Dagblaðið - 11.07.1978, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1978.
Ræ tt við Reyni G. Karlsson æskulýðsfulltrúa:
12 ára börn drukkin á „Planinu”
„Ég vonast til þess að ferðum ungl-
inga á Hallærisplan fari eitthvað fækk-
andi, nú þegar sumarstarfsemi æsku-
lýðsráða og félaga er hafin að fullu.” Svo
fórust Reyni G. Karlssyni æskulýðsfull-
trúa ríkisins m.a. orð er hann var inntur
álits og fregna af ferðum unglinga úr
Reykjavík og nágrenni á Hallærisplan.
Nokkuð hefur verið fjallað um upp á
síðkastið, sem reyndar endranær, hin
svokölluðu unglingavandamál. Þessum
hlutum eru þó sjaldan gerð nægileg skil.
Eitt þessara unglingavandamála sem of-
arlega hafa verið á baugi síðasta misser-
ið eru ferðir unglinga á svonefnt Hall-
ærisplan í Reykjavík. Þykir mörgum
hverjum sem unglingar og þá ekki sizt
börn (en í fjölda tilfella er hér um börn
að ræða) eigi lítið sem ekkert erindi í
miðborg Reykjavikur um kvöld og helg-
ar til vafasamra samfunda. DB átti í þvi
tilefni stutt viðtal við Reyni Karlsson
formann Æskulýðsráðs ríkisins.
Komur unglinga
á Hallærisplan
árstfðabundnar
Reynir hefur fylgst nokkuð með ferð-
um unglinga um miðborg Reykjavíkur
og Hallærisplan. Hann kvað komur
unglinga og dvöl í miðborginni árstiða-
bundnar. Á haustin t.d. og fyrri hluta
vetrar vendu þeir fremur komur sínar á
FASTEIGIMIR Á LANDSBYGGDINNI
STOKKSEYRI
Eldra einbýlishús
með stórum bílskúr, 50 fermetra. Nýleg eldhúsinnrétting. Húsið er með nýju
risi. Verð 6,5 millj., útb. 2,0 millj.
SKAGASTRÖND
Eldra einbýlishús
á þremur hæðum, 5 svefnherbergi, bilskúr, steinsteypt, nýir gluggar, ný raf-
lögn, ekkert áhvílandi. Verð 6,5—7 millj., útb. 3,5 millj.
ÓLAFSVÍK
80 fermetra einbýlishús.
Nýirgluggaroggler. Nýmiðstöðvarlögn, Verð4,5 millj., útb. 2—2,5 millj.
87 fermetra íbúð
í tvíbýli, 3ja herb. á mjög góðum stað. Verð 5,5 millj., útb. 2,5—2,7 millj.
120 fermetra íbúð
í tvíbýli með bílskúr, 3 svefnherbergi. Verð 11 millj. Vill skipta á ibúð í Kefla-
vík eða Njarðvik.
EIGNAMIÐLUN
SUÐURNESJA
HAFNARGÖTU 57 — KEFLAVÍK — SÍMI 3868
Atvinna í boði
Vélstjóra og háseta vantar á bát frá Fáskrúðs-
firði sem fer á net og síðar á síldveiðar með
nót.
Upplýsingar í síma 97—5132 og 97—5133.
16180 - 28030
Opið kl. 10—6, laugardaga kl. 2—5.
Einstaklingsíbúð
við Lindargötu, gott verð.
2ja herbergja íbúðir
við Týsgötu, Frakkastíg, Sogaveg, Blesugróf og Asparfell.
3ja herbergja íbúðir
við Hrafnhóla, Týsgötu, Karfavog, Skerjabraut, Lokastig, Bollagötu,
Frakkastíg, Merkjateig, Blesugróf, Austurveg á Selfossi og Faxabraut
í Keflavík.
4ra herbergja ibúðir
við Hjarðarhaga, Kóngsbakka, Rauðalæk og Álfhólsveg.
6 herb. toppibúð
(penthouse) við Blikahóla.
Einbýlishús
við Krókatún á Akranesi, Eyrarbraut á Stokkseyri, á Hvolsvelli, í
Vogum á Vatnsleysuströnd, Hafnarfirði og við Laugarásveg í
Reykjavík.
