Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 22.07.1978, Qupperneq 7

Dagblaðið - 22.07.1978, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22.JÚLÍ 1978. Orlofsmálin í Vestmannaeyjum: ,,Sé ekki að Póstgíróstofan grípi til aðgeiða” — fremur en endranær, sagði Páll Zóphaníasson bæjarstjóri íVestmannaeyjum. — Nýskipun orlofsmála enn ekki samþykkt í bæ jarstjórn og bæ jarráði Á bæjarstjómarfundi í Vestmanna- eyjum á fimmtudagskvöld var gengið frá samningum við alla starfsmenn bæjarsjóðs. Orlofsmálin i Eyjum komu þar til umræðu, skv. upplýsing- um Páls Zóphaníassonar bæjarstjóra, en tillögur samninganefndar bæjar- sjóðs um nýskipan orlofsmála voru þó ekki samþykktar, en verða væntanlega teknar fyrir af bæjarstjórn og bæjar- ráði í næstu viku. Páll sagði að samkvæmt 11. grein orlofslaganna, þar sem segir að orlof skuli greitt á þann hátt að tryggt sé að menn fái það í hendur þegar þeir fara i orlof, þá sé Ijóst að hin nýju samnings- drög Eyjamanna séu betur i anda lag- anna, en núverandi framkvæmd Póst- gíróstofunnar i þessum málum. „Nú er það svo,” sagði Páll, að ekki er hægt að greiða allt orlof til manna áður en þeir fara í fri. Það er svo og svo mikið af orlofsgreiðslum, sem ekki kemur til launþega fyrr en í júní eða júlí, en þá eru margir búnir að taka sín fri. Samkvæmt því sem við höfum samið um sjá launþegar strax hvort þeir hafa fengið greitt orlof eða ekki. Menn athuga aðeins bankareikninga sína. Áður vissu ménn e.t.v. ekki fyrr en mánuði áður en þeir ætluðu í frí, hvort atvinnuveitandi hafði greitt nokkuð af orlofi þeirra. Nú á hann að geta tekið orlofið út af sinum banka- reikningi þegar hann kýs aðfara í frí.” „Og þegar Birgir Hermannsson for- stöðumaður Póstgíróstofunnar talar um að hann líti á greiðslu atvinnuveit- enda í Vestmannaeyjum sem ógreitt orlof, þá get ég ekki ímyndað mér að hann geri mikið í því,” sagði Páll. „Atvinnuveitendur hafa hingað til komizt upp með það að greiða ekki orlof kannski i heilt ár, án þess að sjáanlegt sé að Póstgiróstofan hafi gripið til aðgerða gegn þeim.” „Það má raunar alltaf tala um að eitthvað sé ólöglegt,” sagði Páll. „En við teljum að þessi nýja aðferð okkar uppfylli anda laganna betur en sú fyrri.” JH Hjálparstofnun kirkjunnar sendir barnafæði til Asmara í Eritreu — Ekki hermannafæði, segirGuðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri EgillSkúli Ingibergsson valinn borgarstjóri „Nú hefur Hjálparstofnun kirkjunnar haftð matvæla- og lyfjaflutninga til borgarinnar Asmara í Eritreu. Borg þessi er hernumin af Eþiópiuher, en auk hans eru þar a.m.k. 3500 kúbanskir málaliðar Sovétmanna. Eritreumönnum er enn byggja borgina er haldið í járn- greipum hernámsliðsins. Hjálparaðgerð kirkjunnar er skipulögð í samvinnu við eþiópiskar stofnanir og nær öruggt að matvælin og lyfin verða notuð handa hernámsliðinu en ekki eritreískum borg- urum.” Þannig er komizt að orði i fréttatil- kynningu sem DB hefur borizt frá Ein- ingarsamtökum kommúnista (marx- lenínistum) hér i bæ. Hvetja samtökin til þess að Hjálparstofnun kirkjunnar hverfi frá samvinnu við eþíópískar stofn- anir en taki þess í stað uppsamvinnu við eritreískar stofnanir. „Þessar ásakanir eru tilhæfulausar með öllu,” sagði Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, i