Dagblaðið - 31.03.1978, Page 2
2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978.
Kvennahandbolta
og Bleika pardus-
inn í sjónvarpið
Gláka skrifar:
Mig langar að beina þeim tilmælum
til Bjarna Felixsonar að hann sýni ein-
hvern tíma kvennahandbolta i íþrótta-
þáttum sjónvarpsins. Satt að segja
væri það góð tilbreyting frá körfubolta
og listdansi á skautum, sem virðist
ráða ríkjum i þáttunum.
Svo finnst mér einnig, að sleppa
megi ensku knattspyrnunni þar sem
sérstakur þáttur er fyrir hana.
' Svo ég viki að öðrum dagskrárliðum,
þá legg ég til að Bleiki pardusinn verði
notaður til að skjóta inn á milli þátta í
staö klukkunnar. Einnig mætti sýna
meira af góðum poppþáttum og ekki
mundi saka að koma með annan þátt
um ABBA.
Kvennahandbolti góð tilbreyting segir
bréfritari.
Óvinsældir ríkis-
stjórnarinnar
Bragi Jónsson hríngdi:
„Mér virðist gæta nokkurs mis-
skilnings á óvinsældum ríkis-
stjórnarinnar er DB leggur mat á þær
samkvæmt nýgerðri skoðanakönnun
blaðsins. Ég tel, að óvinsældir núver-
andi rikisstjórnar stafi ekki eingöngu
af efnahagsráðstöfunum hennar,
heldur miklu heldur af kalufalegri
stjórn allt frá upphafi valdaferilsins.
Mat DB er of einhliða.”
LOG RENNA
Hanna Kr. Hallgrímsdóttir, Vest- mann í DB hinn 11. marz sl„ þá datt
mannaeyjum, skrifar: mér þessi mynd i hug og lét verða af
að teikna hana.
Þegar ég sá fyrirsögnina á viðtali Ef þið viljið þá megið þið birta
við Gunnar Þórðarson hljómlistar- hana.
Allt kalla þeir list:
Viðbjóðslegar kvikmyndir eiga
ekki erindi til almennings
Þ.S. skrifar:
„Ég varð fyrir vonbrigðum með
kvikmynd sem ég fór á um helgina.
Það var myndin „Yellow Emanuelle”.
Það var bókstaflega ekkert efni í
myndinni. Alltaf þetta sama myndina
út í gegn.
Ég var þvi fylgjandi að banna
myndina Á valdi tilfinninganna.
Alveg sama hvað Thor og hans
skoðanabræður vilja halda fram.
Allt vilja menn kalla list í dag. Er
það kannske list að skera undan fólki?
Eins og sagt var í „Samúel” aö ein
konan skar undan einum karlinum og
skrifaði með blóðinu á magann á
honum. Er það kannske list?
Ég sá í sjónvarpinu þáttinn þar sem
Thor, saksóknari og presturinn voru
að munnhöggvast. Presturinn var sá
eini sem talaði af viti að mínu áliti.
Hann stóð sig vel og svaraði vel fyrir
sig.
Ég efast ekki um að Thor hafi
kallaö Sæta mynd list, en hún var
viðbjóðsleg að minum dómi. Af hverju
var hún ekki bönnuð?
Ég held að menn ættu að hugsa sig
um tvisvar áður en þeir sýna svona
viðbjóðslegar myndir á listasýningu.”
Tryggingafélögin
stjórna ríkisstofnun
Bileigandi skrifar:
„Ég skrifa ykkur vegna þess að ég er
furðulostinn bíleigandi, vegna þess að
tryggingafélögin geta ár hvert farið
fram á 40-70% hækkun án þess að
við því sé amazt. Allt ætlar hins vegar
vitlaust að verða þegar illa launaðir
Dagsbrúnarverkamenn eða Iðjufólk
fer fram á 10-15% launahækkun. Það
er greinilegt að ekki er sama hver ber
fram kröfurnar.
En það hlýtur að vera mjög
alvarlegt mál þegar tryggingafélögin
eru farin að „stjórna” ríkisstofnun sem
heitir Tryggingafeftirlitið, en það
mælir með um 67% hækkun bif-
reiðatrygginga, eins og trygginga-
félögin óskuðu eftir.
Ég tel að þeir sem veita Trygginga-
eftirlitinu forstöðu hafi brugðiz't
skyldu sinni á mjög grófan hátt.
Ég skora á viðkomandi yfirvöld að
rannsaka þessi mál og þessa stofnun
sem einu sinni var kölluð Trygginga-
eftirlitið, en hefur nú fengið annað
nafn.”
ÞAKKIR FYRIR
VEITTAN GREIÐA
Ragna Sigurðardóttir hríngdi:
_Mig langar nú bara, af því að alltaf
er verið að tala um það illa og Ijóta í
okkar þjóðfélagi, að koma á framfæri
þakklæti fyrir greiða sem mér var
gerður. Það má líka tala um hið góða.
Þannig var að á laugardaginn
tapaði ég út úr bilnum hjá mér
dýrindis pelshúfu. Ég var þá stödd úti í
Skerjafirði. Ég saknaði húfunnar ekki
fyrr en eftir 2 tima en ók þá strax
suður í Skerjafjörð aftur að leita
hennar. Og viti menn. Einhver
hugulsamur vegfarandi hafði lagt
hana á steinvegg og hlaðið að með
grjóti, þvi það var hifandi rok. Vil ég
þakka þessum hugulsama manni
sérstaklega og eins öðrum vegfar-
endum fyrir það að taka ekki húfuna
mína.
Hringið í síma
27022
millikL 13 ogl5
eða skrifið
Raddir
lesenda