Dagblaðið - 04.07.1978, Page 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1978.
11
AN1STK. DAUÐASLYS
Umferðarslys skipta hundruðum á
hverju ár og alltof mörg þeirra krefjast
mannslífa. Á hverju ári sjáum við á
eftir fólki niður í gröfina, — fólki á
öllum aldri sem látið hefur lífið 1
umferð sem sífellt eykst og verður að
sama skapi hrottalegri. Það er engin
leið að gera sér fullkomlega grein fyrir
því hvað umferðarslysin kosta þjóðina
1 beinhörðum peningum, en ljóst má
vera að það eru engar smáupphæðir.
Sé tekið mið af tryggingarupphæðum
bifreiða þá eru þar 12 milljónir sem
greiddar væru við dauðsfall. En hvert
slys kostar þó mun meiri upphæðir
þegar betur er skoðað. Sjúkrahúsvist,
tekjumissir, örkuml og eignatjón
skapar í þessu samhengi ómældar fjár-
hæðir.
Hér á landi er heldur lítið um
visindalegar rannsóknir á orsökum
umferðarslysa en getgátur oft taldar
endanlegar niðurstöður. Víða erlendis
er miklum fjárhæðum varið til
rannsókna á orsökum slysa i
umferðinni og í Bretlandi eru niður-
stöður þeirra rannsókna virkur liður í
baráttunni gegn sívaxandi slysum.
Þótt umferðarslys séu tíð í Bret-
landi og umferðarþungi gifurlegur
benda breskir sérfræðingar á að i
Vestur-Þýskalandi séu dauðsföll af
völdum umferðaróhappa næstum
helmingi fleiri og renni það stoðum
undir þá tilgátu að hraðatakmarkanir
séu ein virkasta leiðin til slysavama. 1
Þýskalandi er leyfður mun meiri hraði
en i Bretlandi. Þessir sömu sér-
fræðingar hafa einnig bent á, að
kæruleysi og skaphiti sem talinn er
einkenna franska og italska ökumenn,
auk lítils eftirlits með ástandi bifreiða,
hafi í för með sér að ferðafólk á bílum
sé i tvöfalt meiri lífshættu í Paris, Róm
og Milanó en t.d. i London og
Stokkhólmi.
Skipulegar rannsóknir á aðdrag-
anda og afleiðingum umferðarslysa í
Bretlandi hafa leitt til þess að unnt
hefur verið að reikna út, með nokkurri
vissu, hvað slysin kosta þjóðfélagið 1
beinhörðum peningum. Það hefur
einnig sýnt sig, að þá fyrst, þegar
upphæðirnar lágu fyrir, fóru pólitíkus-
ar að sýna einhvern skilning á
nauðsyn þess að veita fé til slysavarna
og aukinnar umferðargæslu.
Hér á landi hefur það talist til
hreinna undantekninga ef þingmenn
hafa látið sig nokkru skipa þennan
þátt slysavarna. Þótt ýmislegt sé gert,
sem flokka mætti undir slysavarnir 1
umfer.ðinni, svo sem umferðarfræðsla
barna í skólum, þá er það engu að
síður staðreynd að fjárveitingar til
þessara mála hafa ávallt verið sam-
þykktar svo lágar og lítilfjörlegar að
næsta vonlaust hefur verið talið að
nokkrum árangri yrði náð að ráði.
Slysin verða
sjaldnast
fyrir tilviljun
í Bretlandi, svo maöur haldi áfram
að vitna í bretana, ertalið að rekja
megi orsakir 9 árekstra af hverjum 10
til ökumanns eða ástands bifreiðar.
Einstaka slys er talið afleiðing lélegs
vegar en meirihlutinn eða 90% eru
umferðaróhöpp, sem hefði verið hægt
að komast hjá með gætilegri akstri eða
viðunandi viðhaldi bifreiða. Breskir
lögreglumenn áætla að í hvert skipti
sem ökumaður er sektaður sleppi 3000
við sekt fyrir umferðarlagabrot, það
þýðir að einungis 1/3000 hluti brota
leiði til afskipta lögreglunnar. Á
götum Reykjavíkur þarf ekki að aka
lengi til þess að sannfærast um að
einungis Utill hluti umferðarlagabrota
leiðir til sektar, en hvort það sé 1/3 eða
minna er ekki vitað.
