Dagblaðið - 05.04.1978, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGIJR 5. APRÍL 1978.
FYRSTIHIPPINN
HANNAR NÚ HÚSGÖGN
„Ég er fyrsti hippinn,” segir Giorgio
Sant’Angelo, „og var þekktur fyrir
fáránlegan klæðnað.”
ítalski tizkuteiknarinn, sem breytti
ameriskum frúm i sigaunastúlkur eða
indverskar prinsessur og féll siðan
skyndilega af tindi frægðar sinnar
snemma á árinu 1970 hefur tekið sér
nýtt verkefni fyrir hendur. Nú fæst
hann við að hanna húsgögn i stað þess
að teikna föt.
„Flest þeirra húsgagna sem ég hanna
eru frekar frumstæð og heimilisleg."
Þessi áhugi hans á húsgögnum
vaknaði eiginlega fyrir tilviljun og kom
einmitt á réttum tima til þess að bjarga
Sant’Angelo frá gjaldþroti.
Til þess að geta greitt allar sínar
skuldir flutti Sant’Angelo I litla ibúð í
New York og seldi öll frönsku fínu hús-
gögnin sín og honum finnst það hálf
hlægilegt að húsgögnin sem hann smíð-
aði sjálfur, legubekkir, stólar og borð og
púðarnir og gluggatjöldin sem hann
hannaði fyrir sjálfan sig til þess að eiga
eitthvað i litlu ibúðina sina skyldi verða
upphafið að húsgagnahönnun hans sem
hann vonast nú til að græða peninga á
því Sant’Angelosegist eiga von á stórum
pöntunum víðs vegar að.
Sant’Angelo fæddist i Florence, en
var aðeins tveggja ára gamall þegar for-
eldrar hans fluttust til Argentínu til þess
að vinna við nautabú þar.
„Ég lærði heilmikið af þessu fólki,
indiánum og kúrekum, sem höfðu ekki
mikið á milli handanna,” segir hann.
„Amma min var vön að fara með mig
I gönguferðir um nágrenniö og benda
mér á leirkofana eða konurnar sem voru
svo fallegar I fátæklegum klæðnaði sín-
um ”
RAGNHEIÐUR
KRISTJÁNfeDÓTTII
Sant’Angelo var aðeins þriggja ára
gamall þegar hann fór að hafa áhuga á
teikningu og hélt sér að blaðinu og blý-
antinum þar til árið 1958 en þá lagði
hann land undir fót og fór til Spánar til
þess að læra arkitektúr og iðnhönnun.
Hann eyddi sumrinu 1962 með Picasso
og meðal þess sem hann lærði af þeim
fræga manni var að um leið og þú lærir
einhverja formúlu ertu búinn að vera
sem listamaður. Árið 1964 gerði hann
sér ferð á vinnustofu Disney I Burbank
og ætlaði sér að vinna þar. Hann gafst
upp eftir tvær leiðinlegar vikur.
„Þetta var hræðilegt,” sagði
Sant’Angelo. „Þar hafði hver og einn
unnið við að teikna sömu persónuna I 25
ár.”
Árið 1966 fékk Sant’Angelo sitt fyrsta
stóra tækifæri, þegar Diana Vreeland,
þáverandi ritstjóri Vogue, bað hann að
teikna föt á fyrirsætuna Veruschka.
Þetta verkefni tók um 14 blaðsiður i
blaðinu.
„Á þessum tíma var klæðnaður kon-
unnar kassi með rennilás á bakinu. Ég
veitti henni frelsi og kom fram með mjög
litrikan klæðnaðT
Enn þann dag í dag er Sant’Angelo
ekki Iaus við þær kjaftasögur sem gengu
um hann á þessum árum. Fólk hugsar til
dæmis mikið um það hvort hann neyti
enneiturlyfja.
„Það geri ég ekki lengur,” segir hann.
„Glannalegur klæðnaður minn varð til
þess að fólk hélt að ég væri kolvitlaus
eiturlyfjaneitandi og svallari og það má
geta þess að ég var aðeins 7 ára gamall
þegar Inka indiáni gaf mér kokain og ég
hef síðan fullkomlega gert mér grein
fyrir hættum þess efnis.”
„Það sem ég hef mestan áhuga á núna
eru salerni og isskápar,” segir
Sant'Angelo. „Það hefur ekkert verið
gert til þess að breyta útliti jsessara hluta
Sant’Angelo hefur teiknað föt fyrir Zsa
Zsa Gabor frá því 1960.
í fjöldamörg ár og mér finnst kominn
tími til að gera eitthvað i málunum. En
ég tek mér aldrei neitt fyrir hendur sem
ég hef ótrú á. Heldur myndi ég ganga
um göturnar og sofa i almenningsgörð-
um.”
Sant’Angelo stundar likamsæfingar i ibúð sinni á Manhattan. Hér er italski tizkuteiknarinn innan um húsgögnin sem urðu til þess að hann lagði húsgagnahönnun fyrir sig.
[ Verzlun Verzlun Verzlun )
A S A litsjónvarpstæki fyrirliggjandi, 22” og 26”, hnota
og rósaviður Milúi myndgteði + R C A myndlampi.
reynsla isölu rafejndatækjíL „ 311
■ > **
Itmmdason & Co
Suðurtandsbraut 10 R.
Sfmi 81180.
Húsbyggjendur, byggingaverktakar:
Eigum á lager milliveggjaplötur úr gjalli.
Stærð 50 x 50 cm. Athugið verð og greiðslu-
skilmála.
Loftorka sf.
Dalshrauni 8 Hafnarfirði, simi 50877.
DRÁTTARBEIZLI — KERRUR
Vorum að taka upp 10" tommu hjólastell
fyrir Combi Camp og fleiri tjaldvagna.
Höfum á lager allar ataarflir af hjólastallum
og alla hluti i kerrur, sömuleiflis allar gerflir
af kerrum og vögnum.
ÞÓRARINN KRISTINSSON
Klapparatig 8. Simi 28616 (Haima 72087)
Tilvalinn stóll til fermingargjafa.
Framleiðandi:
Stáliðjan Kópavogi
KRÓM HÚSGÖGN
Smifljuvegi 5. Kópavogi. Slmi 43211
Ferguson litsjónvarps-
tækin. Amerískir inn-
línumyndlampar. Amer-
ískir transistorar og
díóöur.
ORRI HJALTASON
Hagamel 8, simi 16139.
G.G. Innrömmun
Grens&svegi 50, simi 35163, opM frá kl. 11-6. Áður Njölsgötu
106.
Tökum allt til innrömmunar og aðstoðum við ramma-
val. Strekkjum á blindramma. Gott úrval af útlendum
og innlendum rammalistum. Höfum einnig matt gler og
glært gler. Póstsendum um land allt.