Dagblaðið - 22.07.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22.JÚLÍ 1978.
Texti og myndir:
JóhannA.
Kristjánsson
9
Júli ’78. Svo sem sjá má á jeppinn hans Benedikts eftir að verða skæður á kvartmílubrautinni en hér sést hann lyfta sér að framan er honum er þrykkt at stað.
JEPPIBENEDIKTS
fór síðan Edelbrock Torker soggrein
með 850 cfm. Holley blöndungi. Þá
smíðaði Benedikt nýjar flækjur við vél-
ina úr tveggja tommu rörum. Ekki
treysti Benedikt Spicer 44 hásinguna í
sandspyrnuna svo að hann setti Pontiac
hásingu undir hann að aftan með drif-
hlutfallinu 4.56:1. Svo sem fyrr er
jeppinn tilbúinn rétt fyrir keppnina. Að
þessu sinni kemst Benedikt klakklaust i
gegnum keppnina og sigrar hana. Setti
hann nýtt Islandsmet í sandspyrnu, 5.53
sekúndur.
Svo sem búast má við hefur jeppinn
jafnan vakið mikla athygli, jafnt á
götum úti, í keppnum, sem og bilasýn-
ingum, bæði i Reykjavík og á Akureyri.
Það liggur mikil vinna í að undirbúa
jeppann fyrir hverja keppni og hefur
Benedikt notið aðstoðar vina sinna sem
Að þessu sinni kynnum við jeppakarl
og ökutæki hans. Jeppakarlinn er Bene-
dikt Eyjólfsson og köllum við hann karl
enda þótt hann sé einungis 21 árs gam-
all. Benedikt á og rekur verkstæöið
Vagnhjólið við Vagnhöfða en hann
hefur rekið verkstæði frá 18 ára aldri og
aldrei hefur hann tekið við launaumslag-
ið frá neinum vinnuveitanda. Sér hann
fyrir sér og jeppanum með að gera við
vélar, mótorhjólogbíla.
Benedikt eignaðist jeppann sinn fyrir
þremur árum. Þá var jeppinn allur
klesstur og byrjaði Benedikt á að rétta
hann og lét síðan sprauta jeppann
svartan á sprautunarverkstæðinu Múla.
Þá var sex cylindra vél í jeppanum og
var hún rifin úr og í hennar stað sett 326
cubika Pontiac vél. Þegar jeppinn var til-
búinn var hann settur á götuna en sama
kvöldið var búið að leggja honum aftur.
Hafði Benedikt hug á að sjá hvernig
hann virkaði og byrjaði strax að standa
„dýrið” í botni. Braut hann þá öxul í
afturdrifi, kamb og pinion, drifskaftið og
gírkassann. Þegar Benedikt var á
bíl. Varð að stytta hana og var það gert
á renniverkstæði Þ. Kristmundssonar. í
framhásinguna var sett Powerlock
mismunadrif og drifhlutfallið 4.10:1.
Afturhásingin var einnig Spicer 44
undan Wagoneer og í henni er sama
drifhlutfall og þeirri fremri. Þá var sett í
hana Dual-Drive læsing. Tveir tvívirkir
Gabríel demparar voru settir við hvert
hjól. Millikassinn var fenginn úr
Wagoneer en gírkássinn var þriggja gíra
Saginaw kassi með Hurst skipti. Þá
skipti Benedikt einnig um vél í jeppabúr-
inu og setti nú 389 kúbika Pontiac vél í
hann.
Óheppni í upphafi
Sumarið 1976 hélt Kvartmíluklúbbur-
inn fyrstu sandspyrnu sína en nokkrum
dögum fyrir keppnina braut Benedikt
gírkassann í búrinu svo að hann gat ekki
keppt í það skiptið. Hann var þó búinn
að gera við kassann fyrir jeppakeppnina
i Grindavík þá um haustið. Benedikt
varð að hætta keppninni eftir' nokkrar
dikt tókst samt að ná bezta tíma keppn-
innar í þessari þrykkju, 6.26 sek. Bene-
dikt hélt keppninni áfram en gekk ekki
vel því að kveikjan blotnaði þegar vatnið
úr vatnskassanum frussaðist á hana.
