Dagblaðið - 31.03.1978, Side 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1978.
11
1'
unnar ekki verið fúsir til funda við for-
setann.
Búizt er við því að forsetinn útnefni
hinn nýja forsætisráðherra snemma í
apríl eftir viðræðurnar við leiðtoga
stjórnmálaflokkanna og verkalýðs-
félaga.
Miklar umræður hafa veriö um það
að forsetinn ætli að fá Simone Veil til
liðs við sig í tilraunum sínum til þess
að koma á samstarfi stjórnar og
stjórnarandstöðu. Simone þykir hrif-
andi kona sem sameinar gáfur og fast-
heldni, sem stundum jaðrar við
þrjózku, auk þess sem hún hefur sýnt j
forsetanum mikla tryggð. Það er þvi
talið liklegt að hún verði valin til
áhrifamikils embættis.
Skjótur f rami
Giscard d’Estaing Frakklandsfor-
seti valdi Simone til þess að taka við
„heilsubyltingunni” árið 1974,
skömmu eftir að hann tók við emb-
ætti. Meðal mála sem henni var falið
að koma i gegn var að lögleiða fóstur-
eyðingar í Frakklandi og það tókst
henni þrátt fyrir andstöðu þingsins.
Gengi hennar óx mjög nú að lokn-
um kosningum en hún lagði hart að
sér að tryggja sigur stjórnarflokkanna.
Enda þótt hún tilheyri engum pólitísk-
um flokki og hafi ekki tekið þátt í
kosningunum var hún óþreytandi að
ferðast um landið til þess að styðja við
bakið á þeim frambjóðendum sem
studdu stefnu forsetans. Þessi barátta
hennar bar ríkulegan ávöxt.
' Simone Veil hefur verið lýst sem
eina mannlega ráðherranum í ríkis-
stjórn Frakklands. Samkvæmt skoð-
anakönnun er hún vinsælasti maður i
Frakklandi og mikið vinsælli en leið-
togar stóru stjórnmálaflokkanna.
Undirmenn hennar i heilbrigðis-
ráðuneytinu kalla hana oft „madame”
og stundum einungis Simone. Æðstu
yfirmenn ráðuneytisins kalla hana ein-
faldlega „frú ráðherra”.
«
Simone Veil, hinn vinsæli heilbrigöis-
ráðherra Frakklands, sem jafnvel
hefur verið orðuð við forsætisráðherra-
embætti hinnar nýju stjórnar í Frakk-
landi sem mynduú verður fljótlega.
Hörð barátta fyrir
lögleyfingu
fóstureyðinga
Simone Veil er bezt þekkt meðal
Frakka, bæði karla og kvenna, fyrir
baráttu sína fyrir lögleyfingu fóstur-
eyðinga. M.a. vegna baráttu hennar
varð Frakkland fyrsta kaþólska landið
til þess að leyfa fóstureyðingar árið
1974.
Eftir að miklar ritdeilur höfðu átt
sér stað samþykkti þingið með 284 at-
kvæðum gegn 189 að gefa konum
frjálsar hendur með fóstureyðingar á
10 fyrstu vikum meðgöngutímans.
Talið var að ólöglegar fóstureyðingar i
Frakklandi fram að þeim tima hefðu
verið yfir 300 þúsund á ári og margar
konur fóru til Hollands og Bretlands
til þess að fá fóstureyðingu þar sem
hún var lögleyfð.
Þessi löggjöf er hin umdeildasta
allra í stjórnartíð Valery Giscards
d’Estaings Frakklandsforseta.
Þjóðarráð lækna lagðist gegn þess-
ari löggjöf á sínum tima og margir
þingmenn stjórnarinnar voru mót-
fallnir henni og greiddu atkvæði sitt
gegn henni. Frú Veil var vöruð við af
einum leiðtoga meirihlutans; með að-
gerðum sínum væri hún að opna dauð-
anum veg.
