Dagblaðið - 11.07.1978, Side 4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR ll.JÚLÍ 1978.
DB á ne ytendamarkaði
Kryddbók á íslenzku
Góðar leiöbeiningar um notkun krydds
A undanförnum árum hefur krydd-
notkun Islendinga aukizt mjög mikið
— sjálfsagt vegna þess að landinn
hefur lagt land undir fót og heimsótt
fjarlæga staði. Þar hefur hann kynnzt
því að útlendir matreiðslumenn nota
annað krydd en bara salt og pipar.
Tilfellið er líka að vel kryddaður
matur er líka miklu meira spennandi
— og ef við hugsum okkur að reyna að
„halda eitthvað í við okkur i mat” er
tilvalið að krydda vel það sem við
snæðum.
Samband ísl. samvinnufélaga hefur
gefið út stórsmekklegan bækling um
Ehlers-krydd sem þeir flytja inn. Er
þar að finna upplýsingar um 59 krydd-
tegundir sem á boðstólum eru. Sagt er
frá hverju kryddi fyrir sig og hvernig
skal nota það. í bæklingnum er einnig
tafla um kryddnotkunina.
Krydd er frekar dýrt, — að vísu er
hver baukur drjúgur, — þannig að ná
nánast er aðeins um „stofnkostnað”
að ræða. En það borgar sig að eiga
gott úrval af kryddi. Vel má einnig
hugsa sér að nota krydd til afmælis-
gjafa.
í kryddbókinni eru einnig nokkrar
uppskriftir af gómsætum réttum sem
kryddaðir eru með Ehlers-kryddi.
- A.Bj.
Hakkað buff með lauk
Á sumrin þykir okkur oft gott aö
hafa á borðum frekar léttan og auðtil-
búinn mat. Buff úr hökkuðu kjöti með
lauk og agúrkusalati er sumarlegur og
Ijúffengur matur. Verðið fer að sjálf-
sögðu eftir því hvernig hakk er notað
og talsvert mikill munur á hvort notað
er 1. flokks nautahakk eða t.d. hakkað
hval- eða hrefnukjöt. Sumir geta felli
sig við hvalkjötsbragðið og sjálfsagt
fyrir þá að nota slíkt kjöt, því það er
mjög ódýrt. Hins vegar er ekki hægt
að segja fyrirfram hvort hvalkjötið sé
gott eða ekki, eins og hægt er með
nautakjötið.
Hægt er að hafa hakkað buff á
nokkra vegu, bæði með brúnaðri feiti
og eins með brúnni sósu. Það er af-
skaplega Ijúffengt, og krydda þá sós-
una vel og hafa hana dökka. Meðslíku
er langbezt að borða soðnar kartöflur.
Bæði er gott og sumarlegt að strá sax-
aðri steinselju yfir kartöflurnar. Hér
kemur uppskrift að hökkuðu buffi (úr
bókinni Við matreiðum, eftir önnu
Gisladóttur og Bryndisi Steinþórsdótt-
ur).
400 gr. hakkað kjöt
2 matsk. vatn
1/2 tsk. salt
1/8 tsk. pipar
2 matsk. hveiti
I laukur
2—3 matsk. matarolia eða smjörl. til
að steikja i
2—3 dl vatn eða kjötkraftur eða soð.
Hakkið er hnoðað saman með
kryddinu og vatninu. Skipt i fjórar
jafnstórar kúlur, sem lagaðar eru til í
jafnþykkar buffkökur með því að ýta
ofan á þær með t.d. steikarspaða.
Kantarnir eru lagaðir til með hníf og
saxað ofan á buffin meö hníf, þar til
þau tolla vel saman. Buffkökunum er
síðan velt upp úr hveiti og þau steikt á
pönnu. Áður á að vera búið að skera
laukinn i sneiðar og brúna hann í feit-
inni. Laukurinn, er tekinn úr feitinni
og geymdur á diski á meðan verið er
að steikja buffin, en síðan látinn aftur
á pönnuna og soðið í vatninu I 5—10
mín. Soðið er síðan jafnað með örlitlu
hveiti og kryddað vel.
1 verðútreikningi okkar gerum við
ráð fyrir 1. flokks nautahakki, en
þannig kostar þessi réttur um 1178 kr.
eða um 295 kr. á mann.
- A.Bj.
DRYGJA MA HAKKIÐ MEÐ
HAFRAMJÖLIEÐA RASPI
Þegar búið er til hakkað buff má
drýgja kjötið með þvi að hræra svo-
litlu haframjöli út i hakkið. Einnig má
nota brauðrasp. Það bæði drýgir og
gerir buffið mýkra. — I danskri mat-
reiðslubók segir að mjög gott sé að
setja ca 1 bolla af köldu vatni saman
við 1 kg af nautahakki og þannig megi
fá mjög safaríkt hakkað buff.
