Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 30.01.1978, Qupperneq 9

Dagblaðið - 30.01.1978, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 30. JANUAR 1978. .9 Áskorun brezkra listamanna: REISID STYTTU AF CHAPLIN f LONDON Tólf brezkir rithöfundar og listamenn tilkynntu í dag að þeir ætluðu að beita sér fyrir að reistur verði opinber minnis varði af Charlie Chaplin í fæðingarborg hans, London. Vilja þeir að minnisvarðinn rísi nærri fæðingarheimili hans í suðurhluta borgarinnar. Einnig að skjöldur verði settur á viðeigandi stað í Westminster Abbey kirkjuna þar sem fleiri slíkir skildir eru til minningar um ýmsa mikla listamenn. Tilkynning og áskorun lista- mannanna birtist í The Times í morgun. Þar segir að sagan muni sýna að enginn lista- maður hafi haft jafn mikil áhrif á samtíð sína og Charlie Chaplin og öllum listamönnum sé heiður af að hafa lifað í skugganum af hinni glæstu list sköpun hans. Manninum sem vakti aðdáun bæði Brecht og Eisenstein og hatur Adolfs Hitlers. Meðal þeirra sem undirrita áskorun um að minnismerki um Chaplin verði reist er rit- höfundurinn Beryl Bainbridge og gamanleikarinn Alfie Bass. Sir Charles Chaplin í gervinu sem hann var og verður líkleg- ast alltaf þekktastur í. Litli maðurinn sem alltaf tapar en giatar samt aldrei voninni um betri tíð og trúnni á hið góða í manninum. Kortsnoj og Portischefstir íHollandi Staðan í skákmótinu í Hogovens í Hollandi eftir átta umferðir: 1. til 2. sæti Portisch og Kortsoj 5 vinningar og bið- skák, 3., 4. og 5. sæti Ander- son, Ree og Timman 4'A vinningur, 6., 7. og 8. sæti Miles, Mecking og Panno 4 vinningar 9. sæti Najdorf 3'A vinningur og biðskák, 10. sæti Sosonko 3'A vinningur, 11. sæti Kavalek 214 vinn- ingur, 12. sæti Van der Sterren 1 vinnirigur og bið- skák. FangaríKanada í miklum ham Fangar í kanadískum fangelsum voru aðgangs- harðir um helgina og i tveim fangelsum tóku fangar gísla og höfðu þeir ekki verið yfir- bugaðir þegar síðast fréttist. I Brezku Columbíu, fylki á vesturströnd Kanada, hafði dæmdur morðingi og fjórir samfangar hans tekið tólf gísla í fangelsi þvj sem þeir eru í en þar á gæzla að vera mjög öflug. Meðal gísl- anna voru níu konur en einni eða tveim þeirra var sleppt í skiptum fyrir mat og sígarettur. Einn fanga- vörður særðist illa á hálsi í átökum við fangana. Meðal gísla þeirra eru nokkrir fangar sem ekki vildu taka þátt í uppreisn þeirra. I öðru fangelsi í Kanada, í fylkinu Nýju-Brúnsvík, tók fangi fangavörð í gislingu en honum náði hann á sitt vald er útivistar- og hreyfingar- tími stóð yfir. Fangarnir sem gislunum halda hafa ekki látið neitt uppi um krötur sínar til að þeir láti þá lausa. Erlendar fréttir VIÐ ÞJONUM LEE C00PER galla- og f lauelsbuxur — ný snið — f róbœr f ramleiðsla tlNNIG: U.F.O. grófrifflaðar buxur i nýju sniði Mussur, ny sending, mikið úrval trum stöðugt að taka • • upp nyiar vorur Ath. Verð og gæði Verzlunln Strandgötu 31 Hafnarflrðl, slml 53534

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.