1 beinni útsendingu í sjónvarpi á
meðan hin harða barátta stóð yfir var
Veil sökuð um að koma með aðferðir
nasista til Frakklands og „senda börn-
in i ofnana”. En þetta var meira en
hún þoldi. Simone er af ættum
Gyðinga, fædd árið 1927, og á stríðs-
árunum var hún í útrýmingarbúðum
nasista í Ravensbruck. Hún ber enn
brennimerki nr. 78651 á handlegg og
foreldrar hennar og bróðir létu lífið i
útrýmingarbúðunum. „Ég get ekki
leyft slíkar athugasemdir," hrópaði
hún með tárin í augunum. Ummælin
voru dregin til baka og siðan tekin út
af þingskrám.
Á þriðja degi hinna harðskeyttu
umræðna sagði Simone fréttamönn-
um: „Fóstureyðing er aldrei sigur. Við
skulum heldur segja að þetta sé
þróun.” Síðan lögin um fóstureyðingar
voru samþykkt hafa þau verið nefnd
Veil-lögin.
Simone Veil fæddist í Nice 13. júlí
árið 1927. Árið 1944 munaði litlu að
hún og foreldrar hennar, auk tveggja
systra og bróður, slyppu undan þýzku
nasistunum með fölsuð vegabréf. En
kvöldið sem hún lauk námi í heima-
héraði sínu athuguðu nasistarnir vega-
bréf hennar sem leiddi til þess að öll
fjölskyldan var handtekin að undan-
skilinni Denise systur Simone. Hún
gek'.. í lið með andspyrnuhreyfingunni
frönsku.
Eftir frelsun Frakklands að stríðs-
lokum hóf Simone laganám og ætlaði
sér að verja ekkjur og munaðarleys-
ingja. En eftir að hún hitti Antoine
Veil og giftist honum taldi hann hana
á að verða dómari.
Simone hefur skrifað margar bækur
um félagsleg málefni og hefur heiðurs-
doktorsgráðu .frá Princeton háskóla í
Bandarikjum og frá Weizman visinda-
stofnuninni i ísrael.
Eiginmaður hennar er forstjóri
franska flugfélagsins UTA, Union des
Transports Aeriens. Þau hjónin eiga
þrjá syni og þrjú barnabörn.
Kjallarinn
Kristján Pétursson
ýmsar lagagreinar eru beinlinis úreltar
og striða gegn réttarvitund almenn-
Kjallari á
föstudegi
VilmundurGylfason
sett af þessum með vísindalega vitið
og djúpa þjóðfélagsskilninginn. Það
eru þeir sem til að mynda stjórna
Þjóðviljanum.
Síðan Tíminn hætti að vera
alvörublað er Þjóðviljinn þröngsýnasti
og frumstæðasti flokkssnepill, sem
gefinn er út i þessu landi. Þjóðviljinn
er ritskoðaður á ómerkilegasta hátt;
ritfrelsið þar er eins og málfrelsi í ofsa-
trúarsöfnuði; frelsi til þess að rökræða
hvernig framhaldslífinu sé háttað, en
ekki frelsi til þess að mega efast um að
framhaldslífið sé til.
Dæmi
Þegar Landsbankamálið var á
döfinni fyrir nokkru birti Þjóðviljinn
ings. Ennfremur hafa verið gerðar
mjög takmarkaðar og ómarkvissar að-
gerðir af hendi dómsyfirvalda til að
upplýsa brot á umræddum lögum og
framkvæmd refsinga verið áberandi
handahófskennd. Það hlýtur þó ávallt
að vera frumskylda dómsyfirvalda að
lögum sé framfylgt I hvívetna. Hins
vegar bregður svo við að ætla má að
helmingur þjóðarinnar taki þátt í laga-
brotum framangreindra laga og í lang-
flestum tilvikum eru slikir verknaðir
framkvæmdir fyrir opnum tjöldum.
