Dagblaðið - 25.08.1978, Síða 6

Dagblaðið - 25.08.1978, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1978. Til sölu fimm herbergja íbúð á 1. hæð í fjórbýlishúsi í Mosfellssveit. Hæðin skiptist i 3 svefnher- bergi, 2 stofur, eldhús, bað og geymslu. Einnig fylgir rúmgóð geymsla í kjallara, svo og hlut- deild í þvottahúsi og þurrkherbergi. Húsið er byggt úr timbri, járnvarið. íbúðin er laus nú þegar. Útb. 2.5—3 millj., sem má skiptast. Verð 8— 8.5 millj., hagstæð lán áhvílandi. BÓKHALDSÞJÓNUSTA BJARNA GARÐARSSONAR Austurstræti 7. Uppiýsingasími 82768. Skipsljóri óskast Vantar skipstjóra, 30—35 ára, þarf að hafa innsýn í dísilvél. Atvinna að sigla 70 feta, 50 tonna skútu í 10 mánuði, 2 mánaða frí á fullu kaupi. Siglt um Baltneska haf, Miðjarðarhaf og Korsíkuhaf. Þarf að geta byrjað strax til að fylgjast með smíði skipsins í Bretlandi. Upplýsingar í dag kl. 16 til 20 í herb. 430 Hótel Loftleiðum. Húsnæði — Heimili í Reykjavík Ég er 17 ára stúlka úr Reykjavík og óska eftir herbergi hjá góðu fólki helzt með börn. Heimilisaðstoð og barnagæzlu heitið. Ég er einstæð og þarfnast stuðnings og félagsskapar. Uppl. í síma 16568 eftir kl. 19. Au pair í Luxemburg Sænsk-þýzk hjón óska eftir að ráða íslenzka stúlku til heimilisstarfa í eitt ár. — Tvö börn, 6 og 8 ára. Ensku- eða þýzkukunnátta nauðsynleg. Flugfar Keflavík — Luxemburg — Keflavík verður greitt. Heimilisfang: HR. ERIK JOHANSON 3 RUE DE MÚNSBACK NIEDERAVEN, LUXEMBURG G.D. Dagblaðiö óskar eftir umboðsmönnum frá 1. septemberí Hveragerði Uppl. hjá umboðsmanni Ásdísi Stefáns- dóttur, sími 4328, eða á Dagblaðinu, s. 91-27022. Grindavík. Uppl. hjá umboðsmanni Valdísi Kri\t- insdóttur, sími 8022, eða á Dagblaðinu. s. 91-27022. BUBW ÍRSKIR ANGRA BRETA í ERLENDUM HERSTÖÐVUM átta sprengingar sama daginn — t jónið talið f jórðungur úr milljarði Um það bil fimm hundruð manns, þar á meðal konur og böm, voru í gær flutt i mikilli skyndingu á brott er mjög öflug sprengja fannst í bilaleigu- bifreið nærri brezkri herstöð í V- Þýzkalandi. Talið er að írskir þjóðernissinnar hafði verið þarna á ferðinni. Átta sprengjur. sem raktar hafa verið til þeirra, sprungu í her- stöðvum Breta - siðastliðinn fimmtudag. Samkvæmt frásögn talsmanns brezka hersins var sprengjan jafnvel rúmlega hundrað kílógrömm á þyngd og fannst hún af einskærri hend- ingu. Voru hermenn á venjulegri eftirlitsgöngu er þeim kom til hugar að líta i farangursgeymslu bifreiðarinnar sem stóð á bifreiðastæði innan her- stöðvarinnar. sem þó má aka inn á að vild. Sprengingarnar átta, sem taldareru verk irska þjóðernissinna, ollu tjóni sem jafngildir rúmlega fjórðungi úr milljarði króna. Aðeins einn særðist í sprengingunum. Var það kvenher- maður sem fékk glerbrot í fótinn. Brezka lögreglan sagði i gær að verið væri að yfirheyra mann sem stöðvaður hefði verið á Heathrow flug velli við komu frá Vestur-Þýzkalandi. Ekki hefur þó verið sannað að hann tengist á einhvern hátt sprengingun- um i Vestur-Þýzkalandi. Þessi mynd var tekin af Jomo Kenyatta er hann var kjörinn heiðursdoktor háskólans i Nair ibi i Kcnya.Kenyatta var ekki á þeirri skoðun að landsmönnum hans hentaði vestrænt lýðræðisskipulag. Aðeins einn flokkur var leyfður i landinu — flokkur Kenyatta. — Mikil óvissa er nú um hvaða maður geti tekið við af hinum gamla höfðingja og óttast sumir að órói og úpplausn geti skapazt i landinu. Panama: Skæruliðarnir komn- ir með fangana og hálfa milljón dollara Tuttugu og fimm borgarskæruliðar, sem hertóku þinghúsið i höfuðborg Mið- Ameriku-rikisins Nicaragua, komu flug- leiðis til Panama í gær. Með þeim voru félagar þeirra sem sleppt var úr fang- elsum að kröfu þeirra en þeir héldu hundruðum gísla í þinghúsinu. Hópurinn kom í tveim flugvélum sem ríkisstjórnir Panama og Venezuela lögðu til. „Við erum þmyttir og ætlum að hvila okkur en munum siðan halda áfrarn báráttunni gegn einræðisstjórninni i Nicaragua.” sagði talsmaður skæruliðanna i gærkvöldi. Að sögn talsmanna stjórnar Nicaragua er.j skæruliðarnir ekkert annað en kommúnistalýður sem er á mála hjá Kúbustjórn og hefur tekið við vopnum sinum i Costa Rica. Hafi stjórnin að lokum ákveðið að sleppa gislunum og afhenda skæruliðunum hálfa milljón dollara. Höfðu þeir krafizt tíu milljóna dollara. Skæruliðarnir hafa neitað því að þeir séu á neinn hátt á vegum Kúbu- stjórnarinnar. Segjast þeir aðeins vera Nicaraguamenn sem berjist fyrir bættum stjórnarháttum i föðurlandi sinu.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.