Einnig má velta buffkökunum upp
úr eggi og raspi og steikja síðan í feiti.
Þannig fæst réttur sem nefnist hakk-
karbónaði. Það getum við haft seinna.
A.Bj.
krydd fyrir
cdla rétti
Kjötréttir
Buff: Kjðtmeyrir, svertur plpar, buttkrydd,
M.S.G.. þurr hakkaBur laukur. rlst-
aður hakkaður laukur. hvltlauks-
plpar, oregano.
Lamba- og Rosmarin, engiler, hvitlauksdult,
klndakjöt: svartur pipar, piparmlntublöð. M.
S.G.. oregano, lambakrydd, dlll,
karry, þurrkuð steinselja
Kálfakjöt: Basllikum, merian, hvltur pipar,
rosmarin, oregano, dill, salvia, est-
roganblöð, timlan; paprika, karrý.
Nautakjöt: Steikkrydd S', laukdult, svartur plp-
timian, chiliduft, þurr hakkaður
laukur, ristaður hakkaður laukur,
þurr blaðlaukur, lauksalt, kjöt-
meyrlr.
KarbonaÖl: Svartur pipar, M.S.G., rosmarin,
paprikbr-^laéááduft, þurr hakkaður
laukur. ristaður hakkaður laukur,
þurr blaðlaukur, lauksalt, kjöt-
meyrir.
Gulash: Paprika, þurr hakkaður hvltlaukur,
hvillaukspipar, svartur pipar, chili-
dult, M.S.G., Kayennepipar, þurrk-
uð sleinselja.
Svinakjöt: Svinakjötskrydd, kayennepipar
svartur pipar, laukduft, barbecue
paprlka, rosmarin. timian, oregano,
skinkukrydd, engiler, chilidult.
Pottaréttir: Barbecue spice, merian, M.S.G.,
svartur pipar, organo. þurrkaður
laukur, spaghettikrydd.
Roastbeaf: Plparrötardult, hvltlaukspipar,
svartur pipar, laukduft, barbecue
spice, chiliduft, paprika.
Villt kjöt: Steikrydd, svartur pipar, þurrkuð
steinselja, piparrótardult, þurrkað-
ur hvftlaukur, timian.
Lifur, nýru, Merian, M.S.G., rosmarin, basilik-
— innmatur: um, engiler, þurrkaður laukur,
svartur pipar heill og malaður,
barbecue spice, timian, salvfa,
basillkum.
Steiktir 'Kjúklingakrydd, barbecue spice,
kjúklingar rosmarín, hvitur pipar, M.S.G.,
og haenur: paprika, salvia, basilikum.
Soðnar htonur: Karrý, M.S.G., svarlur pipar, þurrk-
aður laukur, turmeric, engiler, hvlt-
ur plpar.
Spinat-
lafningur:
Agúrku-
salat: <
Grasnar i
baunir: <
Barbecue spice, basllikum, mus- ,
kat. hvftur pipar, sellerisalt, oreg- ;
eno, þurrkaður laukur.
Hvltlaukssalat, hvltur plpar, spag-
: hetlikrydd, þurrkuð steinselja, bas- j
ilikum, M.S.G., hvltlaukspipar, sell-
erisalt.
Hrœrðar
kartöflur:
Bakaðar
kartöflur:
Dill, þurrkuð steinselja, paprika, ,
muskat, þurrkaður blaðlaukur, hvlt-
ur pipar.
Dill, M.S.G., hvltur plpar, turmeric,
rosmarin. paprika.
Súpur
Baunatúpa: Seiierisalt, lauksalt, þurrkaður lauk- |
ur, basilikum. merlan, þurrkuð
steinselja, svartur pipar, tlmian, dill, !
rosmarin.
Fisksúpa: Oregano, þurrkuð steinselja, hvltur {
pipar, M.S.G., sellerisalt, dill, I
meric, þurrkaður bláðlaukur.
Tómatsúpa: Basilikum. þurrkuð stelnselja, hvlt- ’
ur pipar, þurrkaður hvltlaukur, sell
erisalt, laukdult, M.S.G., engifer.
Blómkáls- Dill, barbecue spice, þurrkuð steln- j
súpa: selja, M.S.G., sellerisalt, rosmarin.
