Dagblaðið - 04.07.1978, Blaðsíða 2
2
/■
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978.
NEYTENDASAMTÖKIN OG
DB TAKIUPP SAMSTARF
Neytandi hríngdi:
Kærar þakkir til iykkar á Dag-
blaðinu fyrir að vekja athygli á þeirri
svívirðilegu óhæfu ,að fleygja mat-
vælum á öskuhauga. Og kærar þakkir
fyrir að vekja Neytendasamtökin til
lifs á ný. Frá þeim góðu samtökum
hefur maður hvorki heyrt hósta né
stunu i langan tíma. Það var ékki fyrr
en DB birti fréttina um tómatana, sem
þau létu til sin heyra.
Hvernig væri að DB og Neytenda-
samtökin tækju upp samstarf? Það
gæti til dæmis orðið í gegnum
neytendasíðu blaðsins, sem er alveg
sérstaklega ánægjuleg nýbreytni I
íslenzkri blaðamennsku.
Ég varpa þessari hugmynd fram til
umræðu og vonast eftir því að fleiri
neytendur láti I sér heyra. Það er tími
til kominn að málefnum okkar verði
sinntafalvöru.
Atriði úr sjónvarpsleikritinu „Skripaleik” eftir Gísla J. Ástþórsson.
Hvenærfáumviðað
sjá almennilegt ís-
lenzkt sjónvarpsleikrit
„Sjónvarpsáhorfandi” skrifar:
Sl. föstudagskvöld sýndi sjónvarpið
leikritið „Skripaleik” eftir Gísla J.
Ástþórsson. Mér þótti leikritið slæmt
og þykir illt til þess að vita að miklum
fjármunum skuli sóað í svona vitleysu.
Taka ber fram að þeir Sigurður
Sigurjónsson og Gísli Halldórsson eru
að mínu viti mjög góðir leikarar. En
persónusköpun höfundar mis-
heppnaðist og leikararnir gátu ekki
bjargað því.
Endir leikritsins var snubbóttur og
skildi ég ekki hver meiningin var
eiginlega.
Hvenær ætlar sjónvarpið að sýna
okkur almennilegt íslenskt sjónvarps-
leikrit? Hvenær hættir þetta leiðinda
fúsk?
Hringið í
síma
27022
mitii kl. 13
ogl5
eða skrifið
Tómatar á öskuhaugum. Samstarf neytenda, Neytendasamtakanna og
DB ætti aö geta komið i veg fyrir að svona óhæfa endurtaki sig.
DB-mynd Hörður.
Magnús Torfi Olafsson
verði næsti borgar-
stjóri
Borgarbói skrifan
Ég vil vekja athygli nýja
meirihlutans í borgarstjórn Reykja-
vikur á frábærum manni í stöðu borg-
arstjóra. Sá maður er Magnús Torfi
ólafsson.
Magnús Torfi er maður sem þjóðin
öll og menn úr öllum flokkum treysta
og bera virðingu fyrir. Hann er ekki sá
stjórnmálamaöur sem snýst eftir vindi
eftir þvi hvort hann er I stjórn eða
stjórnarandstöðu.
Nú veit ég ekki hvort Magnús Torfi
gefur kost á sér í þessa stöðu, en þetta
er mál sem vert væri að kanna. 1
embætti borgarstjóra er vandfundinn
annar eins ágætismaður. Ég geri ráð
fyrir því að fleiri séu mér sammála og
vildi gjarnan heyra álit þeirra á hug-
myndinni.
Magnús Torfi Ólafsson.
Við garðóðun er farið
ið að nota tankbíla eins og þennan - til að auoveioa sioru...
Ætlarþúað
skrifabréf ÍDB?
Enn einu sinni sjáum við okkur
knúin til að minna þá sem skrifa
ætla bréf á lesendasiður DB á að
senda okkur fullt nafn sitt, hcimilis-
fang og símanúmcr. Ef þessi
skilyrði eru ekki uppfyllt verða
bréf ekki birt.
Ef sérstaklega stendur á er hægt
að semja um það við umsjónar-
menn lesendasíðnanna að bréf
verðibirtundirdulnefni. Enþaðer
algjört grundvallaratriði að DB
viti hverjir skrifa í blaðið.
Nú liggja hjá okkur fjölmörg
bréf sem annaðhvort eru nafnlaus
eða vantar heimilisföng og síma-
númer bréfritara. Höfundar þeirra
vita hér með ástæðuna fyrir þvi að
þau hafa ekki birzt.
Stórhættulegt úðunarefni
Vegfarandi hrintzdi:
Þessa dagana er verið að úða marga
garða hér í bænum til að verjast trjá-
maðki. Mér finnst það ekki nægilega
brýnt fyrir fólki að efnið sem notað er
til þess er alveg stórhættulegt. Ef
menn anda því að sér getur það valdið
heilaskemmdum. Enda eru úðunar-
menn með grimur fyrir andliti sínu
meðan þeir eru að störfum.
Um daginn sá ég úðunarmenn að
störfum við Miklubraut og fannst þeir
ekki fara nógu varlega. Ég held að það
sé full ástæða til að vara fólk viö hætt-
unni og okkar ágæta Dagblað ætti að
hafa þar forystu um. eins og í svo
mörgum öðrum málum.
Ökukennsla
Kennslubifreiðin er
og annað ekki.
Geir P. Þormar
öín kennari.
Simar 19896 og 21772 (simsvari).
Raddir
lesenda
Eru kjós-
endur
fífl?
— eða ereitthvað
athugavertvið
Framsóknar-
flokkinn
Kjósandi skrifan
„Aðalorsök óvæntra úrslita
kosninganna tel ég nýjar aðferðir i
áróðurstækni,” segir einn nýliðinn í
þingflokki framsóknarmanna,
Alexander Stefánsson oddviti, í viðtali
við Tímann sL föstudag.
Þessi orð lýsa sams konar viöhorfi
til okkar kjósenda og ummæli Einars
Ágústssonar ráðherra í fjölmiðlum
eftir að úrslit þingkosninganna voru
ljós. Ráðherrann sagði þá að kjós-
endur hefðu hafnað byggöastefnu,
launajöfnunarstefnu og útfærslu land-
helgarinnar!
I stuttu máli sagt: Kjósendur eru
fífl. Þeir hafa látið blekkja sig. Ef
menn eru ekki sammála Framsóknar-
flokknum er eitthvað athugavert við
þá. En það er auðvitað ekkert að
flokknum sjálfum að finna!
Ummæli Einars Ágústssonar og
ekki síður Alexanders Stefánssonar
lýsa alveg dæmalausri fyrirlitningu á
dómgreind kjósenda. Hvernig væri að
framsóknarmenn færu að líta aðeins í
kringum sig? Þeir mundu kannski
uppgötva verðbólguna, ranglæti i
launamálum, spillingu í dómskerfi og
ríkisbákni o. fl. Það voru nefnilega
mál af þessu tagi sem réðu úrslitum
kosninganna en ekki nýjar aðferðir i á-
róðurstækni. Kosningar snúast um
málefni en ekki tæknileg atriði eins og
framsóknarmenn virðast halda.
Einar Ágústsson ráðherra.
Alexander Stefánsson.