Dagblaðið - 05.04.1978, Page 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1978.
Sjónvarp
«
Útvarp
Myndaflokkur um ævi Charles Dickens hefur göngu sina i sjönvarpinu miðvikudaginn 5. april.
Sjónvarp í kvöld kl. 21,45:
ÆVISAGA
CHARLES DICKENS
Síðastliðinn miðvikudag lauk
þáttunum Erfiðir tímar sem voru
gerðir eftir sögu Charles Dickens. Ekki
hefur Dickens þó alveg sagt skilið við
okkur, því að næstkomandi
miðvikudag, 5. apríl, hefst nýr brezkur
myndaflokkur i þrettán þáttum um
ævi Dickens.
Dickens var fæddur árið 1812 og lifði
til ársins 1870. Æska hans var erfið.
Þegar Dickens var aðeins 10 ára varð
fjölskylda hans að flytja sig um set enn
einu sinni, en hún hafði verið á nærri
því stöðugu flakki frá því að Dickens
fæddist. Faðir Dickens var nú orðinn
stórskuldugur og þar sem systkinin
voru orðin átta talsins, var Dickens
sendur í burtu til þess aö vinna fyrir
sér sjálfur. Telur Dickens þennan
hluta barnæsku sinnar hafa verið
erfiðastan. Smám saman tókst
Dickens að vinna sig upp og afla sér
menntunar. Hann hóf að skrifa og
varð brátt vinsæll rithöfundur og eru
sögur hans enn þann dag í dag heims-
frægar og mikið lesnar.
Margar af sögum Dickens hafa
verið kvikmyndaðar og hafa ýmsar
þeirra verið sýndar í íslenzka sjón-
varpinu. Auk þess hefur fjöldi
sjónvarpsmyndaflokka verið gerður
eftir sögum hans.
Einna þekktastar munu sögurnar
um David Copperfield og Oliver
Twist. Myndaflokkur um David
Copperfield hefur verið sýndur 1
sjónvarpinu hér og kvikmynd um
Oliver Twist hefur verið sýnd hér í
kvikmyndahúsi. Ennfremur hefur út-
varpið tekið David Copperfield til
flutnings í leikritsformi fyrir börn og
unglinga. Þá munu flestir kannast við
Pickwick og Jólasögu, en kvikmynd
gerð eftir Jólasögu hefur verið sýnd i
kvikmyndahúsi hér.
Margar af sögupersónum Dickens
eiga við einhver rök að styðjast í
raunveruleikanum. T.d. hefur því
verið haldið fram að Mr. Micawber i
sögunni um David Copperfield eigi
fyrirmynd sína i föður Dickens, sem
ávallt var skuldum vafinn og á sífelldu
flakki.
Þessi fyrsti þáttur sem sýndur
verður miðvikudaginn 5. apríl nefnist
Gríman. í þeim þætti er Dickens á
ferð um Bandaríkin. Hann er orðinn
fullorðinn og þekktur rithöfundur og
er alls staðar tekið vinsamlega.
Ferðin hefur verið erfið og leggst því
Dickens veikur. 1 veikindum sínum
tekur hann að rifja upp bernsku-
minningar sínar og það eru þær endur-
minningar sem við fáum að fylgjast
með í þáttunum.
Handrit þáttanna er gert af Wolf
'Mankowitz Leikstj. er Marc Miller
og með hlutverk Dickens fer Roy
Dotrice. Þýðandi er Jón O. Edwald.
Hver þáttur er tæplega klukkustundar
langur og eru þeir í litum.
RK.
Sjónvarp
i
Miðvikudagur
5. apríl
18.00 Ævintýrl sótarans (L). Tékknesk leik-
brúðumynd. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
18.10 Fleytingaleikar (L). Finnsk mynd um
íþróttir skógarhöggsmanna, sem fleyta trjábol-
um ofan úr skógunum til sögunarverksmiðja.
Þýðandi og þulur Guðbjöm Björgólfsson.
(Nordvision — Finnsk sjónvarpið).
18.35 Hér sé stuð (L). „Lummumar” skemmta.
Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson.
19.00 On We Go. Enskukennsla. 21. þáttur
frumsýndur.
19.15 Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Sldðaæfingar (L). Þýskur myndaflokkur.
Níundi þáttur. Þýðandi Eirikur Haraldsson.
21.00 Nýjasta tækni og vísindi (L). Umsjónar-
maður ömólfur Thorlacius.
21.25 Víkingaminjar í Jórvik (L). Bresk heim-
ildamynd um rannsóknir á minjum frá vík-
ingaöld í Jórvík á Norðymbralandi. Þýðandi
og þulur Þór Magnússon.
