Dagblaðið - 12.08.1978, Síða 24

Dagblaðið - 12.08.1978, Síða 24
Verkamannasambandið: Samstaða Alþýðuflokks og Alþýðubandalags er krafan — beinar viðræður hefjist strax „Framkvæmdastjórn Verkamanna- sambands tslands minnir á, að þeir tveir verkalýðsflokkar, sem voru í stjórnarandstöðu síðastliðið kjörtima- bil og börðust gegn kaupránslögum rikisstjórnarinnar, unnu stóra sigra í síðustu þingkosningum,” segir i tillögu sem samþykkt var í gær samhljóða. Tillögumenn voru þeir Guðmundur J. Guðmundsson og Karl Steinar Guðnason þingmaður (A). t samþykktinni telur stjórnin að fylgi þúsunda verkamanna hafi mót- azt af þessari afstöðu flokkanna. Hafi launþegar því veitt þeim atkvæði sín. Harmar framkvæmdastjórnin að þessir tveir flokkar skuli ekki bafa náð sameiginlegri afstöðu i stjórnarmynd- unarviðræðunum. Skorar stjórnin á þessa flokka að taka nú upp beinar viðræður sín i milli. Hefðu þær að sameiginlegu markmiði að tryggja kaupmátt tekna verkafólks, atvinnu- öryggi og félagslegar úrbætur fyrir þá sem minnst mega sín. Ekki skiptir öllu máli hvaða leiðir eru farnar að þessum markmiðum, ef þær leiða til réttrar niðurstöðu. Meðal annars minnir framkvæmdastjórnin á tilboð VMSÍ um gildistöku samning- anna. Krefst stjórnin þess að því verði tekið. Þannig fáist launajöfnuður meirienáður. Samstaða Alþýðuflokks og Alþýðu- bandalags er heillavænlegasta leiðin til þess að tryggja framgang baráttumála launþega. Loks er enn lögð áhersla á að flokk- arnir taki nú þegar upp beinar viðræð- ur. — BS 1 Kvartmflan, rúmir 400 metrar, verður sffellt vinsœHa fyrirbnri meflal sportmanna. Hér em tveir tilbúnir tfl afl spyma rfflega. — DB-mynd R.Th.Sig. Kvartmflubrautinni vex óðum fiskur um hrygg Óðum styttist nú i að keppnisbraut Kvartmíluklúbbsins verði tilbúin til notkunar. Vonir standa til þess að unnt verði að bera varanlegt slitlag á braulina inhan hálfs mánaðar og þá væntanlega að halda fyrstu opinberu kvartmílukeppnina í næsta mánuði. I gær var unnið við að aka grús I brautina, — síðasta ofaníburðinn áður en slitlagið verður lagt. Reyndar er enn eftir að vinna drjúgt verk í kringum keppnissvæðið. Bifreiðastæöi áhorfenda eru ekki tilbúin né heldur áhorfenda- stæðið sjálft. Ekki mun vera mikið verk að koma upp bráðabirgðastöðu, þar eð jarðvegurinn i kring er auðveidúr viðfangs. ÁT. Endalok loftbardaga yfir Ólafsvík: FÁLKINN FLAUG INN í STOFU en spörfuglinn siapp inn í svefnherbergi Það varð heldur betur uppi fótur og fit í ibúðinni á neðri hæð hússins við Stekkjarholt 7 í Ólafsvik i fyrradag, þegar húsmóðirin gekk þar fram á full- vaxinn fálka inni i stofu. Bróðir hennar, Aron Bcrgþórsson. búsettur á efri hæðinni. kom henni brátt til hjálpar, byrgði henducsínar sokkum og gómaði fálkann. Tómt fuglabúr var á staðnum og setti Aron fálkann þar inn til að skoða hann nánar. Gekk vel að góma fálkann og virtist hann vera lamaður af skelfingu. Eftir að í búrið var komið sá hann hinsvegar að engu var að tapa og tók að láta ófriðlega. Eftir nokkra stund sleppti Aron fálkanum, sem varð frelsinu feginn og flaug til nálægs fjalls, þar sem hann er talinn eiga hreiður. Fálkinn hafði skotizt inn um útidýr hússins, sem stóðu opnar á meðan húsmóðirin hafði brugðið sér út að lita eftir barni sinu. Ekki skildu þau systkini i fyrstu hvaða erindi fálkinn hefði átt þarna inn i stofu. Brátt kom þó skýringin á þvi í ljós er heyrðist til lítils spörfugls innan úr svefnherbergi. Kúrði hann þar lafhræddur eftir æðisgenginn flótta undan fálkanum sem heppnaðist