Dagblaðið - 11.07.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1978.
1
Erlendar
fréttir
REUTER
Malta:
Mintoff for-
sætisráð-
herra rekur
brezka
fréttamenn
heim
Dom Mintoff, forsætisráöherra Möltu
sagði í þingræðu í gær^ð orðið hefði að
banna veru brezkra fréttamanna á eyj-
unni vegna „stöðugrar lygi” sem bærist
frá þeim um ástandið á Möltu. Hann
sagði að brezk blöð hefðu ástundað lygi
um þá atburði sem gerðust á árunum
1971—72, er viðræður áttu sér stað á
milli brezkra yfirvalda og yfirvalda á
Möltu um framtíð brezkra herstöðva á
Möltu.
Stjórnvöld á Möltu búast við sömu
„árásum” á næstunni, eftir því sem nær
dregur 31. marz á næsta ári, en þá á allt
brezkt herlið að vera farið frá eynni.
Danmörk:
AUKIÐ SVINDL í
FINANSBANKEN
— Svíarákærðirfyrir skattsvik ogbrotá gjaldeyrisreglum
Inneignir um 80 íslendinga i
Finansbanken í Danmörku vöktu
mikla athygli á sínum tíma hér á landi.
En það eru fleiri en íslendingar, sem
eiga fé á vöxtum í þessum margfræga
banka.
Eigandi Finansbanken, Axel Brask
Thomsen, lét nýlega hafa það eftir sér
í sjónvarpsviðtali að hann myndi ekki
aðstoða danska þegna við að svíkja
danska skattalöggjöf. En það gerði
ekkert til ef í hlut ættu Japanir, Svíar
eða Norðmenn, sem væru að reyna að
fara fram hjá skattareglum sinna
heimalanda. Má þá nærri geta að
Brask Thomsen tekur það ekki nærri
sér þótt nokkrir íslendingar reyni að
komast undan hérlendum skattayfir-
völdum.
Nú er enn eitt málið komið upp
varðandi inneignir útlendinga í Fin-
ansbanken. Málið fjallar um ólöglega
bankareikninga tveggja Svía í bankan-
um. Mál Svíanna eru nú til athugunar
fyrir dómstólum í Malmö og Trelle-
borg i Svíþjóð. Ákærurnar á hendur
þeim hljóða upp á gróf brot á sænsk-
um gjaldeyrisreglum og meint svik
undanskatti.
Hin ákærðu, maður og kona, hafa
greinilega „sparað” mikið fé sem varð-
veitt er í Finansbanken. Konan á inn-
stæðu í bankanum sem nemur 1.4
milljónum danskra króna, eða 63
milljónum íslenzkra króna. Gjaldeyris-
lög heimila ekki innstæður I erlendum
gjaldeyri sem eru yfir 200 þúsund
krónur eða 9 milljónir króna íslenzkra.
Talið er að konan hafi svikið 95 þús-
und krónur undan skatti á tímabilinu
1973—77, eða á fimmtu milljón ís-
lenzkra króna. Þá hefur hún haft 150
þúsund króna tekjur af innstæðunni,
eða 6.8 milljónir króna, auk þess sem
hún hefur þegið um 5 þúsund krónur
danskar í vexti af láni til einkaaðila.
Þá eru þessi sænsku hjú einnig
ákærð fyrir skattsvik að upphæð 216
þúsund krónur á árunum 1974—77. Á
fyrstu tveimur árunum yfirfærði karl-
maðurinn 110 þúsund krónur ólöglega
frá Svíþjóð til Danmerkur. Auk þess
lagði hann 290 þúsund inn á fleiri
reikninga í Finansbanken. Hluti af því
fé er ágóði úr spilavítum.
í báðum þessum tilfellum hafa hin
ákærðu flutt hluta af fénu úr Finans-
banken aftur til Svíþjóðar, einnig án
heimildar sænskra yfirvalda.
2*
Alex Brask Thomsen
eigandi og bankastjóri
Finansbanken.