21.45 Charles Dickens (L). Nýr, breskur mynda-
flokkur i þrettán þáttum um ævi Charles
Dickens (1812—1870), frá erfiðri æsku til ein-
stæðrar velmegunar og langvinnra vinsælda.
Margar af sögum Dickens hafa verið kvik-
myndaðar, og hafa ýmsar þeirra verið sýndar í
ísienska sjónvarpinu auk fjölda sjónvarps-
myndaflokka, sem einnig hafa verið gerðir
eftir sögunum. Handrit Wolf Mankowitz.
Leikstjóri Marc Miller. Aðalhlutverk Roy
Dotrice. 1. þáttur. Gríman. Rithöfundurinn
Charles Dickens er á sigurför um Bandaríkin.
Ferðin hefur verið erfið. Dickens leggst veikur
og tekur að rifja upp bemskuminningar sinar.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.35 Dagskrárlok.
Útvarp
I
Miðvikudagur
5. apríl
12.00 Dagskráin. Tónleikar. 1 ílkynnmgar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Sagan af Bróður
Ylfiog” eftir Friðrik Ásmundsson Brekkan.
Séra Bolli Þ. Gústavison byrjar lesturinn.
15.00 Miödegistónleikar. Konunglega filhar-
móníuhljómsveitin í Lundúnum leikur
Sinfóniu nr. 1 i D-dúr „Titan” eftir Gustav
Mahler; Erich Leinsdorf stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður-
fregnir).
16.20 Popphorn. Halldór Gunnarsso/i kynnir.
17.30 Útvarpssaga barnanna: „Fósturbarn úr
sjó”, dýrasaga eftir Ingólf Kristjánsson.
Kristján Jónsson les.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.Tilkynningar.
19.35 Frá skólatónleikum i Háskólabíói i
febrúar. Þorsteinn ' Gauti Sigurðsson og
Sinfóníuhljómsveit íslands leika Píanókonsert
nr. 1 ífís-mollop. 1 eftirSergej Rakhmaninoff;
Páll P. Pálsson stjórnar.
20.05 Af ungu fólki. Anders Hansen sér um þátt
fyrir unglinga.
20.45 íþróttir. Hermann Gunnarsson sér um
þáttinn.
21.05 Stjörnusöngvarar fyrr og nú.
Guðmundur Gilsson kynnir söngferil frægra
þýzkra söngvara. Ellefti þáttur: Rudolf
Schock.
21.35 Kerfið: Innhverf ihugun. Sturla Sighvats-
son flytur erindi.
21.50 „Hjarðsveinninn á klettinum”, tónverk
eftir Franz Schubert. Beverly Sills
sópransöngkona syngur, Gervase de Peyer
leikur á klarinettu og Charles Wadsworth á
pianó.
22.05 Kvöldsagan: „Dagur er upp kominn” eftir
Jón Helgason. Sveinn Skorri Höskuldsson les
(6).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Djassþáttur i umsjá Jóns Múla Áma -
sonar.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
6. apríl
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00.
8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl.-s7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl. 9.15: Steinunn
Bjarman les framhald sögunnar „Jerutti
bjargar Tuma og Tinnu” eftir Cecil Bödker (4).
Tilkynningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt
lög milli atr. Til umhugsunar kl. 10.25: Þáttur
um áfengismál í umsjá Karls Helgasonar.
Tónleikar kl. 10.40. Morguntónleikar kl.
11.00: Albert de Klerk og kammersveitin i
Amsterdam leika Orgelkonsert í C-dúr eftir
Haydn; Anthon van der Horst stj./Sinfóniu-
hljómsveitin i Pittsborg leikur Sinfóníu nr. 4 i
A-dúr, „ttölsku hljómkviðuna” eftir Men-
delssohn; William Steinberg stj.
Fasteignasalan
EIGNABORG sf.
Hamraborg 1
Kópavogsbraut
2ja herbergja íbúð, ca 80 ferm.
Verð 7,5 milljónir.
Hamraborg
2ja herbergja íbúð, 55 ferm. 8 1/2
til 9 milljónir.
Efstaland
2ja herbergja ibúð, 50 ferm. 8 1/2
milljón.
Melgerði
3ja herb. íbúð, 80 ferm. 7 1/2 til 8
milljónir.
Kvisthagi
3ja herbergja íbúð, 100 ferm. 10
milljónir.
Kópavogsbraut
4ra herbergja íbúð, 100 ferm, er í
risi lOmilljónir.
