Dagblaðið - 12.08.1978, Page 5
5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978.
Talsmenn Félags Farstöðvaeigenda:
ur verið á milli lífs og dauða.
Báðir lýstu þeir undrun sinni yfir
skilningsleysi Pósts og síma með tilliti til
áhuga áðurnefndra öryggisaðila i land-
inu á FR starfseminni. Sögðu þeir að
Póstur og sími bæri því m.a. við að þessi
fjarskipti gætu jafnvel truflað sjónvarps-
tæki. Sögðu þeir að slíkt ætti sér ekki
stað nema að loftnet væru í ólagi og hafi
féagsmenn boðizt til að lagfæra slíkt ef
kvartanir kæmu, en ekki hafi verið við
þá talað um það.
Að lokum vildu þeir félagar benda eig-
endum slíkra stöðva á, sem ekki eru nú
þegar í félagsskapnum, að ganga í hann
því með sameiginlegu átaki gæti félagið
veitt ótrúlega aðstoð og hjálp á neyðar-
stundu auk ánægjunnar af góðum
félagsskap dags daglega.
— G.S.
STYRKLEYSIÐ ER
Reynir og Svavar að störfum í stjórnstöð
OKKAR VEIKLEIKI
— gætum verið mun þýðingarmeiri hjálparaðilar ef við fengjum að nota
sama sendistyrk og víðast annars staðar
FR.
DB-mynd Bj.Bj.
„Það má segja að of lítill sendistyrkur
sé okkar helzti veikleiki, með 4 til 5 þús-
und félögum eins og nú, gætum við
verið mun þýðingarmeiri hjálparaðili í
almenningsþágu en við erum,” sögðu
þeir Reynir "Einarsson varaformaður
deildar 4 í Félagi Farstöðvaeigenda á
íslandi og Sævar Sveinsson formaður
fjarskiptadeildar er DB ræddi við þá í
gær.
Tilefnið að því að DB ræddi við þá var
m.a. að við framkvæmd Sjórallsins
veittu FR menn ómetanlega aðstoð um
allt land við að koma skilaboðum til og
frá bátunum.
ítrekað kom þar í ljós að sendistyrkur
hefði mátt vera mun meiri, sem hefði
skapað aukið öryggi og komið í veg fyrir
misskilning. Leyfður styrkur h'ér er 0,5
wött en flestar stöðvar eru framleiddar
fyrir 3 til 4 wött svo veikja þarf stöðv-
arnar áður en leyfilegt er að nota þær
hér skv. reglum Pósts og síma.
Þeir sögðu að þetta væri byggt á úrelt-
um lögum frá 1945, þegar fjarskipti voru
annars eðlis en nú og voru jafnvel talin
hættuleg frá hernaðarlegu sjónarmiði.
Þá eru aðeins leyfðar 8 rásir hér en t.d. í
Bandaríkjunum eru leyfðar 40 rásir.
Bæði styrkleysið og rásafæðin ei FR
mönnum þymir í augum varðandi að geta
aðstoðað stofnanir eins og Rauða kross-
inn, Slysavarnafélagið og Almanna-
varnir sem skyldi. Allar þessar stofnanir
hafa lýst áhuga sinum á samstarfi við
FR. Hefur notagildi þessara einkastöðva
þegar sýnt gildi sitt t.d. við Vestmanna-
eyjagosið og svo fjölda slysa um allt
land. FR félagar fara svo víða að jafnan
líður ekki á löngu að einhvern þeirra beri
að, hafi eitthvað borið að höndum og
geta þeir þá kallað eftir hjálp eða komið
skilaboðum áleiðis, eftir atvikum. Hafa
þeir hvað eftir annað flýtt umtalsvert
fyrir björgunum þar sem skammt hef
Glæsivagninn „skartar” níimerinu R-2121, sem óneitanlega sýnist vera íslenzkt að
uppruna.
„Riftun orkar tvímælis/’ segir Breiðholt hf.
„Nauðsynleg ör-
yggisráðstöfun.”