Óhætt mun að fullyrða að flestir
brjóti ekki umferðarlög af ásettu ráði,
þótt sumir virðist halda að þau séu
einungis til að brjóta þau, — sérstak-
lega þegar það henti þeim. Á götum
Reykjavíkur má hinsvegar sjá bíla i
tugataU, sem annaðhvort er ekið af
hálfsofandi fólki eða fólki sem alls ekki
kann umferðarreglur að nokkru gagni.
Þeir sem hafa kynnt sér umferðar-
reglur, eins og þær eru fram settar í
hefti fyrir þá sem eru að læra á bíl,
telja undantekningarlaust að það sé
einhver vitlausasti bæklingur sem í
umferð er hér á landi. Þeir sem efast
um það ættu að fá sér þennan bækling
og reyna að læra umferðarreglur á
þann hátt. Það er sennilega ekki of-
sögum sagt, að sá bækUngur geri starf
ökukennarans helmingi erfiðara en
það þyrfti að vera.
Umferðarfræðsla er undirstöðuat-
riði í slysavörnum. Hún er langt frá
því að vera virk hérlendis sem sést vel
á því, að jafn viðtækur fjölmiðill og út-
varp, að ekki sé minnst á sjónvarp, er
alls ekki notað 1 þessu skyni. Það er
ekki nóg að halda uppi umferðar-
fræðslu fyrir skólaböm þótt það sé
góðra gjalda vert, það eru bílstjórarnir
sem eru hættulegastir og þurfa mest á
sUkri fræðslu að halda.
Kjallarinn
Leó M. Jónsson
Það kemur ekk-
ert fyrir mig
Það er viðurkennd staðreynd að
öryggisbelti geta bjargað manns-
lífum. Það er einnig viðurkennd
staðreynd að notkun ökuljósa um há-
bjartan dag dregur úr slysahættu.
Flestir virðast þó þeirrar skoðunar
að þetta séu ágæt öryggisatriði fyrir
aðra, — ekki fyrir sig. Alltof margir
telja sjálfum sér trú um að þeir lendi
aldrei í slysi, — ekkert kemur fyrir þá
— bara hina. Þeir eru ekki margir sem
sjást með öryggisbeltin spennt hér i
Reykjavík, enda hefur enginn
skipulagður áróður verið fyrir notkun
þeirra nú í langan tíma.
Umferðarslys gera ekki boð á undan
sér. Engu að siður erum við öll í
hættu, hvort sem við erum fótgang-
andi eða akandi, ég i dag — þú á
morgun, eða öfugt. Slysin eru
hroðaleg og aðkoma að þeim
óhugnanlegri en orð fá lýst. En hvað
er það sem gerist á þessum sekúndu-
brotum sem slysið á sér stað? Við
skulum reyna að gera okkur einhverja
grein fyrir því ef það mætti verða til
þess að vekja fólk til umhugsunar:
Bifreið er ekið á 90 km hraða eftir
þjóðvegi. ökumaðurinn missir stjórn á
henni í beygju, hún lendir í lausamöl á
vegkantinum og rekst i klöpp rétt við
veginn.
Framljósin, stuðarinn og
vatnskassahlifin tætast í sundur. gler-
brotin skella á klöppinni. Vélarhlifin
krumpast upp og malar framrúðuna
mélinu smærra. Afturtijólin eru
komin á loft, frambrettin skella á
klöppinni og framhurðir þrýsta>: in
undir brettin að aftanverðu. Oku-
maðurinn er ennþá á 90 km hraða,
sem er nálægt því að vera 20 sinnum
þyngdarafl hans og jafngildir því að
líkami hans vegi 1600 kg. Fætur hans
lenda i mælaborðinu og brotna fyrst
um hnén. Líkami hans hefst á loft frá
sætinu, sé hann ekki með spennt
öryggisbelti, hann er á leiðinni upp og
aðklöppinni.
Krampakennt tak hans um stýrið
verður að dauðahaldi í þess orðs
fyllstu merkingu, plasthúðað stýris-
hjólið leggst fram undan farginu,
handarbein og úlnliðir fá gífurlegt
högg. Höfuð bílstjórans er nú rétt við
sólskyggnið á leið að mæta gler-
brotum, sem endurkastast frá
klöppinni. Brjóstkassinn byrjar að
leggjast á miðju stýrishjólsins og rif-
beinin láta sig hver af öðru. Enn eru
aðeins liðnir 4/10 úr sekúndu frá því
áreksturinn byrjaði.