Asparfell
4ra herbergja íbúð, 120 ferm. 15
milljónir.
Hlégerði
4ra herbergja íbúð, 100 ferm. 15
milljónir.
-Símar 43466 - 43805
Grenigrund
4ra herbergja íbúð í eldra tvibýlis-
húsi, 90ferm. 12 milljónir.
Stigahlíð
5 herbergja íbúð í fjölbýlishúsi,
stórglæsileg, 140 ferm. 17 milljón-
ir.
Helgaland
Fokhelt einbýlishús með gleri og
frágengnu þaki. Verð 13 millj.
Markarflöt
Stórglæsilegt einbýlishús á góðum
stað, ca 190 ferm. Verð 35 milljón-
ir.
Þinghólsbraut
4ra til 5 herbergja einbýlishús á
góðum stað, ca. 125 ferm. 18 til 20
milljónir.
Þorlákshöfn
Stórglæsilegt viðlagasjóðshús,
laust fljótlega. Verð 11 1/2
milljón.
Hveragerði.
Gott raðhús, verð 7 milljónir, laust
strax.
Lækjarkinn Kóngsbakki
4ra herbergja, ca 100 ferm. 11 1/2 2ja herb. 49 ferm ibúð. Verð kr. 8
milljón. millj.
Vílhjálmur Einarsson sölustjóri og Pétur Einarsson lögfræðingur.
OPIÐ VIRKA DAGA
UM HELGAR FRÁ 1*3
9**-
ir
Seljavegur
Einstaklingsibúð. Verð 2,5—3 m.
Álfaskeið, 55 f m
2ja hb. góð ibúð. Verð 7,5 m.
Hverfisgata, 70 f m
2ja hb. góð ibúð á 2. hæð.
Kópavogsbraut, 70
fm
2ja hb. Útb. 4,5—5 m.
Miðvangur, 75 fm
3ja hb. góð ibúð. Verð 10—10,5 m.
Lækjargata Hafn., 60
fm
3ja hb. íbúð. Útb. 4,5 m.
Bugðulækur, 90 fm
Góð 3ja hb. jarðhæð.
Vesturbær
2 íbúðir í sama húsi 4 og 3ja hb.,
fást i skiptum fyrir ca 150 fm gott
einbýli á Seltjarnarnesi.
Ljósheimar, 100 fm
Mjög góð 4ra hb. íbúð i háhýsi.
Hjallabraut, 130 fm
5 hb. glæsileg íbúd. Verö 16—16,5
m.
Hlíðarvegur, 137 fm
Glæsileg sérhæð, 4 svefnherbergi,
sérþvottahús og búr inn af eldhúsi.
Stór, upphitaður bilskúr. Útborg-
un um 14 milljónir.
Úti á landi
Selfoss einbýli
Hella, 144 fm
Viðlagasj.hús, bein sala eða skipti
á ca 120 fm eign á Rvikursvæðinu.
Hraunbær, 81 fm
3ja hb. ibúð i skiptum fyrir eldra
einbýli i Hafnarfirði, sem má
þarfnast lagfæringar.
Hverfisgata — 2
íbúðir
Hæð og ris. 3ja hb. íbúð hvor.
Langholtsvegur, 85
fm
3ja hb. ágæt kj.íbúð. Verð 8 m.
Dyngjuvegur, 110 fm
mjög falleg 4—5 hb. íbúð, sérinn-
gangur, frábært útsýni. Verð 13,5
m. Útb. 9—10 m.
Arnartangi,
viðlagasj.hús
4ra hb. ibúð, 3 svefnherb., kæliklefi
inn af eldhúsi, saunabað. Verð 13,5
m.
Holtagerði, 125 fm
6 hb. mjög góð efri hæð 1 tvíbýli.
Verð 16,5 m.
Grundarfjörður
Nýtt einbýli, skipti koma til greina
á eign á Reykjavíkursvæðinu.
Raufarhöfn einbýli
Þórshöfn einbýli
136 fm 7 hb. ibúð, húsið er 2ja ára,
35 fm bílskúr, skipti koma til
greina í Hafnarfirði, Garðabæ.
Vantar:
Höfum kaupendur að öllum
gerðum eigna i Hafnarfirði og
Garðabæ.
Vantar
íbúð í Fossvogshverfi
Höfum kaupanda
að ca 160 fm einbýli á Seltjarnar-
nesi, möguleg skipti á 2 íbúðum i
sama húsi f vesturbæ.
Höfum kaupanda
að góðu raðhúsi í Breiðhoiti.
Verðmetum íbúðir
samdægurs