Dagblaðið - 30.01.1978, Síða 19
I)A<;BI,AilIf>. MA.Nl'I)A<ilTR 30. .1ANt’AH 1978.
19
SÆLDARLÍF í MEXÍK-
ÖNSKUM FANGELSUM
— Bandarískir fangar neita að láta flytja sig heim
Bandariski eiturlyfja-
smvglarinn Victor Gripaldi
hefur aidrei haft það eins gott
og nú. Hann etur og drekkur
aðeins þad sem er fvrsta flokks,
vinnur sér inn 150 dollara á
viku (rúmlega 31 þúsund isl.
kr.), klæðist fötum úr finasta
silki og fær frúna i heimsókn
einn dag í viku.
Þaó eina sem þennan Victor
vantar er frjálsræði. Ilann er
nefnilega í mexikönsku fang-
elsi. þar sem hann afplánar
fangelsisdóm fvrir tilraun til
að sm.vgla kókaíni fvrir 250
Börn fanganna fá að koma í
heimsökn til feðra sinna.
Í fangelsinu er prýðis aðstaða
til iþróttaiðkana, auk þess sem
haldnir eru dansleikir fvrir
fangana.
þúsund dollara inn í Banda-
ríkin (um 50 milijónir ísl. kr.).
Hann er einnig einn af þeim
bandarísku föngum i Mexikó.
sem hafa hreinlega neitað að
láta flvta sig hreppaflutningi til
heimalandsins og vilja miklu
heldur afplána dóminn í
mexikönsku fangelsi.
„Kemur ekki til mála að ég
fari heim til þess að afplána
dóminn." sagði Victor i samtali
við bandarískt blað. ,,Ég hef
það alveg prýðilegt hérna."
Blaðamaðurinn ræddi við
fangann þar sem hann sat í
klefa sínum. Það er enginn
smáræðis klefi, með einka-
baðherbergi, bæði sjónvarpi og
stereo-græjum, hnausþykku
gólfteppi og dágóðum bóka-
skáp.
„Ef mig langar til þess að
halda áaginn hátiðlegan bið ég
bara um þykka steik og
kampavín með frá veitinga-
'staðnum í fangelsinu. Hér er
hægt að gera hvað sem manni
dettur í hug. Það er nú eitthvað
annað en í bandarísku fang-
elsunum." sagði fanginn.
Margir Bandaríkjamenn hafa
kvartað undan illri meðferð
•lögreglu og yfirvalda í Mexikó,
en þegar þeir eru loksins
komnir bak við lás og slá eru
þeir hæstánægðir.
„Við getum svona nokkurn
veginn gert það sem okkur
lvstir hér innan dyra,“ sagði
Victor Gripaldi, sem er þrjátíu
og tveggja ára gamall ítali frá
New York.
Um þessar mundir sitja fimm
hundruð sjötíu og sjö Banda-
ríkjamenn bak við lás og slá í
Mexikó, flestir fyrir smygl á
marijuana eða kókaíni.
Bandarikin og Mexikó gerðu
með sér samning þar sem kvað
á um að fangar fengju að sitja
inni í heimalöndum sínum. Þá
áttu tvö hundruð þrjátíu og
fimm Bandaríkjamenn rétt á að
verða fluttir í bandarisk fang-
elsi.
„Um það bil 15% þeirra
neituðu að láta flvtja sig heim,"
sagði Mike Abbel forsvars-
maður Bandaríkjanna í fanga-
skiptanefndinni.
„Mexikönsku fangelsin eru
miklu mannúðlegri heldur en
þau bandarísku." sagði Victor
Gripaldi ennfremur í viðtalinu.
„Við verðum aðeins að mæta til
nafnakalls þrisvar sinnum á
dag, á morgnana, um miðjan
daginn og á kvöldin. Að öðru
leyti ráðum við hvernig við
eyðum deginum."
Eins og áður sagði er fanga-
klefi Victors, sem hann deilir
með tveimur Mexikönum, mjög
vel útbúinn með öllum
þægindum. Þar hanga meira að
segja málverk á veggjunum. í
sumum öðrum fangelsum eru
þægilegir hægindastólar fyrir
fangana og hnausþvkk glugga-
tjöld fyrir gluggunum.
Victor vinnur á skartgripa-
verkstæði þar sem hann vinnur
sér inn um 150 dollara á viku.
Victor giftist mexikanskri
stúlku á sl. ári og og býr hún
heima hjá foreldrum sínum
skammt frá fangelsinu. Hún
fær að koma i heimsókn til
eiginmannsins einu sinni í viku
og þá fá þau einkaherbergi til
afnota.