með að stinga af inn i svefnherbergi. Leið þvi ekki á löngu þar til annar fugl flaug frelsinu feginn úr heimsókninni aðStekkjarholti 7. G.S. Vestfirzkir frystihúsamenn funda um ástandið: LÍKA TAP Á VESTFJÖRÐUM — 7 hús á Reykjavíkursvæðinu loka um mánaðarmótin „Húsin hér eru líka rekin með ein- hverju tapi nú og munu frystihúsaeig- endur funda um þetta ástand á næst- unni,” sagði Guðmundur Guðmunds- son stjórnarformaður Íshúsfélags ís- firðinga hf. í viðtali við DBI morgun. Afkoma vestfirzku húsanna hefur yfirleitt verið hvað bezt á landinu en nú er þar einnig orðið tap, skv. orðum Guðmundar. „Frystihúsin hafa verið rékin með svo stórfelldum halla á árinu aö þau geta ekki lengur staðið undir slíku tapi. Miðað við óbreyttar horfur er engin von að hægt sé að reka þau eftir næstu mánaðamót,” segir m.a. í yfir- lýsingu saminni á sameiginlegum fundi forsvarsmanna frystihúsa i Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi. Þar stöðvast eftirtalin 7 frystihús um næstu mánaðamót: Hraðfrysti- stöðin, Barðinn, ísbjörninn, Íshús Hafnarfjarðar, Kirkjusandur, Sjófang og Sjólastöðin. Hjá þessum fyrir- tækjum vinna um þúsund manns og um 200 sjómenn leggja þar reglulega upp. Útgerðarráð BÚR og BÚH hafa ekki komið saman til að taka afstöðu til þessa máls. Þá hafa frystihúsamenn á Norðurlandi eystra komið saman vegna þessa máls en þeir ákváðu ekki neinn sérstakan lokunardag þótt lókun sé þar fyrirsjáanleg við óbreytt ástand til frambúðar. G.S. frjálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978. Gísli Blöndal til Alþjóða- gjaldeyris- sjóðsins Dr. Gísli Blöndal hagsýslustjóri mun 1. nóvember nk. taka sæti varafulltrúa Norðurlanda í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og hefur fjár- málaráðherra veitt honum leyfi. Hefur ráðherra jafnframt sett Brynjólf I. Sigurðsson dósent við viðskiptadeild háskólans, hagsýslustjóra frá 1. sept. um tveggja og hálfs árs skeið ogveitthonumleyfifráH.Í. * Brynjólfur er fæddur 1. maí 1940, lauk viðskiptafræði frá HÍ 1965, stundaði rannsóknar- og kennslustörf við Verzlunarháskólann i Kaupmanna- höfn frá ’65 til ’68 og hefur starfað við viðskiptadeild HÍ, frá 1970 auk ýmissa stjórnunarstarfa á vegum skólans og annarra aðila. G.S. Keppni aldrei eins hörð — á íslandsmótinu í golfi sem lýkurídag Siðasta umferð íslandsmótsins í golfi fer fram i dag og um hádegið hefja meistaraflokksmennirnir keppni á Leirunni. Full ástæða er að leggja leið sina til Keflavíkur að sjá kappanna því aldrei áður hefur keppnin verið svona hörð. Staðan eftir 54 holur er þessi hjá þeim flokkum sem voru „komnir inn” þegar blaðið fór í prentun. Mfl. karla: Sigurður Hafsteinsson 227 Óskar Sæmundsson 229 Þorbjörn Kjærbo 230 Geir Svansson 230 Bjðrgvin Þorsteinsson 231 Gylfi Kristinsson 232 Hannes Eyvindsson 233 Sveinn Sigurbergsson 233 l.fl. karla: Gisli Sigurðsson 245 Viðar Þorsteinsson 248 Henning Bjarnason 253 Guðmundur Þórarinsson 253 Mfl. kvenna: Jóhanna Ingóifsdóttir 240 Sðlveig Þorsteinsdóttir 243 Jakobfna Guðlaugsdóttir 249 HBK. Ragnar komst ekki í úrslit Ragnar Ólafsson lék á 78 höggum i gær á Unglingameistaramóti Bretlands i golfi, sem nú er háð á Skotlandi. Fyrstu 18 holurnar á fimmtudag lék hann á 77 höggum. Samtals því 155 — og komst þvi ekki í úrslit keppninnar. Alls tóku 200 kylfingar þátt i keppninni — 40 þeir beztu leika til loka. Bezta skor eftir 36 holur í gær var 140. — hsím /$r Kaupið^t iS TÖLVUR, ISg QG TÖLVUUR »1 BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.