Einbýlishússlóð
við Esjugrund á Kjalarnesi, búið að skipta um jarðveg og greiða öll
gjöld. Teikningar fylgja.
Höfum kaupanda
að góðu einbýlishúsi í Kópavogi. Húsið þarf að vera á einni hæð.
Æskilegstærðca I40fm. Bílskúr skilyrði.
Seljendur.
Okkur vantar allar gerðir og stærðir eigna á skrá. Vinsamlegast hafið
samband við okkur sem fyrst.
Skúlatún sf
fasteigna- og skipasala, Skúlatúni 6,3ju h.
Sölumenn: Esther Jónsdóttir og Guðmundur Þórðarson, kvöld-
simi 35130.
Lögfrœðingur Róbert Árni Hreiðarsson.
samkomur æskulýðsráða i Reykjavik og
nágrannabyggðum og tækju þátt í
ýmissi félagsstarfsemi unglinga á veg-
um sveitarfélaganna. Er liði á veturinn
væri sem unglingunum virtist leiðast
þátttaka í æskulýðsstarfsemi þessara
aðila og sæktu þá í æ ríkara mæli niður í
miðborgina og á Hallærisplanið.
Varðandi spurningu þess eðlis hvort
áfengisvandamál væri ríkt meðal ungl-
inga, kvað Reynir það, vel að merkja,
ekki sérstakt vandamál unglinga, heldur
þjóðfélagsvandamál er varðaði alla ald-
ursflokka. En þó væri full ástæða til þess
að hafa verulegar áhyggjur af því hve
krakkarnir væru ungir er þeir hæfu
neyzlu áfengra drykkja. Reynir sagðist á
ferðum sínum hafa séð drukkna ungl-
inga eða réttara sagt börn 12 ára að
aldri. Ekki væri hitt heldur óalgengt að
rekast á unglinga 13—14 ára undir
áhrifum.
Vinsamlegir
krakkar í
ævintýraleit
Reynir kvaðst nokkrum sinnum hafa
heilsað upp á krakkana á Hallærisplan-
inu, hér væri alls ekki um að ræða her-
skáa óknyttaunglinga eins og margir
héldu. Krakkarnir væru hin vinsamleg-
ustu. Þau væru oftast aðgerðarlaus,
„passív”, og biðu þess einfaldlega að eitt-
hvað spennandi myndi gerast.
Aðgerðarleysi væri þeim reyndar í
blóð borið, sagði Reynir, i þeim efnum
hefði skólum og heimilum mistekizt.
Virkja þyrfti börn og unglinga og hvetja
til þátttöku í félagsstarfi sem og skipu-
lagningu félagsstarfs. Eins og ástandið
væri nú biðu þau einungis þess að eitt-
hvað væri gert fyrir þau.
„Höfuöverkefníö
að virkja
unglingana"
Reynir sagði það álit sitt að það verk-
efni væri nú framundan hjá forsvars-
mönnum æskulýðsmála að fá sem flesta
unglinga með, til þátttöku í heilbrigðri
félagsstarfsemi. Reyndar fyrirfyndust
mun fleiri möguleikar fyrir unglinga til
félagsstarfsemi en kunnugt væri um.
Mætti þar t.d. benda á félags- og íþrótta-
störf í þrengri hópum.
Þó sveitarfélögin héldu uppi ýmissi fé-
lagslegri starfsemi fyrir unglingana,
sagði Reynir það rétt vera að oft á tíðum
skorti þau aðstöðu eða samastað. Jafn-
vel þótt miðborg Reykjavíkur kynni á
vissan hátt að þjóna löngunum og hvöt-
um unglinga þá væri hér ekki um ýkja
fýsilega aðstöðu að ræða. Miðbærinn
væri alveg dauður þar sem áður var líf
og fjör. Þá væri hreinlætisaðstaða ekki
upp á marga fiska.
