Dagblaðið - 22.07.1978, Blaðsíða 1
A
4. ÁRG. — LAUGARDAGUR 22. JÍILÍ1978 - 157. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. - AÐALSÍMI27022.
Leggiast Freeportferðir
Islendinga niður?
Endurhæfingarstöð fyrir
áfengissjúklinga opnar
aðSogniíÖlfusi
Um næstu mánaðamót verður
opnuð endurhæfmgarstöð fyrir
áfengissjúklinga að Sogni i ölfusi.
Það eru Samtök áhugamanna um
áfengisvandann (SÁÁ) sem reka
stöðina.
Samkvæmt upplýsingum Hilmars
Helgasonar, formanns SÁÁ, verður
endurhæfingarstöðin í húsi þar sem
Náttúrulækningafélag Islands rak
áður bamaheimili. Húsið er 500 fer-
metrar að stærð, og er þar þláss fyrir
álika marga sjúklinga og að Vifilsstöð-
um eða tuttugu. Starfsmenn verða
sex.
Endurhæfmgarstöð SÁÁ á sér
bandaríska fyrirmynd, eins og reyndar
einnig sjúkrastöð samtakanna sem
rekin hefur verið í Reykjadal i
Mosfellssveit. Er fyrirmyndin Free-
port-sjúkrahúsið i New York. Með
tilkomu sjúkra- og endurhæfmgar-
stöðvanna er búizt við því að ferðir
tslendinga á Freeport leggist niður.
Sjúklingar þeir sem verða á endur-
hæfingarstöð SÁÁ verða látnir greiða
60—70 þúsund kr. fyrir dvölina. Auk
þess greiðir rikið kr. 5700 i daggjöld á
mann. Greiðsla sjúklinganna er fyrir -
fræðslu og ýmsa aðstoð sem látin
verður í té. M.a. mun sérstakur ráð-
gjafi um félagsleg vandamál verða á
staðnum og aðstoða menn við að fá at-
vinnu og útvega sér húsnæði að dvöl
lokinni. Til nýbreytni telst einnig að
þjóðfélagsfræðingur mun aðstoða
menn við að komast „inn í” þjóð-
félagið á nýjan leik; fræða um skatta-
mál, almenn fjármál, stjórnmál o.fl.
Samtökum áhugamanna um
áfengisvandann mun standa til boða
að fá afnot af skólahúsi i Krýsuvík. Ef
það fæst mun endurhæfingarstöð
SÁÁ væntanlega verða flutt þangað.
Húsið í Krýsuvík er tilbúið undir
tréverk.
Félagar í SÁÁ eru um tólf þúsund.
GM
. 4 ^ <
Ljósmj Jim Smart.
SIESTA" A LÆKJARTORGI
NEYTENDASIGURI
TÓMATASTRÍÐINU!
Neytendur hafa unnið sigur i tómata
stríðinu. Frá og með mánudeginum
lækkar heildsöluverð á tómötum úr 750
krónum í 500 krónur. Gúrkur lækka úr
500 krónum í 400 krónur. Út úr búð
eftir hækkunina kostar kílóið af
tómötum um 700 kr. og kilóið af gúrk-
um um 560 kr., að sögn eins kaupmanns
sem DB ræddi við í gærkvöld.
Lækkunin var ákveðin eftir fund
Sölufélags garðyrkjumanna og Neyt-
endasamtakanna og er gerð í tilrauna-
skyni til þess að reyna að auka neyzlu á
þessum vörutegundum, eins og segir í
fréttatilkynningu um málið. Lækkunin
er timabundin og veltur framhald
hennar á viðbrögðum neytenda.
Neytendasamtökin munu fylgjast
með framkvæmd verðlækkunarinnar,
söluaðferðum og auglýsingum á meðan
á tilrauninni stendur.
ÓV
Glaðningurinn í næstu viku
Reykvíkingar, Reyknesingar og lok mánaðar, en skattskrá Vesturlands
Sunnlendingar mega vænta þess að sjá um mánaðamót. Á Norðurlandi
skatta sina um miðja næstu viku. vestra dregst birting nokkuð, en skatt-
Væntanlega verða skattskrár þessara skráin verður send til vinnslu i
umdæma lagðar fram á miðvikudag Skýrsluvélum i næstu viku og
— fimmtudag. Skattskrá Austurlands nokkurn tíma tekur að ganga frá
verður að öllum líkindum lögð fram i öllum gögnum. JH
Stjórnarmyndun:
HELGIN FER í
MÁLAMIÐLUN
r
— ró Olafs Jóhannessonar raskað
Viðræðum um vinstri stjórn miðaði eru ekki samstiga, svo sem utanríkis-
„mjög hægt” í gær að sögn þingmanna. málum ogefnahagsmálum.
Formlegir fundir voru ekki eftir hádegi, Ólafur Jóhannesson, formaður
heldur einkaviðræður þingmanna. Framsóknarflokksins, dvelst i ráðherra-
Nokkuð var rætt um þjóðnýtingu, þar svitu Þingvallabæjarins. Hann hefur
sem Alþýðubandalagið hefur tillögur óskað eftir að fá að vera í friði. Þó þótti
um þjóðnýtingu olíuverzlunar, fulltrúum Framsóknar í viðræðunefnd-
trygginga og lyfjaverzlunar og sam- inni ástæða til að bera sig saman við
einingu bankakerfisins. Framsóknar- foringjann í gær, og Steingrímur
menn stóðu gegn þessum tillögum. Hermannsson þusti á Þingvelli til
Helgin verður notuð til málamiðlunar i viðræðna viðólaf.
hinum ýmsu málum, þar sem flokkarnir HH/GS
Heimsreisan í áskrifendaleik Dagblaðsins:
í DAG ER ÞAÐ TOKYO
- sjá bls. 13
/ ....... "
Vinstri stjórní
burðarliðnum?
— sjá viðtöl við
þingmennallra
flokka á bls. 5
Komið í veg
fyrirnotkun
ódýrra
teikninga
útvarpshúss
— sjá bls. 6
Orlofsgreiðslur
og
Póstgíróstofan
— sjá bls. 7
•
FerFélagsmála-
stofnun
stúdenta á
hausinn?
-sjábls.6
•
Aðstoð Hjálpar-
stofnunarinnar
við Eþíópíu—
ferhúní
kúbanskt
hermannafóður?
— sjá bls. 7
Þjóðverjarfá
ekkiíslenzka
ákavítið sitt
— sjá baksíðu