Dagblaðið - 12.08.1978, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978.
«pf
Stúlka óskast
til skrifstofustarfa. Góð vélritunarkunn-
átta nauðsynleg. Upplýsingar ekki í síma
Söluumboð L.Í.R.
Hólatorgi 2.
Allt i útilífið
Yfir 20 gerðir af bakpokum
BAKPOKAR
FRÁ
berqhou/
GLÆSIBÆ
SÍME 30350
Á rúskínsskóm um öræfi íslands
OG BREZKA REGN-
HUFÍN MEÐ í FÖR”.“
„í rauninni er allt of auðvelt að bera
of mikið með sér. Það detta svo ótrúlega
margir í þá gildru og komast á endanum
ekkert um vegna þyngsla,” sagði Breti
einn sem nýkominn er úr gönguferð frá
Egilsstöðum til Reykjavíkur. Farangur
hans var lítið þunnt gjald, malur með
þurrkuðum mat og tei, mataráhöld,
peysa og regnhlíf, ein af þessum ómiss-
andi sem Bretar sjást alltaf með á skrípa-
myndum.
„Ég kom til Reykjavíkur þann 25.
júlí og hafði þá verið hálfan mánuð frá
Egilsstöðum. Ég gekk þó ekki nasrri alla
leið, heldur fór spotta og spotta með
góðviljuðum mönnum sem hirtu mig
upp af götu sinni og nokkrar vegalengdir
fór ég með rútum,” sagði Bretinn.
William Finley heitir hann og starfar
sem lögfræðingur i London þar sem
iC
William Finley með farangur sinn. Hann
Ukist öllu mcira manni sem ætlar rétt að
skreppa til „City” en manni sem ætlar
að ganga um öræfl tslands.
DB-mynd Ragnar.
hann hefur búið mestan hluta ævi
sinnar. Kona hans er islenzk en hún er
ekki með í för núna. „Hún sagði við
mig, þú verður sextugur í ár. Afmælis-
gjöfin þín verður að þú ferð til íslands en
ég fer i hina áttina. Og hún fór til
Astraliu. Þar býr dóttir okkar,” segir
William.
Liðsforingi
hér í stríðinu
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem William
kemur til Islands. Hann kom hér ásamt
fleiri hermönnum árið 1940 í júli og fór
aftur i október '42. „Ég þekki þvi allar
tegundir af islenzku veðri,” segir hann.
„Þegar ég kom hingað í stríðinu vissi
ég eitthvað örlítið um land og þjóð. Svo
var með Breta yfirleitt. Þeir höfðu jú
heyrt talað um fsland en ekki mikið
meira. Fólkið hérna kom allt einstaklega
vel fram við okkur hermennina. Við
heyrðum eina og eina sögu af ruddalegri
hegðun Íslendinga en urðum aldrei varir
við neitt þess háttar.
Þessi 35 ár síðan ég var hér í stríðinu,
hefur orðið mikil breyting á landinu og
hún til góðs. Bændabýlin hafa stækkað
og vélvæðingin aukizt. Ef til vill eru
ekki allir sammála um að þessi þróun sé
til góðs. En hvernig öðru vísi gat hún
orðið? Ef þið ætlið að fylgjast með
heiminum verðið þið óhjákvæmilega
fyrir áhrifum af honum.
Hinn hringinn
fyrir tveimur árum
William kom hingað til lands aftur
fyrir tveimur árum og gekk þá
hinn hringinn af landinu, frá Akureyri
til Þingvalla. Hann sagði að þá hefði sér
þótt svo gaman að hann hefði verið
ákveðinn í að koma aftur. „Það er
fallegt hérna og mun betra að ganga hér
en í London,” segir hann. En líklega
hefðu menn frekar búizt við þvi þegar
þeir sáu útbúnað Williams að hann
hyggði til gönguferða í London en uppi á
öræfum íslands. Hann var í ferðinni
klæddur köflóttum jakka og Ijósum
buxurn og bar rúskinnsskó á fótum.
Engin stigvél eða hlýr fatnaður voru
með í för. „Jú, mér var oft ansi kalt. Og
ég fékk kvef eftir að ég datt í eina ána.
En við því er svo sem ekkert að segja,
það batnar. Það var engin ástæða til
þess að vera í stígvélum. Ég gekk mest^f
á veginum og hann er þurr. Fólk var að
segja mér að skórnir yrðu útslitnir á
engri stundu en eins og þú getur sjálf séð
eru þeir alls ekki slitnir.” Og þessi
kotroskni Englendingur sýnir mér
rúskinnsskóna góðu.
DS
Stjömuljósmyndir
auka starfsemina
— og hyggjast keppa
við hina stóru
á framköllun filma
og kóperíngu
Stjörnuljósmyndir, gamalt og gróið
fyrirtæki er nú mjög að auka alla starf-
semi sina og tækjabúnað. Stjömuljós-
myndir eru að fara út í samkeppni við
hina stóru á íslenzkum markaði á fram-
köllun filma og bjóða hagstæðari kjör en
önnur fyrirtæki. Samkeppnin á fram-
köllun er mjög hörð og viðgangur
Stjörnuljósmynda ætti enn frekar að
auka hana, neytendum til hagsbóta,
bæði í myndgæðum og lægra verði.
Stjörnuljósmyndir hafa fest kaup á
tækjabúnaði, sem er sambærilegur við
það bezta í heiminum í dag. Meðal tækja
er tölvuprinter sem leiðréttir undir- og
yfirlýsingar filma um leið og litgreint er,
þannig að góð mynd næst. Filmufram-
köllunarvélin getur framkallað 237
filmur á klukkustund. Stjörnuljósmynd-
ir geta framkallað um 2500 filmur á dag
viðfullafköst.
H Halls.
Steinar Gunnbjörnsson forstjóri við hina
fullkomnu framköllunarvél. DB-mynd
Ragnar Th.
Ný þjónusta við bfleigendur:
Lffgað upp á hjólbarðana
Islenzkir bifreiðaeigendur þjóna
ökutækjum sínum yfirleitt vel. Einn er
sá hlutur sem oft vill verða útundan á
bilunum, — þ.e. hjólbarðarnir. Snyrti-
legir bifreiðaeigendur geta nú sinnt
þeim hluta betur en áður. Ungur Kefl-
víkingur, Halldór Vilhjálmsson, er að
hefja innflutning á tæki til að lifga
svolitið upp á barðana. „Ég sá auglýs-
ingu í blaði og brá mér til Texas og
kynnti mér aðferðina sem þeir nota
við að setja litahringi og stafi á hjól-
barðana, — einnig skoðaði ég verk-
smiðjuna sem framleiðir tækin, en
hún hóf starfsemi sína fyrir rúmu árí
og annar ekki eftirspurninni.”
Aðferðin er mjög einföld. Aðeins
þarf að lyfta bílnum 10 cm og siðan er
grópuð í barðana sú línubreidd, sem
óskað er eftir og málað þeim litum sem
beðið er um. Aðeins rúman hálftima
tekur að Ijúka við ganginn, fjögur hjól-
in. Ef menn vilja skreyta barðann með
stöfum — þá er það líka hægt.
— emm