Taer Oregano, þurrkaður laukur, þurrk- *
kraftsúpa: uð steinselja, svartur pipar, selleri- i
salt, M.S.G., paprika, þurrkaður j
blaðlaukur.
Spinat- M.S.G., sellerlsalt, barbercue spice,
súpa: oregano. hvltur plpar.
Sveppa- M.S.G., hvltur pipar,
súpa: oregano.
Sósur
Blómkáls- Múskat, þurrkuð steinselja. hvttur |
sósa: pipar, M.S.G., rosmarín, dill, tur-
meric, basilikum.
Fiskróttir
’ Steiktur fiskur: Basilikum, karrý, turmeric, barbe-
cue spice, engiler, paprika, svartur
pipar, sellerisalt, rosmarin, lauk-
dult, steinselja, M.S.G., merian.
Soöinn fiskur: Þurrkuð steinselja, svarlur pipar,
papríka, M.S.G., dill, piparrótarduft,
sellerlsalt.
Fiskbakstur: Turmeric, hvitur pipar, múskat,
paprika, M.S.G.
Sildarróttir: Heill svartur plpar, þurrkuð stein-
selja, þurkaður blaðlaukur, karrý,
dill, hvitur pipar, rosmarin.
Skalfiskur: Paprika, þurrkuð steinselja, basilik-
um chilidult, dill, spaghettikrydd,
oregano, kayennepipar, hvltur pip-
ar, karrý.
Grænmeti, salöt
Graenmetisfat: Barbecue splce, M.S.G., muskat,
þurrkuð steinselja, hvltur pipar,
selierlsalt, purrkaður blaðlaukur,
baselikum, merian, oregano, ros-
marin, pipar, salatkrydd.
Káljafningur: Barbecue spice, múskat, hvltur
pipar, M.S.G., sellerísalt, þurrkuð
stelnselja, basilikum.
Karrýsósa: Karrý, M.S.G., hvitur pipar.
Diilsósa: Dill, þurrkuð steinselja, M.S.G.,
hvitur pipar, barbecue spice.
Smurt brauð
Brauð Paprika, sellerisalt, þurrkaður blað- Oj!
moð osti: iaukur, þurrkuð steinselja. rVj
Brauð Þurrkuð steinselja, dill, paprlka,
meðeggl: seiierísalt.
BrauB Skinkukrydd, þurrkuð steinselja,
með skinku: plparrötarduft, þurrkaður laukur,
laukdutt.
Brauð Dill, hvltur pipar, þurrkuð stein-
með sild: selja paprika, piparrótarduft.
Buff tartar: Þurrkaður laukur, M.S.G.. hvftur
’ pipar, basiiikum, rosmarin, buft-
krydd.
Brauð með Þurrkaður laukur, - M.S.G., hvlt-
hamborgar- lauksdult, barbecue splce, svertur
hrygg: plp»M«uksalt
Eggjaréttir: M.S.G.. chiliduft. eggjakökukrydd,
dill, þurrkuð steineelja, hvltur plp-
ar, papríka, kayennepipar.
Kðkur, Kanell, englfer, kardemommur,
ábaetlsrátllr: valmualr*.
HótelKEA, Akureyri:
Lúxus eftir verðinu að dæma
KEA er eftir verðinu að dæma
lúxushótel. Þó hefur það litið til að
bera fram yfir flest önnur, nema það
er útvarp og sími i herbergjum. Ég ráð-
legg mönnum eindregið að taka sér
herbergi sem snýr út að bakgarðinum
þvi I herbergjum sem snúa út að göt-
unni er lítill friður til svefns á nótt-
unni, svo mikil eru lætin fyrir utan
gluggana. Herbergið sem ég fékk var
litið. í því var rúm, borð, vaskur og
einn stóll.
Á annarri hæð hótelsins er matsalur
en þar var ekki hægt að fá að borða
þann daginn heldur var mér bent á
grillið Súlnaberg, niðri í kjallara.
Á Súlnabergi er rétt þokkalegur
matur en ekki mikið meira. Allt of fáir
eru þar við þjónustu þannig að bíða
þarf óþarflega lengi eftir matnum.
Maturinn er soðinn eða steiktur full-
mikið fyrir minn smekk.
Hótel KEA, Hafnarstræti 87—89. Simi 96—22200
(3 linur). 1 manns herbergi án baðs kostar 5380 kr.,
með baði 10.250. 2ja manna herbergi, án baðs 7960
kr., með baði 11.010 kr. Morgunverður er ekki inni-
falinn en hann er hægt að fá frá kl. 7.45—10.30 á
1280 kr. Allan mat er hægt að fá bæði í veitingasal
og á kaffiteríu. (Ástæöan til þess aö veitingasalur-
inn var lokaður er ég dvaldi nyrðra var aðalfundur
KEA sem þurfti allan salinn). Veitingasalurínn er
opinn til kl. 11.30 á kvöldin og kaffiterían til kl.