NÍELS HUNDA VINUR HEFUR
TEKIÐ GLEÐISÍNA Á NÝ
Þeir eru sameinaðir á nýjan leik, Niels Hundavinur og hundurinn Löve, frægasti
hundur I öllu Danaveldi og þótt víöar vxri leitað.
Niels Hundeven Kjær Larsen hefur
nú tekið gleði sina á ný. Og það er ekki
að ástæðulausu. Hans kæri vinur,
hundur Löve, sem týndur hefur verið,
er fundinn. Hundurinn Löve er fræg-
asti hundur Danmerkur, eftir að hann
bjargaði eiganda sínum frá því að
lenda í fangelsi.
Níels Hundavinur lamdi strætis-
vagnstjóra sem ekki vildi hleypa Löve
i strætó, enda þótt Hundavinur hefði
greitt fyrir hann fullorðinsgjald. Löve
er enda orðinn 14 ára gamall. Níels
Hundavinur þurfti ekki að fara í fang-
elsi, þar sem talið var að Löve þyldi
ekki aðskilnaðinn.
Vikulöng leit dönsku þjóðarinnar
bar árangur og nú er Löve kominn
aftur til húsbónda sins. Níels Hunda-
vinur hafði heitið hverjum, sem færði
honum hundinn 1000 króna fundar-
launum, eða nær fimmtíu þúsundum
íslenzkra króna.
Sandro Pertini forseti Ítalíu tekinn
við embætti
Hinn nýi forseti Italíu Sandro Pertini
sór embættiseið sinn á sunnudag. Hann
er 81 árs að aldri og elztur manna sem
gegnt hafa embætti forseta á Ítalíu.
Pertini tekur við af Leone forseta, sem
sagði af sér embætti vegna ásakana um
mútuþægni og fjármálaspillingu.
t ræðu sem hinn nýi forseti flutti að
lokinni embættistöku sinni hvatti hann
til festu í baráttunni gegn hryðjuverka-
mönnum, sem vaðið hafa uppi á ltalíu
að undanfömu. Eins og flestum mun
kunnugt drápu hryðjuverkamenn
Rauðu herdeildanna á Ítalíu Aldo Moro
fv. forsætisráðherra landsins en Moro
þótti liklegastur arftaki Leones forseta
ttalíu.
AUGLÝSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR 1NNLAUSN ARTÍ M ABIL INNLAUSNARVERÐ*’ 10.000 KR. SKÍRTEINI
1966 - 1.fl.: 1967 - 1.fl.: 1970 - 1.fl.: 1971 - 1.fl.: 1972 - 2.fl.: 1973 - l.fl.A: 20.09.78 15.09.78 - 15.09.79 15.09.78 - 15.09.79 15.09.78 - 15.09.79 15.09.78 - 15.09.79 15.09.78 - 15.09.79 kr. 307.330 kr. 271.541 kr. 150.983 kr. 103.228 kr. 77.003 kr. 58.670
INNLAUSNARVERÐ ÁRSGREIÐSLUMIÐA
1973 - l.fl.B: 15.09.78 - 15.09.79 10.000 KR.SKÍRTEINI 50.000 KR.SKÍRTEINI kr. 4.877 kr. 24.385
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Enn eitt dauðsfall hjá
öryggislögreglunni
Blökkumaður, sem var í haldi i aðal-
stöðvum öryggislögreglunnar í S-Afríku,
féll til bana af 22. hæð byggingar lög-
reglunnar í gær. Yfirmaður öryggislög-
reglunnar, Van der Merwe, sagði að ver-
ið væri að rannsaka á hvern hátt dauða
mannsins hefði borið að.
Þetta dauðsfall er hið 22. í röð svip-
aðra dauðsfalla i höndum s-afrísku
öryggislögreglunnar á undanförnum
tveimur árum.
Innlausn spariskírteina og árgreiðslumiða fer fram í
afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þarjafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júlí 1978
SEÐLABANKI ISLANDS