Dagblaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978. Enn einn kvartmílubflaflokkurinn: „SPRENGHLÆGILEGIR BÍLAR” „Funny Car” bilar eru grindarbilar með yfirbyggingu úr fiberpiasti. Engar takmarkanir eru á hversu kraftmikil vélin í þeim má vera. Hún verður þó að vera stimplavél og einungis er leyfi- legt að hafa eina slíka i hverjum bil. Funny Car bilarnir komu fyrst fram á sjónarsviðið fyrir um það bil tíu árum. í upphafi nefndist flokkurinn öðru nafni en bilarnir þóttu svo furðu- „Funny Car” bilar eru grindarbilar sem eru með fíberplast yfirbyggingu. Yfir- byggingin er i einu stykki og fr auðvelt að taka hana af grindinni svo að hægt sé að vinna i vélinni. Algengt er að vélin sé tekin I sundur og skipt um ýmsa vélarhluti nokkrum sinnum i hvcrri keppni. Flberboddiin á „Funny Car” bilunum verða að vera eftirllking af bilategundum sem framleiddar eru i Bandarikjunum. Hér sjáum við Moby Dick Funny Corvett- una hita dekkin fyrír spyrnuna. „NýjasU tízkan" I klaðnaði Fuaay Car bUstJAra. Miklar öryggiskröfur eru geröar og verður búning- urinn að vera þannig gerður að ökumaðurinn getí verið i eldhafi I 1S sek. án þess að finna tíl hitans. Nægir sá tími þvi að sjálfvirka slökkvikerfið fer i gang um leið og eldur kviknar og sprautast slökkvi- vökvinn á bílstjórann og véiina. legir er þeir tóku af stað að Funny Car nafnið festist við þá. Sumir hafa viljað islenzka heitið og kalla bílana Spreng- hlægilega bíla en hér höldum við okkur við erlenda nafnið. Funny Car flokkurinn náði þegar í upphafi miklum vinsældum. Við fyrstu sýn likjast bilamir venjulegum ökutækjum en þegar þeir spyrna af stað kemur i Ijós að þeir gefa „Top Fuel” bílunum, sem við kynntum siðastliðinn laugardag, lítið eftir. Allt er gert til að gera bílinn sem kraft- mestan. Notaðar cru sérsmiðaðar vélar með hálfkúlulöguðum (hemi) heddum. Forþjöppur eru á vélunum og eldsneytið, sem notað er, er nytromethan. Með þessum útbúnaði ná bilarnir hátt i 400 km/klst hraða. Bremsuút- búnaðurinn er tvenns konar; venju- legar bremsur á tveimur hjólum og failhlif Heimsmethafinn í FunnyCarflokki heitir Don Prudhomme. Hann setti met sitt á Indianapolis brautinni i indiana árið 1976. Fór hann þar kvartmiluna á 5.93 sekúndum. Mesti hraði sem náðst hefur á Funny Car bíl er 245.23 mílur/klst eða 411.98 km/klst. Það var Dale Pulde sem setti hraðametið á brautinni í Martin í Michican. JAK. Guðmundur Kjartansson fiutti bil sinn hingað til lands sjálfur eftir ábendingu kunningja síns í New York. Ef þú brosir framan i heiminn, þá brosir heimurinn framan i þig. — Cyclóninn brosir til lesenda. Fyrir um það bil tiu árum voru við- horf bifreiðaframleiðenda í Detroit allt önnur en þau eru i dag. Þá voru verk- smiðjurnar virkir þátttakendur i ýms- um bilaiþróttum, auk þess sem sam- keppnisfærir bílar voru seldir á al- mennum markaði. Einkum var lögð mikil áhersla á NASCAR Racing (kappakstur á hringlaga braut þar sem eknar eru 500 milur) og kvartmilu- akstur. SÁ EINISINNAR TEGUNDAR HÉR Á LANDI Á þessum árum byggðist allt á því að hafa vélamar sem stærstar og kraft- mestar. Þá var hægt að fara til næsta bilasala og kaupa bila eins og 440 kúbika Charger og 426 kúbika Hemi Superbird frá Chrysler. Chevrolet seldi 427 kúbika Corvettur, 454 kúbika Chevellur og 350 kúbika Z-28 Camaróa. Hjá Ford var hægt að fá Mustang með 302 Boss eða 428 Super Cobra Jet vél, 428 kúbika Shelby Cóbru eða bílinn sem við_ætlum að