Dagblaðið - 22.07.1978, Side 24
n
Ahrif útflutningsbannsins koma víða fram:
Þjóðverjar fá ekki íslenzka
ákavítið sitt — hrynur markaðurinn?
„Já, þessi seinkun afgreiðslu pönt-
unarinnar til Þýzkalánds, sem er bein
afleiðing útflutningsbannsins, gæti
eyðilagt ákavítismarkað þann sem tek-
izt hefur að vinna með ærnu erfiði á
löngu tímabili,” tjáði Árni Árnason
forstjóri umboðs- og heildverzlunar-
innar Austurbakka hf. blaðamanni
DB, en það fyrirtæki flytur út íslenzkt
áfengi, ákavíti, á markað í Þýzka sam-
bandslýðveldinu.
Að sögn Árna hefur fyrirtækið með
höndum eins konar vöruskiptaverzlun
við þýzkt áfengissölufyrirtæki. Á
síðustu árum hefur þýzka fyrirtækið
keypt ákveðið magn islenzks áfengis
sem aukizt hefur með hverju ári. Fyrir
liggur nú pöntun frá Þjóðverjum,
2500 flöskur ákavítis, þriggja pela, þ.e.
75 cl. eða 200 kassar. Árni segir
áfengisútflutning þennan nær eins-
dæmi.
Árni kvað þarna um töluvert áfengi
að ræða þar sem er einungis ein
tegund. Þýzki markaðurinn væri orð-
inn nokkuð traustur, ákavitið hefði
unnið sér álits á börum o.s.frv. En nú
sé framtið markaðar þessa stefnt í
voða. Skeyti hafi, í vikunni, borizt frá
Þýzkalandi og virtust Þjóðverjar mjög
óhressir vegna seinkunarinnar en
pöntunina átti að afgreiða um það
leyti sem útflutningsbann Verka-
mannasambandsins gekk i gildi um
miðjan april sl.
Undanþágu frá útflutningsbanni, ef
fengist, kvað Árni fyrirtækið ekki hafa
efni á að greiða. Þýzkir aðdáendur ís-
lenzks brennivíns mega þvi bíða enn
umstund, þurrir í kverkum. -JÁ
Landsmót UMFI hafið á Selfossi:
Búizt við 20 þúsund gestum
Veðrið á Selfossi heilsaði landsmóts-
gestum UMFÍ vel í gærdag er DB var
þar á ferð. Sól skein í heiði og kepp-
endur gengu léttklæddir um götur kaup-
staðarins áður en alvaran hófst. Áhorf-
endur voru byrjaðir að tinast á móts- ■
svæðið, en aðalstraumurinn hófst ekki
fyrr en í gærkvöldi og i morgun.
Að sögn Guðmundar Kr. Jónssonar
framkvæmdastjóra mótsnefndar má
gera ráð fyrir því að allt að 20 þúsund
manns heimsæki Selfoss af þessu tilefni.
Það er þó mikið undir þvi komið að
veðrið haldist gott. Undir stjórn
Guðmundar vann mikill fjöldi mannn
enda mikið að snúast. Guðmundur sagði
þó að aldrei væri nógu margt starfs-
manna.
Alls eru þátttakendur um 1100 á
þessu 16. Landsmóti UMFÍ. Héraðs’-
sambandið Skarphéðinn hefur séð um
allan undirbúning mótsins og fram-
kvæmd þess. Landsmótið byggist aðal-
lega á iþróttakeppni og sýningum. Auk
hefðbundinna íþróttagreina má nefna
starfsíþróttir eins og hestadóma, jurta-
greiningu, línubeitingu og dráttarvéla-
akstur.
Landsmót ungmennafélaganna verða
sifellt stærri í sniðum. Síðasta landsmót
var haldið á Akranesi árið 1975. Þá
sigraði UMSK í heildarstigakeppninni,
en áður hafði HSK sigrað átta sinnum í
röð. Fyrsta Landsmót UMSÍ var haldið
á Akureyri árið 1909. Meðal efnis á því
móti má nefna það að sr. Matthias
Jockumsson talaði við æskulýðinn. Sá
æskulýður er nú mjög tekinn að
reskjast.
JH
V6
VJVNOS MÖf
c^fOSS\
bL yúti J978
Þjálfarar toga og teygja Iþróttamennina
fyrir keppni, enda mikið 1 húfi.
DB-myndir Hörður.
Eins og vant er, er fjörið hvað mest i tjöldunum. Þetta tjaldllf er engin undan-
• n'/nMlK \ ðtlí J tekning.
Ríkið tekur rúman
helming bensínhækk-
unaríeiginvasa
— lítrinn hækkar um 26 krónur
Bensinlitrinn hækkar upp i 145
krónur frá og með deginum í dag. Áður
var hann í 119 krónum og nemur því
hækkunin 26 krónum. Þar af tekur ríkis-
sjóður 15 krónur sem ganga til vegasjóðs
og tengdra innheimta samkvæmt lögum.
Þær 11 krónur sem ríkissjóður tekur
ekki af hækkuninni fara til jöfnunar
gengissigs og erlendra verðhækkana.
Vegagjald sem innheimt er samhliða
bensinsölu hækkar samkvæmt
breytingum á byggingarvisitölu. Olíu-
félögin munu hafa talið þessa hækkun
bensínverðs i algjöru lágmarki enda
lögðu þau fram tölur sem sýndu að
þeirra mati að ekkert tillit væri tekið til
innlendra kostnaðarhækkana frá 1.
marz síðastliðnum. ÓG.
