíma. Sömuleiðis ber heimilislækn- um að halda skrá yfir sjúklinga sína og þá læknisaðstoð sem þeim hefur verið veitt. A trúnaðarlæknir Sjúkrasam- lagsins að eiga greiðan aðgang að þeirri skrá. Fyrr á árum bar nokkuð á læknaskorti í dreifbýlinu en ,hann er nú að mestu úr sögunni með tilkomu lækna- miðstöðvanna. í ráði er að reisa heilsugæzlustöðvar í höfuð- borginni og nú þegar er ein slík tekin til starfa í Árbæjarhverfi. -A.Bj. Æsilegur eltinga- leikur lögreglu við drukkinn ökuþór Til æsilegs eltingaleiks lög- reglu og drukkins ökumanns kom í fyrrinótt. Lvktaði honum með því að ökúmaðurinn var dreginn út úr stórskemmdum bíl sínum og járnaður. Upphafið var það að um tvöleytið í fyrrinótt lenti öku- maðurinn í árekstri við leigubíl. Stakk hann þegar í stað af frá árekstrinum. Leigu- bílstjórinn kallaði til lögreglu, sem veitti manninum eftirför á tveimur bílum. Ók hann mjög greitt inn eftir Suðurlands- braut og ók þar á tréljósastaur. sem kubbaðist í sundur. Við það losnaði vélarhlífin upp og lá framan á framrúðunnni — en ökuþórinn hélt engu að síður áfram á 90-100 km hraða. Útsýni hafði hann eitthvað til hliðar við vélarhlífina. Lögreglumönnunum tókst loks að stöðva bílinn með því að þröngva honum út af veginum skammt frá Nesi við Elliðaár. Þar kom til átaka ökumannsins — sem er fæddur 1943 — og lögregluþjóna. Var hann loks járnaður og fluttur i fanga- geymslu. Yfirhevrslur vfir manninum stóðu í gærdag. -OV. Hvað höfðingjarnir hafast að, hinir œtla sér leyfist það Á bóndadaginn fengu Eskfirð- ingar launaseðlana sína og blót- uðu mikið yfir þvi hve tekjur þeirra voru háar. Já, svona gengur þetta jarð- neska líf. Ég held að loftið sé orðið eitrað og fólk veit ekki hvað það vill og heldur ekki hvað því er fyrir beztu. Fólk heimtar meira og meira kaup. Þegar launaseðl- arnir koma með hárri krónutölu sér fólk f.vrst að þaðer komið inn í mikinn vítahring. sem það kemst kannske aldrei út úr nema mikil atvinna haldist og heilsufarið sé gott. Það er oft talað urn að sjómenn rífi upp mikla peninga en öljósan grun hef ég um að margir, sem vinna í landi. hafi meira en sjó- mennirnir. sem alltaf eru öfundaðir af tekjum sinum þrátt f.vrir að þeir haldi þjóðarbúinu uppi. I sumar sagði ríkisstjórnin og aðrir ráðandi menn að þjóðarbúið hefði ekki efni á að hækka laun láglaunafólksins, sem hafði ekki nema um 100 þúsund kr. i mánaðarlaun. Allir sáu og vissu að enginn gat lifað af þvi. En svo hækkuðu alþingismenn laun sin um 78% og þá voru þeir sammála. Hvað höfðingjarnir hafast að. hinir ætla sér levfist það! Eg held að það væri heillaráð að alþingismenn væru allir kauplausir, vnnu bara í sjálfboða- vinnu. Þá væru meiri Iikur á því að áb.vrgir alþingismenn sætu á alþingi Islendinga og hugsuðu meira um heill og hag þjóðarinn- ar í nútið og framtíð. Regína Thor/ahj. ÚRVRL/ KJÖTVÖRUR OG ÞJÓnU/Tfl Á'allteitthvaó gott í matinn STIGAHLIÐ 45-47 SIMI 35645 ENDURSKINS- MERKI ERU NAUÐSYNLEC FYRIR ALLA UMFERÐARRÁÐ Bílastillingar—Varahlutir — Mælitæki — Rafsuðuvélar Við framkvæmum véla-, hjóla-, Ijósastiilingu og ballansstillingu áhjólbörðum. EFTIRFARANDI ATRIÐIERU YFIRFARIN Í VÉLASTILLINGU 1. Skipt um kerti og plat- inur. 2. Jlæld þjappa. 3. Stilltir ventlar. 4. Hremsuð eða skipt um loftsíu. 5. Hreinsuð eða skipt um he nsinsíu. 6. Ilreinsuð geymasam- hiind. 7: Hreinsaður iindunar- ventill. 8. Athuguð og stillt viftu -reim. 9. .Maddii kertaþræðir. 10. Mældur startari. 11. Mæld hleðsla. 12. Mældur rafgeymir. 13. Stillliii hlöndungur og kveikja. 14. Mæld nvtni á hensini. 15. Þr<stipról að vatnskerfi. BILAVARAHLUTIR í SMÁSÖLU OG HEILDSÖLU. Platinur Kveikiuhil; Kveikjuhamrar K\ eikjiiþétlar Bensínsiur I oftsíur Boddíhlutir o.ÍT. Póstsendum. Vélastilling sf. Auðbrekku 51, Kóp. Sfmi 43140 O. Engilbertsson hf. '•T Okkar árSega Siljómplötuútsala hófst í morgun Hljóöfærahús Reykjavíkur Laugavegi 96 ii §g •* % •. Wm P * 4:' i T :

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.