kynna í dag, en það er Mercury Cyclone GT 429. Eitt eintak er til á tslandi og slæddist það hingað siðast- liðinn vetur. Sérinnfluttur Eigandi bilsins heitir Guðmundur Kjartansson og flutti hann bílinn inn sjálfur. Guðmundur hefur starfað við verksmiðjustörf síðan vorið 1976 er hann lauk stúdentsprófi frá MR en mun hefja nám við lagadeild Háskóla Íslands næsta haust. Haustið 1977 skrifaði Guðmundur vini sinum í New York og bað hann um að svipast eftir bíl fyrir sig. Hafði Guðmundur hug á að kaupa annað hvort Dodge eða Daytona Superbird með 426 kúbika Hemi vél. En slíkir gripir eru sjaldséðir og dýrir þá sjaldan að þeir eru til sölu. Þegar líður fram á vetur skrifar vin- urinn Guðmundi og segir honum frá Cyclóninum. Árið áður hafði Guð- mundur verið sjálfur i New York og séð, fyrir tilviljun, svona bil. Hann ákvað að kaupa bilinn. Lét hann sprauta bílinn, setja í hann flækjur og 780 cfm Hollev blöndung áður en hann flutti hann til landsins. Hann kom á hafnarbakkann i febrúar og lagði Guðmundur mikið kapp á að leysa bílinn út úr tolli svo að hann gæti haft hann á bílasýningu Kvart- miluklúbbsins um páskana. Keyptur eftir auglýsingu í Berlingske Tidene Cyclóninn er ekki eina bifreiðin sem Guðmundur hefur flutt til landsins. Árið 1975 flutti hann, ásamt föður sinum og bróður, gamlan grip til landsins. Var það '47 módel af Lincoln með 12 strokka V vél. Hlaut sá bíll verðlaun sem athyglisverðasti bíllinn á bílasýningu kvartmiluklúbbsins vorið '77. Lincolninn var fluttur inn frá Danmörku og keyptureftir auglýsingu í Berlingske Tiderne en þar var fullyrt að þetta væri eina gangfæra eintak þessarar tegundar í Evrópu. Veturinn '77 flutti Guðmundur inn annað tryllitæki. Var það Chevelle með 402 kúbika big block vél og var sá Texti og myndir: Jóhann A. Kristjánsson bíll nokkuð sprækur. Guðmundur hyggst eiga Cyclóninn í að minnsta kosti eitt ár en þá hyggst hann fara utan og ná sér í 427 kúbjka Shelby, 427 GT Mustang eða Chrysler með Hemi vél. Tækniatriði Bíll Guðmundar heitir fullu nafni Mercury Cyclone GT 429 og var hann smiðaður árið 1970. Boddíið er hann- að fyrir NASCAR kappakstur og miðast linurnar í bílnum við að gera hann sem stöðugastan á miklum hraða. Í NASCAR kappakstri þurfa bilarnir að aka i nokkrar klukku- stundir á um 300 km/klst meðalhraða svo að mikilvægt er að þeir kljúfi loftið vel og þrýstist að brautinni. Enda þótt bíllinn væri ekki byggður fyrir kvart- míluakstur hefur hann þó ekki verið notaður minna i hann, enda er stand- ard vél í bilnum 429 kúbik og 360 hest- öfl. Borvídd vélarinnar er 4.36 tommur en slaglengdin er 3.59 tommur. Þjöppuhlutfall hennar er 11:1. Bíll Guðmundar var litið breyttur er hann fékk hann, en Guömundur hyggst setja á hann Offenhauser sog- grein með tveimur 600 dfm Holley blöndungum. Annar knastás fer einnig í vélina og er það Police Inter- septor ás frá Ford. Er hann með 282 gráðu heitum innsogskömbum með 493 tommu lyftihæð en útblásturs- kambarnir eru 296 gráðu heitir með 501 tommu lyftihæð. Samgátt ássins er 61 gráða. (Samgátt er það timabil sem bæði innsogsventil! og útblásturs- ventill standa opnir.) Aftan á vélinni er C6 sjálfskipting og er griphraði hennar við 1600 snúninga. Undir biln- um að aftan er 9 tommu Ford hásing með 3.50.1 drifhlutfalli. Þá mun Guð- mundur nota Good Year Drageay special spyrnudekk þegar hann fer að stilla Cyclóninum upp.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.