Dagblaðið - 12.08.1978, Síða 2

Dagblaðið - 12.08.1978, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978 Slæm myndataka sjónvarpsins íþróttaunnandi hringdi og sagðist ekki geta orða bundizt yfir iélegri mynda- töku sjónvarpsins af Reykjavikurleik- unum i frjálsum íþróttum. Einkum fannst honum slæmt hvernig myndin var tekin af 1500 metra hlaupinu, þ.e. J6n Diðriksson, lengst til vinstri, i harðrí keppni i methlaupinu. <—m. DB-mynd Bjarnleifur methlaupi Jóns Diðrikssonar.„Eftirað sigurvegarinn bandaríski var kominn i mark var myndavélinni stöðugt beint að honum þar sem hann gekk eftir brautinni í stað þess að sýna hvernig Jóni Diðrikssyni vegnaði í sinu frá- bæra hlaupi. Þannig var ails ekki sýnt þegar Jón Diðriksson kom í markið. Auk þess var sifellt verið að beina myndavélinni frá hlaupinu að kúlu- varpinu. Þetta ætti að vera óþarfi í jafnstuttu hlaupi og 1500 metra hlaupið er, en það stendur aðeins í tæpar fjórar minútur. Myndatöku- mönnum sjónvarpsins virðist vera aiveg fyrirmunað að gæða þessar myndir sínar einhverri spennu,” sagði íþróttaunnandinn en bætti því við, að hann vildi koma á framfæri þakkiæti til sjónvarpsins fyrir að sýna strax myndir frá mótinu þótt myndatakan hafi ekki tekizt betur en raun varð á. Árásir á sumarbú stadaeigendur Sumarbústaðareigandi hafði samband við DB. Hann sagði að sumarbústaða- eigendur yrðu nú fyrir árásum af hálfu ........ Ökukennsla Kennslubifretöin er Toyota Cressida ’78 ogannoðekkL Geir P. Þormar ökukannan. Shnar 19896 og 21772 (abnavari). hins opinbera. Árásir þessar birtust i formi sýsluvegagjalds, sem væri lagt á alla sumarbústaðaeigendur. Hann sagði að sýsluvegagjaldið væri ákveð- inn hundraðshluti af fasteignamatinu þannig að þegar fasteignagjaldið hækkaði, þá hækkaði sýsluvegagjaldið um leið. „Við borgum eins og aðrir í þjóðvegina, þ.e. bensinskatt, og við teljum okkur þar með vera búna að borga okkar vegagjald. Okkur þykir þetta hár skattur. Sýsluvegagjaldið fyrir tvö síðustu ár er 18.400 kr. og heyrzt hefur, að þetta gjald muni stór- hækka enn. Ég tel þetta vera hreinar árásir á sumarbústaðaeigendur,” sagði viðmælandi Dagblaðsins að lokum. „Hugsað sem endurgjald fyrir þjón- ustu sýslufélagsins,” segir Már Pétursson. DB sneri sér til Más Péturssonar, héraðsdómara við bæjarfógetaemb- ættið i Hafnarfirði. Hann visaði á 23. gr. vegalaga nr. 113/1976 þar sem segir: „Nú á einhver fasteign i hreppi eða kauptúni, aðra en jörð i fastri ábúð eða jarðarhluta, en er þar þó ekki út- svarsskyldur eða greiðir þar ekki út- svar eftir sömu reglum og aðrir ibúar hreppsins, og skal hann þá greiða vegaskatt af eign sinni i sýsluvegasjóð. Skattur þessi greiðist á manntalsþingi. Vegaskattur skal nema 3.0 af þúsundi af fasteignamatsverði mannvirkja landa og lóða með lögákveðnu álagi, þó aldrei lægri upphæð en 7.000 kr. Lágmarksverð þetta skal breytast I sömu hlutföllum og kaupgjald.” (Lág- marksgjaldið er nú II.400 kr. ath. GAJ). Már sagði að þetta gjald væri hugsað sem endurgjald fyrir þjónustu sýslufélagsins sem væri fólgin í minni- háttar vegagerð heim að bæjum og sumarbústöðum. í öðru lagi væri þetta hugsað sem skattur á þéttbýlisbúa, sem eiga fasteign á þessum stöðum en greiða ekki útsvar þar. Már sagði að ástæðan fyrir þeirri óánægju sem nú kæmi fram fælist vafalaust í því að þessi prósentutala hefði hækkað 1976 úr 0.3 í 3.0 og jafn- framt að nú væri komið til nýtt fast- eignamat sem væri mun nær raunviröi en áður hefði verið. ÞU ERT MITT SÓLSKIN Kristján Friðriksson, sá sami og nú stýrir stór- fyrirtækinu Última, stofnaði Útvarpstíðindi á árunum rétt fyrir striðið. Það flutti dagskrá út- varpsins nokkuö fram i tímann og reyndi að koma blaðinu til kaupenda í tæka tíð út um hinar dreifðu byggðir, auk þess dagskrárkynn- ingu, greinar um útvarpsfólk, raddir hlustenda og ekki sist texta við þau danslög, sem i tisku voru. Kristján reyndi að vinna gegn útlendu slögurunum, dönskum sem enskum, með því að fá smekkmenn til að semja íslenska texta. Svo kynnti hljómsveit Bjarna Böðvarssonar þessa söngva sem danslag kvöldsins. Þetta þótti ekki sist þarfafyrirtæki, þegar breska og síðar banda- ríska hernámiö, skall yfir, með öllum sinum