Hvernig getur slíkt ástand skapazt? Er
meiri afbrotahneigð hjá íslendingum
en öðrum vestrænum þjóðum? Erfitt
er að svara þvi með fullri vissu en ætla
má að svo sé ekki. Almenningur á
Íslandi hefur komizt upp með að virða
takmarkað umrædd lög vegna að-
gerðaleysis dómsyfirvalda en þess í
stað látið eigin geðþóttaathafnir ráða
frásögn af því, að Ólafur Ragnarsson,
Vísisritstjóri, væri í einhverjum
Lionsklúbbi. Þar væru einnig
einhverjir þeir, sem téngdust Lands-
bankamálinu, beint eða óbeint. Ólafur
Ragnarsson hlyti þvi að vera viðriðinn
málið. Þetta var auðvitað röksemaa-
færsla af þvi tagi, sem vísundar eða
móralskir yfirburðamenn einir hafa
einkarétt til þess að nota. Sem vonlegt
var sendi Ólafur Ragnarsson athuga-
semd til Þjóðviljans þar sem hann bar
af sér að vera stórþjófur. Svavar
Gestsson sendi athugasemdina til
baka, neitaði að birta hana, en lét
fylgja með nótu þar sem sagði, að
' þetta væri bara venjulegur skítur,
sem ritstjórar blaðanna birtu gjaman
hverjir um aðra og engin ástæða til
þess að taka nærri sér! Hinn vísinda-
legi sósialismi gerir sennilega ráð fyrir
því að þar sem Ólafur Ragnarsson rit-
stýrði blaði sem bílakóngar engi, þá
megi leggja á sig nokkrar krókaleiðir
til þess að komast að því að hann sé
þjófur. Vísundarnir láta ekki að sér
hæða.
En það eru ekki bara
„auðvaldshækjur” eins og Ólafur
Ragnarsson sem verða fyrir barðinu á
vísindunum meö þessum hætti.
Gestur Guðmundsson,
háskólastúdent, sendi Þjóðviljanum
fyrir nokkru grein um það að Ólafur
Ragnar Grimsson, ptófessor og
ættfræðingur, væri enginn sósíalisti,
heldur krati. Gestur hafði hingað til
verið einhver sá alvísindalegasti sem
skrifaði í Þjóðviljann, en af ein-
hverjum visindalegum ástæðum mátti
samt ekki hallmæla ættfræðingnum.
En norður á Akureyri eru annars
konar þokulúðrar, sem gefa út blaðið
hverju sinni. Oftast réttlætir fólkið
gerðir sínar með þeim rökum að við-
komandi lög séu óréttlát og úrelt.
Dómsyfirvöld hafa um áratugaskeið
látið sem þau viti ekkert um þessi laga-
brot og svara oftast fjölmiðlum með
þeim hætti að „hugsanlega” geti verið
um einhver lagabrot að ræða.
Morgunblaðið benti réttilega á,
vegna mótmælaaðgerða ASl og BSRB
vegna setningar svonefndra kaupráns-
laga, þá hættu að ef Íslendingar virtu
ekki lög alþingis væri lýðræði og sjálf-
stæði þjóðarinnar stefnt í hættu. Fróð-
legt væri að heyra álit ritstjóra
Morgunblaðsins á hvort aðeins brot á
vinnumálalöggjöfinni geti stofnað
sjálfstæði þjóðarinnar í voða. Nú
hlýtur þessum ágætu og snjöllu rit-
stjórum Morgunblaðsins og forráða-
mönnum Sjálfstæðisflokksins einnig
að vera ljós hin almennu skatt- og fjár-
Norðurland. Þar fékk háskóla-
stúdentinn að birta sína fræðilegu út-
tekt á pólitískri stöðu ættfræðingsins.
Gallinn við strákakomma eins og
Gest, sem annars mun greindur piltur,
er sá, að þeim finnst í sjálfu sér ekkert
athugavert við ritskoðun af þessu tagi.
