Dagblaðið - 30.01.1978, Side 11

Dagblaðið - 30.01.1978, Side 11
11 DAliBLAÐIÐ. MANUDAdUR 30. JANUAR 1978. SIÐGÆÐI0G MANNLEG SAMSKIPTI Hvað kemur almennum borg- ara þetta við? Þetta er spurning sem verður stundum ágeng bæði hjá þeim sem reyna að tjá hugsanir sínar opinberlega og líka hinum sem standa utan við eril dagsins á þeim vettvangi. Það eru líklega mörg svör við þessari spurningu. Það er til fólk sem telur sig hafa einhverra hagsmuna að gæta. Það er líka til fólk sem langar að komast i umtal á opirrberum vettvangi. Svo eru þeir sem þróun mála hefur gengið svo endanlega fram af að þeir grípa til þess ráðs til að reyna að hafa hugsanlega örlítil áhrif á þróunina. ■Samkvæmt leikreglum lýðræðisins eiga allir þegnar að hafa áhrif á ákvörðunartöku. Þetta er fögur hugsjón. Sann- leikurinn er hins vegar sá, að því lengur sem líður þeim mun fjarlægari verður raunhæf og persónuleg ákvörðunartaka einstaklingsins. Eitt fyrsta verk sem al- menningur á Islandi tók beinan þátt í, og tengdist því lýðræói og lýðveldi sem við búum við nú, var atkvæðagreiðslan um endanleg sambandsslit við Dani og stofnun lýðveldisins. Þá sameinaðist þjóðin allt að 100% í þessari verklegu lýðræðisað- gerð. Þá töldu ráðamenn og al- menningur að um sameiginlega hagsmuni væri að ræða. Það er afar sjaldgæft að þjóð lifi slikar stundir á friðartímum. Mikið vatn er nú til sjávar runnið frá þessum degi í þjóðarsögunni. Margir halda því fram að því fjöreggi sem þá var orpið hafi verið kastað ógætilega milli sterkra aðila oft á tíðum. Nú í dag standa íslendingar frammi fyrir því, að ákvarðanataka er löngu komin úr höndum almennra þegna, og það sem verra er, þá virðist stjórn lýðveldisins einnig hafa færst frá alþingi og ríkisstjórn til aðila sem standa utan við þessar grunnstofnanir í stjórnun. Stundum virðist valdið jafnvel hafa færst til aðila sem standa utan við þau lög, sem alþingi hefur sett. VEGIÐ AÐ SIÐGÆDI Það eru viss atriði, sem ætlast er til aðséuinnan ramma lýðræðis. Þar er frelsi mannsins grunntónnin. Margir spyrja nú, hvað sé frelsi einstaklingsins í því þjóðfélagi, sem við búum í og hvernig þetta frelsi sé í framkvæmd. Lagabókstafurinn út af fyrir sig nægir engan veginn til þess að frelsi ríki í einu landi. Frelsið hlýtur að mótast af því siðferðilega ástandi og því siðgæðismati, sem ríkjandi er í þjóðfélaginu. Siðgæðismat kviknar ekki af sjálfu sér. Það mótast af erfðavenju og oft á tíðum á það sér grunn í bókmenntum þjóðanna. En á hverjum tíma hljóta stjórnvöld og löggjafarvald að leggja höfuðlinur að því siðgæðismafi, sem ríkjandi er. Það eru mjög sterk rök fyrir því, að í langri sögu islenzku þjóðarinnar hafi grunnatriði lýðræðis sjaldan raskast eins og undanfarna áratugi. Það er hægt að tína til ýmis dæmi úr daglegu lífi þessari skoðun til rökstuðnings. Ef fyrs't er komið að þeirri efna- hagslegu hlið, sem snýr að sam- skiptum einstaklinga og ríkis- valds þá blasir við, að ýmis löggjof stefnir að því að eyðileggja heiðarleg samskipti manna. Nærtækt og Ijóst dæmi um það, hvernig löggjöf getur beinst að því að grafa undan siðgæðishugmyndum, eru þau skattalög sem nú eru I gildi. Á hverju ári eru þessi lög gerð flóknari og óréttlátari. Auðvitað gera allir sér grein fyrir því, að óréttlátari lagabálkur fyrir- finnst ekki. Það sem verra er, er þó það að með honum eru grunnhugmyndir siðgæðis muldar niður. HEIÐARLEIKI REFSIVERÐUR Við skattlagningu standa ekki allir jafnt að vígi. Þegar kemur að framtali, er hæfni einstaklingsins til að hagræða og svindla dálitið, tekin fram yfir heiðarleika-. Þetta vita allir. I skattalögum eru ýmsar smugur fyrir þá, sem betur mega sín. Það er einkennandi fyrir þennan lagabálk, að margt af Kjallarinn Hrafn Sœmundsson því, sem um