Dagblaðið - 12.08.1978, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978.
Brúökaupiö
íMonakó:
Faðirinn
grét
er
dóttirin
Fftir hrúðkaupið gengu brúðhjúmn um götur og tóku vid hamingjuóskum frá
íbúum Monakó.
gifti sig
F.ftir hatlðlega vlgslu var þessi mynd tekin af brúðhjónunum og foreldrum brúðarinnar.
Brúðkaupið í Monakó hefur ekki
verið neitt ýkja mikið í fréttum, þó svo
að um frægt fólk hafi verið að ræða.
Það er sjálfsagt móður brúðarinnar
að þakka, þar sem hún bannaði öllum
blaðamönnum aðgang að veizlunni.
Samt sem áður koma hér nokkrar
myndir úr veizlunni þó svo að langt sé
orðið síðan brúðkaupið var haldið.
Rainier fursti var með tárin i
augunum þegar dóttir hans Karólína
gifti sig Philippe Junot Fransmanni
sem er 17 árum eldri en hún sjálf.
Biskupinn sem gifti þau var sá sami og
gifti furstahjónin 19. apríl 1956. Hann
skírði lika Karólínu þann 3. mars
1957.
Yngri systir Karólínu, Stephanie,
sem er 13 ára, var í háhæluðum skóm 1
fyrsta sinn og heyrðist hún segja
„Þessir skór eyðileggja veizluna fyrir
mér, ég skal sko aldrei gifta mig."
Móðir hennar Grace leit til hennar
með svip er gaf til kynna að hún skyldi
hafa hljótt um sig.
Karólína Junot er 21 árs en maður
hennar Philippe Junot er 38 ára og
þykir mörgum aldursmunur þeirra
mikill. Eftir vigslunavar haldin heljar-
mikil veizla i höllinni. Maturinn var
einstakur og var dregið fram allt það
bezta úr hafinu, s.s. humar, skeldýr og
alls kyns fiskur, ásamt dýrindis
hvitvíni. Philippe dansaði brúðarvals-
inn við Karólínu og voru þau fyrst á
gólfið samkvæmt venju, síðan komu
Grace og Rainier furstahjón, því næst
foreldrar Philippes en þau hafa verið
skilin í 20 ár. Faðir hans er giftur í
þriðja sinn en eiginkonu hans var ekki
boðiðí veizluna.
Gestir fyrir utan fjölskylduna voru
fyrst og fremst vinir furstafrúarinnar
frá Hollywood og má þar nefna Frank
Sinatra og Gary Grant. Ava Gardner
og Gregory Peck sáust líka ásamt fleiri
kvikmyndastjörnum. Þrír frægir
afþökkuðu boðið um að koma og voru
það hinn frægi tennisleikari Svia,
Björn Borg, prins Bertil og prinsessa
Lilian. öllum íbúum Monakó var
boðið I veizluna þó svo að þeim hafi
ekki verið boðið í fínustu salarkynnin.
4500 manns mættu og eru það allir
ibúar staðarins.
Meðal beztu gjafa sem þau fengu
var skjal upp á að þau þyrftu ekki að
greiða skatt, kista lögð silfri og „antik"
stólar frá 17. öld. Eins og sjálfsagt
allir vita eyddu brúðhjónin hveiti-
brauðsdögunum á snekkju nálægt
Mallorca. Brúðguminn vildi bjóða
vinum sínum í brúðkaupið en fursta-
frúin Grace vildi enga „playboy"
drengi í brúðkaupið. Hvernig mun svo
hjónabandið ganga? Margir eru
forvitnir að vita það svo fengin var
spákona til að spá fyrir um það. Hún
segir:
Karólina er fædd 21. 1. 57 og
hún mun hafa það mjög gott. Philippe
er fæddur 19.4. 40 og hann á eftir að
elska margar stúlkur það sem eftir er
ævinnar. í hjónabandinu mun ýmis-
legt eiga eftir að ganga á. Og þá vituni
við það.
•'rank Sinatra og kona hans Barbara.
KviKmyndastjörnurnar Gary Grant og Ava
Gardner á leið til veizlunnar.
~m
Brúðhjónin, foreldrar brúðarinnar, brúðarmcyjar og systkini Karolinu.
15
\
Vi