Dagblaðið - 04.07.1978, Blaðsíða 24
Vann á 300-400 punda sel:
„Brimillinn kom æðandi
á móti mér með opinn
kjaftinn”
„Selurinn æddi á móti mér með
opinn kjaftinn og hvæsti illilega. Ég
rotaði hann fyrst með steini og vann
síðan á honum með svo gott sem
berum höndum, eða vasahníf einum.”
Þannig lýsir Björn Arason i Borgar-
nesi ævintýralegum bardaga sínum
við stóran og illúðugan brimil i ósum
Laxár í Miklaholtshreppi um helgina.
„Ég ætlaði i lax þarna,” sagði Björn
í samtali við DB, „en fékk ekkert. Mér
datt þvi í hug að ganga niður með ánni
og vita hvort ekki væri skýring á
þessu. Þegar ég kom niður i ósinn,
eftir um tveggja tíma gang, sá ég hvar
þetta ferlíki Iá á eyri í ósnum, greini-
lega pakksaddur af laxaáti. Útfallið
var það mikið að hann náði ekki að
komast út í sjó svo hann réðst á móti
mé blásandi og hvæsandi. Ég sá mitt
óvænna og gerði slíkt hið sama.
Þetta hefur verið 3—400 punda
ferlíki, á að giska 170 cm, á lengd.
Þarna upphófst mikil barátta, sem
lyktaði með sigri mínum. Fyrst tókst
mér að rota hann með steini og siðan
drap ég hann með vasahnífnum
minum. Bardaginn hefur tekið um
hálftíma.”
Björn sagðist ekki hafa átt þess
minnsta kost að koma selnum með sér
aftur upp með ánni þannig að hægt
væri að nýta hann. ,Þetta er minnst
tveggja tíma gangur,” sagði Björn, „og
ófært öllum farartækjum. Ég rétt gat
dröslað honum á þurrt. Þetta eru
mestu skaðvaldar í laxveiðiám þótt
venjulegir laxveiðimenn átti sig
kannski ekki alltaf á þvi.
Kannski hefur þetta verið glanna-
skapur í mér, en maður spekúlerar
ekki alltaf í því —enda er það nú víst
að þessi brimill étur ekki meiri lax úr
ánni.”
óv
Björn Arason: „Skaövaldar í
laxveiöiám.” — DB-mynd: JH.
Skaðabótakröfur í Geirfinnsmáli:
Ókomnar til dómstóla
„Okkar skjólstæðingar eru eðlilega
orðnir heldur langeygir og svekktir á
þessari töf, sem náttúrlega er fráleit og
raunar fyrir neðan allar hellur,” sagði
Ingvar Björnsson, hdl., í samtali við
DB í gær um þann mikla drátt sem
orðið hefur á málarekstri vegna þess
skaðabótamáls sem „fjórmenn-
ingarnir” í Geirfinnsmálinu hafa
höfðað á hendur rikissjóði vegna
gæzluvarðhalds að ósekju i ársbyrjun
1976.
Ingvar er réttargæzlumaður eins
fjórmenninganna. Skaðabóta-
kröfurnar voru þingfestar strax að
afloknu réttarhléi i bæjarþingi Reykja-
víkur í byrjun september í fyrra.
Heildarfjárhæðin nemur tæpum 300
milljónum króna.
í allan vetur biðu lögmenn fjór-
menninganna eftir skjölum málsins úr
Sakadómi Reykjavíkur, og barst
úrdráttur málskjalanna fyrir um það
bil mánuði. „Til að geta skilað greinar-
gerð þurfum við frekari gögn, sem ég
geri mér vonir um að berist i sumar,
þannig að hægt verði að byrja á
málinu fyrir alvöru strax að afloknu
réttarhléi (I. september),” sagði Ingvar
Björnsson.
Ástæðan fyrir þeim drætti sem varð
á afhendingu málsskjala úr Sakadómi
Reykjavikur mun vera miklar annir
dómsins.
Fjármálaráðuneytið lýsti þvi yfir á
sinum tíma, þegar ríkisvaldið hafði
neitað að semja um skaðabætur til
handa fjórmenningunum vegna hins
langa gæzluvarðhalds.að það myndi
beita áhrifum sinum til að málin gætu
fengið úrlausn svo fljótt sem verða
mætti. óy
Boðið á sirkusinn
Hún er ibyggin á svip þessi litla við Sslendingar höfum yfir að ráöa.
dama — og mikið ósköp er hún sæt og Áreiðanlega munu allir taka undir að
fin. Hún tilheyrir Uklega þeim hópi þau viðhorf eru jákvæð og öUum
þarna sem flutzt hefur frá fátækari aðilum til góðs. — DB-mynd Bjarn-
stöðum jarðarinnmar i auðlegð þá sem leifur.