Framhluti bílsins er þegar lagstur
saman, en afturhlutinn er enn á um 55
km hraða í stefnu á klöppina,
merjandi sundur það sem fyrir
framan er. ökumaðurinn er með fulla
meðvitund og hraði hans framávið er
enn sem næst 90 km/h. 250 kg vél-
in skellur á klöppinni og endurkastast
og er á leið til að mæta ökumanninum
og limlesta að fullu. Stýrishólkurinri
er nú sem næst i lóðréttri stöðu vegna
þrýstmgs frá höndum ökumannsins,
bein brjóstkassans brotna ekki heldur
malast mélinu smærra. Stáltætlur rifa
sundur lungun, skera sundur barkann
og vélinda. Fætur rifna upp úr þétt-
reimuðum skónum, sem eru klemmdir
á milli pedalanna. Höfuðið skellur á
klöppinni, bíllinn bognar um miðju
og byrjar að falla til jarðar, afturhjólin
spæna sig niður i jarðveginn. Vélin
hefur nú skollið á líkama öku-
mannsins með stýrishólkinn á milli.
Blóðið vellur úr > uunr hans. — hann
er látinn.
Þessi atburðurraa er hro' I íminn
sem líður er minm en . sekúnda, hann
er nákvæmlega 7/10 úr sekúndu. Þessi
ægilegi dauðdagi kallast af látleysi og
hugsunarleysi þeirra sem eru i viðjum
vanans: Dauðaslvs í umfcrrtinni"
Leó M. Jónsson
tæknifræóingur
HVER FLEYTTIRJÓMANN
AF KOSNINGUNUM?
Þegar aörir þenja kjaft,
þá vil ég tala líka.
Ég vil skjóta þvi hér fram, að eftir
jafnmikilsverðar kosningar, sem nú
eru afstaðnar sé hópur launafólks lát-
inn koma fram í sjónvarpi og rætt við
hann um horfur aðkallandi mála. Það
er fyst og fremst hagur þeirra sem um
er barist og ég hygg að fráfarandi
stjórnir hafi gott af að lita í augu kjós-
enda í lok kjörtímabils. Þeir sem láta
af stjórn hafa oftast til næsta máls og
fara sjaldan úr megurð líkamlega og
viðræður við þetta fólk mundu ekki
óspaklegri en við hina virðulegu
hausa.
Nýafstaðnar kosningar hafa nú
sungið sitt fyrsta vers og þessum
kosningum svipar að sumu til
kosninganna 1908, en þó ólikar.
Þá var það alþýðan sem skildi
hvað um var barist og var ein-
huga, enda skildi hún höfðingjana
eftir á setunni og bjargaði sjálfstæð-
inu. í þessum kosningum gerðist hlið-
stæð bylting, en ekki eins vel grunduð
í heild. Uppistaðan nú var að veita
stjórninni líknarsprautuna og það
tókst. Mörg okkar hugsa með magan-
um, sem er ágætt líffæri en spillir ekki
að hafa heilann með. Eitt sýndu þessar
kosningar, það að ævintýrin eru ekki
útdauð. Þar á ég við Alþýðuflokkinn.
Ég hefi þekkt hann í 60 ár en engum
hvorki honum né öðrum gat dottið
svona fjöldafæðing I hug og ekki síst
vegna þess að upp á síðkastið virðist
hann hafa fleygt sínum stefnumálum
fyrir borð. Þama vann hann samt I
happdrætti án þess að eiga miða.
Menn eru að spreyta sig á skýringum í
þessu máli, sem eru þó auðsæjar. Þetta
er fólk sem flúði frá stjórnarflokkun-
um i von um betri aðstöðu. En það er
nú svo að þegar menn eru að bjarga
sér á flótta, er margt sem truflar. Þetta
finnst mörgum skrýtið, að halla sér að
flokki sem hefur um áratugi lítt skipt
sér af málefnum alþýðu og alltaf með
ganglinuna í sporaslóð íhaldsins.
Hvað um það, enginn þarf að
skammast sín fyrir að skipta um og
snúa sér að betri málefnum, en því
verður að fylgja alvara. Þetta nýja fólk
heimtar nýtt loft og ný úrræði, en ekki
það, að þvi sé vísað í fjósið sem það
flúði úr. Kæmi slikt fyrir mundi það
leita á önnur mið. Það er meiri vandi
að gæta fengins fjár en afla annars.