Lenti Benedikt í þriðja sæti.
í október '77 hélt Kvartmíluklúbbur-
inn þriðju sandspymuna og að sjálf-
sögðu hugðist Benedikt taka þátt í
henni. Klukkan fjögur um nóttina fyrir
keppnina slitnaði tímakeðjan í 389 vél-
inni og var þá skipt um hana. að þessu
sinni mætti Benedikt tímanlega á
keppnissvæðið og tók að prófa jeppann í
sandinum. Þá tókst ekki betur til en svo
að þriggja gíra Saginaw kassinn brotnaði
og rétt á eftir festist olíudælan í vélinni
svo að jeppinn varð óökufær.
Sannkallað sigurár
Jeppanum var nú lagt fram að tor-
færukeppninni á Hellu 1978. Þá var bú-
ið að gera nokkrar breytingar á bílnum.
Gamla Saginaw gírkassanum hafði verið
Á bilasýningu Bílaklúbbs Akureyrar 17. júni síðastliðinn var jeppinn kosinn faliegasti f jórhjóladrifsbillinn enda bar hann þar
afsem gull afsilfri.
leiðinni heim í framdrifinu ætlaði ein-
hver Mustang að fara fram úr honum og
þá var allt þrykkt í botn aftur. Við það
brotnaði kambur og pinion í framdrifinu
svo að jeppanum var ekki ekið lengra
þann daginn.
Hinn fullkomni
jeppi?
Sá Benedikt að hann myndi þurfa að
gera miklar og róttækar breytingar á
jeppanum ef hann ætti að vera not-
hæfur. Ætlaði hann að byggja bíl sem
væri góður í ferðalög, götuakstur, i
kvartmiluspyrnur, sandspymur og tor-
færukeppnir. í dag segir hann að ekki sé
mögulegt að sameina alla þessa kosti í
einum bíl, en óhætt mun að fullyrða að
Benedikt hafi gert allt sem hugsazt getur
til aðnásettumarki.
Benedikt reif jeppann í tætlur og
byrjaði á að styrkja boddíið og skúffuna
með prófíljárni. Þá sauð hann 5 mm flat-
járn ofan á og undir grindina til þess að
styrkja hana. Nýjar fjaðrir voru settar
undir jeppann og voru þær festar utan á
grindina. Það gerði jeppann stöðugri.
Fjaðrirnar voru úr Wagoneer og voru
þær festar ofan á hásingarnar. Nýjar
hásingar voru settar undir jeppabúrið og
var sú fremri Spicer 44 undan Pick up
torfærurnar þar sem drifskaftið að fram-
an var of stutt og dróst alltaf út úr milli-
kassanum.
Fyrsti sigurinn
Heldur þótti Benedikt 389 myllan
eyða miklu svo að hann reif hana úr og
setti i hennar stað 215 kúbika Buick
álvél. Reyndist 215 vélin vel i ferða-
iögum veturinn 1976—77. Þennan
vetur stundaði Benedikt nám í Iðnskól-
anum og var hann ekki búinn í prófum í
maí þegar jeppakeppnin á Hellu var
haldin. Mætti hann i keppnina með litlu
álvélina og tókst honum að sigra. Kom
þar berlega i ljós hversu laginn öku-
maður Benedikter.
í júni '11 er önnur sandspyrnukeppni
Kvartmíluklúbbsins. Hyggst Benedikt
mæta í hana með 215 kúbika vélina en
er nú búinn að setja afgasforþjöppu ofan
á hana. Kvöldið fyrir keppnina er hann
að prófa jeppann en þá bognar ventill í
vélinni og hún hættir að ganga. Var þá
jeppabúrið drifið inn og vélin rifin úr.