Þeir myndu sjálfir ritskoða, ef þeir
hefðu tækifæri til, barasta eilitið öðru
vísi. Innbyrðis þrátta kommar af þessu
tagi ekki um prínsípin sem að baki rit-
skoðun búa; þeir skilja þau ekki. Þeir
þrátta um það hvers eðlis og hvers
efnis ritskoðunin eigi að vera.
Sjálfur kynntist ég þessari
furðuveröld vísundanna svolítið fyrir
skemmstu. Þjóðviljinn hafi skrifað
margar forustugreinar um pappírinn
sem Alþýðublaðið fær frá krötum i
Noregi. 1 sjálfu sér var ég sammála þvi
sem Þjóðviljinn hafði sagt, hafði
raunar barizt fyrir þeirri skoðun minni
að leggja Alþýðublaðið niður um
siðustu áramót og huga þá að öðrum
leiðum fyrir Alþýðuflokkinn til þess að
koma skoðunum sínum á framfæri.
Hins vegar standast ekki vísindalegar
niðurstöður Þjóðviljans að hér sé um
mútufé að ræða. Ég vakti athygli á því
að þegar Blaðaprent hf„ sem er jöfn
eign Vísis, Tímans, Þjóðviljans og
Alþýðublaðsins var sett á laggimar
fyrir nokkrum árum, kom til
margháttuð aðstoð jafnaðarmanna á
Norðurlöndum, svo sem tækniaðstoð,
án þess að nokkurn tímann kæmi
króna til greiðslu, og enda ekki til þess
ætlazt. Þetta þótti mér merkilegt
innlegg i þessa umræðu, trúr þeim
almennu hugmyndum um að þessa
hluti eigi alla að ræða itarlega fyrir
opnum tjöldum i því skyni að gera
fjölmiðlun heilbrigðari en hún hefur
verið um langt skeið.
svikamál, gjaldeyris- og tollsvikamál
og brot á áfengislöggjöfinni. Hér er að
sjálfsögðu um að ræða þá málaflokka
sem hvað mest varða hagsmuni al-
mennings í landinu. Af hverjú benda
ekki ritstjórarnir og forsætisráðherra
stöðugt á þessar alvarlegu hættur sem
um áratugaskeið hafa grafið undan
stoðum lýðræðisins i landinu? Af
hverju fyrirskipar ekki dómsmálaráð-
herra viðkomandi framkvæmdaaðil-
um í dómsmálakerfinu að láta fram-
fylgja umræddum lögum?
Það er ekki nóg, dómsmálaráðherra,
að hafa lög i landinu, þeim verður að
framfylgja, enda þótt þau kunni að
koma illa við ákveðna hagsmunahópa.
Ný eða breytt lög koma að takmörk-
uðu gagni ef þau eru fyrst og fremst til
orðin i pólitiskum áróðri. Ef viðkom-
andi lög eru ekki í reynd framkvæmd
nema að takmörkuðu leyti og meðferð
Ég fékk Einari Karli Haraldssyni,
fréttastjóra, athugasemdina og sagði
hann að hún birtist fljótlega. Einar
Karl er blaðamaður með sjálfs-
virðingu, en slikt vantar vísundana
sem hærra en hann eru settir. Þegar
athugasemdin svo birtist ekki hringdi
ég til Einars Karls. og hann sagði að
Svavar Gestsson vildi ekki birta hana
fyrr en kannske einhvern tímann
seinna, þegar hann sjálfur væri búinn
að afla sér gagna til þess að svara
henni. En að fólki, lesendum
Þjóðviljans, sé treystandi til þess að
lesa sjálfir og draga sínar ályktanir, án
þess að vísundarnir bæti vitsmuna-
froðunni við, það er auðvitað af og frá.
Dæmi af þessu tagi eru mýmörg. Ég.
er sannfærður um að þessir menn rit-
skoða minningargreinar.
Það er hryggilegt
Þeir tala sjálfbirgingslega um frelsi.
Ritfrelsi, skoðanafrelsi, tjáningafrelsi.