Við erum líkast til runnin upp úr
dýraríkinu, enda mikillskyldleiki þar á
milli. Þegar ég var í sveit flökkuðu
jhlauparakkar um og gerðu sér dátt
við föngulegar fjártíkur. en aldrei
komu fjárhundar út úr þessu. Hvernig
fór ekki með vinstri stjórnina, sem
varð að byggja á hlaupamönnum sem
sviku þegar mest lá við, annars hefði
stjómin klórað sig útúr vandanum.
=Eftir brotthlaupið var skútan hroðin
og stjórnarandstaðan beitti öllum
sinum stórskeytum á fallið fley. Við
þetta myndaðist sú gjá sem ekki varð
brúuð, enda skeiðriðið yfir þjóðlifið
til aö koma öllu I rúst. Þessu átti svo
öllu að skella á fráfarandi stjórn, en
varð banamein þeirrar sem við tók.
Hlaupamönnunum hélst líka illa á sin-
um argaskatti og nú eru þeir úr sög-
unni nema til viðvörunar, og útaf
þeim kom likt og hlauparökkunum i
sveitinni. Verst þótti mér að Torfi
skyldi þurfa að stíga dauðadansinn
með þeim og skil ekki þann harmleik
enn. Vinstri stjórnin gerði margt til
þjóðheilla, fleytti landhelgismálinu
áleiðis og keypti skip sem björguðu
beinlínis landsbyggðinni svo nýja
stjórnin gat ekki komið á atvinnuleysi
þótt ekki vantaði viljann.
Þrátt fyrir þennan kosningasigur
mega menn ekki vænta þess að blóm
grói í hverju spori heldur reyna ný úr-
ræði og nema i burtu agnúana á
skiptareglu þjóðarteknanna. Það eru
undirheimar auðhyggjur.nar. sem
gleypa stærsta hlutann. Úr þessári hit
ausa hinir samvöxnu fóstbræður í alls-
konar lúxus og koma fé úr landi til
Sviss og víðar þar sem sameiginleg vin-
átta vakir yfir vötnunum. Skuldunum
er aftur til skila haldið. enda nú um
átta hundruð þúsund á mann og reifa-
börn ekki undanskilin. Auður þjóðar-
innar er þannig bundinn hjá þeim
stóru i stjórnarflokkunum og gætt af
kraftaverkamönnum af hinni nýju teg-
und. Ég hefi alltaf haft taugar lilFram-
sóknar og vona að þetta tap hennar
leiði til siðbætingar. Þá vona ég að þeir
minnist Jakobs Hálfdánarsonar þegar
hann stóð við á sem talin var ófær
með sjóð kaupfélagsins í pokahorninu.
Heim þurfti hann að komast enfylgd-
armaður hans neitaði að leggja i ána.
Jakob fékk honum þá sjóðinn til
varðveislu en lagði sjálfur i ána og
komst lífs af. Sjálfsagt hefur þetta ver-
ið lítið fé á okkar vísu, en svo dýrt að
ekki mátti glatast, enda lagði það
grunn að byltingu verslunarhátta i
landinu.
Orusta næstu stjórnar verður hörð,
því Grótta kraftaverkamannanna mal-
ar í hástigi, en það er okkar hlutverk
að hún skipti um mölunartegund og
fari þá að mala malt og salt í stað gulls
til hinna ríku.
Stjórnarmyndun verður að gaum-
Kjallarinn
HalldórPjetursson
gæfa og reynist kannski erfið. en allt
veltur á þvi að aðilar sviki ekki hver
annan, þá eru örlögin ráðin um
langan aldur. Hinir svokölluðu vinstri
flokkar verða að afneita þeirri hugsun
að koma livor öðrum á kné. Slikt end-
ar á sama hátt og þegar þeir börðust
Þorbjörn aumingi og Þorbjörn vesa-
lingur og féllu báðir dauðir niður.
Ég minntist i fyrirsögn á rjóma
kosninganna. Alþýðuflokkurinn er
stærri sigurvegarinn. þó hygg ég aö
Alþýðubandalagið hafi fengið rjóm-
ann. Það byggi ég á því, að það hefur
bætt fylgi sitt jafnt og þétt og trúlegast
af fólki, sem hefur athugað sinn gang,
en slíku fylgir traust og það er horn-
steinn hvers flokks.
Halldór Pjetursson
rithöfundur.