aldaraðir hefur verið talið dyggð, er nú litið á sem refsivert athæfi. P’rá fornu fari hefur ráðdeild og sparsemi verið talinn jákvæður eigin- leiki hjá fólki innan skynsam- legra markra. Nú er fólki, sem vill láta enda ná saman, refs- að óþyrmilega með beinum sköttum. Hinir, sem hafa látið þessar dyggðir lönd og leið, fá hinsvegar rífleg verðlaun. Skattalögin hvetja menn eða þvinga jafnvel til skulda- söfnunar og óráðdeildar í fjár- málum. Þarna er löggjafarvaldið að grafa undan siðferði al- mennings og rugla fólk algjörlega í ríminu. Þarna er löggjafarvaldið einnig að leggja grunn að uppeldi næstu kynslóðar. Sú kynslóð á að læra það, að heiðarleiki er refsiverður en þeir einstakling- ar, sem sýna óheiðarleika og tekst að komast yfir annarra fjármuni til eigin þarfa, fá verðlaun. Samkvæmt siðgæðis- boði skattalaga á sá sterkasti í svindlinu að lifa best. Þarna er aðeins tekið Ijóst dæmi um, hvernig löggjafar- valdið mótar siðgæðismat fólksins. Það mætti þræða Lnargan lagabálk og sjá, hvernig þessi mál hafa þróast. Margar stórframkvæmdir á vegum ríkisins eru óarðbærar. þótt nauðsynlegarséu. Á þessu sviði kemur tii mat um fram- kvæmdahraða. F.vrir lands byggðarafmælið greip um sig algert æði í framkvæmdum. Þá var hlaðið upp skuldum, til þess að yfirborð landsins liti vel út og menn kæmust leiðar sinnar. Þarnastóðekki á að iramkvæma lög frá alþingi.Það mætti líka nefna margar aðrar nýrri fram- kvæmdir undanfarinna ára í sambandi við virkjanir og brúargerðir, sem ekki stóð á fjármagni til. Önnur lög frá alþingi, sem minni eru í sniðum, hafa hins- vegar ekki fengið eins mikinn forgang. Áratuga gömu lög um réttindi lítilmagnans í þjóðfélaginu eru enn í dag óframkvæmd. Þó eru mörg þessara laga aðeins útfærsla á stjórnarskrárgreinum um grunnfrelsi og jafnrétti einstaklinga. Þarna eru meðal annars á ferðinni lög um skóla- göngu vangefinna og daufdumbra og lög um ókeypis þjónustu við aldraða. Þessi fáu dæmi af ótalmörgum bera vott um það siðgæðismat, sem fram- kvæmdavaldið hefur. HNEFARÉTTURINN Þegar forgangsverkefnin hafa svo sett fjármál ríkisins í strand þá er gripið til þess ráðs, fyrst og fremst, að leggja skatta á þá verst settu. Jafnvel er gengið svo langt að láta þá lítilmagna, sem áður voru nefndir, ganga fyrir í þessari skattlagningu. Það er ekki einungis, að þau réttindi, sem þetta fólk á samkvæmt lögum, komi ekki til framkvæmda, heldur er nú gengið á þann litla rétt sem það hefur. Þannig mætti segja, að veikt fólk fengi nú að greiða Borgarfjarðarbrú með aukinni þátttöku í lyfja- kostnaði og lögboðin þjónusta við vangefna og daufdumba komi ekki til fram- kvæmda vegna kaupa á Viðis- húsi. Þarna er um að ræða sið- gæðismat stjórnvalda. Pening- arnir eru í einum kassa og það er einn gjaldkeri, sem er al- þtngi. Hér að framan hefur verið drepið á örfá dæmi um það, hvernig stjórnvöld ganga fram í því að rugla siðferðisvitund fólks. Það virðist augljóst að hin síðari ár eru fyrst og fremst ár hnefaréttarins. Og aldrei fyrr virðist almenningur hafa verið jafn sljór fyrir þessari staðreynd. Það er einnig ath.vglisvert að bæði verkalýðshreyfingin og stjórnmálaflokkar. er telja sig fuiltrúa lítilmagnans, virðast einnig uð nokkru leyti hafa misst sjónar á þeim grundvall- arsjónarmiðum, að nútíma- þjóðfélag, sem vill rísa undir nafni, verður stöðugt að huga að félagslegum málefnum. Þau mál, sem eiga að hafa forgang, eru ekki dauður yfirborðsglans heldur aðbúnaður þeirra verr settu. Þarna verður aldrei gert neitt í eitt skipti fyrir öll, heldur má aldrei missa sjónar á þessu grundvallaratriði siðaðra manna um mannleg samskipti. Hrafn Sæmundsson prentari. sviðum. Er þar að finna heimsmet í ekki óskyldum málum og hér er til um- fjöllunar. Þar er skýrt