Dagblaðið - 30.01.1978, Page 13

Dagblaðið - 30.01.1978, Page 13
13 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR30. JANÚAR 1978. heimsstyrjöldinni. Og enn segir þú: ,,í samræmi við yfirlýsta stefnu BANDARÍKJANNA um að Bandaríkin háðu ekki land- vinningastríð bar Bandaríkja- mönnum að aflokinni seinni heimsstyrjöldinni að láta eyjarnar af hendi og fela Sam- einuðu þjóðunum varðveizlu þeirra, þar sem þær voru ekki sjálfstætt ríki. Áður höfðu eyjarnar tilheyrt ýmsum rikj- um Evrópu og Asíu. Með sér- stöku tilliti til hernaðarlegrar þýðingar eyjanna og skuld- bindinga Bandaríkjanna í Asíu að styrjöldinni lokinni m.a. varðandi endurreisn Japans, Filippseyja o. fl. var ákveðið að þær skyldu vera á sérstöku verndarsvæði Bandaríkjanna. Var Bandaríkjunum veitt heimild til að byggja þar upp herbækistöðvar. Heyra mál eyjanna undir Öryggisráðið að svo miklu leyti sem þau koma til kasta Sameinuðu þjóðanna. Micronesía samanstendur af miklum fjölda smáeyja, um tvö þúsund talsins. Svæðið sem þær ná yfir er álíka stórt og Bandaríkin en samanlagt land- rými minna en Island. tbúar eru um 109.000 talsins". Þetta berðu saman við aðild íslands að Nato. Eyjaklasinn á þessu stóra svæði var ekki sjálfstætt ríki. Hver ákvað að eyjarnar skyldu vera á sérstöku verndarsvæði Bandaríkjanna? Hver veitti Bandaríkjunum heimild til að byggja þar upp her- bækistöðvar? Eftir grein þinni að dæma hefur það verið Öryggisráð S.Þ. Var þá ekki Bandaríkjunum nokkurn veginn í sjálfsvald sett, hverju þau eyddu þar í varnir eða her- stöðvar? Mér skilst að þessar fáu ósjálfstæðu hræðurhafi þar litla umsögn um það haft. Þær höfðu því ekkert sjálfstæði að selja né frumburðarréttinn — land sitt og sjálfsforræði, eins og þú tekur til orða. Fyrr i grein þinni segir þú: ,,Af hálfu Nato, með sérstökum samningi við tsland frá 1951 tóku Bandaríkin umrætt hlut- Kjallarinn Þórður Halldórsson verk að sér fyrir og vegna íslands og annarra Natoríkja — þ.e.a.s. varnir Islands. Berðu svo þessi tvö dæmi saman og vittu hver útkoman verður. Þú segir ennfremur, Guðmundur. „að það sé eftirtektarvert með hvað mikilli fyrirlitningu sé skrifað og talað í Bandaríkjun- um um þær þjóðir, sem verzla (með varnaraðstöðuna) með sama hætti og íbúar Micronesíu, Tyrklands, Grikk- lands og Spánar. Umsögn þín er án tilvitnana. Verð ég því að flokka hana undir heimilis- iðnað. Það mun hins vegar ekki hvarfla að þér, að þessi lönd hafi notað þá peninga, sem þú kallar verzlunarvöru, til að stuðla að varanlegum vörnum hjá sér. LÝÐRÆÐISHUGSJÓN GUÐMUNDAR Þar sem þú hefur nú sagt margar góðar skrýtlur í grein þinni, get ég ekki stillt mig um að láta eina fjúka; Sagt er, að þegar hershöfðingjar Banda- ríkjanna komi saman á árleg- an fund í Pentagon, til skrafs og ráðagerða um herstöðvar sínar og komi þar að í listanum herstöðinni í Keflavik, reki allir upp ofsahlátur og segi: „Ódýrasta herstöðin okkar". Ég kem þá að því, sem mér þótti athyglisverðast í grein þinni og var þess raunar vald- andi, að ég sá mig knúinn til að stinga niður penna. Þú segir: „Sú stund gæti jafnvel runnið upp, að ef við héldum, að íslenzku þjóðerni og menningu væri meiri hætta búin af annar- legum innlendum ástæðum í tengslum við varnirnar heldur en af hættunni frá austri, mundu sumir okkar þá frekar ,vilja taka áhættuna af því síðar- nefnda". Ég fæ ekki séð, hve lýðræðis- hugsjónin ristir djúpt í hug- skoti þínu, ef nokkur meining á að vera bak við þessi orð þin. Ég sé ékki betur en þú hafir haft síðustu 25-30 árganga Þjóð- viljans fyrir framan þig til að endursegja þessi slagorð af annarri hverri síðu. Ég hélt að við álitum báðir, að ef íslenzkri menningu stafaði megn hætta af dvöl þessara innilokuðu dáta á Keflavikurflugvelli, væri hún nú þegar komin í ljós. Hættan úr austri, sem allar varnir Vestur-Evrópu eru tilorðnar vegna, virðist ekki mikil i þín- um augum, ef þú jafnar þessu saman. Þar sem þú ert einn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í utan- ríkismálanefnd Alþingis og formaður Samtaka um vest- ræna samvinnu verð ég að draga í efa, að það sé í anda flokksins eða Samtaka um vestræna samvinnu, sem grein þín er skrifuð. Ég hefði talið grein þína sóma sér betur á síðum Þjóðviljans. Þeir voru heldur ekki seinir á sér að hirða þennan hvalreka, því að