„Rannsóknarefni
fyrir sérf ræðinga”
— segirVilmundurumskrif Ingvars
Vegna ásakana Ingvars Gíslasonar,
alþingismanns, i Tímanum um bein
tengsl Vilmundar Gylfasonar við
„glæpalýð" og hugsanlega morðingja
Geirfinns Einarssonar, leitaði DB eftir
svörum hjá Vilmundi. Hann sagði:
„Ég hefi eins og aðrir ísléndingar
fylgzt með viðbrögðum forystumanna
Framsóknar við kosningaúrslitunum i
júní,” sagði Vilmundur Gylfason í
viðtali við DB. Hann bætti við: „Eins
og aðrir hefi ég séð, að þeir hafa ekki
tekið úrslitunum vel, og hefi grinazt
við kunningja mina um, að það væri
verðugt rannsóknarefni fyrir þjóð-
félagsfræðing eins og Ólaf Ragnar
Grímsson að gera úttekt á því með
hverjum hætti menn taka kosninga-
ósigrum.
Hins vegar sýnist mér að annars
konar sérfræðinga þyrfti í úttekt á
grein Ingvars Gíslasonar í Tínianum í
gær,” sagði Vilmundur Gylfason.
BS
Gjaldeyrisstaðan hrynur
stefnir hrattað núllpunktinum
Hratt streymir úr gjaldeyris-
sjóðnum svokallaða, og nettó gjald-
eyrisstaðan nálgast núllpunktinn.
ðan hefur versnað um 5,2
i arða króna siðan um áramót.
1 "-snaði um 2933 milljónir í júní-
öi einum.
>MMI
Til voru nettó 2070 milljónir um
síðustu mánaðamót.
Þetta gerist, þótt talsvert hafi komið
inn af erlendum lánum til langs tíma,
en þau koma sem viðbót í „sjóðinn”.
Innkomin erlend lán frá áramótum
nema 3965 milljónum króna.
Staðan hefur snarsnúizt frá í fyrra.
Þá batnaði staðan um 9350 milljónir
frá áramótum til loka júnimánaðar.
Hún batnaði um 278 milljónir í júní,
og í júnilok voru í „sjóðnum” 7270
milljón krónur.
Þá komu inn erlend lán upp á 8316
milljónir frá áramótum til 1. júli.
í framangreindum tölum er miðað
við gengi eins og það var í júnilok i ár
nema um erlendu lánin, sem eru upp
gefin á gengi hvers tíma.
Eins og sést af tölunum, yrði nettó
gjaldeyrisstaðan fljótlega núll eða færi
í mínus, ef svo heldur áfram, sem verið
hefurí ár.
HH
frjálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 22. JULÍ1978
Stattu við
orð þín,
Ingvar
— segirfréttastjóri
útvarpsins um
mafíuummæli
þingmannsins, að
öðrum kosti fari
málið fyrirdómstóla
„Ef Ingvar Gislason alþingismaður
finnur ekki þessum orðum sínum stað,
ber að lita á þau sem atvinnuróg af gróf-
asta tagi sem ástæða er til að fari fyrir
dómstóla,” segir m.a. í athugasemd
fréttastjóra útvarps, vegna skrifa
Ingvars Gislasonar frámsóknarþing-
manns í Timanum i fyrradag.
Athugasemd þessi var send ritstjóra
Tímans i fyrradag og skv. viðtali við rit-
stjóra var þess óskað að hún yrði birt i
næsta blaði. Það var þó ekki gert og sú
skýring gefin að það yrði gert eftir að
síðari grein Ingvars birtist i gær, sem
enn hnykkti á sama málefni.
Er þess vænzt aðTíminn gefi útvarps-
mönnum kost á að bera af sér ásakanir
Ingvars í dag, nema Ingvar hafi enn
nokkru við að bæta og útskúfi vörn í
málinu um hrið, að Mafiu sið.
Til skýringar skal þess getið að þeir
fréttamanna útvarps, sem eru yfirlýstir
stuðningsmenn ákveðinna flokka eru
allir framsóknarmenn.
Þau ummæii sem fréttastofa útvarps
vill ekki láta viðgangast eru eftirfarandi:
„Hin áhrifamikla áróðursvél sem nú
malar í landinu, hin samvirka frétta-
mafia ríkisfjölmiðla og siðdegisblaða,
lagði Framsóknarflokkinn í einelti og
bjó til af honum afskræmda mynd sem
þúsundir landsmanna urðu til að trúa og
festa sér í minni. Jafnframt vann frétta-
mafian að því að fegra imynd helztu
andstæðinga og ofsóknarmanna Fram-
sóknarflokksins og gera hlut þeirra sem
alíra mestan.”
Að þessari dembu lokinni segir í
athugasemd útvarpsmanna:
„Fréttastofa útvarps er rikisfjölmiðill.
Nú stikar aiþingismaður fram á ritvöll-
inn og likir fréttastofunni við heimsfræg
samtök glæpamanna. Hann sakar frétta-
mann útvarps um að hafa ástundað að
búa til afskræmda mynd af einum til-
teknum stjórnmálaflokki (Framsóknar-
flokknum) og draga taum „ofsóknar-
manna” þessa sama flokks. Fréttamenn
útvarps eru m.ö.o. á borð við alræmd-
ustu glæpamenn veraldar, fyrir nú utan
það að bregðast grundvallarskyldum
sínum sem fréttamenn.”
-G.S.
Ingvar Gislason
? Kaupið ^v
TÖLVUR >
OG TÖLVUUR
BANKASTRÆTI8
i^Vfl276^