Þeir stofna málfrelsissjóð og belgja sig
út á siðum blaðsins. En frelsi fyrir
hverja? Það er heila málið. Þetta er
frelsi fyrir þá, sem hafa félagslegan
þroska til þess að nota frelsið rétt;
frelsi fyrir þá sem misnota það ekki.
Frelsi fyrir þá, sem hafa skynsamlegar
'skoðanir; en ekki frelsi fyrir þá sem
hafa heimskulegar skoðanir. Miðalda-
fnykinn leggur af siðum Þjóðviljans.
Það er samt að koma æ betur i ljós,
að sjálfumgleðin er á næfurþunnu
yfirborði. Þar fyrir neðan býr hræðsla,
íhaldssemi og skiljanleg vanmeta-
kennd. Það er engin vilviljun að
Alþýðubandalagið eitt stjórnmála-
flokka tekur ekki upp prófkjör, en
Þjóðviljinn hamast hins vegar
þeirra ekki samræmd með tilliti tii
hagsmuna þjóðarinnar hefur dóms-
yfirvöldum mistekizt. Þjóðin veit
hvernig ástatt er um framkvæmd
dómsmála. Allar pólitískar blekkingar
um einhverja afrekaskrá dómsmála-
ráðherra breyta þar engu um.
Pólitisk dómsyfirvöld hafa litla
möguleika á aö koma í framkvæmd
eðlilegri réttarfarsmeðferð í landinu.
Þess vegna verður með skipulögðum
hætti að aðgreina fullkomlega dóms-
valdið frá löggjafar- og framkvæmda-
valdinu. Sjálfstætt og réttlátt dóms-
vald er hornsteinn lýðræðisins. Hér-
lendis hefur það brostið á mjög
þýðingarmiklum sviöum með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum, bæði er tekur
til réttarfars og almenns siðgæðis í
landinu.
Kristján Pctursson
deildarstjóri
mánuðum saman við að gera per-
sónukosningar tortryggilegar. Völdin
þarna eru á höndum örfárra ein-
staklinga. Þeir þola ekki lýðræði. Yfir
höfuð að tala þola þeir ekki ljós.
En hugsum okkur eitt augnablik að
örlögin höguðu þvi þannig að
Þjóðviljavisundarnir fengju hreinan
meirihluta i útvarpsráði. Útvarpsráð
er núna mikið til ónýt stofnun, stýrt af
íhaldsmönnum og valdapóker-
spilurum eins og Þórarni Þórarinssyni.
En ef hinn valkosturinn er þessir
þröngsýnu og hræddu ritskoðarar, þá
hjálpioss almættið.
Það hryggilega er, að stór hópur
fólks, sem annars er greint og vel
menntað, skuli hafa gerzt aftaníossar
þessara komma og hálfkomma í svo
rikum mæli sem raun ber vitni.
Þjóðviljinn er i andstöðu við upp-
lýsingu og raunverulega pólitiska
menningu. Ritskoðunardæmin eru til
vitnis um það.
Alþýðubandalagið á íslandi er of
stórt með nákvæmlega sama hætti og
spiritismi og trúarvingl hvers konar er
of útbreilt. Á báðum vígstöðvum er
visindum og trú ruglað óreglulega
saman, og hvað varið með öðru. Þar
fer saman jesúitísk trú á móralska yfir-
burði og vitsmuni sjálfs sín og djúp
fyrirlitning á skoðunum ann.irra. En
andspænis hvoru tveggja stendur
aukin þekking, aukin skoðanaskipti,
aukið frelsi til orða og athafna.
Kommarnir kalla það vist
borgaralegt frjálslyndi. Þeir um bað.
En það er engin tilviljun að þegar
Brynjólfur gamli Bjarnason hætti að
fjasa um kommúnismann sökkti hann
sér á bólakaf i spiritismann. Það var
ekki verið að færa sig nema um set —
og allt i nafni vísindanna.