11.00. Hægt er að fá heitan mat fram til hálftiu en
smurt brauð og kaffi eftir það fram að lokun.
Meöalverð á hádegismat i veitingasal er 2669 kr. ef
keypt er súpa, fiskur og kaffi. Sé hins vegar keypt
kjöt i stað fisks hækkar verðið upp i 3350 kr.
Kvöldverður er dýrari en þá er miðað við að menn
kaupi ábæti i stað kaffis. KjöUnáltíð kostar þá 4650
kr.
Næturvörður er á hótelinu og er hægt að koma inn
hversu seint sem vera skal, ef menn eiga bókuð her-
bergi og hafa látið vita að þeirra væri seint von.
Sími er á öllum herbergjum hótelsins og einnig út-
varp en ekki sjónvarp. Þjónar úr veitingasalnum
færa mönnum veitingar á herbergi sé þess óskað.
Böll eru haldin á hótelinu um helgar og vínbar
opinn næröll kvöld til kl. 11.30.
Á Súlnabergi er eins og í veitingasal hægt að fá
bæði sérrétti og rétt dagsins. Meðalverð á rétti
dagsins sé hann fiskur er 950—1200 krónur en sé
hann kjöt 1200— 1400 krónur.
-DS.
Gestgjafinn, Vestmannaeyjum:
Til einstaks sóma
Gestgjafinn er sambland af sjoppu og
veitingastað. Þiljað er sundur fyrir
þessa tvenns konar starfsemi með
glervegg. Óhætt er að segja að ég hef
hvergi borðað á veitingasal þar sem
matur og þjónusta hafa komizt í hálf-
kvisti við Gestgjafann, Nautakjötið
var mjúkt og hrátt (eða eins og hver
vildi hafa það), kindakjötið mátulega
lítið soðið og með öllu voru boðnar
kartöflur, grænmetissalat, sósur af
ýmsum gerðum, kryddsmjör og fleira.
Athygli vekur að kokkteilsósan er þar
ekki allt með öllu. í sjoppunni var
hægt að setjast niður á meðan pylsan
var borðuð og kókið drukkið. Slikt hef
ég ekki séð annars staðar. Þeir sem
komu á veitingastaðinn gátu valið um
hvort þeir heldur vildu pylsur og aðrar
ódýrar veitingar eða annað dýrara.
Gestgjafinn er mjög þokkalegur i
útliti, lifandi blóm á borðum og
tepplagt upp á veggi. Mjög er hægt að
mæla meðstaðnum.
Gestgjafinn, Heiðarvegi, simi 98—2577. Opið er
allt árið frá 9 á morgnana til 11 á kvöldin. Mjög
misjafnt verð er á mat þvi enginn réttur er kallaður
rétturdagsins. Hamborgari meðöllu kostar 1330og
soðin rauðspretta 1370. Kjúklingar og steikur eru
aftur dýrari. Þannig kostar kjúklingur með öllu
2330. Lögð er mikil áherzla á að bjóða upp á góðan
fisk á þessum árstíma hjá Gestgjafanum.
•DS.
Hvernig
líkaði mér?
Bautinn-Grill, Akureyri:
EINS OG
ALUR HINIR
Á Bautanum er gott að borða ef
ekki þarf að gera það lengi. Maturinn
þar er bras og aftur bras sem er ágætt
einu sinni en ekki mikið oftar. Bautinn
er eiginlega nákvæmlega eins og allir
þeir fjölmörgu grillstaðir sem þekja
strandlengjuna, hvorki betri né verri.
Þar eru franskar kartöflur og kokteil-
sósa með öllu en þetta er borið snyrti-
lega fram, sósan sér og hrásalat sér.
Slíkt er mjög til fyrirmyndar.
Bautinn—Grill, Hafnarstræti 92. Sími
96—21818. Meðalverð á fiskmáltið er
1150 krónur og 1350—1400 kr. á
kjötmáltið. Opið er frá kl. 9 á morgn-
ana til kl. 11.00 á kvöldin og hægt að
fá heitan mat allan þann tíma. Opið er
allt árið. Bautinn hefur sérhæft sig i
góðu nautakjöti og mun á næstunni
taka upp sérstaka aöferð við steikingu
á kjúklingum sem er hvergi annars
staðar notuð á landinu. DS.