Dagblaðið - 30.01.1978, Síða 8

Dagblaðið - 30.01.1978, Síða 8
8' DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. JANUAR 1978. Ókenndur hlutur fundinn á auðnum Norður-Kanada — vísindamenn settir í einangrun vegna geislunarhœttu Kanadastjórn hefur einangr að sex náttúrufræðinga sem tilkynntu að þeir hefðu séð dularfullan hlut lenda á jörð- inni fimm kílómetra frá þeim stað sem kofi þeirra er í Norður Kanada. Einangrun mannanna, fimm Bandarikjamanna og eins Kanadamanns sem ætluðu að eyða vetrinum við náttúrurann- sóknir á þessum slóðum, er aðeins til öryggis að sögn full- trúa Kanadísku stjórnarinnar. Engin merki geislavirkni hafa fundizt á þeim slóðum eða nærri þeim stað sem mennirnir voru. Leitað er stöðugt .að geisla- virkum brotum úr sovézku geimfari sem sprakk í himin- hvolfinu fyrir ofan auðnir Kanada í fyrri viku. Farið var með vísinda- mennina sex sem óttazt var að væru orðnir geislavirkir, flug- leiðis þar sem hægt var að hafa þá í öruggri einangrun og jafn- framt fylgjast með hugsanlegri geislavirkni frá þeim. Flugvélar flugu yfir svæðinu en fundu enga geislavirkni. Síðast þegar til fréttist voru sérfræðingar um borð i þyrlu sem sveif yfir staðnum þar sem mennirnir sáu hinn óþekkta hlut lenda. Ekki hafði frétzt hvað komið hefði í ljós við nánari rannsókn. Síðustu fréttir herma að úr þyrlu sem svifið hafi yfir staðn- um sem náttúrufræðingarnir sáu hinn ókunna hlut lenda megi sjá nýjan gíg í ísauðnina sem sé tveir til þrír metrar að þvermáli. Talið var að einhver vottur af geislavirkni bærist frá gígnum en þó ekki meiri en svo að engin hætta væri heilsu manns í 100 metra fjarlægð. \ Hann er aldcilis hrifinn krakkinn sem horfir upp eftir risabrúðunni sem er á sýningu í París sem nefnd hefur veriö Börnin og borgin. Er brúðan þar aðalaðdráttaraflið að því er sagt er. Sérstaklega munu börnin vera hrifin af að fylgj- ast með hjartsiætti brúðunnar sem heyrist vel af segulbands- spólu sem komiö er fyrir innan í henni. Ástralía: Kappakstursbif- reiðin lenti í áhorfendahópnum — einn lézt, fimmtán sœrðust en ökumaðurinn slapp lítt sœrður Einn maður mun hafa látizt og fimmtán særzt, þegar kapp- akstursbifreið var ekið gegnum öryggisnet og mitt inn í hóp áhorfenda á kappakstri sem fram fór um það bil 60 kílómetra fyrir utan Melbourne í Ástralíu í gær. Ökumaðurinn er sagður hafa misst stjón á bifreiðinni þegar hún snerti aðra kappakstursbif- reið. Voru þær báðar á nærri 200 kílómetra hraða. Ökumaður bifreiðarinnar sem lenti á áhorfendahópnum var fastur í henni og varð að skera og saga hana í sundur til að ná honum út. Slapp hann betur en við hefði mátt búast. Einu meiðslin voru smásár á höfði en auk þess hafði hann fengið taugaáfall af öllum ósköpunum. Egyptaland: SADAT HUGLEIÐIR MÁLIN HEIMA FYRIR Heilsukex im Frón VÖRL JUPPL ÝSINGAR: Þyngd u.þ.b. 270 g. Hráefni: Heilhveiti, hveiti, sykur, fciti, lyftiduft, lccithin, nalt, malt og vidurkcnnd bragdcfni. í hvcr 100 kg. hcilhvcitÍHÍnn (GrahamsmjölHÍnH) er bætt. 500 g af kalki, 30 mg af járni, 5 mg af vítamín H og 5 mg af vítamín Hj. NÆRINGA REFNI í ÍOO (, AF HEILH VEITIKEXI: 9 g prótín 61 g kolvetni 12 g fita ■100 hitaeiningar SANNKOLLUÐ KJARNAFÆÐA p|§ Eggj| SoÉi ^ M 1 I Jj 9 — fer til Washington síðar í vikunni Anwar Sadat forseti Egypta- lands mun í dag ræða við formann egypzku sendinefndarinnar á fundum hernaðarnefnda ísraels og Egyptaland, sem ætlað er að komi saman aftur í Kairo ein- hvern næstu daga. Viðræður Sadats og hermála- ráðherrans egypzka, Mohammed Abdel Ghani hershöfðingja, koma i kjölfar tilkynningar Begins- stjórnarinnar í Israel um að þeir ætli að senda fulltrúa á Kairo- fundinn. Viðræður hafa Jegið niðri þar alveg síðan Sadat Rallaði' fulltrúa sína heim frá Jerúsalem af fundi stjórnmálanefndarinnar, sem þykir hafa mikilvægari störf- um að gegna í það minnsta um þessar mundir. Alfred Atherton aðstoðarutan- ríkisráðherra Bandaríkjanna hefur verið í Jerúsalem og reynt að miðla málum. Er búizt við að hann fari til Kairo í dag og ræði við Sadat foresta. Eru taldar góðar líkur á að hann muni leggja fram nýjar tillögur sem gætu komið friðarviðræðum aftur á stað. Er þá ætlan bjartsýnna sér- fræðinga um málefni Miðaustur- landa að Sadat muni gefa sér tóm til að hugleiða og kanna þessar nýju tillögur áður en hann flýgur til Washington en þar ætiar hann að ræða við Carter forseta. Búizt er við að sú för verði farin síðar í þessari viku. REUTER

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.