Fjöldi unglinga þeirra er sækir Hall-
ærisplanið á kvöldum og um helgar mun
vera töluverður að sögn Reynis. Ekki
hvað sízt úr nágrannabyggðum Reykja-
víkur, allt frá Keflavík og Selfossi. Fjöldi
unglinganna á Hallærisplani væri þeim
mun meiri uppúr mánaðamótum þ.e. þá
er unglingarnir virtust hafa meiri pen-
inga milli handanna.
Áfengisneyzla
æ yngri aldurs-
hópa
Rey'nir sagði að sú þróun er átt hefði
sér stað á siðustu misserum að unglingar
tækju að sækja staði sem Hallærisplanið
i æ rikara mæli í stað félagsstarfsemi
þeirrar er sveitarfélögin og æskulýðsfé-
lögin byðu uppá væri hin varhugaverð-
asta. Sem og sú þróun i átt til meiri
áfengisneylu unglinga og i æ yngri ald-
urshópum. Hvað áfengisneyzluna varð-
aði væri heldur ekki lengur um að ræða
neinn eftirtektarverðan mun á piltum og
stúlkum.
Mikill hugur í
forystumönnum
æskulýðsmála
Að lokum sagði Reynir forystumenn
æskulýðs- og félagsmála I Reykjavík og
nágrannabyggðum hafa þingað og væri
nú mikill hugur í þeim að ráða bót á
vandamálinu á einhvern hátt. Helzt
væri til ráða að virkja unglingana sjálfa,
en hverfa frá þeirri venju að þeim væri
fengið allt upp í hendurnar af hinum
fullorðnu. Þannig mætti vekja áhuga
þeirra og sköpunargleði, en eins og væri
virtust þau fremur hugmyndasnauð.
Af orðum Reynis Karlssonar má ráða
að ferðir unglinga á Hallærisplan eru
ekki neitt vandamál sem stendur eitt sér,
án alls þjóðfélagslegs samhengis. Heldur
gægist þarna upp úr þjóðfélagsdjúpinu
einungis toppur borgarísjakans. Þetta
vandamál tengist samfélaginu í heild og
verður ekki leyst nema á þeim grundvelli
að ráðast að rótum vandamálsins.
JÁ.
Barnaverndarnefndarmaðun
„Börnin eftirlitslaus-
foreldrarnir á KanarP’
„Já, við höfitm fengið slík mál til
meðferðar hjá harnaverndarnefnd.
Börnin hafa verið skilin eftir heima eft-
irlitslaus meðan foreldrarnir brugðu
sér utan, kannski til meginlandsins,
kannski til Kanaríeyja.” Þessi voru
m.a. orð Matthiasar Haraldssonar
kennara, en hann starfaði I harna-
verndarnefhd Reykjavíkur á fyrra
kjörtímabili, þá var hann endurkjörinn
inefndina sl. fimmtudag.
Að sögn Matthlasar ersú staðreynd
að 12 ára börn og unglingar 13—16
ára, er hllta skulu umsjá Barnavernd-
arnefndar, má hitta fyrir nœr því um
hverja helgi, á Hallœrisplani, illa á sig
komna undur áhrifum áfengis; ekki
eina vandamál barnaverndarnefndar.
Það tíðkazt nú hjá sumum foreldrum
að taka sér ferð á hendur út fyrir land-
steinana og skiljs börn stn ein eftir
heima eftirlitslaus. JÁ.
Lögreglan ræðir hér við einn af piltunum á Hallærisplani. — DB-mynd Ari.
Akureyri um helgina:
Söfnuður unglinga í miðbænum
f ram undir morgunn
Nokkur söfnuður unglinga var á
ferli í miðbænum á Akureyri aðfara-
nætur laugar- og sunnudags. Héldu
unglingarnir óvenjulega lengi út nú
um helgina og fóru ekki að tinast heim
fyrr en undir morgunn. Annars var
fremur rólegt i bænum að sögn lög-
reglunnar.
Enginn vafi er á því að góða veðrið
hefur átt sinn hlut í því hve unga fólk-
ið hélzt lengi úti við í miðbæ Akureyr-
ar. Norðlenzkir unglingar eru þvi að
þessu leyti engir eftirbátar þeirra sunn-
lenzku. En óvenjumargt var um
manninn á Hallærisplani og þar í
kringí Reykjavík um helgina.
JÁ