daginn eftir að grein þin kom í Morgunblaðinu, eða á gamlárs- dag 31. des„ nær gleðihróp kommúnista yfir fimm dálka á þriðju siðu Þjóðviljans með stærsta letri. Þeir hefðu ein- hvern tíma gert sér mat úr þvi, að þú skyldir villast inná yfir- ráðasvæði Rússa í leit að amerískum herstöðvum. En gleði Þjóðviljans var svo mikil, að þeir áttuðu sig ekki á þessu þokuferðalagi þínu um hnöttinn. Það er engan veginn mín meining og margra annarra, að íslendingum beri að heimta einhverja leigu fyrir varnarað- stöðuna á íslandi, enda þótt lengi megi deila um, hvort þeir séu að verja okkur eða sig. Hins vegar er ekkert sjálfsagðara en þeir aðstoði, eða leggi fram fé til að gera þær varnir, sem þeir hafa tekið að sér, að vörnum, með því að byggja vegi, eins og þeir upphaflega buðu, svo og varaflugvöll fyrir Keflavikur- flugvöll í öðrum landshluta. Sömuleiðis höfn í Njarðvik og aðrar varnarframkvæmdir, sem íslendingar hafa aldrei bolmagn til að framkvæma. Ég endurtek að ég sé ekki betur en íslendingar hafi staðið í vegi fyrir því, fullum fetum, að varnirnar kæmu að notum. í framhaldi af því hefur verið sagt með hroka, að islendingar séu fullfærir um að annast sjálfir sína vegagerð. Það eiga kannske allir að lofsyngja milljarðana sem fara í að byggja Borgarfjarðarbrú. Framfarir í vegamálum eru þær, að rúml. 100 km vegarspotti af varanlegum vegi hefur verið byggður út frá höfuðborginni á sl. tuttugu árum, eða rúmlega fimm km að meðaltali á ári. Það er hætt við, að með sama áframhaldi taki æði mörg ár að byggja vegi, sem kæmu að nokkru gagni öryggis- lega séð. Ilvernig eiga íslendingar að vera færir um það á eigin spýtur að stuðla að varanlegum vörnum þegar svo er komið á fjármálasviðtnu ao erlendar skuldir fara að nálgast milljón króna á hvert manns- barn í landinu? Þess vegna eiga þær hug- myndir, sem í dag eru kallaðar aronska, fullan rétt á sér. Ég ráðlegg Guðmundi og öðrum skoðanabræðrum hans að endurskoða afstöðuna til þessara mála, í stað þess að sýna af annarlegum ástæðum stundarþjónkun við málstað sem er andstæður íslenzkum hagsmunum. Þórður Halldórsson Luxemburg. Hafnarfjöröur! Blaðburðarbörn óskastf suöurbæ Upplýsingar í síma 52354 kl. 5 til 7. maABtt Þú sparar tugþúsundir króna ef þú lætur endurryðverja bifreiðina reglulega Verklýsing á ryðvörn ÞVOTTUR: Óhreinindi á undirvagni og annarsstaðar eru þvegin burt með upplausnarefni og heitu vatni (sem hefur þrýsting allt að 130 kg/cm2). Kemur það í veg fyrir að óhreinindi geti leynst í undirvagni eða hjól- hlífum. ÞURRKUN: Eftir nákvæman þvott, er bifreiðinni ekið í lyftu inn í þurrkskáp og þurrkuð með 60—70° heitum loft- blæstri. Þetta er eitt af þeim grundvallaratriðum, sem nauðsynlegt er að framkvæma, til að ná sem bestum árangri gegn ryði og tæringu, þ. e. að bif- reiðin sé bæði hrein og þurr þegar ryðvarnarefni er borið á. BORUN: Þegar bifreiðin er orðin þurr, er henni ekið úr þurrkskápnum. Síðan eru boruð 8 mm göt til að koma ryðvarnarefninu Tectyl í öll holrúm og á þá staði, sem nauðsynlegt reynist með hliðsjón af þar til gerðu plani, sem til er yfir flestar tegundir bif- reiða. — Öllum slíkum götum, sem boruð hafa verió, verður lokað eftir sprautun á snyrtilegan hátt með sérstöKum plasttöppum. 1. SPRAUTUN: Fyrst er þunnu ryðvarnarefni (Tectyl 153B) spraut- að í öll samskeyti, brot og suður, en það hefur mjög góða eiginleika til að smjúga inn í staði þar sem mest hætta er á ryðskemmdum. Þetta efni er einnig sett inn í hurðir, lokuð rúm, vélarhús o.fl. 2. SPRAUTUN: Eftir að sprautun 1 er lokið, er sprautað þykkara ryðvarnarefni (Tectyl 125) á staði, þar sem meira mæðir á, svo sem allan undirvagn og bretti. 3. SPRAUTUN: Að lokum er sprautað gúmmímassa innan í bretti og á alla viðkvæma staði undir bílnum til frekari hlífðar ryðvarnarefninu og til einangrunar. ÞURRKUN: Að sprautun lokinni heldur bifreiðin áfram á lyftunni inn i þurrkskáp, en þar er ryðvarnarefnið á bif- reiöinni þurrkað með heitum loftblæstri. Ódýr ryövörn sem aðeins tekur 1 til 2 daga varnarskalinn sigtuni 5 - sími 19400 ÞVOTTUR: Að lokum er bifreiðin þrifin að utan jafnt sem innan. Fyrst er hún úðuð með hreinsiefni og síðan spraut- uð með vatni, þannig að Tectyl og önnur óhreinindi á lakki skolast burt.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.