— segir stjórn Verkamannabústaða
ROLLS ROYCE
Á R-NÚMERI
„Nei, það hefur aldrei verið draumur
minn að eiga Rolls Royce, ég á nú
Cherokee og tel aðalatriðið að eiga bíl í
góðu ástandi — hér er engin bíladella,”
sagði Gunnar M. Guðmundsson
lögfræðingur.
slíka bíla en verksmiðjurnar vildu ekki
selja þá hingað nema að tíu bílar yrðu
keyptir i einu. Þær töldu ekki svara
kostnaði að hafa eigin sérfræðing hér
viðloðandi fyrir minna — aðrir eiga
ekki að fást við viðgerðir Rolls Royce.
G.S.
„Það er full ástæða til þess að
vefengja þessa riftun á verksamningi
Breiðholts hf. og stjórnar Verka-
mannabústaða,” sagði talsmaður
Breiðholts í viðtali við DB.
„Verkið er alls ekki á eftir áætlun,
ef það er skoðað í heild, og því ekki um
vanefndir af hálfu Breiðholts að
ræða,” sagði hann. Nú er verið að
athuga lagalegan grundvöll fyrir því
að vefengja riftunina.
Stjórn Verkamannabústaða hefur
skýrt sjónarmið sin í málinu með
fréttatilkynningu. Meðal annars telur
hún að fyrir hafi legið viðurkenning
fyrir mjög slæmri fjárhagsstöðu Breið-
holts hf. Hafi verið full ástæða til þess
að taka ákvörðun um riftun þegar í
stað. Fram kemur að GuðmundurJ.
Guðmundsson taldi rétt að doka við
og gefa verktakanum kost á því að
selja steypustöð sína og rétta þannig
við hina erfiðu stöðu.
Þá kemur fram, að stjórn Verka-
mannabústaða þótti ekki álitlegt að
taka boði verktakans um að nýtt fyrir-
tæki, Norðurás hf„ tæki við verkinu af
Breiðholti hf. Hefði eins og sakir stóðu
verið nauðsynlegt vegna öryggis
verksins, að rifta samningnum.
Ekki hefur enn verið tekin
ákvörðun um að leggja vefengingu
riftunarinnar fyrir dómstóla til
úrskurðar.
Við hringdum i Gunnar vegna þess að
okkur hafði borizt úrklippa úr sænsku
Andrésar Andar blaði þar sem verið var
að kynna gamla bíla. Þ.á.m. Rolls Royce
Silver Ghost árgerð 1911, sem skartar
skrásetningarnúmerinu R-2121. Kona
Gunnars er eigandi þess númers hér.
Það er álit margra innlendra og
útlendra að bílnúmer séu hvergi Ijótari
en hér og þar sem þetta númer á
Rollsinum litur alveg eins út og íslenzkt
vaknaði sú spurning hvort íslendingur
ætti þennan bil.
Bilafróðir menn, sem DB hafði
samband við í gær, vissu ekki til að slík
númer væru notuð annars staðar en
fortóku það ekki.
Ekki komum við alveg að tómum
kofanum hjá Gunnari þótt hann ætti
ekki Rollsinn góða, þvi hann rámaði í
að hafa einhvers staðar lesið um
íslending, sem búsettur var I Englandi
og átti Rolls Royce. Eftir því sem blaðið
kemst næst munu það vera nánustu
tengsl landsins við þennan konung bíl-
anna. Þá má geta þess að fyrir all-
nokkrum árum höfðu nokkrir íslend-
ingar hug á að kaupa hingað nokkra
Kínverskt fimleikafólk
* Sýningar íLaugardalshöllþriðjudaginn 15. agúst kl. 20,30 og
fimmtudaginn 17. ágústkl. 20,30. Einstakt tækifœri tilað
sjd snilliþessa fólks íöllum greinum áhaldafimleika.
Forsala aðgöngumiða verður íLaugardalshöllmánudaginn 14. ágústkl. 18-20 ogfrá
kl. 18,30sýningardaganna. /
Missið ekkiafþessu einstaka tækifæri. FllTll6ÍRðS3ltlbcind ISlðndS
á Islandi
ALLT
UTILIFIÐ
UTILIF - GLÆSIBÆ - SIMI30350
KLiFURVÖRUR
»M«|0
GÖNGUOG
KLIFURVÖRUR
og
befQhciu/
BAKPOKAR