Eftir nafnakallið á morgnana
sem er kl. 7 fer Victor í
morgunmat. Þeir sem hafa ekki
lyst á matnum sem fram-
reiddur er í fangelsinu geta
keypt sér það sem þeir vilja úr
veitingastað fangelsisins. „Þú
getur borðað steik og
styrjuhrogn á hverjum degi ef
þú hefur efni á því,“ sagði
Vietor.
Á hverjum morgni bregður
hann sér í smá tennisleik, en í
fangeisinu er ágætis ^ðstaða
fyrir fanga til þess að stunda
hvers kyns íþróttir og kvik-
m.vndasýningar eru að jafnaði
tvisvar í viku.
„Mér finnst alls ekki eins og
ég sé lokaður inni.Maðurgetur
gert svo sem hvað sem er, það
verður aðeins að biðja um leyfi
til þess,“ sagði Victor.
Þótt eiturlyfjasmyglarar séu
sjaldan eða aldrei náðaðir
kemur oft fyrir að fangelsis-
vistin er stytt ef þeir eru dug-
legir við vinnu í fangelsinu.
Þýtt og endursagt A.Bj.
Tveir fangar ásamt vinkonum sýnast una sér hið bezta.
Póstsendum!
Athugiðódýrír
SKAVTAR
Hvítir, stærðir 27-42
Svartir, stæróir 32-45
Stærðir 27-35 kr. 6.430
Stæróir 36-41 kr. 6.970
Stærðir 42-45 kr 7.49!»
SP0RTV0RUVERZLUN ING0LFS 0SKARSS0NAR
Klaþpárstig 44. Siiiii 1-17-83.
OPHÐ VIRKA DAGA FRÁ 9—21
UM HELGAR FRÁ 13—17
GEITLAND 100 FM
3ja hb. 1. hæð, mjög góð íbúð i
Óskar eftir makaskiptum á
3ja herb. íbúð á 3.-4. hæð
(efstu), gjarnan við Sundin.
ENGJASEL 80 FM
3ja hb. ibúð á 2. hæð. Verð
10 m. Úth. 7 m.
MIÐTÚN 60 FM
2-3ja hb. íbúð í kjallara. Sér
inngangur og sér hiti. Verð
6.9 m. Útb. 5 m.
MÓABARÐ 80 FM
3ja hh. íbúð á 2. hæð, falleg
íbúð með hílskúr. Verð 11-
NESHAGI 85 FM
3ja hh. íbúð. Sér inngangur.
Úth. 6,5 m.
ÁLFASKEIÐ 138 FM
4-5 hb. glæsileg endaíhúð.
Verð 14.5-15 m. Útb. 10.
HVERFISGATA
CA 130 FM
3-4ra herh. íbúð. hæð og ris.
Bílskúr. Verð 6,5-7 m,
greiðist á 12 mán.
RAUÐAGERÐI EINBÝLI
Hús í byggingu. 2ja hæða,
tva>r sér íhúðir. 178 fm
grunnflötUr. hilskúr. Verð
22 m.
11,5 m. Útb. 7-7,5 m.
Ný söluskrá ávallt fyrirliggjandi.
Mikið úrval eigna.
EIGNANAUST
Laugavegi 96 (við Stjörnubíó) Sími 2 95 55
SÖLUM.: Hjörtur Gunnarsson. Lárus Helgason. Sigrún Kröyer.
LÖGM.: Svanut* Þór Vilhjálmsson hdl.
Tillioð óskast í eftirtaldar bifreiðar, er
verða til sýnis þrið.iudaginn 31. jan.
1978 kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu
vora, að Borgartúni 7:
Ford úortina fólkshifreið
Ford Éconoline sendiferðabifreið l.and Rover diesel '74 '73
ÚAZ 452 (orfa>rubifreið '73
Willvs Commando torfæruhifreið '72
Ford Cluh Wagon fólksbifreið '72
Land Rover bensín '72
Volkswagen 1300 fólkshifreið '72
Land Rover hensín '72
Ford Transti sendiferðahifreið '72
Ford Eseort sendiferðabifreið '72
Ford Torino station fólkshifreið Volkswagen 1200 fólksbifreið Skoda 110L fölkshifreið '71 '71 '71
Land Rover hensin '71
Chevroiet sendifi rðahifreið '71
Land Rover hensín '70
Land Rover diesel '70
Ford Coriina fólkshifreið '68
Chevrolet séndiferðahifreið ’67
Volvo I.aplander torfærubifreið Voivo I.aplander torfærubifreið ’67 '65
Til sýnis hjá símstöðinni Húsavík:
Evenrude snjósleði '74
Tilboðin verða opnuð sama dag kl.
17.00 að viðstöddum bjoð-mdum.
Réttur áskilinn að hafna tilboðum,
,sem ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006