Dagblaðið - 07.07.1978, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 1978.
9
Aðsókn að tjaldstæðum í Laugardal svipuð og í fyrra:
Engin vandræði nema
þegar íslendingar koma
Nú fer að líða að þeim tíma að
útlendingar streyma í Laugardalinn til
tjalduppsláttar. Stórir hópar fólks koma
í kvöld en eins og er eru á milli 30 og 40
tjöld í dalnum en þau hafa farið flest
upp í 200 í einu. Aðaltíminn er eftir,
hann er frá miðjum júli til fyrstu viku
i ágúst. Aðsóknin að tjaldstæðunum ei
svipuð og í fyrrasumar.
Vörðurinn við tjaldstaeðin sagði í
morgun að yfirleitt væri fólk það sem
um gisti í tjöldunum mjög samvinnuþýtt
og ágætis fólk upp til hópa. Engin vand-
ræði hlytust af fyrr en landinn slægist i
hópinn en þá vildi lika mikið ganga á.
DS
»»
Þessa mynd tók Ari i morgun af
syfjuðum tjaldbúum að búa sig undir
daginn.
Af Barnaverndarnefnd Reykjavíkur:
Vissi ekki að hann var
ennþá formaður
„Einn fulltrúa meirihlutans í
borgarstjórn tilkynnti mér skömmu
fyrir fimmtudaginn 29. júní sl. að
þann dag skyldi kjörin ný barna-
verndarnefnd. Ég lifði því i þeirri trú,
þá er blaðamaður DB hafði samband
við mig sl. þriðjudag, að ný nefnd
hefði verið kosin og ég ekki lengur for-
maður hennar.
Síðar kom hins vegar í Ijós að
nefndin hafði ekki verið kjörin þ. 29.
eins og ráðgert hafði verið, án þess þó
að mér væri á nokkurn hátt gert það
Ijóst affulltrúum nýja meirihlutans.”
Svo rakti Jón Magnússon, formaður
barnaverndarnefndar, sögu Barna-
verndamefndar Reykjavíkurborgar
síðustu dagana fyrir blaðamanni DB á
miðvikudag, en hann gegndi því starfi
a.m.k. þangað til í gær, er ný nefnd
var kjörin.
Jón kvað það rétt vera að barna-
verndarnefnd væri ein ýieirra nefna er
fresta mætti kjöri á eftir kosningar.
Nefnd fyrra kjörtímabils starfaði þar
til önnur hefði verið kosin. Visbend-
ingu um þetta fengum við einnig frá
einum lesenda blaðsins í gær.
Geimaldarsvipur
á bensínstöðvum
„Það er fyrst og fremst miklu betra að
vinna við þetta og svo dæla dælurnar
heldur hraðar en þær gömlu,” sagði
afgreiðslumaður á Shellstöðinni að
Laugavegi 180 er hann var spurður um
nýja dælubúnaðinn, sem einna helzt
minnir á hluti úr geimskáldsögum.
Jafnóðum og dælt er á, getur
maðurinn á peningakassanum lesið allar
upplýsingar um það hjá sér þannig að
dælunenn þurfa ekki að vera að kalla
inn upplýsingarnar. Er áformað að
koma þessum nýju dælum upp á
nokkrum Shellstöðvum á næstunni.
Nokkrar ESSÓ-stöðvar eru einnig
komnar með svipað kerfi.
-GS/DB-mynd: HV.
BILASALA
GUÐFINNS
á homi Borgartúns og Nóatúns
Sími28255.
Bjartur og rúmgóður
sýningarsalur
Reyndir sölumenn
Góð bílastæði