óeðlilegu áhrifum á þjóðlifið. Meðal þjóðkunnra skálda sem ortu dægur- lagatexta fyrir Útvarpstiðindi voru Jóhannes úr Kötlum, Loftur Guðmunsson, Jón frá Ljár- skógum, Vilhjálmur frá Skáholti, Jón úr Vör, Kristján frá Djúpalæk og Jón Óskar. En sjaldnast voru nöfn þeirra þó tilgreind. Hér er sýnishorn frá nóv. ’42. Lagið var enskt, You are my sunshine, og fyrstu Ijóðlinurnar minna á frumtextann, en svo fer skáldið sina leið. Þú ert mitt sólskin, min ástin eina. Þú ert min gleði, þótt byrgi sól. Ég má ei hug mfnum lengur leyna. Ó, lifs mins dls I bláum kjól. Er veður kólna og kolin hækka i kytru þinni er alltaf hlýtt. I i strlði lýkur og stormar lækka ég stórt hús byggi okkur nýtt. t ástardraumum ég aleinn vaki, og öll min kvæði ég helga þér, og bið þess aðeins að enginn taki til Englands sólskinið frá mér. Þá stofnaði Páll ísólfsson þjóðkórinn, eins og áður hefur verið frá sagt. Kristján hvarf að vísu snemma frá blaöinu, en eftirmenn hans héldu þessu starfi áfram. Á árunum 1940—45 voru þeir Gunnar M. Magnúss og Jón úr Vör rit- stjórar og útgefendur Útvarpstiðinda. Þeir bættu þvi og við, að þeir tóku að birta lausavisur i ritinu og efndu jafnvel til visnasamkeppni. Þetta varð til þess að tækifærisvísur og birting þeirra komst á ný i tísku, fieiú blöö og timarít tóku upp fasta vísnadálka. Hefur þetta ekki með öllu fallið niður siðan og átt drjúgan þátt I varðveislu visna og að halda áhuga manna vakandi á þessari þjóðlegu iþrótt. Fáir menn settu meira svip sinn á útvarpiö en Helgi Hjörvar frá upphafi — og eins lengi og hans naut við. — t október 1943 sendir Halla í Skuggahverfi i Reykjavík honum svohljóðandi kveðju i Út- varpstíðindum. Hefurðu gleymt þvi, Hjörvar minn, að hjá þér sat ég löngum? Lögðum saman kinn víð kinn á kvöldin frammi i göngum. I næstu vísu vikur hún að þvi, að Helgi var lengi mikill glímumaður: — Vísur og vísnaspjall W , A T#V Jön Gunnar Jönsson Þú varst ungur, æskuknár, oftast felldir drengi, hafðir Ijósgult, liðað hár, lokk þó ei ég fengi. Ritstjórar hafa svo orð á því, að framhaldið sé of persónulegt til þess að við hæfi sé að birta það. Helgi svarar svo nokkru siðar: Hafir þú vermt min æskuár ómaklega gleymdi ég þér. Og illa manst þú eftir mér: ungur var ég jarpur á hár. Ritstjórar bæta við þessari athugasemd: Það hefur líklega verið skuggsýnt, dettur óviðkom- andi fólki í hug. Seinna kom svo þessi klausa i sama riti: f tilefni af vísum Helga Hjörvars og Höllu i Skuggahverfínu dettur mér i hug saga, sem ég heyrði fyrir nokkrum árum, kannski er hún til- búningur, um það veit ég ekki. Hún er svona: Ung stúlka kemur upp í útvarpsstöð og óskar að fá að skoöa húsakynni þar. — (En slikt var ekki óalgengt á þeirri tið, almenningi fannst það eiga útvarpiö miklu fremur en aðrar stofnanir ríkisins, siðari tima athugasemd annálsritara). — Helgi Hjörvar tók vingjarnlega á móti stúlk- unni, eins og hans var vandi þegar gesti bar að garði. — (En heimamenn voru þá færri en nú, önnur athugasemd hripara —Skoðaði stúlkan það sem hún vildi, en Helgi horfði á stúikuna. Hún tók eftir þessu. Segir þá Hjörvar, að sér finnist hann kannast svo vel við hana, hvort verið geti, að þau hafi sést áður. Hún kveður það ekki muni vera. Helga varð þá að orði: Æ, kannski þaðsé hún móðir þín. Frá skuggahverfisskáldkonunni heyrðist aldrei framar, en nú kom skeyti frá Lilju í Ljósa- hverfinu. Von og ótti vega salt, vart minn hug það örvar að heyra þig, fyrst annað allt er oss bannað, Hjörvar. Þó að gleymir fornum fund, fegurð, yndisþokka, ástin kembir alla stund aðeins gullna lokka. Eða skyldi sama höndin hafa stjórnað penna Höllu og Lilju? Ekki gott að fá þeirri spurningu svarað eftir svona mörg ár. Sigurður Nordal hafði stungið upp á þvi I út- varpsþætti að konur tækju sig upp frá sínu daglega amstri og fengju sumarfri, eins og annað vinnandi fólk, vildi hann að þær kynntust dásemdum náttúrunnar, eins og formasður þeirra áður I sveitunum. Þarna hefur sá vísi maður verið á undan sínum tima. Um þessa ræðu var kveðið: Eldurínn dauður, kaffið kalt, konan úti á fönnum. Þetta ber að þakka allt þekktum andans mönnum. J.G.J. — S. 41046.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.