Dagblaðið - 30.01.1978, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 30.01.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐtt). MÁNUÐA<JUR30. JANÚAR 1978. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Lykilmenn íslands brugðust, Donir sigruðu ouðveldlego — Yonir íslands brustu í Randers og lokatölur 21-14 fyrir Dani. Danska landsliðsþjdlfaranum, Leif Mikkelsen, fannst nóg um hvað rúmensku dómararnir voru hagstœðir danska liðinu Frá Halli Hallssyni, blaða- manni DB á HM í Danmiirku. Vonir íslands um eitt af átta sætunum í heimsmeistara- keppninni hér í Danmörku urðu að engu í Randers á Jótlandi, þegar Danir kafsigldu ísland, 21- 14 á laugardag. Ef frá eru taldar fyrstu mínútur leiksins þá átti isl. liðið alltaf á brattann að sækja. Danir sýndu hvað í þeim býr og barátta þeirra var miklu meiri en íslcndinga. Þá var varnarleikur danska liðsins traustur og í sókn Dana átti islenzka liðið í erfiðleikum með Michael Berg, stórskyttuna, svo og Jesper Petersen, hinn snjalla linumann. Það fór aldrei á milli mála hvort liðið var sterkara eftir að fvrstu tíu mínútur leiksins höfðu verið jafnar. En Danir höfðu líka allt með sér. Bókstaf- lega allt heppnaðist hjá Dönum i söknarleiknum meðan lánleysi islenzka liðsins var nánast algjört á köflum. Og hinir rúmensku dómarar voru Islendingum erfiðir. „Dómgæzlan var okkur ákaflega hagstæð í b.vrjuninni. Raunar fannst mér nóg um — en það jafnaðist, þegar á leikinn leið,“ sagði Leif Mikkelsen, þjálfari danska liðsins eftir leik- inn. Vissulega rétt hjá Mikkelsen. Dómgæzlan var okkur ákaflega óhagstæð. Öll vafaatriði féllu Dönum í vil. Þannig var tveimur íslendingum sýnt rauða spjaldið — vikið af leikvelli — í fyrri hálfleik. Þrívegis það gula og í fyrri hálfleiknum fengu Danir þrjú vítaköst. ísland ekkert — og í leiknum öllum fengu Danir sex víti. tsland eitt. Þá fengu Danir hvorki að sjá rauða eða gula spjaldið í fyrri hálfleik, ekkert víti dæmt á þá, þó tvívegis hefði verið fyllsta ástæða til þess. En dómgæzlan er alls ekki skýringin á hinu stóra tapi, þar sem vonir tslands hurfu í józka grund. Það, sem raunar fyrst og fremst veldur er, að iykilmenn okkar — leikmenn með mikla reynslu náðu sér aldrei á strik, Geir Hallsteinsson, Axel Axels- son, Einar Magnússon. Gunnar Einarsson og Jón H. Karlsson sýndu aldrei sitt réttá andlit. Skiljanlegt með Jón, sem á við meiðsli að stríða og átti ekki að leika. Aðeins tveir leikmenn íslenzka liðsins léku af eðlilegri getu. Þor- bergur Aðalsteinsson barðist grimmt bæði í vörn og sókn. Hann var bezti maður íslenzka liðsins — og svo varði Gunnar Einarsson vel í markinu, sér í lagi í fyrri hálfleik. Varði oft mjög vel en hann meiddist í síðari hálfleik. Fékk knöttinn í andlitið auk þess, sem gömul meiðsli tóku sig upp. Kristján Sigmundsson kom þá í markið og varði einnig vel. Nú, ísland skoraði fyrsta mark leiksins, Einar Magnússon, og Danir hófu sína fyrstu sókn. Þegar í henni var tveimur leik- mönnum Islands sýnt gula spjaldið — fengu áminningu ‘—þeir Janus Guðlaugsson og Árni Indriðason. Rúmensku dómararnir sýndu þegar mátt sinn, þrátt fyrir að brot þeirra Arna og Janusar hafi ekki verið gróf. Berg jafnaði fyrir Dani en Gunnar Einarsson kom íslandi aftur yfir með fallegu marki. Aftur jafnaði Berg. Arna Indriða- syni var siðan vísað af leikvelli en þrátt fyrir það náði tsland aftur forustu. Janus Guðlaugsson skoraði úr hraðaupphlaupi. Ísland yfir 3-2 og átta minútur liðnar. En það var í síðasta skipti. Þrjú dönsk mörk fylgdu í kjölfarið. 5-3 fyrir Dani. Geir skoraði af línu eftir fallega línusendingu Einars Magnús- sonar. Sören Andersen kom Dön- um tveimur mörkum yfir — og Þorbergur Aðalsteinsson minnk- aði muninn. 