samtali við DB. „Þvert á móti höfum við heimildir fyrir því að' matvælasendingar okkar komast til skila. Ég vildi gjaman vita hvaðan þessir menn hafa heimildir sínar.” Guðmundur Einarsson kvaðst vera með tvö glæný skeyti frá fulltrúum Hjálparstofnunarinnar úti og kæmi þar fram að allt gengi vel, eins og reyndar fyrri fréttir höfðu bent til. Sá matur sem Hjálparstofnunin flytur til Asmara er sérstakt barnafæði og sagðist Guð- mundur telja ólíklegt að það yrði drjúg fæða fyrir hermenn. Hjálparstofnun kirkjunnar er óbeinn aðili að starfinu i Eþíópíu og hefur samvinnu við norska hjálparstofnun og Lútherska heimssambandið. Fulltrúar þess eru á staðnum og taidi Guðmundur að treysta mætti upplýsingum þeirra. Guðmundur Einarsson sagði að það væri oft svo þegar kirkjan stæði fyrir hjálparstarfi í styrjöldum eða þar sem pólitískar deilur standa yfir að fram kæmu ásakanir um að kirkjan gengi erinda annars aðilans. í stríðinu í Angóla og Mósambik var kirkjan sökuð um að styðja þjóðfrelsishreyfingar, en nú er hún sökuð um að styðja rikis- stjórn. „Tilhæfulausar fullyrðingar um hjálparstarf kirkjunnar eins og þær sem koma fram í yfirlýsingu Einingarsam- taka kommúnista verða til að gera starf okkar erfitt og tortryggilegt. Þær ber þvi að harma,” sagði Guðmundur Einarsson aö lokum. -GM Eins og DB skýrði frá í gær, var sam- þykkt í borgarráði að leggja til við borgarstjórn að ráða Egil Skúla Ingi- bergsson, verkfræðing, i stöðu borgar- stjórans í Reykjavik. Tíu umsóknir bárust um stöðuna. Á fundi borgarráðs i gær voru lagðar fram eftirtaldar umsóknir um stöðu borgarstjóra: Ásmundur Ó. Guðjóns- son, Reynimel 92, Benedikt Jóhannes- son, Laugarásvegi 49, Egill Skúli Ingibergsson, Fáfnisnesi 8, Erla Guðmundsdóttir, Jörfabakka 2, Haukur Harðarson, Höfðavegi 26, Húsavík, Ingvar Ásmundsson, Hringbraut 94, Ólafur Jóhannsson, Melhaga 7, Steinar Benediktsson, Sigtúni 31, Trausti Valsson, Háaleitisbraut 47, Þórður Guðmundur Valdimarsson, Mávahlið 27. Borgarráðsfulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi tillögu: Borgar- ráð leggur til við borgarstjórn, að Egill Skúli Ingibergsson, verkfræðingur, verði ráðinn borgarstjóri í Reykjavík frá og með 15. ágúst til loka kjörtíma borgar- stjórnar. Tillagan var samþykkt með 3 samhljóða atkvæðum og verður tekin til afgreiðslu á væntanlegum aukafundi borgarstjórnar fimmtudaginn 27. þ.m. Borgarráðsfulltrúar minnihlutans óskuðu bókað: Tillagan gerir ráð fyrir, að borgarstjórn taki endanlega ákvörðun í málinu, eins og vera ber. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu þá gera grein fyrir afstöðu sinni. BS BIAÐW - frjálst, áhÚð AUGLVSINGASTOFA KRISTlNAH 15.28: Enn eykur Olíufélagið þjónustu sína. Nu i Nesti i Olíufélagið hefur endurbyggt bensínstöð sína og verslun í Fossvoginum og býður þar upp á fyrsta flokks þjónustu. HRAÐVIRKAR RAFEINDADÆLUR Eitt ár er síðan Olíufélagið tók að nota hraðvirkar rafeindadælur á bensínsölustöðum sínum. Þeim fjölgar stöðugtog nú bætist Nesti í Fossvogi í hóp þeirra. RÚMGÓÐ VERSLUN I versluninni, sem er helmingi stærri og rúmbetri en áður, býðst nú fjölbreytilegt vöruúrval. ÞVOTTAAÐSTAÐA Og þvottaplanið, stendur sem fyrr, fyrir sínu. VERTU VELKOMINN í FOSSVOGINN Olíufélagið hf

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.