Um hádegið daginn eftir var 389 kubika
Pontiac vélin komin i bílinn og Benedikt
lagður af stað austur. Ekki vannst tími
til að skipta um vatnskassa i jeppanum
en það átti eftir að verða örlagarikt. í
fyrstu spyrnunni fór viftuspaðinn i
vatnskassann og setti gat á hann. Bene-
kastað en í hans stað var kominn fjög-
urra gira Ford T&C kassi. Girkassinn
var tengdur við millikassann með sér-
stökum öxli frá Advance Adapters. Yfir-
leitt þarf að mixa þennan öxul. Þegar
skipt er um gírkassa í jeppum og vilja
þeir oft brotna. 389 vélin var rifin úr og
önnur sett I hennar stað. Var það 428
jbika Pontiac vél. Vélin var framleidd
1969 og skilar standard 370 hestöflum.
Klukkan fimm um morguninn fyrir
keppnina á Hellu er verið að stilla vélina
í jeppanum og er hann í hlutlausum gír.
Þá stekkur jeppinn af stað mannlaus og
verður Benedikt að hlaupa á eftir
honum til að stöðva hann.
Gírkassinn var umsvifalaust rifinn úr
bílnum og i sundur. Ekki sást neitt grun-
samlegt i honum og var þá öxullinn góði
frá Advance Adapters grunaður um
græzku. Strauk Benedikt yfir hann með
sandpappir og setti kassann siðan saman
og i jeppann. Hefur hann ekki sýnt
neina tilhneigingu til að rjúka af stað
mannlaus eftir þetta. Girkassinn var
kominn i um hádegið og var þá tryllt
austur að Hellu. Gekk Benedikt vel i
keppninni og sýndi þar mikla yfirburði.
Var hann þar með skófludekk undir
jeppanum og reyndust þau mjög vel. 1
miðri keppninni brotnaði kúluliður i
framdrifi en Benedikt hélt keppninni
Þegar unnió er að undirbúningi einhverrar keppni eru oft fleiri menn kringum jeppann
heldur en komast a$ til að vinna i honum. Hér er jeppinn gerður klár fyrir myndatöku
fyrir Dagblaðið. Frá vinstri Ólafur Ólafsson, Birgir Guðjónsson og Benedikt, undir
bilnum liggur Jón Eyjólfsson.
áfram án þess að láta nokkurn vita.
Sigraði hann keppnina, annað árið í röð,
með miklum yfirburðum.
íslandsmet
Einni viku eftir keppnina á Hellu hélt
Kvartmíluklúbburinn sandspyrnu við
Hraun í ölfusi. Hugðist Benedikt keppa
þar en ekki þótti honum nóg að hafa 370
hesta þar svo að hann tók til við að tjúna
vélina. Setti hann í hana knastás frá
Crower sem er 284 gráðu heitur og
hefur 0.480 tommu lyftihæð. Þá setti
hann á hana önnur hedd, Ram Air IV
með 2.11 tommu sogventlum og 1.77
tommu blástursventlum. Ofan á vélina
koma jafnan til hans viku fyrir keppnina
og bjóða fram aðstoð sína við nætur-
vinnuna. Mestöll vinnan fer fram á
kvöldin og nóttinni þegar brauðstritinu
lýkur.
Næsta keppni á
Dalvík
Benedikt er nú þegar farinn að gera
áætlanir fyrir næstu keppni sem mun
sennilega verða sandspyrnukeppni
haldin við Dalvik á vegum Bilaklúbbs
Akureyrar. Verður gaman að sjá
hvernig hann verður búinn að breyta
jeppanum fyrir þá keppni og hvaða vél
verður í jeppabúrinu þá.
Sandspyrnukeppni i júni 1977. Benedikt spyrnir hér við Hlöðver Gunnarsson.