Það voru þakklátir og ánægðir áhorf-
endur sem horfðu á Sirkus Gerry Cottles
i gær. Vangefnir, lamaðir og fatlaðir svo
og aldraðir vistmenn eUiheimila borgar-
innar voru þarna i boði skáta og sirkus-
félaga og kunnu svo sannarlega að meta
það sem á borð var borið. Ástæða er til
að hrósa þessu framtaki skáta um leið og
við minnum á að sýningum sirkusins
Iýkur9. júU. GAJ
„Aöferðir Sölufélags garðyrkjumanna
minna á aðferðir einokunarhringja og
annarra fyrirtækja, sem vilja komast hjá
eðlilegum markaðslögmálum um fram-
boð og eftirspurn með því að eyðileggja
hluta af framleiðslunni til þess að halda
uppi óeðlilegu verði á vörunni,” segir
m.a. i yfirlýsingu frá Neytendasamtök-
unum vegna „tómatamálsins”.
Eins og fram hefur komið hefur Sölu-
félag garðyrkjumanna boðizt til að selja
allá umframleiðsluna með 30% afslætti,
takist einhverjum að tryggja sölu alls
þess magns. Um þetta segja Neytenda-
samtökin, að svo „virðist sem
stjórnendur Sölufélagsins vilji varpa ailri
ábyrgð á skipulagningu, stjórnun og
rekstri fyrirtækisins yfir á annarra
herðar.”
ÓV.
I kvöldsólinni:
FARIÐ í VIÐEY
Það lítur út fyrir ágætis verður i Sundahöfn. Ferðir þessar hafa
Reykjavik i dag og kvöld. einmitt verið ákaflega vinsælar og
Útivistarmenn voru fljótir að taka mikið fjölmenni verið i þeim. Sigurður
ákvörðun í morgun og settu á Líndal leiðbeinir mönnum og einnig
Viðeyjarferð kl. átta í kvöld frá örlygur Hálfdánarson.
Söluf élagið reynir að
losna undan ábyrgðinni
— segja Neytendasamtökin
frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR4. JÚLÍ 1978.
Eskifjöröun
JónKjartans-
son með
1200 tonn
af kolmunna
Nótaskipið Jón Kjartansson kom í
gær með um I20Q tonnaf kolmunna til
Eskifjarðar. Kolmunnann fékk skipið í
suðurkantinum af Digranesflaki, um 24-
40 mílur út af Bjarnarey. Skipið hafði
verið að veiðum i þrjá sólarhringa og
fékk frá 50—200 tonn i hali. Togtími
hvers hals er um hálfur til þrír tímar.
Skipstjóri á Jóni Kjartanssyni SU er
Þorsteinn Kristjánsson, ungur maður,
aðeins 27 ára gamall. Jón Kjartansson
hét áður Narfi RE 13.
Emil/JH
Eimskip
keypti stóra
hvalveiði-
málverkið
Stærsta myndin á sýningu Sveins
Björnssonar listmálara og rannsóknar-
lögreglumanns í Hafnarfirði, sem lauk í
gærkvöldi er meðal sjö mynda sem selzt
hafa á sýningu hans. Myndin sem er
2X4 metrar að stærð er af hvalveiði-
mönnum með veiði sína og ber heitið
„Hinn blái”. Kaupandi myndarinnar var
Eimskipafélagið, en slík mynd getur ekki
verið nema í stórum sal eða höll. Margir
höfðu áhuga á að kaupa myndina.
A5L
Þorkell gefur
oggefur.
ASÍ tekur við
húsi Ottós
í dag mun Margrét Ottósdóttir f.h.
Alþýðusambands íslands taka við gjöf
Þorkels Valdimarssonar, húseigninni
nr. 29 við Vesturgötu hér i borg. Áður
hefur Reykjavíkurborg fengið sams
konar gjöf frá Þorkeli, en ekki tekið við
henni.
í gjafabréfi og afsali Þorkels ségir
m.a.: „Engar þinglýstar kvaðir eða
skuldir hvíla á eigninni og af minni hálfu
eru engin skilyrði sett gagnvart
viðtakanda i sambandi við þessa
ráðstöfun.
Yfirfærsla hinnar gefnu eignar er
miðuð við 22. júní 1978 og er mér
óviðkomandi frá þeim degi, hverjar þær
ráðstafanir, sem viðtakandi kann að
gera henni viðkomandi.”
-JÁ-
,{öÞað ,x
y Kaupið^V .
TÖLVUR
I* 06 TÖLVUUR
BANKASTRÆTi 8