frá t.d. hvar þingmenn fá hæst laun, hver hefur flutt lengstu þing- ræðu og fjölmargt fleira þessu skylt. Með framangreint í huga má telja líklegt, að stjórnvöld hér komist þar á blað og skulu tilfærð þrjú tilvik. í fyrsta lagi, þá samþykkti Alþingi okkar, að greiða umtalsverða fjárhæð á fjár- lögum 1977 og 1978 til lífeyris- sjóða starfsmanna stjórnmála- flokkanna. Með öðrum orðum er gæðingum flokkanna látið í té verðtryggður lífeyrissjóður af almannafé. Eru þeir þannig eins settir og opinberir starfs- menn. Hafa verður hér í huga, að þetta er samþykkt meðan stórfelld verðbólga geisar og mun draga verulegan fjárhags- dilk á eftir sér. Hafa ber einnig I huga í þessu sambandi, að framangreint er lagt til af stjórnmálaflokkum, sem hafa á stefnuskrá sinni að draga úr ríkisútgjöldum. 1 útvarpsviðtali fyrir skömmu sagði fjármála- ráðherra, að aðalkostur við fækkun opinberra at- vinnufyrirtækja væri að með þeirri ráðstöfun fækki ríkis- starfsmönnum og þá minnki um leið margvísleg bein útgjöld í því sambandi, svo sem lif- eyrissjóðsgreiðslur. Fjármála- ráðherra vill því taka með annarri hendinni og gefa með hinni. Ég vil einnig vekja at- hygli á því, að ekkert hefur heyrst frá ungum sjálfstæðis- mönnum um þessar stór- furðulegu greiðslur úr ríkis- sjóði. Þeir berjast samt undir kjörorðinu báknið burt. Öllum hlýtur þó að vera ljóst, að hér er verið að fara út á stórhættu- lega braut, sem áreiðanlega enginönnur löggjafarsamkoma hefur haft kjark til að fara út á, enda þarf til þess undravert hugmyndaflug. Eg held, að þetta heimsmet standi um langa framtíð. t öðru lagi er nú ljóst, að ráðherrar skammta sér sjálfir leyfi til þess að kaupa bifreið (má vera af dýrustu gerð enda oftast framkvæmt þannig) á þriggja ára fresti með þeim kjörum, að öllum tollum og söluskatti er sleppt. 1 raun merkir það, að bif- reiðin kostar 1/3 hluta markaðsverðs hennar, og auk þess er hluti af innkaups- verðinu lánaður til 10 ára með 5% ársvöxtum. Skattfrjáls söluhagnaður fylgir svo í kaupbæti. Að mínu mati er öll þessi regla fáheyrt siðleysi, sem mér er ekki kunnugt um, að sé viðhöfð hjá mikkurri annarri lýðræðisþjóð. í fréttum heyrist stundum nefnt, a Bresnjef séu gefnar bifreiðar, en karlgreyið mun víst safna þeim. Varla höfum við sótt framan- greindar hugmyndir þangað. Ég held einnig, að þessu meti verði vart hnekkt í bráð. t þriðja lagi samkv. lögum 47/1965 um eftirlaun ráðherra er kveðið á um, að eftir 5-8 ára samanlagt starf fái þer 40% tekna á hverjum tíma, að uppfylltum skilyrðum sjóðsins og fyrir 8-12 ár 60% tekna. Er þessi lífeyrissjóður og greiðslur úr honum óháð því, hvort við- komandi hafi önnur lífeyris- sjóðsréttindi hjá hinu opinbera. Mér hefur verið tjáð af manni mjög kunnugum þessum málum erlendis og þá sérstak- lega Norðurlöndum, að hvergi þekkist þessi tilhögun. Á Norðurlöndum er aðeins hægt að fá réttindi úr einum opinberum lífeyrissjóði, en greiðslurnar hækka gegni viðkomandi aðili launahærra starfi. Hér geta fyrrverandi ráðherrar sérstaklega fengið sjálfstæð laun úr 3-4 lífeyris- sjóðum. Einn fróðasti maður um tryggingarmál hér á landi gerði ráð fyrir því, að miðað við verðlagsþróun hér síðustu tiu árin, þá myndu ekki öll ráðherralaun dekka þá iðgjaldagreiðslu, sem frjáls tryggingaraðili myndi krefjast, til þess að standa undir ábyrgð og skyldum, sem lög um eftir laun ráðherra kveða á um. En ráðherra greiðir í lifeyrissjóð 4% af launum sínum. Nokkrir hafa spurt mig: Af hverju ert þú að nefna þetta viðkv-æma og leiðinlega mál varðandi ráðherralaun? Þeir eru ekki öfundsverðir af þeim. Ég held, að besta svarið við þessari spurningu hafi gefið einn reyndasti kennari og fræðimaður þessa lands: „Gera ráðamenn sér ekki grein fyrir að þeir eru komnir