5-6 og 20 mín. liðnar. Þær mínútur, sem eftir voru hálf- leiksins skoruðu Danir fjögur mörk gegn þremur mörkum Íslands og komust Danir yfir í 10-6. I lok hálfleiksins fékk ísland í eina skiptið meðbyr. Tvö mörk Þorbergs og Jóns Karls- sonar minnkuðu muninn í 8-10. Raunar átti Jón færi á að minnka muninn í eitt mark en Jeppesen, hinn bráðsnjalii markvörður Dana, varði mjög vel. En í stað þess að allt gengi upp í sókninni hjá Dönum þessar lokamínútur hálfleiksins misheppnuðust skot og sendingar hjá þeim. Gunnar Einarsson varði tvö vítaskot í hálfleiknum. Staða 8-10 í leikhléi. Það var því ekki að ástæðulausu, að hinir fjölmörgu íslenzku áhorfendur í Randers væru bjartsýnir. Þeir höfðu hvatt íslenzku leikmennina dyggilega Frá Halli Hallssyni, Árósum. Danir eru í sjöunda himni með leik sinn gegn íslandi. Blöðin segj.a, að það hafi verið frábær leikur hjá danska liðinu — hand- bolti i hæsta klassa. Miklu betri leikur en gegn Spánverjum. Danska liðið hafi vaxið stig af stigi eftir að islendingar veittu því harða keppni í byrjun — og í lok fyrri hálfleiks — en síðan yfirspilaði danska iiðið það ísienzka. það svo, að þeir stóðu hinum 4500 dönsku áhorfendum fyllilega á sporði. En Danir voru ékki á því að gefa eftir. Fyrstu tvö mörk síðari hálfleiks voru Dana og það var ekki fyrr en á 10. mín. að Geir skoraði fyrsta mark islands í hálf- leiknum. Danir höfðu hins vegar öll völd í leiknum í hendi sér. Staðan breyttist í 17-10 og úrslit voru ráðin. Danir höfðu tryggt sér sæta í átta-liða úrslitum. Aðeins tvö mörk þeirra Geirs og Þor- bergs fyrstu 20. mín. síðari hálfleiksins Sóknarleikur íslenzka liðsins var í molum en Danir skoruðu grimmt. Allt heppnaðist hjá þeim. Varnar- leikur tslands var máttlaus — Michael Berg fékk mikið pláss og nýtti það vel. Skoraði fimm mörk. Síðustu mínútur leiksins voru nánast formsatriði. Lokatölur 14- 21. Danskur sigur i höfn — vonir tslands brostnar um eitt af átta efstu sætunum á HM. Vonir brostnar — en það verður að segjast, að island mætti mjög erfiðum mótherjum í tveim- Eftir leikinn sagði Leif Mikkel- sen, danski landsliðsþjálfarinn. „Við vorum ekki aðeins tauga- óstyrkir fyrir leikinn við Islend- inga — við vorum mjög hræddir við íslenzka liðið. En okkur tókst að leika mjög vel gegn Islandi — og liðið vex ört. Ég sagði mínum leikmönnum að fara ekki út í hörku við Islendinga — engin slagsmál — heldur láta boltann og spilið ganga og það heppn- aðist," sagði Mikkelsen. ur fyrstu leikjum sínum hér í Danmörku á HM. Fyrst eitt af þeim liðum. sem spáð er hvað mestri velgengni. Olympíumeist- urum Sovetríkjanna — og síðan mjög sterku. dönsku liði, gestgjöf- unum. Allur leikur danska liðsins var mun betri, jákvæðari og fjöl- breyttari en gegn Spánverjum. Það fékk meðbyr út allan leikinn. ísland var einfaldlega ekki nógu sterkt til að standast hinu danska liði snúning. Frá Halli Hallssyni, Arósum. „Ég tel, að þeir Birgir og Karl Benediktsson hefðu átt að stjórna ieik íslenzka liösins frá bekknunt. Þessi óvissa sem alltaf var hafði siæm, sálræn áhrif á leikmcnn. Leikmenn vissu ekki hver átti að stjórna," sagði Geir. „Þegar kerfin gengu ekki upp átti að re.vna frjálsan leik. Eg er ekki ánægður með þá stöðu. sem Mörk Íslands skoruðu Þor- bergur 4 — leikmaður, sem ísland framtíðarinnar á eftir að byggja á — Axel tvö, eitt víti, Geir tvö, Einar Magnússon, Gunnar Einarsson, Janus Guðlaugsson, Björgvin Björgvinsson, Arni Indriðason og Jón H. Karlsson eitt mark hver. Fyrir Danmörku skoruðu Berg 5, Anders-Dahl Nielsen 4 (öll víti), Jesper Peter- sen 4, Patzyi 3, Bue Petersen 2 og þeir Boch, S. Andersen. H. Sören- sen eitt mark hver. ég lék. Önnur en sú, sem ég hef alltaf leikið. Eg byrja öll kerfin en síðan eiga skotmennirnir að koma og skjóta. Þetta er of ein- hæft — sömu keyrslurnar. Ég er ekki ánægður með minn þátt í keppninni. Kannski hefði átt að leyfa yngri mönnunum að revna sig meira," sagði Geir að lokum en álag á Geir hefur verið gífurlegt hér i DanmörVn Danir í sjð- unda himni Óvissan á bekknum hafði slœm úhrif — sagði Geir Hallsteinsson

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.