út á hættulegar brautir, sem munu Kjallarinn Sigurður Helgason stórveikja þá gagnvart allri þjóðinni? Mér er fyrst og fremst i huga: Af hverju hefur enginn bent á þetta fyrr? Þetta hlaut mörgum að vera ljóst." Stjórnmálamennirnir standa frammi fyrir stórfelldum efna- hagsvandamálum, sem öll þjóðin þarf að standa saman um að leysa. En því aðeins er það hægt að þjóðin geti treyst þeim og borið virðingu fyrir þeim. Af þessum málum getur enginn stjórnmálaflokkur frýjað sig ábyrgð. Hvað segja t.d. verkalýðsfélögin, þegar I ljós kemur, að samkvæmt lögum geta þannig menn fengið eftirlaun er nema tíföldum elli- og örorkulaunum almennings? Að samþykkt þessara fáránlegu laga hafa einnig staðið forystu- menn launþega á Alþingi. Bent skal á að í framlögðu frumvarpi um lífeyrissjóð íslands, en flutningsmaður er Guðmundur H. Garðarson, og ekki hefur verið samþykkt, er gert ráð fyrir, að hægt sé að fá ein lífeyrissjóðsréttindi. Núverandi fvrirkomulag er því alíslenskt fyrirbæri, sem allir stjórnmálaflokkarnir bera ábyrgð á og ölium er til hneisu og skammar. Vonandi mun núverandi Alþingi gera verulega bragar- bótá framangreindum lögum og venjum, svo að virðing þessarar stofnunar og traust eflist að nýju. ÓTTINN H0RFINN Eg hefi nú gert að umtals- efni, hvernig stjórnmála- flokkarnir hafa stöðugt sölsað undir sig meiri völd og aðstöðu. Þessi þróun hefur æ ágerst frá 1959, þegar sú breyting var gerð á kosningum til Alþingis sem við búum við nú. Aðhald kjósenda að stjórnmála- mönnum hefur nær horfið og ábyrgð sérhvers þingmanns farið dvínandi.I staðinn eru það stjórnmálaflokkarnir sem ráða ferðinni, og þeir taka á sig ábyrgðina í þessu sambandi. Þessi þróun er að mínu mati mjög skaðleg og hefur ósjálf- rátt í för með sér meiri afskipti hins opinbera af málefnum þegnanna. Reynslan hefur sýnt, að enginn stjórnmálaflokkur vill koma á breytingu I raun. Forsvarsmenn stjórnmála- flokka í stjórnarandstöðu tala jafnan fagurlega um mikla breytingu, en þegar þeir komast að kjötkötlunum, fellur þeim allur ketill í eld, því að völdin virðast villa þeim sýn. í persónubundnum kosn- ingum verður gjörbreyting á þessari stöðu og það er l’agt á hendur kjósenda að hafna og velja alþingismenn. I því sambandi verða verk þing- manna vegin og metin, svo og sjónarmið nýrra frambjóðenda. Allt stjórnkerfið smitast af þessu valdi kjósandans, og einstaka þingmenn komast ekki hjá því að taka á sig ábyrgð af gerðum flokksins. Er hverjum þingmanni því alls ekki sama um stefnumótunina. Hver hefur ekki heyrt alþingismann skjóta sér bak við ákvörðun flokks síns og skýra frá því að hann hafi verið á móti þessu eða með á þingflokksfundi, en engu geta ráðið endanlega? Ég hef enga trú á þvi, að við óbreyttar aðstæður ætli forystumenn flokkanna að gera nokkrar breytingar á kosninga- lögum eða stjórnarskránni, enda þótt allt annað sé látið í veðri vaka rétt fyrir kosningar. I ljös hefur komið, enda þótt fæstir hafi gert sér grein fyrir því, að alþingismenn og ráðherrar eru í dag tvímæla- laust sá hópur manna, sem harðast hafa skarað eld að sinni köku í kjaramálum; er þetta samt sá aðili sem nú á að bera klæði á vopnin og leiða þjóðina út úr sínum efnahags ógöngum. Flestum, er vilja kynna sér málin hlutlaust, ofbýður þessi framkoma, en umræddir aðilar láta ekki deigan síga, eins og nýjustu dæmin sýna, og ástæðan er einföld. Allir flokkarnir eru samsekir, svo að við engan er að sakast og litlu að hætta um fylgistap. Hér er komin á svikamylla, sem verður að stöðva. Annars er voðinn vís. Öttinn við kjósendur er algjörlega horfinn. Undrar kannski nokkurn við þessar aðstæður, þótt við séum komin á kaldan klaka? Sigurður Helgason viðskipta- fræðingur.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.